Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 31 Jónfríður Gísla- dóttir - Minning Fædd 18. október 1901 Dáin 27. desember 1989 Okkur systkinin langar í fáum orðum að minnast hennar ömmu okkar, Jónfríðar Gísladóttur, sem lést á þriðja dag jóla í Hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Amma fæddist í Austmannsdal í Ketildalahreppi í Arnarfirði. Árs- gömul fluttist hún að Króki í Selár- dal, þar sem hún ólst upp, í stórum systkinahópi hjá foreldrum sínum, þeim Ragnhildi Jensdóttur og Gísla Árnasyni. Sitt mesta gæfuspor steig amma þann 15. október 1921 er hún gekk að eiga afa, Kristján Ingvald Benediktsson, sem þá um vorið hafði tekið við búsforráðum á höfuðbólinu Selárdal. Afi var fædd- ur 2. mars 1890 að Kirkjubóli í Fífustaðadal í Arnarfirði, en for- eldrar hans voru Ragnhildur Þórð- ardóttir og Benedikt Kristjánsson hreppstjóri. Tvíbýli var í Selárdal og bjuggu þau með þeim hjónum, Jens bróður ömmu og Ingveldi syst- ur afa. Fullþröngt fannst afa um sig í Selárdal, svo hugurinn stefndi yfir fjörðinn. Þann 5. maí 1927 fluttu þau að Hrafnabjörgum í Lok- inhamradal, sem þau höfðu fest kaup á, og bjuggu þar sæmdarbúi um 13 ára skeið. Árið 1940 fluttust þau að Hrafnseyri. Oft mun hafa verið gestkvæmt hjá þeim hjónum á Hrafnseyri og voru þau rómuð fyrir afburða gestrisni, en þar mun ekki síður hafa reynt á húsmóður- ina, sem var einkar sýnt um að taka vel á móti fólki, með rausn og myndarskap, jafnframt glaðlegri og hispurslausri framkomu. Til Bíldudals fluttust þau 1946 og ári síðar til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu síðan. Afi lést í Reykjavík 10. júlí 1964 eftir stutta legu. Amma og afi eignuðust þrjú börn. Þau misstu fyrsta barn sitt aðeins þriggja vikna gamalt. Mamma okkar, Jóhanna Ámý Sigríður, fæddist 12. nóvember 1922, gift föður okkar, Leifi Hall- dórssyni. 5. maí 1925 fæddist Bene- diKt, en hann lést í ágúst mánuði síðastliðnum. Benedikt var kvæntur Ólöfu Ragnheiði Jónsdóttur. Nú er tala afkomenda ömmu og afa kom- in í 42. Öll eigum við yndislegar minn- ingar frá samverustundum okkar með ömmu og afá, öll saman eða hvert í sínu lagi. Alltaf var jafn gott og hlýtt að koma til þeirra á Háaleiti og ekki síst ef við fengum að gista. Á Háaleiti þar sem nú stendur verslunarmiðstöðin Austur- ver áttu þau stórt og mikið hænsnabú. Þar unnu þau saman við púturnar af mikilli alúð og sam- heldni og aldrei skyggði neitt á vin- áttu þeirra og ást. Eftir að afi dó fluttist amma að Álftamýri 32 þar sem hún hélt áfram sitt hlýja og fagra heimili, og þaðan eigum við yngri systkinin ekki síður góðar minningar. Fram yfir áttrætt átti amma því láni að fagna að vera mjög heilsu- hraust, en er heilsunni fór að hraka, bjó hún um fjögurra ára skeið hjá Olöfu og Benna í Vallargerði 16 í Kópavogi. Ólöfu og hennar heimilis- fólki viljum við sérstaklega þakka þá umhyggju og alúð sem þau sýndu ömmu alla tíð og einkum þessi síðustu ár. Á Hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð dvaldi hún síðustu 2-3 árin og færum við starfsfólki þess heimilis okkar bestu þakkir fyrir góða hjúkrun og um- hyggju. Elsku amma var okkur kær- leiksrík og góð, og átti alltaf mikla hlýju og ástúð til að miðla okkur. Nú kveðjum við hana með söknuði, en við vitum að hennar beið afí, sem okkur var öllum svo kær. Guð blessi minningu ömmu okk- ar. Nanna, Didda, Bóbi, Haddi og Ásta. Mig langar að minnast tengda- móður minnar, Jónfríðar Gísladótt- ur, sem lést 27. desember sl. á dval- arheimili aldraðra í Sunnuhlíð í Kópavogi, eftir nokkurra ára sjúkralegu. Var hvíldin henni kær- komin. Eftir að hún fór að kenna veik- inda sinna dvaldi hún hjá okkur hjónum, þar til veikindi hennar ágerðust. Flutti hún þá á dvalar- heimilið við Sunnuhlíð. Þar var okk- ur báðum einstök ánægja að geta endurgoldið eitthvað af því sem tengdamóðir mín hafði gert fyrir okkur hjónin og börnin okkar á lífsleiðinni. Það var henni þungbært er hún missti eiginmann sinn, Krist- ján Ingvald Benediktsson, aðeins 63 ára gömul. Hjónaband þeirra var einstaklega gott og einkenndist það af mikilli virðingu, skilningi og hlýju í garð hvors annars. Þau eignuðust þijú börn. Fyrsta barnið, sem var stúlka, misstu þau aðeins 2-3 vikna gamla. Síðar eignuðust þau Jó- hönnu Árnýju, hennar maður er Leifur Halldórsson og eiga þau fímm börn. Leifur var mikill dugn- aðarmaður, en hann dvelur nú á Hrafnistu í. Hafnarfírði. Yngstur var Benedikt, eiginmaður minn, en hann lést 8. ágúst sl., 64 ára að aldri. Okkar börn eru sex. Segja má að það hafí verið mikil blessun að tengdamóðir mín var löngu hætt að fylgjast með og vissi ekki um sjúkleika tengdasonar síns, né mik- il veikindi og andlát ástkærs sonar síns. Það sem mér finnst einkenna tengdafólk mitt er sterkur persónu- leiki. Það kvartar sjaldnast og tekur því, er að höndum ber með æðru- leysi. Benedikt minn sýndi einstakt æðruleysi í sínum veikindum og hið sama er að segja um systur hans í veikindum hennar og eiginmanns hennar. Tengdamóðir mín var mjög falleg kona og öll hennar verk einkennd- ust af myndarskap og dugnaði. Er móðir hennar varð ekkja, rúmlega fimmtug og var með son sinn innan við fermingu, tók hún þau bæði til sín, stuttu eftir að þau hjónin hófu búskap. Öllum sínum systkinum og þeirra fólki sýndi hún alltaf sér- stakan hlýhug og umhyggju. Mað- urinn minn sagði að samband þeirra mæðgna hefði verið einstaklega gott og hafði hann oft gaman af að hlýða á tal þeirra. Sem dæmi um það nefndi hann hve gaman þær höfðu af því að segja hvor annarri frá draumum sínum á morgnana. Móðir hennar bjó hjá henni þar til hún andaðist í hárri elli. Ég minnist þess með þakklæti að fyrir hver jól, á meðan heilsa hennar leyfði, bakaði hún með mér smákökur og lagði hún mikið upp úr því að hafa þær sem fallegastar. Á haustin hjálpaði hún mér við slát- urgerð. Svona get ég talið áfram, því það var svo ótal margt sem hún gerði fyrir mig og mitt heimili. Tengdaforeldrar mínir borðuðu alla tíð hjá okkur Benedikt mínum, á aðfangadagskvöld, frá því við fór- um að búa og jók það á jólagleð- ina. Vakti það mikla hrifningu hjá börnunum er tengdafaðir minn kom með jólagjafirnar í poka á bakinu. Nú veit ég að tengdamóðir mín elskuleg er komin til þeirra, sem hún elskaði svo heitt og ég bið henni blessunar drottins, með þakklæti fyrir allt. Blessuð sé minning henn- ar. _ Ólöf Ragnheiður Jónsdóttir Með þakklæti í huga kveðjum við elskulega ömmu okkar, Jónfríði Gísladóttur, er fæddist 17. október 1901, en lést 27. desember sl. Minningar okkar um ömmu eru fagrar. Hún var blíð og umhyggju- söm og bar hag okkar ætíð fyrir bijósti. Við minnufnst notalegra samverustunda, en amma var mik- ill höfðingi heim að sækja. Á slíkum stundum minntist hún oft áranna fyrir vestan, einhverra merkisat- burða eða þá skondinna tilsvara samferðamannanna, er hún hafði haft gaman af. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Síðustu árin átti amma við mikla vanheilsu að stríða. Dvaldi hún á heimili foreldra okkar um fjögurra ára bil og naut umönnunar móður okkar. Aldrei fannst ömmu hún þakka nægilega fyrir þá umönnun, en fram að þeirri stundu hafði amma verið sú sem ætíð var boðin og búin að rétta sínum nánustu hjálparhönd af mikilli ástúð, en var minna fýrir að þiggja aðstoð ann- arra. Síðustu tvö árin dvaldi amma á Sunnuhlíð í Kópavogi og naut þar góðrar umönnunar starfsfólks, sem við erum þakklát fyrir. Okkur finnst það notaleg til- hugsun að eftir hina erfíðu sjúk- dómslegu skuli amma nú vera kom- in yfír móðuna miklu en þar munu afí og pabbi taka á móti henni. En við trúum því að slíkt ferðalag bíði okkar allra fyrr eða síðar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú njóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning ömmu. Benediktsbörn t TÓMAS GUÐMUNDSSON, til heimilis í Skipholti 21, lést í Landspítalanum 8. janúar. Ólafi'a Guðbjörnsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, LAUFEY BENEDIKTSDÓTTIR frá Akureyri, lést í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 7. janúar. Ragna Svavarsdóttir. ____________Brids________________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Suðurnesja Nk. mánudagskvöld hefst meistara- mót Suðurnesja í tvímenningi. Spilað verður í 3-4 kvöld eftir þátttöku og verður keppnisfyrirkomulagið baromet- er. Síðastliðinn mánudag var spilaður eins kvölds tvímenningur og spiluðu 12 pör. Efstu pörin: Þórður Kristjánsson — Arnór Ragnarsson 207 Gísli Torfason — Þorgeir V. Halldórsson 203 Gunnar Siguijónsson — Haraldur Brynjólfsson 180 Meðalskor 165. Spilað er í Golfskálanum í Leiru kl. 20. Reykjavíkurmótið í sveitakeppni Þegar búið er að spila sex um- ferðir af sautján í Reykjavíkurmót- inu í sveitakeppni er staða efstu sveita eftirfarandi: Flugleiðir 116 Verðbréfam. Islandsbanka 115 ÓlafurLárusson 105 Modern Iceland 102 Delta 101 Samvinnuferðir/Landsýn 100 Sigmundur Stefánsson 98 Ármann J. Lárusson 91 Tryggingamiðstöðin 90 Framhald mótsins verður sem hér segir: 7.-9. umferð miðvikudaginn 10. janúar kl. 19.30; 10.-12. umferð" Iaugardaginn 13. janúar kl. 13.00; 13.-15. umferð sunnudaginn 14. janúar kl. 13.00; 16.-17. umferð miðvikudaginn 17. janúar kl. þ9.30. ‘ **J.4i« ifiiiii a Jtiiis ii iiimiii in ÚTSALAN HÓFST Í MORGUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.