Morgunblaðið - 28.10.1989, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.10.1989, Qupperneq 19
18 MORGlJNBLAÐIÐ LAÓGARDAGUR 28. OKTÓBER 1989 JMttrgmiÞItiftife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Ljós kviknar í Framsóknar- flokknum Bör eða Palli einn í heiminum (Nokkrar staðreyndir um nýjan eftiahagsgrundvöll O.R.G.) * Aþeim átján árum sem Framsóknarflokkurinn hef- ur setið í ríkisstjórn síðan 1971 hefur hann oftar en einu sinni farið í gegnum sjálfan sig. Enn er ástæða til að minna á, að það var að tillögu Ólafs Jóhannes- sonar formanns Framsóknar- flokksins, sem heimild var veitt til að verðtryggja fjárskuldbind- ingar og eru lögin um það efni kennd við hann og kölluð Ólafs- lög. Nú er það helsta kappsmál eftirmanns Ólafs, Steingríms Hermannssonar, að afnema þessa verðtryggingu og tekur efnahagsnefnd þingflokks fram- sóknarmanna undir þá kröfu með formanni sínum. Hins vegar gengur álit nefndarinnar þvert á þá ætlan Steingríms að stjórna hér á landi með öðrum aðferðum en vestrænum og nú segist Ólaf- ur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra einnig vera á móti því. Hringsnúning fjármálaráð- herra verður ekki rætt um hér 'heldur álit þessarar fjögurra manna nefndar þingmanna Framsóknarflokksins, þeirra Stefáns Guðmundssonar, Alex- anders Stefánssonar, Ólafs Þ. Þórðarsonar og Guðmundar G. Þórarinssonar. Álitið sýnist í stuttu máli ganga þvert á margt af því, sem framsóknarmenn hafa hingað til haft í hávegum. Þar eru ýmsar tillögur, sem framsóknarmenn hafa gjaman kennt við örgustu fijálshyggju fram að þessu. Hugmyndir um fijáls kaup almennings og fyrirtækja á gjaldeyri vekja sérstaka athygli og einnig að þessum aðilum verði heimilað án afskipta ríkis- valdsins að taka lán erlendis enda séu þau án ríkisábyrgðar. íslendingum verði heimilt að kaupa verðbréf og fasteignir erlendis og eiga þar bankainni- stæður. Erlendum aðilum verði heimilað að fara með úr landinu fjármuni og yfirfæra íslenskar krónur í erlenda gjaldmiðla, enda sé sýnt fram á lögmæti viðskiptanna. Leggur nefndin til að sett verði skýr lög um eignir og atvinnurekstur útlendinga hérlendis. Kveðið verði á um að erlendir aðilar geti ekki eignast auðlindir íslands. Einnig er lagt til að sett verði lög um starfsemi erlendra fjármagnsþjónustufyr- irtækja hérlendis. Þeir sem fylgst hafa með yfir- lýsingum Páls Péturssonar for- manns þingflokks framsóknar- manna og Steingríms Her- mannssonar flokksformanns um fjármagnsflutninga á milli landa hljóta að draga þá ályktun, að erfitt verði fyrir þá að sam- þykkja að minnsta kosti þennan kafla í tillögu efnahagsnefndar þingflokksins. Raunar bendir ýmislegt til þess að nefndar- menn hafi kosið að gera tillögur sínar opinberar þar sem annars væri hætta á, að þeir Páll og Steingrímur myndu einfaldlega þegja þær í hel innan þing- flokksins. Tilurð efnahags- nefndarinnar má rekja til ágreinings meðal þingmanna framsóknar um ýmis meginat- riði í stjórn efnahagsmála. Talsmenn nútímalegra stjórn- arhátta í efnahagsmálum hljóta að álykta sem svo, að með þess- um tillögum hafi kviknað ljós í þingflokki framsóknar. Vegna Framsóknarflokksins höfum við á síðustu 18 árum dregist aftur úr í efnahagsstjórn. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri segir réttilega í Morgunblaðsviðtali í gær: „Við erum ennþá með meiri höft í gjaldeyrismálum en tíðkast í nokkru öðru landi í Vestur-Evrópu, og hér eru meiri styrkir til Iandbúnaðar og ríkis- afskipti af atvinnulífi en gerigur og gerist annars staðar. Það er okkur mikil nauðsyn, ef við eig- um ekki að einangrast efna- hagslega, hvort sem litið er til Evrópu eða Norður-Ameríku, að vera þátttakendur í þróuninni og draga úr þeim mun sem er nú fyrir hendi í þessum efnum. Það er sláandi munur á þeim sjónarmiðum sem maður verður var við annars staðar á Vestur- löndum og á íslandi. Hér er ennþá mikið deilt um hvort æskilegt sé að beita þeim hag- stjómartækjum sem þykja sjálf- sögð erlendis. Það hefur verið mín skoðun að við getum ekki beðið eftir því að leysa verð- bólguvandann fyrst áður en við tökum upp opnara hagkerfi, heldur sé opnun hagkerfisins og almennari markaðsbúskapur forsenda þess að við getum ráð- ið bót á þeim verðbólguvanda- málum sem við höfum átt við að glíma.“ Ef hugur fylgir máli hjá efna- hagsnefnd þingflokks fram- sóknarmanna og henni tekst að afla skoðunum sínum fylgis meirihluta í þingflokknum, yrði það merkur áfangi á leiðinni frá úreltum stjómarháttum. eftir Þorstein Pálsson Þegar fjármálaráðherra heldur ræður sínar minnir hann gjarnan á tvær þekktar sögupersónur. Það er eins og þar fari ýmist Palli einn í heiminum, sem átti alla peningana í bankanum þvf að þar var enginn annar en hann, eða Bör Börsson, sem hóf sig upp yfír sveitunga sína í Oldurdal á sinn sérstaka hátt. Þessar þtjár nafnkunnu persónur Ólafur Ragnar Grímsson, Palli einn í heiminum og Bör Börsson eiga það sameiginlegt að þeirra heimur er býsna óskyldur veruleika ann- arra. Eini munurinn er ef vill sá, að Palli litli vaknaði af draumi sírium og Bör karlinn klæddi sig í dulargerfi til þess að heyra hvað sveitungamir höfðu um hann að segja en íslenski fjármálaráðherr- ann sýnist ekki hafa neinn áhuga á að kynnast sinni eigin veröld. Um þessar mundir liggja fyrir ýmis þau gögn sem upplýsa eins og sagt er um stöðu og horfur í efnahagsmálum. Þjóðhagsáætlun er komin út, fjárlagafrumvarp hefur Námskeið fyrir sjálf- stæðis- konur Landssamband sjálfstæðis- kvenna og Hvöt gangast fyrir þriggja kvölda námskeiði fyrir konur 31. október til 2. nóvember nk. Á námskeiðinu verður kennd ræðumennska og fundarsköp, greinaskrif og fjallað verður um málefni Reykjavíkur. Þetta námskeið er ætlað konum sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á þessum sviðum og fá þjálfun í að tjá sig í ræðu og riti. Þetta námskeið er hugs- að sem byijun í námskeiðaröð sem ætlunin er að bjóða konum um allt land. Ætlunin er að laga þann þátt, er fjallar um málefni sveitarfélaga, að hvetjum stað og fá konur á heima- slóðum til að leiðbeina á þeim. Konur sem ætla að taka þátt í næstu borg- arstjómarkosningum eru sérstaklega hvattar til að vera með. Komin er út handbók Sjálfstæðis- flokksins og Saga Sjálfstæðisflokks- ins. Þátttakendum verður boðið að kaupa þessi rit á vægu verði. (Fréttatilkynning) Grafíksýning Tryggva Árna- sonar opnuð í List Gallerí Tryggvi Árnason, myndiistarmað- ur, opnar grafíksýningu laugar- daginn 28. október í sýningarsal sínum List galleríi í Einarsnesi 34. Á sýningunni verða 25 nýjar grafíkmyndir, bæði silkiþrykk og Collograph-myndir, en þær eru gerð- ar með nýrri tækni. Tryggvi hefur haldið nokkrar sýn- ingar á verkum sínum undanfarin ár, meðal annars á Kjarvalsstöðum 1983 og 1985, í Laxdalshúsi á Akur- e}TÍ, Kaupmannahöfn og Holstebro 1986, List galleríi 1987 auk þátttöku í samsýningum. Hann lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1983. Sýningin er opin frá kl. 14-20 daglega til 12. nóvember og er öllum heimill aðgangur. „Á árinu 1985 fór hlut- fall erlendra lána af landsframleiðslu upp í 51%. Á árunum 1986 og 1987 tókst á hinn bóg- inn að hagnýta bætt efhahagsskilyrði til að lækka þetta hutfall nið- ur í 40%. Á þessu ári fór þetta skuldahlutfall affcur upp í 50%. Og eins og fyrr segir stefiiir það í yfir 53% á næsta ári sem er hærra skulda- hlutfall en nokkru sinni fyrr hefiir þekkst.“ verið lagt fram og lánsfjárlög ríkis- stjórnarinnar hafa ennfremur verið birt. í þessum plöggum sjá menn ýmislegt um árangur og afleiðingar Stóra-Núpskirkja 80ára Geldingaholti. SUNNUDAGINN 29. október næstkomandi verður minnst 80 ára vígsluafmælis Stóra-Núps- kirkju. Eins og margir sem til þekkja minnast, fauk kirkjan á Stóra-Núpi á undan þessari í fárviðri sem gerði á milli jóla og nýárs árið 1908. Fljótt var hafist handa um byggingu nýrr- ar kirkju og var Rögnvaldur Ólafs- son, húsameistari, fenginn til að teikna kirkjuna. Tók hann mið af fomri kirkju sem staðið hafði á Stóra-Núpi og var rifin árið 1876. Var hún byggð í svonefndum út- brotastfl. Mjög var vandað til allrar gerðar nýju kirkjunnar og sá Gestur Einarsson á Hæli um framkvæmdir. Yfirsmiður var Bjami Jónsson frá Galtarfelli. Stefán Eiríksson prýddi hana með útskurði og Ásgrímur Jónsson, listmálari, réði litum í kirkj- unni og málaði altaristöflu sem er fagurt listaverk. Húsið var fullgert um haustið 1909 og kirkjan vígð 31. október það haust. Afmælishátíðin á sunnudaginn hefst með messu kl. 14. Sr. Guð- mundur Óli Ólafsson, prestur í Skál- holti, prédikar og kirkjukór Stóra- Núpskirkju syngur undir stjóm Steindórs Zophaníassonar, organ- ista. Einnig syngur Loftur Erlingsson frá Sandlæk einsöng. Að athöfn lokinni býður sóknar- nefndin kirkjugestum _ til kaffi- drykkju í félagsheimili Ámesi. Allir velunnarar kirkjunnar að fomu og nýju eru að sjálfsögðu vel- komnir. - Jón. stjórnarstefnu og breyttra ytri skil- yrðá' í þjóðarbúskapnum og hvert stefnir á næsta ári og næstu ámm. Raungengi breytt of seint Stjómarslitin haustið 1988 urðu fyrst og fremst vegna þess að sjálf- stæðismenn vildu þá breyta gengi krónunnar til þess að rétta við rekstur útflutningsframleiðslunnar. Það máttu Framsóknarmenn og Alþýðuflokksmenn ekki heyra nefnt. Þá var gengisbreytingum með öllu hafnað. I allan fyrra vetur sættu sjálfstæðismenn stöðugum árásum frá þessum tveimur fyrri samstarfsflokkum og forystu Al- þýðubandalagsins fyrir það að vilja breyta raungengi krónunnar í þágu útflutningsatvinnuveganna. En það kom að því að ríkisstjórnin varð að láta undan og hún hefur nú breytt genginu talsvert, einkum á síðari hluta þessa árs. Fyrir þá sök hefur staða frysting- arinnar batnað nokkuð. Á það er þó að líta, að enn er verið að greiða 3% uppbætur þannig að eiginlegur rekstur frystingarinnar er enn með Opinber fyrirlest- ur í félagsvísinda- deild DR. URI Davis flytur opinberan fyrirlestur í boði félagsvísinda- deildar mánudaginn 30. október og hefst hann klukkan 17.15 í stofu 101 í Odda. Dr. Davis hefur kennt við ýmsa háskóla, síðast háskólann í Exeter og hefur enn tengsl við þann skóla (Honors research Fellow). Nú er hann forstöðumaður ráðgjafarstofn- unnar „The Jerusalem and Peace Service". Dr. Davis hefur skrifað fjölda greina og bóka. Fyrirlesturinn nefnist: „The Israeli Palestinian Conflict: Possibilites for a Peacful Solution based on Principles of West- ern Democracy." Hann verður fluttur á ensku og er öllum heimill aðgangur. Stoftifiindur Landssamtaka kapalkerfa LANDSSAMTÖK kapalkerfa verða stofnuð á fundi sem haldinn verður á Holiday Inn í dag, laugar- dag, kl. 14. I fréttatilkynningu frá undirbúningsnefnd segir að tilgangurinn með stofnun samtak- anna sé að berjast fyrir hinum ýmsu hagsmunamálum tengdum kapalkerfum og gervihnattamót- töku, en lög og reglugerðir hér á landi hafi ekki fylgt eftir hraðri þróun í fjölmiðlun, og því ríki ófremdarástand í þeim málum sem ekki verði við unað lengur. Þróun kapalkerfa hefur verið mjög Morgunblaðið/Ólafur Jónsson Stóra-Núpskirkja sem reist var árið 1909 og íbúðarhús séra Valdimars Briem, sem reist var árið 1897. Geldingaholt: MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28UOKTÓBER 1989 Þorsteinn Pálsson halla og ýmsar aðrar greinar sjávar- útvegsins beijast nú við mikinn hallarekstur. En á vissan hátt hafa stjómar- flökkarnir tekið tillit til kröfu Sjálf- stæðisflokksins um gengisbreyt- ingu. En ljóst er að miklu farsælla hefði verið að taka þær ákvarðanir strax haustið 1988. Þá hefðum við komist af með minni gengisbreyt- ingu, bætt stöðu sjávarútvegsins með raunvemlegum aðgerðum og væmm að vinna okkur út úr erfið- leikunum í stað þess að við emm nú að sigla inn í meiri erfiðleika. Steingrímur viðurkennir í stefnuræðu sinni síðastliðinn mánudag viðurkenndi Steingrímur ör hér á landi undanfarin ár, og víða um land hafa verið sett upp kapal- kerfi til dreifingar á sjónvarps- og útvarpsefni. Þau verkefni sem bíða Landssamtaka kapalkerfa em að stuðla að tilkomu raunhæfrar laga- setningar, auk þess að beita sér fyr- ir fræðslu og kynningu á kapalkerf- um. Þá er fyrirhugað að samtökin komi fram fyrir hönd rekstraraðila kapalkerfa gagnvart hinu opinbera. Meðlimir samtakanna geta þeir orðið sem hafa með höndum rekstur kapal- kerfís, hvort heldur sem um er að ræða fjölbýlishús, samtengingu inn- an hverfis eða heilt bæjarfélag, og áskilið er að um formlegan rekstur sé að ræða. Einnig geta ýmsir hags- munaaðilar og áhugamenn um kapal- kerfl og gervihnattasjónvarp fengið aðild að samtökunum. Biblíuskólinn á Eyjólfsstöð- um kynntur almenningi I september síðastliðnum tók til starfa biblíuskóli að Eyjólfsstöðum á Fljótsdalshéraði. Skólinn er rek- inn af samtökunum Ungu fólki með hlutverk, sem eru starfssam- tök innan íslensku þjóðkirkjunnar. Markmið skólans er að þjálfa fólk, bæði leika og lærða, til virkrar þátttöku i kristilegu starfi. Skól- inn mun bjóða upp á lengri og skemmri námskeið ýmist um al- menn efni kristinnar trúar eða sérhæfðari þætti. Nú stendur yfir 5 mánaða nám- skeið. Fyrstu þremur mánuðunum verður varið til bóklegrar kennslu og síðustu tveimur til verklegrar þjálfunar í safnaðarstarfi. Sunnudaginn 29. október verður kynningardagur á starfsemi skólans og starfi Ungs fólks með hlutverk á Austurlandi. Húsakynni skólans verða opnuð almenningi milli kl. 14 og 18 og starfsemin kynnt í máli, myndum og ýmsum uppákomum. Um kvöldið verður síðan almenn samkoma í skólanum, sem hefst kl. 20.30. í tengslum við opna húsið verður námskeið þann 28. október, um hjónabandið og fjölskyldulífið. Það verður haldið í Egilsstaðakirkju og er öllum opið. Fyrirlesari verður norski fjölskylduráðgjafinn Eivind Fröen. Hermannsson í raun og vem í hvert óefni stefnir því að þar kom fram, að atvinnuleysi færi nú vaxandi og horfur væru á að það myndi aukast á næsta ári. Hann viðurkenndi að erlendar skuldir væru vaxandi og kaupmáttur almennings héldi áfram að minnka til muna ofan á þá kaupmáttarskerðingu sem orðið hefur á þessu ári. Allir talsmenn stjórnarflokkanna viðurkenna þess- ar staðreyndir nema íjármálaráð- herrann sem dregið hefur upp þá mynd, að nú séu runnir upp nýir tímar, nú búi íslendingar á nýjum efnahagsgrundvelli, allt sé með besta móti í þjóðarbúskapnum og smjör dijúpi af hveiju strái. Þegar litið er á fjárlagafrum- varpið kemur í ljós að þar eru marg- ir þverbrestir og augljóst að áætlan- ir þess munu ekki standast fremur en íjárlög þessa árs. Þau voru sam- þykkt eins og menn muna með yfir- lýsingum um að í fyrsta sinn hefðu hin fullkomnu fjárlög verið úr garði gerð. Raunveruleikinn er hins vegar sá að hallinn verður væntanlega nær 5 milljörðum króna eftir 7 milljarða skattahækkun. Sérfræðingar telja nú líklegt að til viðbótar þeim halla sem ijárlaga- frumvarpið fyrir 1990 gerir ráð fyrir megi reikna með allt 4 mill- jörðum króna. Hallinn yrði þá sjö milljarðar króna á næsta ári eða 2% af landsframleiðslu. Vaxandi útgjöld og halli Þegar litið er á þessar tölur má ljóst vera að fjárlagahallinn fer vaxandi á nýjan leik. Á árunum 1986 og 1987 var hann 1,2 og 1,3% af landsframleiðslu en eins og kunn- ugt er var þá verið að lækka skatta. Per Waldheim Harriet Percy Einsöngstónleik- ar í Norræna hús- inu TVEIR sænskir tónlistarmenn ' halda tónleika í Norræna húsinu, sunnudaginn 29. október klukkan 17. Tónlistarmennimir sænsku eru tenórsöngvarinn Per Waldheim og píanóleikarinn Harriet Percy. Á efn- isskránni eru sönglög eftir Grieg, Sibelius, Nordqvist, Rangström, Sjö- gren, Brahms, Schubert, Rossini, Mascagni og fleiri tónskáld. Per Waldheim er fæddur 1948. Hann stundaði _ söngnám jafnhliða hagfræðinámi. Árið 1972 var hann ráðinn við Borgarleikhúsið í Malmö og frá 1977 hefur hann sungið við Konunglegu óperuna í Stokkhólmi. Per Waldheim hefur haldið tón- leika víða í Svíþjóð, m.a. í kirkjum og í Noregi og í Bandaríkjunum. Samstarf þeirra Harriet Percy hefur varað í tólf ár. Hún stundaði píanó- nám m.a. hjá de Frumerie. Hún hefur leikið bæði með hljóm- sveitum, kammersveitum og haldið einleikstónleika. Þau eru að koma úr hljómleikaferðalagi um Banda- ríkin að þessu sinni og halda aðeins þessa einu tónleika hér. Aðgöngumiðar verða seldir við innanginn. 36. Sambands- þing UMFÍ haldið um helgina DAGANA 28.-29. október verður haldið 36. Sambandsþing Ung- mennafélags íslands i Hlégarði, Mosfellsbæ. Það hefstá laugar- dagsmorgni klukkan 9 og stendur til klukkan 18 á sunnudag. Á þinginu verður m.a. kjörin ný stjóm UMFÍ til næstu tveggja ára. Ilann fór síðan í 2,8% 1988 og er áætlaður 1,6% á þessu ári. Augljóst er að hallinn mun vaxa á næsta ári vegna rekstrarþenslunnar í fjár- lagafrumvarpinu. Þetta gerist þrátt fyrir þær gífurlegu skattahækkanir sem urðu í ár og boðaðar hafa ver- ið fyrir næsta ár. Þióðhagsstofnun greinir frá því að útgjöld ríkissjóð hafi á árunum 1980 til 1987 verið nokkúð stöðug eða um 26% af landsframleiðslu. En á árunum 1988 og 1989 hafi útgjöldin farið upp í 29% af lands- framleiðslu. Veruleg breyting hefur orðið að því varðar erlendar lántökur á þessu ári og samkvæmt lánsfjárlögum stefnir ríkisstjórnin að því að auka enn við erlendar lántökur á næsta ári' og það svo mjög að erlend lán verða þá komin í hæsta hlutfall af þjóðarframleiðslu sem sögur fara af eða 53,1%. Þetta eru athygli verðar en um margt óhugnanlegar tölur. Nýtt skuldamet Á árinu 1985 fór hlutfall er- lendra lána af landsframleiðslu upp í 51%. Á árunum 1986 og 1987 tókst á hinn bóginn að hagnýta bætt efnahagsskilyrði til að lækka þetta hutfall niður í 40%. Á þessu ári fór þetta skuldahlutfall aftur upp í 50%. Og eins og fyrr segir stefnir það í yfir 53% á næsta ári sem er hærra skuldahlutfall en nokkru sinni fyrr hefur þekkst. Á árinu 1985 fóm um 20% af útflutningstekjum landsmanna í að greiða niður erlendar skuldir. Þetta hlutfall var komið niður í 16% árið 1987. En lántökustefna núverandi ríkisstjórnar eins og hún kemur Þá verða einnig tilkynnt úrslit í hug- myndasamkeppni sem UMFÍ efndi til um skipulag og notkun Þrastar- skógar i Grímsnesi sem er í eigu ungmennafélaganna. Ákvörðun um þessa samkeppni var tekin á síðasta þíngi UMFÍ fyrir 2 árum. Alls bárust 14 tillögur, sér- stök dómnefnd hefur skoðað tillög- urnar og valið úr þijár þær bestu til sérstakrar viðurkenningar. Úrslit í þessari samkeppni verða tilkynnt á þinginu klukkan 15 á laugardegin- um. Þijú ný félög óska nú eftir beinni aðild að UMFÍ; Ungmennafélag Ak- ureyrar, Ungmennafélagið Fjölnir í Grafarvogi og Ungmennafélagið Óðinn í Vestmannaeyjum. Með aðild þeirra að UMFÍ yrðu félög innan samtakanna orðin alls 240 með um 39 þúsund félagsmenn. Innan UMFÍ eru nú 19 héraðssam- bönd með 230 félög innan sinna vé- banda og 7 félög með beina aðild að UMFI. Meðal annarra mála sem tekin verða fyrir á þinginu er 20. landsmót UMFÍ sem haldið verður í Mosfellsbæ á næsta sumri. Norræna ferða- skrifstofan efnir til ferðakynning- ar NORRÆNA ferðaskrifstofan efnlr til ferðakynningar í salarkynnum Mannþings, Borgartúni 18, sunnu- dagskvöldið 29. október klukkan 21. Helsti tilgangurinn með þessu er að kynna nýjungar í starfsemi ferða- skrifstofunnar og þá staði erlendis sem hún hefur upp á að bjóða um- fram aðrar ferðaskrifstofur. Má þar t.d. nefna borgirnar Búdapest í Ung- veijalandi og Prag í Tékkóslóvakíu. Þessar borgir og fleira verður ræki- lega kynnt í máli, myndum og músík og vérður fólki gefinn kostur á að kynna sér nánar rekstur ferðaskrif- stofunnar, sé þess óskað. Hljómsveit André Bachmanns mun leika á milli atriða og kynna nýútkomna hljómplötu söngvarans. Ýmislegt annað verður til skemmtun- ar, boðið verður upp á veitingar og verður aðgangur ókeypis meðan hús- rúm leyfir. Norræna ferðaskrifstofan hefur nú verið starfrækt í eitt ár í tengslum við færeysku feijuna Norrönu. Hun hefur aðsetur á Laugavegi 3 og fram- fram í lánsfjárlögum hefur það í för með sér að þetta hlutfall fer yfir 20% á næsta ári. 1 nýútkomnum hagtölum mánað- arins, sem Seðlabanki íslands gefur út, kemur fram að viðskiptahallinn á árinu 1989 verði í heild-8,7 millj- arðar króna sem svarar til 8% af áætluðum útflutningstekjum og um það bil 3% af landsframleiðslu. Þetta þýðir að mati Seðlabankans að viðskiptahallinn verði mun meiri á síðari helmingi ársins en þeim fýrri. Við búum sem sagt við þær aðstæður nú að viðskiptahalli fer vaxandi á nýjan leik. Verðbólgan meiri Þegar ríkisstjóm Sjálfstæðis- flokksins fór frá völdum var verð- bólgan miðað við 3 síðustu mánuði 13%. Réttu ári síðar Stendur ríkis- stjórn Steingríms Hermannssonar í þeim spomm að verðbólgan mæld á sama mælikvarða er rúmlega 23%. Á árinu 1988 var verðbólga á öllu árinu frá upphafi til loka 20% en á sama mælikvarða á þessu ári 25%. Ef ekki er reiknað með meiri kaupmáttarskerðingu en um það bil 5% á næsta ári má vænta þess að verðbólgan verði svipuð og á þessu ári. Með öðmm orðum: Við búum nú við meiri verðbólgu en áður og fremur vaxandi en hitt. Og þá er þess að geta að atvinnu- leysi er þrefalt meira en það var í tíð ríkisstjómar Sjálfstæðisflokks- ins. í nýju fréttabréfi Samvinnubank- ans kemur fram að raunávöxtun á skuldabréfum í bönkum og spari- sjóðum er 'frá 7 til 8%. Þar segir einnig að raunávöxtun skuldabréfa kvæmdastjóri hennar er Emil Om Kristjánsson. (Fréttatilkynning) Sýnir listmuni unna í leir á Kjarvalsstöðum KRISTÍN ísleifedóttir opnar laug- ardaginn 28. október klukkan 14 sýningu á verkum sínum í vestur- forsal Kjarvalsstaða. Á sýningunni verða u.þ.b. 80 skál- ar, vasar og ílát, sem unnin hafa verið í leir á síðastliðnum tveim ámm. Form verkanna em í flestum tilfell- um tilvísun til hluta, sem ekki hafa verið notaðir í daglegu lífi. Kristín fæddist í Reykjavík 1952. Hún útskrifaðist frá Listiðnar- og hönnunardeild Tókýó Designers Col- lege 1979. Hún hefur haldið einka- sýningar í Reykjavík og Tókýó og tekið þátt í samsýningum á íslandi, Norðurlöndum, Ítalíu og Japan. Sýningin er opin alla daga frá klukkan 11-18 og stendur til 12. nóvember. (Fréttatilkynning) JC-dagurinn: Skemmtun haldin á Eiðistorgi „BÚUM börnum betri framtíð" er yfirskrift JC-dagsins sem haldinn verður hátfðlegur laugardaginn 28. október. I tilefni af JC-deginum, munu JC-félögin í Reykjavík og á Seltjam- arnesi halda skemmtun á Eiðistorgi, Seltjamamesi, I samstarfi við Krísuvíkursamtökin. Boðið verður upp á fjölbreytta skemmtun en hún hefst kl. 14 með ávarpi forseta bæjarstjórnar Sel- tjamamess, Guðmars Magnússonar. Þeir sem koma fram verða: Barna- kór Hvassaleitisskóla, Takk dúettinn — söngur, Magnús Kjartansson, Börn í Krossinum kynna plötu sína, stúlkur í Fimleikafélaginu Gerplu sýna fimleika, Fræðsluerindi verða flutt, Sniglamir verða á staðnum og ávörp munu flytja Óli Þ. Guðbjarts- son, ráðherra, Halldór Leví frá JC ísland og Sigurlín Davíðsdóttir frá Krísuvíkursamtökunum. 19 fjármögnunarleigufyrirtækja sé frá 9 og upp í 10% og hjá fjárfestinga- lánasjóðum sé raunávöxtunin frá 6% í Iðnlánasjóði upp í 9% hjá Sam- vinnusjóði íslands hf. Ennfremur kemur fram að sveitarfélög selja * nú skuldabréf með allt að 11% árs- ávöxtun og fasteignatryggð skulda- bréf gefa af sér 10 til 15% og loks kemur þar fram að skuldabréf at- vinnutryggingasjóðs gefa af sér 8—8,25% raunávöxtun. Allt em þetta fróðlegar tölur um árangurinn af handaflsstýringu á vaxtamark- aðinum. Veruleiki í stað ímyndunar Niðurstaðan er þessi: • í fyrsta lagi stefnir í vaxandi íjárlagahalla. • I öðm lagi reiknar ríkisstjómin t með að slá íslandsmet í erlendri skuldasöfnun á næsta ári. • í þriðja lagi hefur viðskiptahalli farið vaxandi á síðari hluta þessa árs. • I fjórða lagi er nú meiri verð- bólga en þegar ríkisstjóm Sjálf- stæðisflokksins fór frá. • í fimmta lagi er nú þrefallt meira atvinnuleysi en í tíð fyrri ríkisstjórnar. • í sjötta lagi stefnir ríkisstjómin að 5% kaupmáttarrýmun ofaná 8% rýrnun á þessu ári. • í sjöunda lagi er raunávöxtun skuldabréfa frá 7 og upp í 15% þrátt fyrir handaflsstýringu. Þetta er hinn nýi efnahagsgrund- völlur þeirra sem ekki lifa í draumi Palla sem var einn í heiminum eða krambúð Börs í Öldurdal. Höfundur erformaður Sjálfstædisflokksins. Bæklingi til kynningar á JC-degin- um og kjörorði hans verður dreift til 4. og 5. bekkjar gmnnskólanna í Reykjavík og á Seltjarnamesi. Dagskránni lýkur kl. 16. Bókasaftisfræði- nemar þinga SAMNORRÆN ráðstefna bóka- safiisfræðinema er haldin í Odda, húsi Félagsvísindadeildar Háskóla íslands, dagana 27.-30. október. Umsjón með ráðstefnunni hefur Félag bókasaftisfræðinema við Háskóla íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefhan er haldin hér- lendis. Þátttakendur eru 52 og þar af 44 frá hinum Norðurlöndunum. Umræðuefni ráðstefnunnar er: Siðfræði bóksasafnsfræðinnar og gjaldtaka fyrir bókasafnsþjónustu. Fjrirlestra halda: Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir, dósent í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands. Dr. Mikael M. Karlsson, dósent í heimspeki við Háskóla íslands. Anna Torfadóttir, bókasafnsfræðingur á Borgarbókasafni Reykjavíkur, Rósa Jónsdóttir, bókasafnsfræðingur á Bókasafni Landspítalans. Akurnesingar messa í Dóm- kirkjunni DÓMKIRKJAN fær góða gesti í heimsókn á morgun. Það eru sókn- arprestur, kirkjukór og organisti Akraneskirkju og munu þau ann- ast messugjörðina í Dómkirkjunni á morgun, sunnudag 29. október, klukkan 14. Sr. Bjöm Jónsson, sóknarprestur á Akranesi, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Akraneskirkju syngur, en í kómum em 45 manns. Söngstjóri og organleikari er Einar Örn Einars- son. Auk þess syngur Guðrún Ellerts- dóttir einsöng í messunni og Gunnar Kristmannsson leikur á klarinett og Þóroddur Bjamason á trompet. Forráðamenn Dómkirkjunnar vilja hvetja safnaðarfólk til að fjölmenna til kirkju og bjóða Akurnesinga þann- ig hjartanlega velkomna og njóta fagurrar tónlistar og taka þátt í til- beiðslunni. Einnig verður að venju messa klukkan 11 árdegis og hana annast sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. - Frá Dómkirlyunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.