Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990
19
Rafinagns-
laustí
Eyjafírði
Ytri-Tjörnum.
RAFMAGN fór af Akureyri og“
Eyjafirði klukkan 21.20 í gær-
kveldi. Var þá suðvestan hvass-
viðrið að mestu gengið niður.
Ekki er vitað hvað biluninni olli.
Fljótlega kom þó straumur aftur á
bæinn, en við það brast spennir
fyrir sveitalínuna í stjórnstöðinni á
Rangárvöllum fyrir ofan Akureyri.
Unnið var að viðgerð seint í gær-
kveldi og komst rafmagn aftur á
sveitirnar rétt fyrir miðnættið.
— Benjamín
Stokkseyri:
Fins og handsprengju hafi
verið kastað hingað inn
- segir Jón Haraldsson eigandi Eyrarfísks
MIKIÐ tjón varð á fiskverkunar-
húsum og veiðarfærageymslum á
á sjávarkambinum á Stokkseyri.
Mesta Ijónið varð hjá Eyrarfiski.
Þar braut sjórinn aðra hlið húss-
ins og fyllti húsið af grjóti og
aur. Eigandinn segir að tjónið
skipti milljónum kr. Þá varð tjón
á nokkrum íbúðarhúsum. í gær
var vitað um tjón á alls 19 húsum.
Þá varð einnig mikið tjón á götum
og sjóvarnargörðum og þjóðveg-
urinn beggja megin við Stokks-
eyri stórskemmdist, hvarf nánast
á köflum. Sjórinn flæddi að
sveitabæjum austan við Stokks-
eyri og inn í hús á að minnsta
kosti einum bænum.
Þykkt lag af drullu
á stofugólfinu
Tómas Karlsson við gluggann á stofunni í Hafsteini þar sem vatn flæddi inn í húsið. Skápurinn féll fram
yfir sig þegar sjórinn skall á veggnum á móti glugganum og fór á flot.
Svona var umhorfs í veiðarfærageymslu útgerðar Hásteins á Stokks-
eyri.
„Sjórinn hefur farið upp í loftið á
stofunni og í vegginn á móti
glugganum og við það sprakk skáp-
ur sem þar var frá og valt á gólf-
ið,“ sagði Tómas Karlsson útgerðar-
maður, en hann býr í húsinu Haf-
steini á Stokkseyri. Gluggi á stof-
unni lét undan sjónum með þeim
afleiðingum að allt sem í henni var
eyðilagðist, auk þess sem sjórinn
flæddi um alla hæðina.
„Ég heyrði skvettur á gluggann
upp úr klukkan 11 um kvöldið,"
sagði Tómas. Þá sagðist hann hafa
fært bíl sinn á öruggan stað til son-
ar síns. Síðan ágerðist sjávargangur-
inn og ólög fóru að koma á húsið
og klukkan rúmlega fimm gaf rúðan
í stofuglugganum sig og allt fylltist
af sjó. „Eg var búinn að taka það
sem mér þótti vænst um úr stofunni
og flytja upp á loft. Ég gerði þetta
til að drepa tímann og hef raunar
gert það áður við svona aðstæður,"
sagði Tómas. Hann hafði lokað inn
í stofuna og opnaði ekki fyrr en
búið var að negla fyrir gluggann.
Það gekk ekki þrautalaust að negla
fyrir hann og þeir sem það gerðu
þufftu að stökkva frá á meðan ólög-
in gengu yfir. Heimilisfólkið vann
svo við að veita vatninu út og þurrka
upp fram á dag. Eftir var þykkt lag
af drullu, sandi og þangi í stofunni
og þeir húsmunir sem eftir voru þar
og hlutir skápum illa farið eða ónýtt.
Dúkar og teppi hússins sömuleiðis.
Bílskúr sem stendur við Hafstein
rifnaði allur í sundur. Taldi Tómas
að gaflinn hefði gefið sig fyrst og
hliðin síðan sprungið út. Skúrinn fór
eins í síðasta stormflóði, 1977. Tóm-
as sagði að flóðið 1977 hefði virst
meira en nú, þá hefði hann litið út
í grænkuland en þetta hefði verið
meira eins og skvettur núna, kannski
vegna þess hve veðrið var vont. Taldi
hann að skýringin gæti verið sú að
1977 hefði sjóvarnargarðurinn alveg
horfið en núna stóð eitthvað eftir
af honum og veitti smáskjól. „Ætli
maður verði ekki að hanga hér eitt-
hvað lengur og vona að árferðið
verði, betra,“ sagði Tómas þegar
hann var spurður hvort hann missti
ekki móðinn þegar hann hefði þessa
flóðahættu sífellt yfirvofandi.
„Viðbjóðsleg aðkoma“
„Aðkoman var viðbjóðsleg. Það
er eins og handsprengju hafi verið
kastað hingað inn,“ sagði Jón Har-
aldsson, sem á og rekur Eyrarfisk
ásamt Guðleif Steingrímsdóttur
konu sinni. Eyrarfiskur er með harð-
fiskverkun og frystingu í húsi sínu
á sjávarkambinum á Stokkseyri. Jón
sagðist hafa reynt að komast að
húsinu um klukkan 4 um nóttina en
ekki tekist, sjórinn liefði gengið yfir
það. Þegar hann kom aftur klukkan
að verða 6 hefði aðkoman verið þessi
sem hann lýsti.
Jón sagði að sjávarhlið hússins
væri ónýt og allt inni í húsinu þeim
megin. Sjórinn braut þar stórt gat
á húsið og með flóðinu barst grjót
og aur þannig að í gær var þykkt
lag á gólfinu. Þarna var harðfisk-
vinnslan og frystingin og sagði Jón
að engin vinnsla yrði þar í bráð.
Hann hafði farið á fiskmarkaðina í
fyrradag og fyllt húsið af fiski sem
átti að byija að vinna í gærmorgun.
Frystivélar sem voru í gámi við hús-
ið skemmdust. Gámurinn losnaði frá
húsinu og fór með flóðinu að öðru
húsi á kambinum.
Ekki sagði Jón mögulegt að meta
tjónið í gær. Hann sagði ómögulegt
að segja hvað kæmi í ljós þegar
búið væri að hreinsa húsið. Ljóst er
þó að tjónið skiptir milljónum.
Verulegttjón
Hraðfrystihússins
Næsta hús vestan við Eyrarfisk
er veiðarfærageymsla útgerðar Há-
steins. Sjórinn braut sér leið inn í
það hús, skemmdi mikið og lagði
allt í rúst inni. Meðal annars
skemmdist bíll sem þar er inni en
annar slapp óskemmdur. Sömu út-
reið fengu salthús og veiðarfærahús
Hraðfrystihúss Stokkseyrar sem
standa þama skammt frá og gömul
lifrarbræðsla brotnaði í spón.
Stefán Runólfsson framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar
býr við íragerði. Hann sagði að sjór-
inn hefði brotnað á íbúðarhúsinu og
það hefði allt verið umflotið um
nóttina. Um morguninn hefði gijótið
náð upp að gluggum.
Stefán sagði að verulegt tjón hefði
orðið á eignum Hraðfrystihússins.
Fyrir utan tjón á húsum þess á sjáv-
arkambinum hefði orðið tjón á frysti-
húsinu. Sjór hefði komist inn í húsið
á einum stað og með honum hefði
borist inn á gólf sandur, stórgrýti
og fiskur, og plan sjávarmegin við
frystihúsið hefði horfið um nóttina.
Hann sagði að í gær hefði öll orka
farið í að bjarga því sem hægt var
og enn væri ekki hægt að gera sér
grein fyrir tjóni, en það væri veru-
legt.
Mikið verk við hreinsun
Grétar Zóphaníasson sveitarstjóri
á Stokkseyri sagði að mesta tjónið
hefði orðið á vinnsluhúsunum. Þá
hefði tilfinnanlegt tjón orðið í nokkr-
um íbúðarhúsum, sérstaklega á inn-
búi. Einnjg hefði vatn farið í nokkra
kjallara. I gær var vitað um verulegt
tjón á 19 fasteignum, þar af 7 íbúð-
arhúsum. Sveitarfélagið hefur einnig
orðið fyrir miklu tjóni. Gata sem
lagt var slitlag á síðastliðið sumar
er ónýt á 200 metra kafla og götur
víða sundurgrafnar. Grétar sagði
ekki vitað hvort holræsi hefðu fyllst
af sandi en erfitt gæti verið að
bæta úr ef það hefði gerst. Þá hefði
sjór komist í neysluvatnið. Grétar
sagði að mikið verk og kostnaðar-
samt væri framundan við hreinsun
bæjarins. Loks má geta þess að sjó-
varnargarðarnir brustu víða.
Grétar sagði að í gærmorgun
hefði verið haft samband við Við-
lagatryggingu fslands. Menn frá
þeim kæmu í dag til að kanna að-
stæður.
Flæddi að sveitabæjum
Sjórinn flæddi að sveitabæjum
austan við Stokkseyri og inn í hús
á að minnsta kosti einum bænum.
Bærinn á Skipum var að mestu
umflotinn vatni í gærmorgun. Jón
Ingvarsson bóndi sagðist hafa farið
á fætur klukkan hálfþrjú um nótt-
ina, þótt hann væri varla karl til að
standa í stórræðum um miðja nótt,
orðinn 77 ára gamall. Hann sagðist
ekkert hafa farið út, enda aftakaveð-
ur. Hann sagði að ekki hefði komið
svona mikið flóð í þau 40 ár sem
hann hefði verið bóndi á Skipum.
Sagðist hann muna vel eftir flóðinu
1925, enda hefði það verið um miðj-
an dag og sést, en nú hefði ekkert
sést. Taldi hann að 1925 hefði verið
álíka mikið vatn í kring um bæinn
og nú. Jón taldi að ekkert tjón hefði
orðið á mannvirkjum á Skipum en
sagði að vafalaust væru skemmdir
á túnum, þau væru á kafi í vatni og
á þeim gijót og sandur.
Jón á Skipum sagðist hafa náð
að mjólka í gærmorgun en síðan
hefði rafmagnið farið af.
Þjóðvegurinn horfínn
Vegurinn fyrir austan Stokkseyri
er illa farinn og algerlega ófær við
bæinn á Skipum. Ingigerður Eiríks-
dóttir á Skipum sagðist sjá mikið
eftir veginum, nýlega hefði verið
búið að malbika hann. Einnig
skemmdist vegurinn á milli Eyrar-
bakka og Stokkseyrar mikið. í gær
var hafist handa við að laga hann
til bráðabirgða.
Guðleif Steingrímsdóttir og Jón Haraldsson við hús Eyrarfisks á
Stokkseyri. Flóðið braut gat á húsið og fyllti það af grjóti og drullu.
Tólf vind-
stig mæld-
ust á Hvera-
völlumog
Stórhöfða
TÓLF vindstig mældust á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum
og á Hveravöllum í gær-
morgun, og enn meiri vind-
hraði mældist á Stórhöfða í
fyrrnótt. Rafmagnstruflanir
urðu víða á Suðurlandi og á
Vestfjörðum af völdum óveð-
ursins, og einnig urðu smá-
vægilegar truflanir á síma-
sambandi á nokkrum stöð-
um.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar var komið fár-
viðri á Stórhöfða í Vestmanna-
eyjum á hádegi á mánudag og
hvassviðri og stormur víða um
sunnanvert landið. Skil komu
inn á landið um kl. 15 og fylgdu
þeim þrumuveður og mikil úr-
koma, og hvessti þá óðum ann-
ars staðar á landinu. Seinni-
párt dagsins var komin suð-
austanátt um allt landið, og
var veðurhæðin víða á bilinu
9-10 vindstig. í fyrrakvöld var
lægðin komin á utanverðan
Faxaflóa og mældist hún þá
932 millibör í lægðarmiðju.
Upp úr miðnætti tók vindur
að snúast í suðvestanátt, og
þá var hvassast á Stórhöfða,
en þar mældist vindhraðinn
mun meiri en 12 vindstig, eða
um 95 hnútar. í gærmorgun
var lægðin komin norður fyrir
Vestfirði, og komin hvöss suð-
vestanátt um allt landið. Um
sunnanvert landið mældust þá
mjög víða 10 vindstig, og 12
vindstig mældust á Stórhöfða
og á Hveravöllum, en þá var
lægðin farin að grynnast veru-
lega.
Almannavarnir ríkisins
sendu frá sér viðvörun síðdegis
í fyrradag, og sagði Guðjón
Petersen, framkvæmdastjóri
Almannavarna, að samkvæmt
upplýsingum lögreglustöðva
hefði það haft mikið að segja,
og fólk hafi almennt tekið við
sér og gengið frá lauslegum
hlutum í kringum hús sín, og
þannig forðað hugsanlegu tjóni
með fyrirbyggjandi aðgerðum.
Rafmagnstruflanir urðu
víða á Suðurlandi og á Vest-
fjörðum vegna óveðursins í
gærmorgun. Truflun varð á
rafmagnslínu á milli Hrauneyj-
arfossvirkjunar og Sigöldu um
klukkan hálf ellefu í gærmorg-
un. Hafði það í för með sér
skömmtun á rafmagni til stór-
iðju, og vegna álags og hárrar
tíðni var Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar látin keyra á varaafls-
stöð.
Samkvæmt upplýsingum
Pósts og síma urðu truflanir á
símasambandi í Borgarfirði og
undir Eyjafjöllum í gær vegna
rafmagnstruflana.