Morgunblaðið - 10.01.1990, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Reuter
Vreni Schneider (til hægri) brosir sínu breiðasta eftir að hafa unnið 30.
heimsbikarmót sitt í gær. Við hlið hennar stendur Anita Wachter frá Aust-
urríki sem varð önnur, en hún er nú efst í sigakeppni heimsbikarsins.
Schneider
á sigurbraut
- hefurnú unnið 30 heimsbikarmót
AFSAKANIR
Fáránlegt að segja að æfingaleysi hái landsliðinu í handknattleik
Þvert á móti hafa atvinnumennimir sennilega aldrei æft betur
Það er alltaf eitthvað að, því fullkomnun veiður ekki náð
faómR
FOLK
■ VESTMANNAEYINGAR
hafa mikinn áhuga á að halda
Norðurlandamót drengjalands-
Hða í knattspyrnu, sem fer fram á
Islandi 1991. Þá hafa Akureyring-
ar einnig sýnt áhuga á að halda
mótið.
MHELGA Sigurðardótlir, sund-
konu frá Isafírði, hefur verið boðin
skólavist í háskólanum Alabama í
Bandaríkjunum og æfa með skóla-
liðinu. Helga mun að öllum líkind-
um halda utan í febrúar og kynna
sér aðstæður. Þetta boð er komið
fyrir tilstuðlan Ragnheiðar Run-
ólfsdóttur sem stundar nám í skól-
anurn.^
■ GÚSTAF Ómarsson, varnar-
maður Leilturs frá Olafsfirði,
hefur gengið til liðs við UBK og
mun leika með liðinu í 2. deild
knattspyrnunnar í sumar.
■ HORÐUR Bcnonýsson hefur
verið ráðinn þjálfari HSÞ-b í 4.
deildinni í knattspyrnu. Hörður
mun einnig leika með liðinu en hann
lék með Völsungum í 2. deild í
fyrra. Eiginkona Harðar, Freydís
Arngrímsdóttir, mun sjá um þjálf-
un í sundi og fijálsum íþróttum.
■ GUÐMUNDUR Hreiðarsson,
markvörður Víkings á síðasta
sumri, mun að öllum líkindum
ganga til liðs við Tiiru Diisseldorf
í vestur-þýsku 4. deildinni og leika
með því næstu tvö árin. Guðmund-
ur heldur til Vestur-Þýskalands í
dag og mun leika með Tiiru í innan-
hússmóti í Dusseldorf í næstu viku.
Hann mun síðan halda með liðinu
í æfingabúðir til Kanaríeyja.
■ KEFL VÍKINGAR hafa ráðið
Júgóslavann, Yelimir Sargic, til.
að sjá um þjálfun yngri flokka fé*-
lagsins í knattspyrnunni. Keflvík-
ingar eru einnig að vinna í því að
fá júgóslavneskan leikmann til að
leika með meistaraflokki félagsins
í sumar.
■ FÉLAGSGJÖLD hjá Golf-
klúbbi Reykjavíkur hækkuðu um
50% frá fyrra ári, úr 18.000 kr.í
27.000 kr., og ríkir nokkur óánægja
meðal klúbbfélaga. Björgúlfiir
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
GR, sagði að með þessari hækkun
væri GR að nálgast hina klúbbana
en GR hefur verið með mun lægra
árgjald en aðrir stórir klúbbar, að
sögn Björgúlfs. Þess má geta að
árgjaldið hjá Golfklúbbnum Keili
er 25.000 kr. og svipað hjá Golf-
klúbbi Akureyrar. Árgjaldið hjá
Golfklúbbi Suðurnesja verður
líklega um 30.000 kr. en ekki hefur
verið tekin endanleg ákvörðun.
Vreni Schneider frá Sviss sigraði
í þriðja heimsbikarmótinu á
þessu keppnistímabili í gær. Hún
var tæplega sekúndu á undan Anitu
Wachter frá Austurríki í svigkeppni
sem fram fór í Hinterstoder í Aust-
urríki. Christine von Griiningen frá
Sviss náði þriðja sæti, sem er henna
besti árangur í heimsbikarnum.
Schneider hefur nú unnið alls 30
heimsbikarmót frá því 1985, þar
af eru 13 þeirra í svigi. Hana vant-
ar nú aðeins einn sigur í viðbót til
að jafna met löndu sinnar, Eriku
Hess, sem er í fjórða sæti yfir þær
stúlkur sem unnið hafa flest heims-
bikarmót.
Anita Wachter hefur nú forystu
í heimsbikarnum samanlagt, með
155 stig. Michaela Gerg frá Vest-
ur-Þýskalandi er í öðru sæti með
135 stig og Petra Kronberger,
Austurríki, í þriðja með 125 stig.
Islenska landsliðið í hand-
knattleik hefur verið í sviðs-
ljósinu að undanförnu og áhuga-
menn um íþróttir bíða spenntir
eftir Heimsmeistarakeppninni,
sem verður í Tékkóslóvakíu og
hefst í lok næsta
mánaðar. Umrætt
iið hefur iljað mörg-
um um hjarta-
ræturnar undanfar-
in ár, en með hverj-
um sigrinum hafa
kröfurnar aukist til
muna og því hafa
ieikmennirnir fengið
orð í eyra, þegar
þeir hafa ekki staðið
undir — oft á tíðum
óraunhæfum —
væntingum.
Mikil breyting til
batnaðar varð á
íslenskum hand-
bolta með komu
Bogdans fyrir meira
en áratug, en þjálf-
arinn hefur ávallt
verið kröfuharður —
það besta hefur
aldrei verið nógu
gott. Hann hefur
sem landsliðsþjálfari
dregið í land fyrir
hvert stórmót, sagt
að undirbúningur
væri ónógur, dregið
úr vonum og vænt-
ingum. Hann kann
sitt fag, er metnað-
arfullur þjálfari, en
vill helst hafa lands-
liðshópinn alfarið út
af fyrir sig — 12
mánuði á ári. Eðii-
legt fyrir landsliðs-
þjálfara að mörgu
leyti, en af öllu má
nú ofgera.
Bogdan syngur
kunnan þjálfara-
söng í Morgunblað-
inu í gær, kvartar
undan of fáum leikjum og æf-
ingum fram að HM. Við erum
langt að baki öðrum þjóðum
hvað þetta snertir, er haft eftir
þjálfaranum. Þorbergur Aðal-
steinsson, fyrrum landsliðsmað-
ur, svarar þessu að hluta í sam-
tali við DV í gær. „Fá lið búa
sig betur undir keppnina, það
er helst að Sovétmenn komi
betur undirbúnir til leiks“, segir
Þorbergur og bendir á að Svfar
koma saman í tvær vikur.
Bogdan segir réttilega í blað-
inu í gær að „ævintýrið" hafi
ekki byijað fyrr en fyrir sjö
árum „og það var eingöngu
vegna æfinga". Mikið rétt —
markviss þjálfun hefur skilað
sér, en það er ekki þar með
sagt að landsliðsmennirnir séu
æfingalausir nú, þó þeir séu
ekki saman öllum stundum.
Þvert á móti hafa atvinnumenn-
irnir sennilega aldrei verið í betri
æfingu.
Auðvitað er eithvað að. Það
er alltaf eitthvað að, því alltaf
má gera betur — fullkomnun
verður ekki náð. En fyrr má nú
rota en dauðrota.
Tilfellið er að kjami íslenska
landsliðsins er einn sá sterkasti
og besti, sem um getur, og hóp-
urinn allur sæmir sér vel á með-
al þeirra, sem skara fram úr.
Þegar liðið leikur eins og það
getur best, þegar nær allt geng-
ur upp, snúast fá lið því snúning
eins og dæmin sanna. Ný leik-
kerfi hafa hins vegar verið æfð
að undanfornu með misjöfnum
árangri, en þessir strákar þurfa
æ minni tíma til að fínpússa
hlutina og ástæðulaust að vera
með afsakanir á þessari stundu,
þó vara beri við bjartsýni.
Allt tal um æfingaleysi er út
í hött, þó samæfing hafi verið
af skornum skammti. Það er
ekki fjöldi æfinga, sem skiptir
máli, heldur hvernig er æft og
með hvaða hugarfari og það
veit Bogdan manna best. Kjarn-
inn hefur lítið annað gert í mörg
undanfarin ár en að æfa og spila
handbolta. Ekki portabolta,
heldur æft og leikið í keppni
þeirra bestu; með landsliðinu,
með félagsliðum í Vestur-
Þýskalandi, á Spáni, í Frakk-
landi. Þetta eru allt atvinnu-
menn í hugsun og flestir í verki.
Þetta eru menn, sem leggja sig
fram og reyna ávallt að gera
sitt besta, einkum og sér í lagi,
þegar mikið liggur við.
Það er sjálfsagt að gera kröf-
ur til landsliðsins, en þær verða
að vera raunhæfar. Eins og oft
hefur verið bent á, er ekki svo
mikill munur á nokkrum bestu
landsliðum heims. Lítið má út
af bregða sbr. Sovétmenn í HM
í Sviss, íslendinga og Austur-
Þjóðveija á Ólympíuleikunum í
Suður-Kóreu og Vestur-Þjóð-
veija í B-keppninni í Frakk-
landi. Áföll mega samt ekki
draga úr mönnum kjark; menn
mega ekki statt og stöðugt
mála skrattarn á vegginn,
byggja upp ineð því að búast
við hinu versta. Þvert á móti er
alfarsællegast að halda haus,
læra af mistökum og tvíeflast
við mótlætið, mæta til leiks létt-
ir í lundu, lofa hvern dag að
kveldi og spyija að leikslokum.
Aðalatriðið er að reyna að halda
sætinu í hópi hinna bestu.
Steinþór
Guðbjartsson
Fulltrúaráð siálfstæðisfélaganna í Reykjavík
- aðalfundur
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík verður haldinn í Súlnasal
Hótels Sögu í dag, miðvikudagínn 10. jan-
úar, kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ákvörðun um tilhögun á vali frambjóðenda
vegna borgarstjórnarkosninga.
3. Ræða; Davíð Oddsson, borgarstjóri.
4. Önnur mál.
Fundarstjóri: Geir H. Haarde, alþingismaður.
Fundarritari: Brynhildur Andersen, húsmóðir.
Fulltrúar eru beðnir að sýna skírteini sín við innganginn. IMýir fulltrú-
ar, sem ekki hafa fengið fulltrúaráðsskírteini, eru beðnir að hafa nafn
skírteini meðferðis.
Stjórnin.
Bogdan of svartsýnn
Bogdan landsliðsþjálfari kann sitt fag, en tal um
æfingaleysi landsliðsmanna á ekkí við, þó samæf-
ing sé ef til vill af skomum skammti.