Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 SKIÐI / HEIMSBIKARINN Reuter Vreni Schneider (til hægri) brosir sínu breiðasta eftir að hafa unnið 30. heimsbikarmót sitt í gær. Við hlið hennar stendur Anita Wachter frá Aust- urríki sem varð önnur, en hún er nú efst í sigakeppni heimsbikarsins. Schneider á sigurbraut - hefurnú unnið 30 heimsbikarmót AFSAKANIR Fáránlegt að segja að æfingaleysi hái landsliðinu í handknattleik Þvert á móti hafa atvinnumennimir sennilega aldrei æft betur Það er alltaf eitthvað að, því fullkomnun veiður ekki náð faómR FOLK ■ VESTMANNAEYINGAR hafa mikinn áhuga á að halda Norðurlandamót drengjalands- Hða í knattspyrnu, sem fer fram á Islandi 1991. Þá hafa Akureyring- ar einnig sýnt áhuga á að halda mótið. MHELGA Sigurðardótlir, sund- konu frá Isafírði, hefur verið boðin skólavist í háskólanum Alabama í Bandaríkjunum og æfa með skóla- liðinu. Helga mun að öllum líkind- um halda utan í febrúar og kynna sér aðstæður. Þetta boð er komið fyrir tilstuðlan Ragnheiðar Run- ólfsdóttur sem stundar nám í skól- anurn.^ ■ GÚSTAF Ómarsson, varnar- maður Leilturs frá Olafsfirði, hefur gengið til liðs við UBK og mun leika með liðinu í 2. deild knattspyrnunnar í sumar. ■ HORÐUR Bcnonýsson hefur verið ráðinn þjálfari HSÞ-b í 4. deildinni í knattspyrnu. Hörður mun einnig leika með liðinu en hann lék með Völsungum í 2. deild í fyrra. Eiginkona Harðar, Freydís Arngrímsdóttir, mun sjá um þjálf- un í sundi og fijálsum íþróttum. ■ GUÐMUNDUR Hreiðarsson, markvörður Víkings á síðasta sumri, mun að öllum líkindum ganga til liðs við Tiiru Diisseldorf í vestur-þýsku 4. deildinni og leika með því næstu tvö árin. Guðmund- ur heldur til Vestur-Þýskalands í dag og mun leika með Tiiru í innan- hússmóti í Dusseldorf í næstu viku. Hann mun síðan halda með liðinu í æfingabúðir til Kanaríeyja. ■ KEFL VÍKINGAR hafa ráðið Júgóslavann, Yelimir Sargic, til. að sjá um þjálfun yngri flokka fé*- lagsins í knattspyrnunni. Keflvík- ingar eru einnig að vinna í því að fá júgóslavneskan leikmann til að leika með meistaraflokki félagsins í sumar. ■ FÉLAGSGJÖLD hjá Golf- klúbbi Reykjavíkur hækkuðu um 50% frá fyrra ári, úr 18.000 kr.í 27.000 kr., og ríkir nokkur óánægja meðal klúbbfélaga. Björgúlfiir Lúðvíksson, framkvæmdastjóri GR, sagði að með þessari hækkun væri GR að nálgast hina klúbbana en GR hefur verið með mun lægra árgjald en aðrir stórir klúbbar, að sögn Björgúlfs. Þess má geta að árgjaldið hjá Golfklúbbnum Keili er 25.000 kr. og svipað hjá Golf- klúbbi Akureyrar. Árgjaldið hjá Golfklúbbi Suðurnesja verður líklega um 30.000 kr. en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun. Vreni Schneider frá Sviss sigraði í þriðja heimsbikarmótinu á þessu keppnistímabili í gær. Hún var tæplega sekúndu á undan Anitu Wachter frá Austurríki í svigkeppni sem fram fór í Hinterstoder í Aust- urríki. Christine von Griiningen frá Sviss náði þriðja sæti, sem er henna besti árangur í heimsbikarnum. Schneider hefur nú unnið alls 30 heimsbikarmót frá því 1985, þar af eru 13 þeirra í svigi. Hana vant- ar nú aðeins einn sigur í viðbót til að jafna met löndu sinnar, Eriku Hess, sem er í fjórða sæti yfir þær stúlkur sem unnið hafa flest heims- bikarmót. Anita Wachter hefur nú forystu í heimsbikarnum samanlagt, með 155 stig. Michaela Gerg frá Vest- ur-Þýskalandi er í öðru sæti með 135 stig og Petra Kronberger, Austurríki, í þriðja með 125 stig. Islenska landsliðið í hand- knattleik hefur verið í sviðs- ljósinu að undanförnu og áhuga- menn um íþróttir bíða spenntir eftir Heimsmeistarakeppninni, sem verður í Tékkóslóvakíu og hefst í lok næsta mánaðar. Umrætt iið hefur iljað mörg- um um hjarta- ræturnar undanfar- in ár, en með hverj- um sigrinum hafa kröfurnar aukist til muna og því hafa ieikmennirnir fengið orð í eyra, þegar þeir hafa ekki staðið undir — oft á tíðum óraunhæfum — væntingum. Mikil breyting til batnaðar varð á íslenskum hand- bolta með komu Bogdans fyrir meira en áratug, en þjálf- arinn hefur ávallt verið kröfuharður — það besta hefur aldrei verið nógu gott. Hann hefur sem landsliðsþjálfari dregið í land fyrir hvert stórmót, sagt að undirbúningur væri ónógur, dregið úr vonum og vænt- ingum. Hann kann sitt fag, er metnað- arfullur þjálfari, en vill helst hafa lands- liðshópinn alfarið út af fyrir sig — 12 mánuði á ári. Eðii- legt fyrir landsliðs- þjálfara að mörgu leyti, en af öllu má nú ofgera. Bogdan syngur kunnan þjálfara- söng í Morgunblað- inu í gær, kvartar undan of fáum leikjum og æf- ingum fram að HM. Við erum langt að baki öðrum þjóðum hvað þetta snertir, er haft eftir þjálfaranum. Þorbergur Aðal- steinsson, fyrrum landsliðsmað- ur, svarar þessu að hluta í sam- tali við DV í gær. „Fá lið búa sig betur undir keppnina, það er helst að Sovétmenn komi betur undirbúnir til leiks“, segir Þorbergur og bendir á að Svfar koma saman í tvær vikur. Bogdan segir réttilega í blað- inu í gær að „ævintýrið" hafi ekki byijað fyrr en fyrir sjö árum „og það var eingöngu vegna æfinga". Mikið rétt — markviss þjálfun hefur skilað sér, en það er ekki þar með sagt að landsliðsmennirnir séu æfingalausir nú, þó þeir séu ekki saman öllum stundum. Þvert á móti hafa atvinnumenn- irnir sennilega aldrei verið í betri æfingu. Auðvitað er eithvað að. Það er alltaf eitthvað að, því alltaf má gera betur — fullkomnun verður ekki náð. En fyrr má nú rota en dauðrota. Tilfellið er að kjami íslenska landsliðsins er einn sá sterkasti og besti, sem um getur, og hóp- urinn allur sæmir sér vel á með- al þeirra, sem skara fram úr. Þegar liðið leikur eins og það getur best, þegar nær allt geng- ur upp, snúast fá lið því snúning eins og dæmin sanna. Ný leik- kerfi hafa hins vegar verið æfð að undanfornu með misjöfnum árangri, en þessir strákar þurfa æ minni tíma til að fínpússa hlutina og ástæðulaust að vera með afsakanir á þessari stundu, þó vara beri við bjartsýni. Allt tal um æfingaleysi er út í hött, þó samæfing hafi verið af skornum skammti. Það er ekki fjöldi æfinga, sem skiptir máli, heldur hvernig er æft og með hvaða hugarfari og það veit Bogdan manna best. Kjarn- inn hefur lítið annað gert í mörg undanfarin ár en að æfa og spila handbolta. Ekki portabolta, heldur æft og leikið í keppni þeirra bestu; með landsliðinu, með félagsliðum í Vestur- Þýskalandi, á Spáni, í Frakk- landi. Þetta eru allt atvinnu- menn í hugsun og flestir í verki. Þetta eru menn, sem leggja sig fram og reyna ávallt að gera sitt besta, einkum og sér í lagi, þegar mikið liggur við. Það er sjálfsagt að gera kröf- ur til landsliðsins, en þær verða að vera raunhæfar. Eins og oft hefur verið bent á, er ekki svo mikill munur á nokkrum bestu landsliðum heims. Lítið má út af bregða sbr. Sovétmenn í HM í Sviss, íslendinga og Austur- Þjóðveija á Ólympíuleikunum í Suður-Kóreu og Vestur-Þjóð- veija í B-keppninni í Frakk- landi. Áföll mega samt ekki draga úr mönnum kjark; menn mega ekki statt og stöðugt mála skrattarn á vegginn, byggja upp ineð því að búast við hinu versta. Þvert á móti er alfarsællegast að halda haus, læra af mistökum og tvíeflast við mótlætið, mæta til leiks létt- ir í lundu, lofa hvern dag að kveldi og spyija að leikslokum. Aðalatriðið er að reyna að halda sætinu í hópi hinna bestu. Steinþór Guðbjartsson Fulltrúaráð siálfstæðisfélaganna í Reykjavík - aðalfundur Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu í dag, miðvikudagínn 10. jan- úar, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ákvörðun um tilhögun á vali frambjóðenda vegna borgarstjórnarkosninga. 3. Ræða; Davíð Oddsson, borgarstjóri. 4. Önnur mál. Fundarstjóri: Geir H. Haarde, alþingismaður. Fundarritari: Brynhildur Andersen, húsmóðir. Fulltrúar eru beðnir að sýna skírteini sín við innganginn. IMýir fulltrú- ar, sem ekki hafa fengið fulltrúaráðsskírteini, eru beðnir að hafa nafn skírteini meðferðis. Stjórnin. Bogdan of svartsýnn Bogdan landsliðsþjálfari kann sitt fag, en tal um æfingaleysi landsliðsmanna á ekkí við, þó samæf- ing sé ef til vill af skomum skammti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.