Morgunblaðið - 02.12.1989, Side 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
FYRIRHEITNA LANDIÐ EFTIR EINAR KÁRASON.
Sjálfstætt frámhald Djöflaeyjunnar og Gulleyjunnar. Hún lýsir för þriggja
afkomenda Thulefólksins til fyrirheitna landsins, Ameríku, á vit Presleys,
Badda, Gógóar og allra hinna. Lifandi mannlýsingar, hröð frásögn,
skrautlegt baksvið og góður húmor. - Skemmtileg bók.
Eyjabækurnar fást nú allar í Stórbók.
NÁTTVÍG EFTIR THOR VILHJÁLMSSON. Ástin, dauðinn og
hafið. Áhrifamikil og viðburðarík saga úr undirheimum Reykjavíkur. Hún
greinir frá tveimur sólarhringum í lífi leigubílstjóra nokkurs sem dregst
nauðugur inn í atburðarás óhugnaðar og ofbeldis. Þessi bók er enn einn
sigur Thors Vilhjálmssonar á ritvellinum.
MallMlog menning
■ ■ í PJÓÐBRAUT HEIMSBÓKMENNTANNA
„Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.
VILHJALMSSON
T*XI
il ‘Jt? .
1 n . m
j
Börn á barnadeild Hringsins.
Kaffisala Kvenfélagsins
Hringsins á sunnudag
á Hótel íslandi á morgun, sunnudag, kl. 14.00
eftirJónR.
Kristinsson
Hinar landsþekktu, dugmiklu
Hringskonur efna nú að venju tii
jólafagnaðar 1. sunnudag í aðventu
en það hafa þær gert í mörg ár.
Þessi árvissi atburður hefur verið
fjölsóttur og vinsæll jafnt af ungum
sem öldnum og hafa þær því með
árunum þurft að flytja fagnað þenn-
an í æ stærra húsnæði.
Höfuðmarkmið þessarar starfsemi
hefur verið að afla fjár til styrktar
börnum. Barnaspítali Hringsins hef-
ur frá upphafi notið góðs af dugnaði
Hringskvenna, þar hafa þær ávallt
verið í forustu og á þeirra hjálp
mátt treysta þegar vöntun hefur
verið á tækjum eða öðrum búnaði
sem nauðsynlegur er fyrir sjúkra-
stofnun barna.
Ótrauðar hafa þær styrkt og hlúð
að starfsemi Barnaspítalans sem ber
þeirra nafn. í náinni framtíð er ætl-
unin að reisa nýjan barnaspítala þar
sem þarfir barna verða hafðar í fyr-
irrúmi. Við þær framkvæmdir munu
Hringskonur áreiðanlega koma við
sögu.
Nú efna þessar konur til kaffisölu
og verða með girnilegt kaffihlaðborð,
þar munu borð svigna undan heima-
bökuðu lostæti og ijúkandi kaffi |
verður á könnunni. Þar að auki verð-
ur spennandi happadrætti og eru
m.a. tvær utanlandsferðir í boði.
Allt þetta til styrktar góðum mál-
efnum.
Veitum Hringskonum lið og njót-
um góðra veitinga. Mætum öll!
Höfundur er barnalæknir.
Langholtskirkja: |
AÐVENTUHÁTÍÐ
Þá er aðventan að ganga í garð.
Af því tilefni verður mikill hátíðis-
dagur í Langholtskirkju fyrsta að-
ventusunnudaginn, 3. desember.
Dagurinn hefst með hefðbundnum
hætti á Óskastund bamanna klukkan
11.00. Kl. 14.00 verður síðan sungin
hátíðarguðsþjónusta. í guðsþjón-
ustunni er aitarisganga. Einnig
fermist eitt fermingarbarn. Að
stundinni lokinni býður kórinn öllum
viðstöddum upp á molakaffi að göml-
um sið, í safnaðarheimilinu.
Sjálf aðventuhátíðin hefst síðan
kl. 20.30 um kvöldið. Að venju er
dagskráin fjölbreytt. 60 börn úr
Óskastundinni sýna Lúsíuleik. Aliur
Langholtskórinn syngur. Jón Stef-
ánsson organisti kirkjunnar leikur
einleik. Ræðumaður kvöldsins er sr.
Heimir Steinsson, prestur og þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum. Ber ræða
hans yfirskriftina: „Ráðsmenn yfir
leyndardómum"Drottins“.
Eftir ánægjulega stund í kirkjunni
býður kvenfélag kirkjunnar til sölu
veislukaffi í safnaðarheimilinu. Er
þetta tilvalið tækifæri fyrir alla til
þess að hefja aðventuna og jóla- |
undirbúninginn saman.
Með kærri kveðju.
Sr. Þórhallur Heimisson 6
Aðventukvöld í
Fella og Hólakirkju
Aðventan hefst næstkomandi
sunnudag. Þá byijum við fyrir alvöru
að undirbúa okkur fyrir jólin. Við
undirbúum okkur undir komu frels-
arans. Kirkjan boðar okkur lausn og
birtu. Konungur þinn kemur til þín.
Guð þinn kemur. Kirkjan vill hjálpa
okkur að undirbúa jai'ðveginn fyrir
komu frelsarans. Við bíðum eftir
konungi lífsins, við væntum Jesú.
Það ætlum við einnig að gera í Fella-
og Hólakirkju.
Aðventukvöld verður haldið í
Felia- og Hólakirkju næstkomandi
sunnudagskvöld 3. desember kí.
20.30. Á dagskrá verður meðal ann-
are helgileikur sem fermingarbörn )
munu sýna undir stjórn Ragnheiðar
Sverrisdóttur djákna. Séra Guð-
mundur Karl Ágústsson mun flytja
hugvekju. Einnig munum við syngja
mikið og tónlistarfólk mun sjá um
söng og aðra tónlist. |
Kirkjukór Fella- og Hólakirkju
mun syngja, einnig Kór Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti. Guðrún Birgis-
dóttir og Martial Nardeau flautuleik-
ari annast flautuleik o.fl.
Sr. Hreinn Hjartarson, sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson.