Morgunblaðið - 28.10.1989, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTOBER 1989
mmmn
^Konurn fínnstgott ab fcC sér
Sprett cx eftir póstinum."
Ást er...
. að svífa um loftin blá.
TM Reg. U.S. Pat Off.— all riflhts reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Gerðu mér bjarnar-
greiða...
mánudaginn kemur frá
skattrannsóknardeildinni___
HÖGNI HREKKVÍSI
h/ :
■A\
„ HÖLPUM OKKTUR VIP PAB> AÐ LETTA AÐ
KÚLUNNI !"
Þessir hringdu ..
Hvað um
rannsóknarréttinn?
Ami Freyr Sigurlaugsson -
hringdi:
„Sr. Jón Habets ritar grein um
trúmál í Velvakanda 26. október
þar sem stendur orðrétt. „Undir
öruggri stjórn þessara skipstjóra
(postula og biskupa) hefur fari
kirkjunnar verið farsællega stýrt
gegn gegnum brotsjói nítján alda
samkvæmt orðum Jesú í Mt.
28,20. Mig langar að spyija Sr.
Jón Habets hvort krossferðirnar,
spænski rannsóknarrétturinn,
galdraofsóknir, sala aflátsbréfa
og fleiri verk kirkjunnar í þessum
dúr falli undir þessa fullyrðingu
hans.“
Skjár
Kona hringdi:
„I þættinum Fólkið í landinu
fyrir nokkru voru einhverjir menn
að velta því fyrir sér hvað orðið
„skjár“ þýddi. Ég hélt að flestir
vissu að það skjár þýðir gluggi.“
Lyklakippa
Lyklákippa á brúnu refaskotti
tapaðist fyrir utan Litaver fyrir
nokkru. Finnandi er vinsamlegst
beðinn að hringja í síma 685575.
Hringur
Gullhringur með steinum var
tekinn í Þjóðleikhúskjallaranum
sl. laugardag. Um er að ræða
fornan ættargrip. Vinsamlegast
hringið í síma 42878 ef hringurinn
hefur komið í leitirnar.
Látið vita
Ég vil beina því til bílstjóra að
þeir láti vita ef þeir verða fyrir
því að keyra yfir dýr ef þau eru
merkt. Ef dýrin slasast verður að
sjá til þess að þau séu aflífuð svo
þau skríði ekki einhvers staðar í
skjól og krókni úr kulda. Það er
napurlegt til þess að vita_ hversu
illa er farið með dýrin. Ég varð
fyrir því nýlega að ekið var yfír
kettling sem ég var með. Nú óska
ég eftir fallegum kettling en
síminn hjá mér er 656121.
Góðir útvarpsþættir
Hlustandi hrindi:
„Ég vil þakka Pétri Péturssyni
fyrir dásamlega þætti sem hann
er með á laugardagsmorgnum,
Góðan daginn, góðir hlustendur.
Pétur hefur einstakt lag á að velja
góð lög. Það var mjög gaman að
heyra Pétur lesa ur Ævisögu Árna
Þórarinssonar. Ég hef verið að
velta því fyrir mér hvort Pétur
væri ekki fáanlegur til að lesa
Spítalalíf eftir Guðmund Daníels-
son sem miðdegissögu. Miðdegis-
sögurnar hafa verið fremur slapp-
ar undanfarið en það yrði örugg-
lega gaman að heyra Pétur lesa
þessa sögu.“
Hátíðnifælur
Katrín hringdi:
„Fyrir nokkrum áram sá ég
auglýstar hátíðnifælur sem áttu
að fæla í burt mýs og ef til vill
fleiri dýr. Langar mig til að spyij-
ast fyrir um hvort þær séu ein-
hvers staðar fáanlegar."
Tveir kettlingar
Tveir kettlingar, báðir svartir
með hvíta bringu og hvítar hosur
en annar með hvíta rönd í fési,
fundust í Vesturbænum og við
Dómkirkjuna. Upplýsingar í síma
29957 og 14710.
Úlpa
Dökkblá og græn Steffensúlpa
fannst við við Hjallabraut í Hafn-
arfirði. Þá fannst kasettutaska við
Landsspílann fyrir nokkru. Upp-
lýsingar í síma 53134.
Taska
Ung heyrnarlaus stúlka varð
fyrir því óhappi er hún var í Fé-
lagsheymili heyrnarlausra að
Klapparstíg 28 hinn 19. október
að skólataskan hennar var tekin
ófijálsri hendi. Þetta er tilfinnan-
legt fyrir stúlkuna þar sem hún
var búin að hafa mikið fyrir bók-
unum sem í töskunni vora. Sá sem
töskuna tók getur ekki haft gagn
af þessum bókum og er vinsam-
legast beðinn að skila henni sem
fyrst á skrifstofu Félags heyrnar-
lausra að Klapparstíg 28 eða í
heimavist Heyrnleysingjaskólans
við Vesturhlíð.
Köttur
Brún- og svartbröndóttur fress-
köttur með hvítar bringu, trýni
og loppur, er búinn að vera í óskil-
um í Nökkvavogi í tvo mánuði,
Nökkvavogi. Upplýsingar í síma
32188.
Liðlegheit strætisvagnabílstjóra
Til Velvakanda.
Það var þriðjudaginn 17. október
khikkan hálf fimm að ég tók Haga-
vagninn á Dunhaganum og fór með
honum niður í miðbæ. Ég varð var
við að lítill drengur, svona 5-6 ára,
var í vagninum og virtist í hálfgerð-
um vandræðum. Kona, sem var
farþegi þarna einnig og hafði tekið
eftir drengnum, hafði orð á því við
vagnstjórann að drengurinn hefði
líklga farið vagnvillt því hann ætti
Víkverji
Fyrir skömmu ræddi Víkveiji um
þá breytingu sem orðin er á
þörf fyrir öldungadeildir; þörfín sem
áður var knýjandi á menntaskólastigi
er nú á háskólastigi. Víkveiji var
varla búinn að sleppa orðinu þegar
endurmenntunardeild Háskóla Is-
lands kynnti nýja möguleika á öld-
ungadeildamámi við háskólann.
Námið verður hægt að stunda með
vinnu og fyrsta námsbrautin með
þessum hætti verður á sviði við-
skipta- og hagfræði. Víkveiji er þess
fullviss að ásókn í þetta nám verður
mikil og ekki verður hægt að anna
eftirspum fyrst í stað. Ef svo fer að
stjómendur endurmenntunar við há-
skólann skynja slíkan þrýsting er
Víkveiji þess viss að framhaldsnám
á þessum vettvangi tekur mikinn fjör-
kipp á næstu árum.
xxx
Verslunarráð íslands beindi ný-
lega þeirri áskoran til fjármála-
ráðherra, að hann beitti sér fyrir því
að endurskoða viðskiptasiðferði ríkis-
stofnana, sem Verslunarráðið telur
lélegt. Víkveiji tekur svo sannarlega
undir þetta, en bendir á, að viða er
heima á Seltjarnarnesi. Vagnstjór-
inn talaði við drenginn og bað hann
að vera rólegan, hann skyldi koma
honum í réttan vagn.
Með það sama kallaði hann upp
Nesvagninn og spurði hvar hann
væri staddur. Sá var ekki lagður
af stáð frá Torginu, en fékk að vita
um drenginn. Bílstjórarnir höfðu
svo samband aftur og Hagavagninn
stöðvaði neðst í Túngötunni og beið
Nesvagnsins. Þegar hann svo kom
skrifar
pottur brotinn i þessum efnum, ekki
síður hjá einkaíýrirtækjum en ríkis-
stofnunum. Það sem átt var við í
tilfelli ríkisins var, að ríkisstofnanir
virðast ekki telja sér skylt að greiða
fyrir þjónustu eða vörur á gjalddög-
um og því síður að greiða dráttar-
vexti í þeim tilvikum.
Víkveiji sat nýlega fund með
nokkrum prentsmiðjueigendum sem
bára saman bækur sínar. Þeir ræddu
m.a. um hvernig kaupendur prent-
þjónustu haga sér gagnvart prent-
smiðjunum. Nefndu þeir dæmi um
að óskað væri eftir tilboðum í ákveð-
in verk frá nokkrum smiðjum. Þegar
þau væru fengin væri sjaldnast haft
fyrir því að svara tilboðum sem ekki
væri tekið og oft sögðust þeir reka
sig á það að slík tilboðagerð þjónaði
þeim tilgangi einum að pressa verðið
ennþá neðar hjá þeim sem lægst biði.
Þar af leiðandi væra tilboð nánast
aldrei opnuð samtímis að bjóðendum
viðstöddum. Einnig sögðust þeir hafa
orðið alloft varir við það, að menn
væra í föstum viðskiptum í einni
prentsmiðju, en bæðu um tilboð í
öðrum, einungis til að geta séð hvem-
ig verðlagið væri annars staðar. Slík
tilboðagerð er auðvitað gerð á röng-
um forsendum og mikil ókurteisi að
fór vagnstjórinn með drenginn yfir
í hinn vagninn, vildi auðsjáanlega
koma honum heilum yfir vegna
mikiliar umferðar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ég hef orðið vitni að liðlegheitum
þessara manna er vögnunum aka.
Mér finnst sjálfsagt að geta þess
sem vel er gert fyrir okkur far-
þegana og hafi þeir bestu þakkir
fyrir.
Móðir á Fálkagötunni
ætlast til að lögð sé mikil vinna í
gerð tilboðs, þegar fyrirfram er
ákveðið að ekki eigi að taka því, í
hveiju svo sem tilboðið muni felast.
Víkveiji nefnir prentiðnað í þessu
sambandi, en ljóst er að í öðram iðn-
greinum er við svipað að fást. Það
væri vel til fundið að Verslunarráðið
beitti sér fyrir því að samræma regl-
ur um útboð og tilboð íslenskra fyrir-
tækja, bæði hvað varðar framkvæmd
og siðferði.
xxx
Stór liður í útgáfukostnaði tíma-
rita er póstdreifing þeirra.
Víkveiji veit þess dæmi að íslenskir
útgefendur láti prenta tímarit sín í
útlöndum og senda þau þaðan til
viðtakanda á íslandi. Astæðan er há
póstgjöld hérlendis. íslenskur prent-
iðnaður stendur berskjaldaður gagn-
vart þessu, prentsmiðjumar era í
mörgum tilvikum vel samkeppnis-
hæfar bæði hvað varðar verð og
gæði prentverksins, en verða að láta
í minni pokann fyrir erlendum keppi-
nautum vegna þess að í tilboðum
þeirra er dreifingin innifalin.