Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990
33
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29
Utan á hús
Lára Magnús-
dóttír — Minning
Leiðrétting
í minningargrein sem birtist 5.
janúar sl. um Eygerði Pétursdóttur
eftir Helgu og Jónu Sigurjónsdætur
urðu meinlegar villur. Talað er um
afaforeldra Sigrúnar og Davíðs en
átti að vera: Afaforeldrarnir Sigrún
og Davíð ...; síðan misritaðist nafn
systur greinarhöfunda, Guðrún
varð Guðjón. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
Fædd 4. október 1903
Dáin 25. desember 1989
Hún amma Lára er dáin. Stuttu
fyrir jól var hún flutt á Borgarspít-
alann eftir að hafa fengið hjartaá-
fall og þaðan átti hún ekki aftur-
kvæmt. Hun lést á jóladag 86 ára
gömul.
Amma Lára fékk fyrst hjarta-
áfall fyrir fjórum árum síðan og
það var einmitt seint á jóladags-
kvöld. Hún hafði haft það fyrir sið
að bjóða börnum sínum, barnabörn-
um og barnabarnabörnum á þessum
degi til jólaveislu. Þá 82 ára gömul
lét hún ekki allan þennan fjölda
aftra sér frá því að fjölskyldan
ætti gleðileg jól saman. Það má
segja að þama fyrir fjórum árum
hafi henni orðið fyrst misdægurt.
Þetta voru síðustu jólin hennar á
heimili sínu í Meðalholti 5. Stuttu
síðar fluttist hún að Hrafnistu og
dvaldi þar síðan. Öllu starfsfólki á
Hrafnistu eru færðar bestu þakkir
fyrir þá umönnun og hlýju sem það
veitti henni þann tíma sem hún
dvaldi þar.
Amma Lára hét fullu nafni Lára
Ingibjörg Magnúsdóttir. Hún fædd-
ist 4. október 1903 í Hafnarhólma,
Seltjörn, Kaldrananeshreppi í
Strandasýslu. Foreldrar hennar
voru Guðrún Mikaelsdóttir og
Magnús Kristjánsson. Árið 1931
giftist hún Bjarna Böðvarssyni
hljómlistarmanni en hann lést á
afmælisdegi sínum 21. nóvember
1955. Amma og afi áttu þijú börn.
Ómar Örn, fæddur 1932, en hann
lést árið 1946 aðeins 14 ára gam-
all. Ragnar, hljómlistarmaður,
fæddur 1934 og móður mína, Dúnu,
fædd 1936.
Það var ömmu Láru mikið áfall
er frumburður hennar lést og ekki
síður er Bjarni afi dó 9 árum síðar.
Amma og afi fluttu í Meðalholt 5
árið 1944 en bjuggu áður í Lækjar-
götu 12. Það var oft mikið um að
vera í íbúðinni þeirra í Meðalholt-
inu. Frá 1944 og í þau 11 ár sem
afi lifði þar í lítilli en fallegri þriggja
herbergja íbúð var oft gauragangur
mikill. Á þeim tíma Var verið að
stofna Sinfóníuhljómsveit Islands
og má eiginlega segja að hún hafi
verið stofnuð í stofunni hjá ömmu
og afa. Undirbúningurinn að stofn-
un Félags íslenskra hljóðfæraleik-
ara fór þar einnig fram en afi var
einn af stofnfélögum þess. Á þessu
sést að mikið hefur verið á ömmu
Láru lagt. Samt tók hún þessu með
jafnaðargeði og samfara því að ala
upp börnin sín var hún stoð og
stytta afa á þessum tíma.
Amma Lára var söngelsk kona
og ákaflega trúuð. í mörg ár söng
hún með Dómkórnum og síðar kór
Laugarneskirkju. Hún trúði á líf
eftir dauðann og hafði oft á orði
að þegar hún færi yfir móðuna
miklu þá myndi; hún örugglega fara
í kór og syngja þar.
Það hefur nú eflaust verið til að
segja punktinn yfir i-ið varðandi
gauraganginn í Meðalholtinu þegar
ég fæddist þar í svefnherberginu
1954. Það hafa nú sennilega ekki
passað vel saman öskrin í snáðanum
í svefnherberginu og fallegir tónar
sem bárust frá píanóinu í stofunni.
Einna minnisstæðust eru mér
kvöldin þegar ég fór að sofa. Á
hveiju kvöldi sat amma Lára á rúm-
stokknum og söng fyrir mann. Þeg-
ar maður varð eldri og öskrin
breyttust í töluð orð, þá sagði hún:
Nú syngur þú með og lærir textann.
Amma Lára hafði mikið dálæti á
laginu Stóð ég út í tunglsljósi og
það lag var eflaust sungið mörg
hundruð sinnum.
Einnig man ég eftir því er hún
vildi að ég færi í píanótíma. Eg
tólf ára gamall hafði nú engan sér-
stakan áhuga á því en vegna þrá-
látrar beiðni hennar lét ég tilleið-
ast. Eftir 4-5 tíma gafst ég upp og
sagði við hana að ég væri hættur.
Ég væri búinn með þessa tíma og
væri ekki farinn að spila eitt ein-
asta lag. Eftir þetta reyndi hún
með sinni hógværð og rólegheitum
að ýta manni að píanóinu í Meðal-
holtinu til þess að vekja upp áhug-
ann.
Amma Lára bjó í Meðalholtinu í
rúm 40 ár og var mjög heilsu-
hraust kona alla tíð. Hún hafði
ákveðnar skoðanir á því hvaða fæði
væri best til að halda góðri heilsu
og ræddi það mikið. Ekki kom
maður í Meðalholtið öðruvísi en að
fá smálexíu varðandi þessi mál.
Hún fór mikið út að ganga, notaði
strætisvagna og hún tók aldrei
bílpróf. Amma Lára var heppin með
sambýlisfólk í Meðalholtinu. 'Hún
bjó á efri hæðinni, en á neðri hæð-
inni bjuggu fyrst Pétur Pétursson
þulur og frú Birna og síðar Jón
heitinn Arason og frú Jórunn. Þetta
fólk reyndist henni mjög vel.
Elsku mamma og Raggi. Ömmu
Láru er nú sárt saknað. Það er þó
mikil huggun að hún átti gott líf
og leið vel í þessi 86 ár sem hún lifði.
Blessuð sé minning Láru Magn-
úsdóttur.
Útförin fer fram frá Dómkirkj-
unni í dag kl. 13.30.
Ragnar Örn Pétursson
Allir þeir, sem greitthafa laun
á árinu 1989, skulu skila
launamiðum vegna greiddra
launa á þar tilgerðum eyðu-
biöðum til skattstjóra.
Frestur tii að skila launamiðum
rennurút22.janúar.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI