Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
C 9
Aðventu-
Auventan
kvöld í Kópa-
vogskirkju
NÝTT kirkjuár byijar á inorgim
og við hefjum það í þeirri bæn,
að þetta verði nýtt náðarár frá
Drottni.
Kirkjuárið er sem slíkt ekki ýkja
gamalt fyrirbæri. Fyrr á öldum,
þegar eigi varð greint á milli kirkju
og menningar, var kirkjuár og borg-
arlegt ár eitt og hið sama. Það er
fyrst á endurreisnartímanum,- sem
almennt er farið. að tala um kirkju-
ár. Menning er það allt, er auðgar
lífið, fegrar það og fær því nýjan
ljóma. Kirkjan vinnur vissulega að
þessu enn sem fyrr. Það er m.a.
áréttað með aðventusamkomunni.
Digranessöfnuður efnir nú enn
til slíkrar samkomu í Kópavogs-
kirkju, annað kvöld, sunnudaginn
3. desember kl. 20.30. Vandað er
til efnisskrár eins og jafnan áður:
Fyrsta aðventuljósið tendrað.
Þorbjörg Daníelsdóttir, formaður
sóknarnefndar flytur ávarp. Kirkju-
kórinn syngur undir stjórn Guð-
mundar Gilssonar, stengjasveit leik-
ur með. Óli Þ. Guðbjartsson, kirkju-
málaráðherra flytur ræðu. Kór
Snælandsskóla syngur undir stjórn
Björns Þórarinssonar. Dr. Sigur-
björn Einarsson, biskup, flytur eigin
ljóð, frumort og þýdd. Elín Osk
Öskarsdóttir syngur einsöng við
undirleik Ólafs Vignis Albertssonar.
Endað verður á helgistund með al-
mennum söng. Verið innilega vel-
komin.
Þorbergur Kristjánsson
ASI mótmælir
endurvinnslu-
stöð kjarn-
orkuúrgangs
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á fundi miðstjórnar Al-
þýðusambands Islands fyrir
skömmu:
„Alþýðusamband íslands mótmæl-
ir harðlega öllum áformum um bygg-
ingu endurvinnslustöðvar fyrir
brennsluefni kjarnorkuvera í Doun-
reay á norðurodda Skotlands, sem
Skotlandsmálaráðherra bresku ríkis-
stjórnarinnar, Malcolm Rifkin, heim-
ilaði undirbúning að á dögunum.
Alþýðusambandið hefur áður mót-
mælt þessum áformum og bendir á
að ef af byggingu stöðvarinnar verð-
ur, er afkomu þjóða í Norður-Atl-
antshafi, sem þó eiga enga aðild að
stöðinni eða hafa nokkurn hag af
byggingu hennar, stefnt í hættu.
Mengunarhætta frá stöðinni er tví-
þætt. í fyrsta lagi er áformað að
dæla í sjóinn hluta úrgangsins og
grafa hluta hans á sjávarbotni.
Vegna sjávarstrauma mun þessi
mengun aðallega hafa áhrif við
strendur Noregs, Færeyja, íslands
og Grænlands auk Shetlandseyja.
í öðru lagi er ljóst að mengunar-
hætta mun stafa af fiutningi geisla-
virks úrgangs til stöðvarinnar og
endurunnins plútóníums og úraníums
frá henni. Aformað er að þessir flutn-
ingar verði með skipum og flugvél-
um. Miðstjórn Alþýðusambandsins
hvetur ríkisstjórnina til að taka þetta
mál upp að nýju og fylgja þvLeftir
á erlendum vettvangi."
Aðventan hefst á sunnudaginn og þá byrjar
jólaundirbúningurinn fyrir alvöru.
Blómaval skartar nú sínu fegursta og býður
fólk velkomið á stærri
og betri jólamarkað.
Nýjungar í
jólaskrauti
JÓLATRÉSSALAN
ER HAFIN.
OPIÐ FRÁ
KL. 9-22
TIL JÓLA
Jólastjama
á hverju heimili
Hjá okkur velurðu úr
hundruðum jólastjarna.
GOTTVERÐ.
.
WA ■ ■ i
ÍPi
mm
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70