Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 1
HINHLIÐINA SILFRIHAFSINS
SILDIN er ekki bara söltuð og
fryst. Ævintýrið felst ekki bara
í magnaðri stemmingu á síldar-
plönunum, það felst líka í gufu,
mekki og peningalykt í bræðsl-
um landsins. Spennan um
síldarsölusamninga við Rússa
og hvort Japanir vilji éta hana
frysta skipar stóran sess í fjöl-
miðlunum, en fæstir vita af því
að silfurs hafsins bíður hálf háð-
ugleg meðferð. Síldin er soðin
í graut, lýsi og vatn skilið frá og
holdið þurrkað. Síðan liggur leið-
in ofan í svín og önnur klaufdýr
í Evrópu og víðar. Bræðslurnar
mala líka gull og líklega fer meiri-
hluti síldaraflans í bræðslu nú
eins og var á ævintýraárunum,
sem runnu sitt skeið á enda
árið 1968.