Morgunblaðið - 28.10.1989, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAffGARDAGUR 28. OKTOBEH
22. lands-
þing NLFÍ
Náttúrulækningafélag Is-
lands, NLFÍ, heldur 22. lands-
þing sitt helgina 28.-29. október
nk. Þingstaður er heilsuhæli fé-
lagsins í Hveragerði.
Þingið sækja fulltrúar hinna
tveggja aðildarfélaga NLFÍ, þ.e.
frá Náttúrulækningafélagi
Reykjavíkur, NLFR, og Náttúru-
lækningafélagi Akureyrar, NLFA,
auk stjórnarmanna í NLFI og gesta
sem boðið hefur verið að sitja þing-
ið. Helstu mál þingsins verða auk
hefðbundinna þingstarfa félags-
mál, heilsuhæli NLFÍ, manneldis-
mál, tímaritið Heilsuvernd ogjörðin
og húseignin Sogn.
Úr myndinni „Á fleygiferð" sem
Bíóhöllin hefúr tekið til sýninga.
Bíóhöllin:
„Á fleygiferð“
Bióhöllin sýnir _ um þessar
mundir myndina „Á fleygiferð"
þar sem John Candy og Donna
Dixon eru meðal leikenda. Leik-
stjóri er Jim Drake.
Það er mikið um að vera í Wash-
ington, því framundan er Cannon-
ball-keppnin sem er nær 5000 km
langur kappakstur. Mörg óvænt
atvik gerast hjá keppendum og lög-
reglustjórinn sker upp herör gegn
þeim til að hindra keppnina.
Fyrirlestur um
heimsmynd nú-
tímans
HIÐ íslenska náttúrufræðifélag
gengst fyrir fyrirlestri nk.
mánudagskvld.
Þá fy'allar Einar H. Guðmunds-
son stjarnfræðingur um nýja
heimsmynd nútímans. Einar mun
ræða stöðu jarðar í veröld vetrar-
brautanna, en fjalla sérstaklega um
„kenninguna um heitan miklahvell"
og þær tilgátur og athuganir sem
hún byggir á, s.s. útþenslu al-
heimsins og örbylgjukliðinn.
Fyrirlesturinn, sem er öllum op-
inn, verður í stofu 101 í Odda og
hefst kl. 20.30.
Opinn fundur
með ráðherrum
Alþýðubanda-
lagsins
Alþýðubandalagsfélag Garða-
bæjar og Bessastaðahrepps
stendur fyrir opnum fundi með
ráðherrum flokksins mánudag-
inn 30. október kl. 20.30.
Fundurinn verður í safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ.
Ráðherrarnir munu flytja örstuttar
framsöguræður og svara síðan fyr-
irspurnum fundarmanna. Fundur-
inn er öllum opinn.
Leiðrétting
í fréttatilkynningu frá Almenna
bókafélaginu vegna útgáfu barna-
bókarinnar Drekasögu eftir Iðunni
Steinsdóttur með teikningum Búa
Kristjánssonar, er birtist í Morgun-
blaðinu í gær, föstudag, var sagt
að Bernard Scudder hefði snúið
íslenska textanum yfir á ensku í
enskri útgáfu bókarinnar, The
Good Dragon. Hið rétta er að Ing-
ólfur Steinsson þýddi textann yfir
á ensku en Bernard Scudder annað-
ist lokafrágang textans. Eru hlut-
aðeigendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Þegar kemur að
afborgunum lána er þ
í þínum höndum
borga á réttum tíma
aöí húsnæðíslána
nov.
16. nóv. leggjast dráttarvextír á lán'með lánskjaravísítölu.
1. des. leggjast dráttarvextír á lán með byggíngarvísítölu.
Gjalddagar húsnæðislána eru: 1. febrúar - 1. maí - 1. ágúst - 1. nóvember.
Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins eínn.
Greíðsluseðlar íyrir 1. nóv. hafa verið sendir gjaldendum og greíðslur
má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins.
Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum.
Óh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900
reksturinn á þínu heimili
SYpflbékk1 'Z'
Þar með sparar þú óþarfa
útgjöld vegna dráttar-
vaxta, svo ekki sé minnst
á innheimtukostnað.
ÞÚ SKIPULEGGUR
Tríó Guðmundar
Ingólfssonar
leikur 1 Heita
pottinum
JASSTRÍÓ Guðmundar Ingólfs-
sonar leikur í Heita pottínum í
Duus-húsi annað kvöld, sunnudag.
Gestir tríósins verða Stefán Stef-
ánsson saxófónleikari, Gunnar
Hrafnsson bassaleikari, Guðmund-
ur Steingrímsson trommuleikari og
fleiri.
Húsið verður opnað kl. 22.00.
(Fréttatilkynning)
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulínan: 99 1002.
TPIöfóar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
ptnrutmMofrifo