Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
C 13
Laugarneskirkja
Kirkju-
dagur í
Selljarnar-
neskirkju
Seltjarnarnessöfnuður heldur
kirkjudag sinn hátíðlegan að venju
fyrsta sunnudag í jólaföstu hinn 3.
desember nk. Er þetta í fyrsta
skipti sem dagurinn er haldinn há-
tíðlegur í kirkjunni eftir vígslu
hennar í febrúar sl.
Guðsþjónusta verður kl. 11 ár-
degis með þátttöku fermingarbarna
og kveikt verður fyrsta Ijósið á að-
ventukransinum. Stólvers syngur
Anna Júlíana Sveinsdóttir, óperu-
söngkona, við undirleik Gyðu Hall-
dórsdóttur og sóknarpresturinn, sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir, pré-
dikar og þjónar fyrir altari.
Um kvöldið verður kristileg sam-
koma og hefst hún kl. 20.30. For-
maður sóknarnefndar, Kristín Frið-
bjarnardóttir, setur samkomuna.
Ræðumenn verða Neskirkjuprestar.
Sr. Frank M. Halldórsson segir frá
aðventu og jólum í Texas í máli og
myndum og sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson flytur hugvekju. Sigrún
Valgerður Gestsdóttir, óperusöng-
kona, syngur við undirleik Gyðu
Halldórsdóttur. Þá verða kertaljósin
tendruð frá altarinu og dagskránni
lýkur með ritningarlestri og bæn
sr. Solveigar Láru Guðmundsdótt-
ur.
Eftir samkomuna bjóða konur
úr Vinasamtökunum til kaffi-
drykkju á neðri hæð kirkjunnar.
Kirkjudagurinn hefur alltaf verið
ijölsóttur af Seltirningum og er
ekki að efa að svo verði einnig í
þetta sinn þar sem þeir fagna kom-
andi jólahátíð og fá jafnframt tæki-
færi til þess að þakka Neskirkju-
prestum, sem stóðu við hlið safnað-
arins við uppbyggingu innra og
ytra starfs í 12 ár eða allt frá því
að sérstakt safnaðarstarf hófst á
Seltjarnarnesi árið 1974 og þar til
söfnuðurinn fékk sinn eigin prest
fyrir rúmum þremur árum.
(Fréttatilkynning frá sóknarnefnd)
Ferinnálang
flest
heimili landsins!
steinsteypu.
Léttir
j meöfærilegir
viðhaldslitiir.
Avalli (yilrMgajandi.
G6ð varahluiapjÓDUsta.
»_ i_ Gdo varamutapjonusia.
uo Þ. ÞORGRlMSSON & CO ,
iniiiliiiua. iumlmíiu - nrni NWni itLii
iiErrnsicn - niiiiClii siumos - iinu imitiau.
Aðventukvöld í
Laugarneskirkj u
Sunnudaginn 3. desember er
fyrsti sunnudagur kirkjuársins og
fyrsti sunnudagur í aðventu. I
Laugarneskirkju verður haldið upp
á þennan dag að venju, en nú með
sérstökum hátíðarblæ, því í desem-
ber eru 40 ár liðin frá því að Laug-
arneskirkja var vígð. Kl. 11 árdegis
verður messa með fjölbreyttum
söngog hljóðfæraleik, einnigverður
kveikt á aðventukransinum við há-
tíðlega athöfn. Um kvöldið verður
svo aðventuhátíð með íjölbreyttri
dagskrá. Ræðumaður kvöldsins
verður borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson. Börn sýna helerileik.
Kirkjukórinn syngur nokkur lög
undir stjórn Ann Tonl Lindstad sem
einnig leikur á orgel kirkjunnar.
Þá mun Sigrún Gústafsdóttir leika
einleik á blokkflautu við undirleik
föður síns Gústafs Jóhannessonar
og Ásrún Atladóttir leikur einleik á
orgel. Einnig verður almennur safn-
aðarsöngur og sóknarpresturinn
flytur ritningarorð og bæn.
Eftir stundina í kirkjunni verður
boðið upp á heitt súkkulaði og smá-
kökur í safnaðarheimilinu, en það
hafa konur úr Kvenfélagi Laugar-
nessóknar séð um undanfarin ár.
Hátíðahald vegna afmælis kirkj-
unnar heldur svo áfram annan
sunnudag í aðventu, 10. desember,
en þá hefst tónlistarvika í Laugar-
neskirkju með ijölbreyttu tónleika-
haldi og sunnudaginn 17. desember
verður sjálf afmælismessan.
Það er von okkar að Laugarnes-
búar og aðrir velunnarar kirkjunnar
fjölmenni til helgihalds og samveru
í kirkjunni á aðventunni og fylgist
vel með hinni ijölbreyttu dagskrá
sem raunar verður allan mánuðinn.
Jón Dalbú Hróbjartsson
sóknarprestur.
Hlutabréf - bein hiutdeild í
verðmætasköpun þjóðarbúsins
HMARK
HUJTAjÍKtrAMAKKAPUKINN HF
© 1089, HMARK,
1 jliilabréfainarkailurinii lil
’ 400
Vísitala HMARKS
Visitala Spariskírteina ríkissjó s
Lánskjaravísitala
Myndin sýnir hækhun á vísitölu
HMARKS, vtsitölu Sparishírteina
ríhissjóðs og lánshjaravísitölu frá
31.12.1986-09.11.1989. Vísitölurnar
voru 100 þawt 31.12.1986.
Raunávöxtun islenshra hlutabréfa
hefur verib 34% ad meðaltali á ári
síðustu þtjú ár.
Á sama tíma var raunávöxtun
ríhisshuldabréfa um 7-8% á ári.
Raunávöxtun almennra shuldabréfa
hefur á þessum tima yfirleitt verid
9-15% á ári.
Hlutabréf - 37,74% af kaupverði
getur fengist endurgreitt frá skattinum
Endurgreiðsla frá
skattinum eykur ávöxttui
hlutabréfa enn frekar.
Samkvæmt lögum er heimilt að
draga kaupverð hlutabréfa frá tekju-
skatts- og útsvarsstofni upp að vissu
marki. Aðeins er þó um að ræða
hlutabréf í hlutafélögum sem hlotið
hafa samþykki ríkisskattstjóra.
Einstaklingur sent nýtir sér þessa
heimild síria til fulls og kaupir hluta-
bréf fyrir 85-90.000 krónur getur
fengið endurgreiddar um 32-34
þúsund krónur frá skattinum í ágúst
á næsta ári. Hjón geta fengið alll að
64-68 þúsund krónur endurgreiddar.
Hlutabréf eru einnig eignarskatts-
frjáls upp að vissu marki.
Erlendis þykir sjálfsagt mál
að eiga hluta spariíjárins
í hlutabréfum.
Reynslan þar hefur sýnt að þegar til
lengri tíma er litið gefa hlutabréf
mun betri ávöxtun en skuldabréf.
Hins vegar má búast við meiri sveifl-
um í ávöxtun hlutabréfa þegar til
skemmri tírna er litið. Þó að hluta-
bréfamarkaður hafi ekki starfað lengi
hérlendis virðist allt benda til þess að
það sama gildi hér.
Hlutabréf henta þannig vel til
langtímaávöxtúnar en fela í sér
nokkra áhættu til skemmri tíma.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30
HMARK-afgreiösla, Skólavörðustíg 12, Reykjavík. Sími 21 677.
Með því að blanda saman liluta-
bréfa- og skuldabréfaeign má þannig
slá tvær flugur í einu höggi - njóta
góðrar ávöxtunar hlutabréfa en jafn-
framt öryggis góðra skuldabréfa.
Nú hður að áramótum
og þeim tíma árs sem
eftirspurnin er mest.
Reynsla síðustu ára hefur einnig sýnt
að þetta er sá tími þegar verð
hlutabréfa hækkar hvað mest.
Hringdu eða komdu við í afgreiðsl-
um HMARKS hjá VIB í Ármúla 7 eða
á Skólavörðustíg 12. Ráögjafar
HMARKS geta gefið þér allar nánari
upplýsingar um kosti hlutabréfa.