Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svavar Gestsson í ræðustól, en auk hans sjást á myndinni Árni
Johnsen, sem situr í bygginganefiid hússins, og Guðrún Ágústs-
dóttir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra.
Hluti fundarmanna.
Þjóðleikhúsið;
Ágreiningur um endurbæturn-
ar gæti tafið framgang málsins
- segir Svavar Gestsson, menntamálaráðherra
SVAVAR Gestsson menntamálaráðherra sagði á mánudag á fundi
með starfsmönnum Þjóðleikhússins og blaðamönnum um fyrir-
hugaðar endurbætur á Þjóðleikhúsinu að hann myndi leggja fyr-
ir ríkisstjórnina i þessari viku tillögur að endurskoðuðum lögum
um Þjóðleikhúsið þar sem gert er ráð fyrir meira listrænu og
fjárhagslegu sjálfstæði Þjóðleikhússins en það hefúr áður haft.
Svavar sagði að svo gæti farið að ágreiningur á meðal starfsmann-
anna um einstök atriði endurbótanna gætu stöðvað málið þannig
að það falli niður um skeið. Breytingamar sem ráðgerðar eru á
þessu ári munu kosta 250-300 miiyónir króna.
Á fundinum, sem menntamála- hugaðar breytingar.
ráðherra boðaði til í tilefni af
ályktun Bandalags íslenskra lista-
manna þar sem lýst var yfir and-
stöðu við breytingar á salarkynn-
um Þjóðleikhússins, kom fram að
skiptar skoðanir eru á meðal
starfsmanna leikhússins um fyrir-
Menntamálaráðherra sagði að
samstaða væri um öll atriði breyt-
ingatillagnanna milli bygginga-
nefndar og húsfriðunamefndar að
einni undanskilinni, varðandi
breytingar á svalaskipan leik-
hússins.
Samkvæmt tillögum bygginga-
nefndar Þjóðleikhússins er gert
ráð fyrir að þriðja hæð leikhússins
verði lokuð af og salurinn þar
nýttur til fundarhalda eða barna-
sýninga, halli á salargólfi verði
breyttur og einar svalir verði í
stað tveggja áður, aðgengi fatl-
aðra verði bætt, hljómsveitar-
gryfja stækkuð og sviðsgólf fært
framar í salinn.
Menntamálaráðherra sagði að
til að hægt væri að selja miða á
svölum á sama verði og miða í
sal verði að breyta salarskipan
og að frá rekstrarlegu og listrænu
sjónarmiði væri óhjákvæmilegt að
gera þessar breytingar.
Á fundinum kom fram það sjón-
armið að tillögur bygginganefnd-
ar um breytta salarskipan væri
menningarsögulegt slys. Auk þess
væri ekkert því til fyrirstöðu að
bjóða upp á ódýrari miða á leik-
sýningar sem margir hagnýttu
sér.
í tillögum bygginganefndar
sem snúa að öryggismálum í leik-
húsinu er gert ráð fyrir 540 millj-
ón króna kostnaði og sagði ráð-
herra óhjákvæmilegt að til þeirra
yrði gripið á næstu árum.
Ráðgert er að framkvæmdir við
1. áfanga endurbótanna í Þjóð-
leikhúsinu hefjist í lok febrúar og
eiga þær að standa yfir fram í
nóvember.
Fiskverð á mörkuðum hækkaði meira
en landssambandsverðið í haust
VERÐ fyrir helstu tegundir á innlendum fiskmörkuðum hefúr í
meginatriðum verið svipað svonefndu landssambandsverði allt frá
stoíúun fiskmarkaðanna fram yfir mitt síðasta ár. Þá er miðað við
hæsta landssambandsverð. Á nýliðnum haustmánuðum hækkar verð-
ið á mörkuðunum meira en landssambandsverðið. Undantekning frá
þessu er ýsan, sem allan timann hefúr verið á hærra verði á mörkuð-
Tvær vfldnga-
sögur koma
út á ensku
í SKOTLANDI er komin út bókin
Vikings in Russia — Yngvar’s
saga and Eymund’s saga í þýðingu
Hermanns Pálssonar og Paul Ed-
wards, sem einnig rita ítarlegan
inngang um sögu- og menningar-
legan bakgrunn ritunar sagn-
anna.
Þama er um að ræða þýðingar á
tveimur sögum, rituðum á íslandi,
sem segja af ferðum víkinga í aust-
urveg. Ónnur sagan segir frá leit
Yngvars Eymundarsonar, hins
sænska, að upptökum stórfljóts í
Garðaríki hinu foma og ástarævin-
týri hans með Silkisif drottningu.
Hin segir frá norska prinsinum Ey-
mundi og frama hans. Hann byijar
feril sinn sem víkingur, en verður
síðar mikilvægur ráðgjafi Valdimars
konungs í Kænugarði.
Hermann Pálsson er fyrrum pró-
fessor í íslensku við Edinborgar-
háskóla og Paul Edwards er pró-
fessor í enskum bókmenntum við
sama skóla. Þeir hafa þýtt og séð
um útgáfu á mörgum íslendingasög-
um, svo sem Orkneyinga sögu, Eg-
ils sögu og Eyrbyggja sögu. .
Guðjón B.
Baldvins-
son látinn
GUÐJÓN B. Baldvinsson, fyrr-
verandi formaður Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, lést
aðfaramótt laugardagsins 7. jan-
úar, 81 árs að aldri. Guðjón var
einn af stofiiendum BSRB og var
stjómarmaður frá stofiiun sam-
takanna 1942 og fyrsti formaður
þeirra.
Guðjón var fæddur 26. júlí 1908.
Hann var fræðslufulltrúi BSRB um
árabil og sat í samninganefndum
og gegndi ýmsum trúnaðarstöðum
innan samtakanna. Hann var jafn-
framt forystumaður í þeim samtök-
um sem stóðu að stofnun BSRB á
sínum tíma. Guðjón var fozrnaður
Sambands lífeyrisþega ríkis og bæja
frá stofnun allt þar til dauðadags.
Eftirlifandi eiginkona Guðjóns er
Anna Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið kannaði verð á
þorski og ýsu á mörkuðum í Bret-
landi og karfa og ufsaverð á Þýska-
landsmörkuðum. Verð á öllum teg-
undunum var kannað á Faxamark-
aði, svo og landssambandsverð.
Athugað var tímabilið frá stofnun
uppboðsmarkaða hér, það er að
segja frá júlí 1987 til ársloka 1989.
Verðlagsráð sjávarútvegsins verð-
leggur fiskinn eftir ýmsum stærð-
ar- og gæðaflokkum og er það
kallað landssambandsverð. Hér er
til einföldunar einungis notað hæsta
verð hverrar tegundar.
Stuðst er við meðalverð í hverjum
mánuði á innlendu og erlendu mörk-
uðunum og verð á erlendum mörk-
uðum er miðað við meðalgengi
hvers mánaðar. Hækkun vísitölu
byggingarkostnaðar, sem viðmiðun
við verðlag innanlands, fellur nán-
ast algjörlega að hækkun landssam-
bandsverðsins.
Mánuðina júní til nóvember 1987
var fiskverð verðlagsráðs ekki bind-
andi, fiskverð var frjálst eins og
kallað vari Á línuritunum sést að á
þeim tíma var verð á uppboðsmörk-
uðunum hærra en oftast endranær,
miðað við landssambandsverðið.
Sveiflur fiskverðsins virðast í
meginatriðum fylgjast að á inn-
lendu og erlendu mörkuðunum, en
eru þó stærri erlendis. í september
síðastliðnum rofnar fylgnin við
Iandssambandsverðið, verð á inn-
lendum og erlendum mörkuðum
hækkar mun meira og helst hærra
til ársloka 1989.
Fiskverð Verðlagsráðs, á Faxamarkaði og á erlendum mörkuðum, júlí 1987 til des. 1989
MbUGÚI
Rétthafar, dreifingaradilar
og kvikmyndageröarmenn
Ég er að athuga möguleikana á því að gefa út myndbandalista í
stóru upplagi til dreifingar á markhópa hérledis, þar sem almenn-
ingi bjóðast myndbönd til kaups á viðráðanlegu verði. Mynd-
bandalistinn kæmi til með að innihalda ýmis konar myndbönd,
t.d. fræðslumyndbönd, kennslumyndbönd, barnamyndbönd, tón-
listarmyndbönd, afþreyingarmyndbönd o.s.frv.
Þeir aðilar, sem hafa áhuga á að koma myndböndum í sölu í
gegnum slíkan myndbandalista, eru vinsamlegast beðnir um að
senda eitt eintak af kápum myndbandanna, ásamt nánari upplýs-
ingum, sem fyrst til:
Myndabandasafnið, pósthólf 11030, 131 Reykjavík.
Virðingarfyllst,
Jón Jarl Þorgrímsson.