Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 14
GÍ 14 yœE ha'jmai .11 mioAUJTMjm QiciAjavoaaoM líöllGTJNBLA'ÐIÐ 'FIMMTUDAGUR’I i: JANÚffR-rgaff-----------------*----------------------------------l -I [FJræðslumiostöð RAUÐA KROSS ÍSLANDS IS]kyndihjálp SJkyndihjálparnámskeið þáttt.: Námskeiðin eru öllum opin,15 ára og eldri. markm.: Að þátttakendur verði hæfir til að veita tyrstu hjálp á slysstað. dagskr.: Grundvallarreglur skyndihjálparmannsins, endurlífgun, meðvitundarleysi, lost, blæðing, sár, beinbrot, brunasár, rafmagnsslys, kai, ofkæling, ofhitnun, bráðir sjúkdómar, aðskotahlutir (hálsi, sálræn hjálp, umbúðir, flutningur slasaðra. gögn: Skyndihjálp, kennslubók útgefin af RKÍ '87. kst.: 16 kennslustundir. REYKJA VÍKURDEILD tími: 16,- 25. janúar 1.- 9. mars 3,- 18. apríl 6.- 14. juní 13.- 21. ágúst Kennt er frá kl. 20:00 til 23:00 uppl.: Skrifstofa Reykjavíkurdeildar, sími: 91 - 28222 KÓPAVOGSDEILD tImi: 20. - 28. febrúar 6,- 14. mars 17,- 30. maí 3,- 11. júlí Kennt erfrá kj. 20:00 til 23:00 uppl: Skrifstofa RKI, sími: 91 -26722. RK-DEILD KJÓSARSÝSLU uppl.: Sigurósk Edda Jónsdóttir, sími: 91 - 666200 tími: Reykjalundur, febrúar STYKKISHÓLMSDEILD uppl.: Kristín Árnadóttir, sími: 93 - 81465 Arnþrúður Bergsdóttir, sími: 93 - 81314 tImi: Janúar RK-DEILD ÍSAFJARÐAR OG N-ÍSAFJARÐARSÝSLU uppl.: Þorbjörn Sveinsson, sími: 94 - 4757 tími: I. Janúar II. Maí RK-DEILD BOLUNGARVÍKUR uppl.: Þorbjörn Sveinsson, sími: 94 - 4757 tími: ■ I. Janúar II. Maí RK-DEILD A,-HÚNA VATNSS ÝSL U uppl.: Ingvi Þór Guðjónsson, sími 95-24168/24206 tími: Janúar ENDURLÍFGUN - 2ja kvölda námskeið: Febrúar - Agríl SKAGAFJARÐARDEILD uppl.: Karl Lúðvíksson, sími: 95 - 38816 tími: I. Sauðárkrókur, apríl II. Varmahllð, apríl FRÆÐSLUFUNDUR -1 kvöld frá ki. 20 - 23 Verklegar æfíngar í blæstri og hjartahnoði. tImi: I. Sauðárkrókur, mars II. Varmahlíð, mars Næst... Auglýsingastofa AKUREYRARDEILD uppl.: Skrifstofa Akureyrardeildar, sími: 96 - 24402 tImi: Mars leiðb.: Jón Knudsen HÚSA VÍKURDEILD uppl.: Hermann Jóhannsson, sími: 96 - 41768 tími: Febrúar NORDFJARÐARDEILD uppl.: Þórir Sigurbjörnsson, sími: 97 - 71477 tImi: Apríl ESKIFJA RÐA RDEIL D uppl.: Hildur Metúsalemsdóttir, sími: 97 - 61239 tImi: Janúar RK-DEILD A-SKAFTAFELLSSÝSLU uppl.: Halldóra Hreinsdóttir, sími: 97-81411/81177 tími: Febrúar VESTMANNAEYJADEILD uppl.: Bjarni Sighvatsson, sími: 98 -11404 tImi: Janúar RK-DEILD Á SUÐURNESJUM uppl.: Gísli Viðar Harðarson, sími: 92 -11195 tími: Keflavík, mars GRINDA VÍKURDEILD uppl.: Gunnlaugur Dan Ólafsson, sími: 92 - 68504 tími: Mars - Apríl HÓPAR - FORRÁÐAMENN FYRIRTÆKJA OG STOFNANA Fræðslumiðstöð RKÍ útvegar leiðbeinendur og námsgögn fyrir skyndihjálparnámskeið. UPPL ÝSINGAR Upplýsingar um námsefni og pámskeið á vegum Fræðslumiðstöðvar RKI eru veittar á skrifstofu Rauða kross Islands, sími: 91-26722. SKYNDIHJÁLP - KUNNÁTTA SEM GETUR BJARGAÐ LÍFI Hljómeyki Tónlist___________ JónÁsgeirsson Sönghópurinn Hljómeyki undir stjórn Hjálmars H. Ragnarssonar hélt tónleika í Kristskirkju sl. sunnudag. Á efnisskránni voru eingöngu verk eftir stjórnand- ann, sömu verk og Hljómeyki flutti sl. sumar í Skálholti og höfðu að nokkru verið frumflutt af öðrum kórum áður. Hér er um að ræða fimm þátta messu, eina mótettu við latneska textann Ave María og lítið en nettlega gert lag við gamla íslenska bæn. Það var að nokkru fjallað um verkin í gagnrýni um tónleikana í Skálholti en við hana má því bæta að það var sérlega skemmtilegt að heyra þessi ágætu verk aftur, ekki minnst fyrir það hversu vel þau voru flutt. Nokkuð má merkja það á heild messunnar að tveir þættir hennar, Gloría og Credo, eru samdir nokkuð fyrr. Einn viða- mesti þáttur verksins er Kyrie, þar sem nútímaleg tónskipan er meira áberandi en í Sanctus- þættinum. Þar bregður Hjálmar hins vegar á það ráð að nota organum-vinnuaðferðir, sem stinga nokkuð í stúf við annað tónefni verksins og gagnstætt því sem oftast gerist var Sanc- tus-þátturinn allt að því dapur- legur en friðarbænin, Agnus Dei, aftur á móti fjörug, allt að því gáskafull. Hvað sem þessum vangavelt- um líður er verkið í heild mjög áhrifamikið, tónmálið leikrænt og blæbrigðaríkt. Ave Marían, sem er hljómræn að gerð og minnir mjög á meistara Jón Leifs, er feikna falleg tónsmíð og sömu- leiðis lítil bæn til Maríusonarins, er kórinn söng í upphafi tónleik- anna. Flutningur Hljómeykis var hreint út sagt stórkostlegur enda og auðheyrt á söngfólkinu, að í söng þeirra bjó sterkt samspil góðrar tónlistar og skilnings á verkinu.í samvirku átaki stjórn- anda og vel kunnandi kórs, svo að ekki gerist að heyra betur sungið. Paul Zulkofsky. Anna Guðný Guðmundsdóttir. Samleikur á fíðlu og píanó Þriðju tónleikar Tónlistarfé- lagsins á þessu starfsári voru haldnir í Langholtskirkju sl. þriðjudag. Á efnisskránni var eitt verk, „for John Cage“ eftir Mor- ton Feldman. Fiytjendur voru Paul Zukofsky og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Mortom Feld- man er eitt af þekktari tónskáld- um Bandaríkjanna er hefur í tónsmíðum sínum gert margví- slegar tilraunir á sviði tónritun- ar. Það sem helst einkennir tón- verk hans er hægferðugt og fíngert tónmál, er ieika skal oft- ast mjög veikt. „Til John Cage“ er sérlega hljóðlátt verk en þrátt fyrir það ekki viðburðalítið. Þar má heyra alls konar tóntilbrigði, bæði í blæ og tónstöðu og sérkennilegri samhljóman. Það var með ólík- indum hversu Zukofsky lék sér að ýmiskonar tilfærslum á tón- stöðu, hárnákvæmum breyting- um á samhljómandi tónbilum og flaututónum og einnig þar sem sama tónferli var endurtekið án nokkurra breytinga, hve mikillar nákvæmni gætti í leik. Frábær samstilling og eðlilega hamin túlkun Zukofskys og Önnu Guðnýjar gaf þessum tónleikum sérkennilegan blæ og trúlega verður verkið ekki betur flutt en að þessu sinni og tónleikarnir því merkilegur tónlistarviðburður, viðburður sem ekki er hugsanleg- ur nerna að hann sé framinh af snillingi á borð við Paul Zukof- sky.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.