Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 18
18 ) !‘2? ÍAit.'j/l Áfi y íi:<IAjV. A j í MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 Eyrarbakki og Stokkseyri: Mesta stormflóð- ið á þessari öld MIKIÐ eignatjón varð á Eyrarbakka og Stokkseyri þegar sjórinn flæddi inn í þorpin í stormflóði í fyrrinótt. Ekki urðu slys á fólki. Tjónið hafði ekki verið metið í gær, en það skiptir tugum millj- óna. Sveitarstjórnarmenn vonast til að Viðlagatrygging Islands bæti einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélaginu Ijónið, enda segja þeir fólk almennt ekki tryggt gegn Ijóni sem þessu. Menn frá Viðlagatryggingu fara í dag á Eyrarbakka og Stokkseyri til að kanna aðstæður. í fyrrinótt gekk djúp lægð yfir landið. Flóðhæð er mikil og í suð- vestanáttinni sem fylgdi lægðinni kom stormf lóðið á land. Flóðið fór yfir og braut sjóvarnargarða á Eyrarbakka og Stokkseyri og þá voru húsin vamarlaus gegn sjón- um. Talið er að þetta stormflóð sé það mesta sem komið hefur á þess- ari öld. Helst er því líkt við Bás- endaflóðið sem varð fyrir ná- kvæmlega 191 ári. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins ræddu við fólk á Eyrarbakka og Stokkseyri í gær. Texti: Helgi Bjarnason Ljósmyndir: Bjarni Eiríksson Skjólveggxir fauk á bíl Önnu Maríu Lillendal. Þykkt lag af vatni, gijóti, sandi og drullu var á stofugólfinu hjá Gústaf Lillendal á Eyrarbakka. Byggja, verður sjóvarnar- garða ef byggð á að haldast - segir Magnús Karel Einarsson oddviti Sjórinn gekk yfír Eyrarbakka; MESTA tjónið á Eyrarbakka varð á fiskverkunarhúsi Bakkafisks hf. Flóðið braut niður 300 fermetra af 750 metra húsi og eyðilagði vélar og áhöld. Áætlað er að tjónið nemi tugum milljóna kr. Verulegt tjón varð á einu íbúðarhúsi og innbúi þess þegar flóðið braut glugga og sjórinn flæddi inn um allt. Sjór komst á nokkrum stöðum inn i kjall- ara en Magnús Karel Einarsson oddviti segir að þar hafi orðið minni skemmdir en á horfðist. Þá varð mikið tjón á sjóvamargörðum, lóðum og eitthvað á bilum og öðmm lausafjármunum. Flóðið hreyf nokkra bíla með sér og aðrir urðu fyrir skemmdum vegna áfoks. Sjórinn gekk yfír nánast allt þorpið og í gærmorgun þegar Morgunbiaðsmenn voru á ferð á Eyrarbakka var enn mikið vatn á götum og auðum svæð- um, gijót og sandur, þari og annað þvíumlikt um allt þorpið. Þannig var mikið af dauðum fiski á götum þorpsins, sérstaklega smákarfa sem flóðið skildi eftir. „Eins og sprenging“ „Það var eins og sprenging þegar aldan small á húsinu og braut sér leið inn um gluggann," sagði Gústaf Lillendal, forstöðumaður fangelsis- ins á Litla-Hrauni, en embættis- bústaðurinn sem hann býr í á Eyrar- bakka er það íbúðarhús á Eyrar- bakka sem verst varð úti í storm- flóðinu. Gústaf og Anna María kona hans voru ein í húsinu. Gústaf sagðist hafa verið hálfsofandi í rúminu en haft andvara á sér vegna vaxandi veðurgnýs. „Um klukkan 3.30 fannst mér þetta ágerast og síðan var eins og sprenging þegar glugg- ipn í holinu við stofuna lét undan. Ég spratt fram úr rúminu og þá skall aldan á fætur mína. Ég óð svo í vatni, sandi, gijóti, þara og gler- brotum í stofunni," sagðl Gústaf. Sjórinn fór um allt húsið og stór- skemmdi það og eyðilagði mest allt innbú Gústafs og Ónnu Maríu. Um leið fór rafmagnið af. Gústaf sagði að ekki hefði verið viðlit að eiga við brotna gluggann, sjórinn hefði gengið yfir. Gústaf og Anna María fóru í næsta hús og síðan komu björgunarsveitarmenn og negldu fyrir gluggann þegar fært þótti. í gær var Gústaf að koma sér fyrir í öðru húsi á Eyrarbakka sem honum bauðst. Sagði hann að embættisbústaðurinn yrði eins og tilbúinn undir tréverk þegar búið væri að hreinsa út og því ekki útlit fyrir að búið yrði í húsinu næstu mánuðina. Timburskjólveggur við húsið rifn- aði frá í heilu lagi og lenti á bíl Önnu Maríu sem stóð fyrir utan húsið og skemmdi hann. „Erum við komin á sjó?“ „Pabbi, erum við komnir út á sjó,“ sagði ungur sonur Lofts Kristinsson- ar á Háeyrarvöllum 50 þegar hann leit út um gluggann heima þjá sér í fyrrinótt. Loftur sjálfur orðaði það að þetta hefði verið eins og í fiska- búri. Sjórinn hefði gengið yfir húsið og með fylgt þari, sandur og fiskur. Sjórinn komist inn í húsið með svala- hurð þannig að nóttin fór í að þurrka gólfin. Klæðning sjávarmegin á hús- inu er ónýt vegna þess að flóðið skall á henni og reif upp með sér hraungijót sem áður skreytti brekku í lóðinni. Garðurinn við Háeyrarvelli 50 var allur á öðrum endanum þeg- ar fólkið fór að sjá út um morguninn. Loftur lauk við að skipta um glugga á stofunni sjávarmegin á húsinu um helgina, skipti gluggun- um niður, og sagðist hann vera þess fullviss að ef hann hefði ekki verið búinn að því hefðu rúðurnar látið undan sjóganginum. Tugmiiljóna tjón hjá Bakkafiski Hjörleifur Brynjólfsson fram- kvæmdastjóri Bakkafisks hf. sagði Unnið við bráðabirgðalagfæringu bílskúrsins við Hafstein en flóðið sprengdi skúrinn. að tjónið á húsum fyrirtækisins næmi tugum milljóna kr., auk þess taps sem yrði vegna truflunar á rekstri. A vegum fyrirtækisins var unnið að innréttingu húss fyrir vinnslu á flatfiski. Steinsteyptur veggur sem sneri út að sjónum brotnaði undan sjónum og þeytti flóðaldan stálbitaþaki í heilu lagi yfir annað hús og þar á hvolf í porti. Hús þetta er alls 750 fermetr- ar, þar af tók flóðið 300 fermetra og taldi Hjörleifur að hinn hluti húss- ins væri stórskemmdur eða ónýtur. Þá hefðu orðið skemmdir á vélum, tækjum og byggingarefni sem í hús- inu var. „Við ætluðum okkur að byggja reksturinn í ár mikið á flatfisk- vinnslu og þessar hamfarir, sem ekki eiga sér hiiðstæðu, setja veru- legt strik í reikninginn hjá okkur,“ sagði Hjörleifur. Sjórinn yfir allt þorp Magnús Karel Einarsson oddviti á Eyrarbakka sagðist hafa vaknað um klukkan 1.30 um nóttina vegna þess að svo mikið hefði hrikt í hús- inu sem þó stendur ekki á sjávar- kambinum. „Ég fór af stað um klukkan 3 og þá var mikill sjávar- gangur um allt þorpið. Sjórinn flæddi í stríðum straumum um allar götur, ekki aðeins á sjávarkambin- um, heldur um allt þorp. Það kom mér mest á óvart,“ sagði Magnús Karel. Hann sagði að vakt hefði verið hjá björgunarsveitinni alla nóttina og hefðu þeir hjálpað mörg- um. Um morguninn hefði björgunar- sveitin síðan verið fullskipuð og ástandið þá kannað skipulega, neglt fyrir glugga og dælt úr húsum. Magnús Karel sagði að sá sjóvam- argarður sem lokið var við í haust væri sá eini sem staðist hefði storm- flóðið í fyrrinótt. „Það sem gildir í þessu er að hefja mikla uppbyggingu sjóvamargarða ef byggð á að hald- ast hér,“ sagði Magnús Karel. Hann sagði að illa hefði gengið að fá fjár- veitingar í þessa varnargarða, sem þó væru nauðsynlegir ef fyrirbyggja ætti frekara tjón vegna sjávarf lóða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.