Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 30
")5TOM 30 0')RI HAftMAi. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990 Hlíðarfjall: Búið að reisa nýja skíðalyítu í Hólabraut BÚIÐ er að reisa nýja skíðalyftu í Hólabraut í Hlíðarfjalli og í gær vann hópur manna við að setja upp vír lyftunnar. Lyftan fer í gang í þessari viku, en þá vantar aðeins snjóinn svo ungir Akureyringar geti prófað hana. Ivar Sigmundsson forstöðumaður Skíðastaða sagði að nánast allan snjó vantaði í Hlíðarfjall og í gær þegar unnið var við vír nýju lyftunn- ar óku menn á bifreiðum um allt fjali. Opnað var fyrir skíðafólk í Hlíðarfjalli 28. janúar í fyrra og sagði ívar að vonandi yrði ekki opnað seinna í ár. „Við höfum ekki prófað dansskóna Slippstöðin hf.: Engin verk- efni í febrúar UNNIÐ er að því að afla verk- eftia fyrir Slippstöðina hf. en engir samningar um verk liggja fyrir frá og með febrúarmánuði. Verkefriastaðan var þokkaleg í desember og hið sama gildir um janúarmánuð. Sigurður Ringsted forstjóri Slippstöðvarinnar hf. sagði að unn- ið 'væri að ýmsum smáverkefnum og viðhaldi skipa, en engin stór verkefni væru í gangi. Þessum verkum verður öllum lokið seinna í þessum mánuði eða í þeim næsta. Stærsta verkefni stöðvarinnar í haust hefur verið viðgerð á strand- ferðaskipinu Heklu, en því verki verður lokið í byijun næsta mánað- ar. Um 200 manns vinna nú hjá Slippstöðinni. Gengið hefur verið frá endurráðningum á milli 120 til 130 manna, en sem kunnugt er var öllum starfsmönnum stöðvarinnar sagt upp störfum í byijun nóvem- ber á síðasta ári. neitt að ráði, enda verður það al- gjört neyðarúrræði að taka þá fram, miðað við reynsluna í fyrra,“ sagði Ivar, en á síðasta ári leit ekki vel út með snjó í fjallinu og gripu forr- áðamenn Skíðastaða þá til þess ráðs að taka fram svokallaða dansskó og stíga villtan snjódans um svæðið. Dans þessi hafði þau áhrif að snjó kyngdi niður svo til allan veturinn og ætlaði snjókoman engan enda að taka. Nýja skíðalyftan í Hólabraut er 350 metra löng og á henni er 50 metra hæðarmunur, en hún getur flutt 800 manns á klukkustund. Kostnaður vegna kaupa lyftunnar og uppsetningar er um 6 milljónir króna, en hún er einkum ætiuð börn- um og byijendum og var ráðist í kaup hennar vegna slysahættu sem fyigdi gömlu togbrautinni. Morgunblaðið/Rúnar Þór Búið er að reisa nýja diskalyftu í Hólabraut í Hlíðarfjalli og verður hún sett í gang í þessari viku. Hins vegar vantar nánast allan snjó í fjallið svo einhver bið verður á að skíðafólk fái að prófa hana. Símsambandslaust í 45 mín- útur vegna álags á símkerfíð Símsambandslaust varð á Akureyri í 45 mínútur í fyrrakvöld, þegar stofnöryggi í rafgeymum hjá Pósti og síma gáfu sig í kjölfar mikil álags á símakerfið, en rafmagnslaust varð í bænum um kl. 9.20 um kvöldið. Ársæll Magnússon umdæmisstjóri Pósts og síma á Akureyri sagði að þegar rafmagn fór af bænum hafi fjölmargir gripið til símans til að kanna hvað hvað væri að og við álag- ið hafi stofnöryggi í rafgeymum rofnað. Við bilunina varð 7.000 núm- era stöð straumlaus og örbylgju- og ljósleiðarasambandið datt einnig út. Viðgerð tók um þijá stundarfjórð- unga. Ársæll sagði að í ljósi fenginn- ar reynslu yrði kerfið endurskoðað, svo tryggt yrði að þetta endurtæki sig ekki. Lögreglu var strax gert viðvart og kom hún boðum til slökkviliðs. Ingimar Skjóldal varðstjóri lögregl- unnar sagði að svo vel hefði viljað, til að ekkert kom upp á á þeim tíma sem símasambandslaust varð. Þá sagði hann að í bækistöðvum al- mannavarna í kjallara lögreglustöðv- arinnar væru handvirkir símar og í úr þeim væri hægt að ná sambandi beint við sjúkrahús, slökkvilið, flug- völl og fleiri staði. Einnig væru fyrir hendi talstöðvar. Hjá Landsvirkjun fengust þær upplýsingar í gær, að bilun hefði orðið í Kröfluvirkjun með þeim af- leiðingum að byggðalínuhringurinn rofnaði og rafmagn fór af. Viðgerð tók taisverðan tíma og lauk á fjórða tímanum í fyrrinótt. Hjá Rafmagnsveitu ríkisins á Ak- ureyri fengust þær upplýsingar að vegna bilunar á línu í Glæsibæjar- hreppi hefði rafmagn farið af Eyja- firði, fyrst um kl. 15. um daginn og síðan aftur um kvöldið og hefði það ekki komist á fyrr en rétt fyrir mið- nætti. Bilun í rofa á Rangárvöllum varð þess síðan valdandi að Eyfirð- ingar fengu rafmagn síðar en Akur- eyringar. Frystihús KEA á Dalvík: Flæðilínan hefiir skilað allt að 40% meiri afköstum á hvern starfsmann Um 500 tonna samdráttur í vinnslunni á milli ára ÁRS reynsla af flæðilínu í frysti- húsi KEA á Dalvík er góð og hefur hún skilað starfsfólki um 30% hærri bónus en áður var. Afköstin hafa aukist til muna eftir að flæðilínan var tekin upp, um allt að 30-40% á hvern starfsmann. Aðstaða starfsfólks er betri en áður var og störfín léttari. Gunnar Aðalbjörnsson frysti- hússtjóri á Dalvík sagði að reynsla fyrirtækisins af flæðilínunni það ár sem hún hefði verið í notkun væri góð. Kostir hennar væru mun f leiri en gallamir. Flæðilínan hefði í för með sér breytingar á vinnslu- kerfi og einnig á fyrirkomulag bónuss. Störf starfamanna yrðu léttari og aðstæður þess á vinnu- stað betri. Það skilaði sér í meiri afköstum og reiknaði hann með að afköst hvers starfsmanns hefðu aukist um 30— 40% á síðasta ári, eða frá því flæðilínan var tekin í notkun. Flæðilínan hefði einnig verið töluverð kjarabót fyrir starfsfólk, því bónus hefði hækkað um 30% frá því sem áður var. Helsta galla f læðilínunnar sagði Gunnar vera að í gamla kerfinu hefði verið fylgst með nýtingu hvers og eins starfsmanns, en nú væri slíkt ekki hægt lengur, heldur er fylgst með öllum hópnum. „Við erum ánægðir með reynsluna af flæðilínunni og kostir hennar eru mun fleiri en gallarnir," sagði Gunnar. Saltfiskverkun hefst í dag og frystingin fer í gang næsta mánu- dag. Björgvin kom til lands í fyrra- dag vegna veðurs og var hánn með 85 tonn eftir fjögurra daga veiðiferð. Von er á Björgúlfi inn til löndunar í næstu viku. „Við erum nokkuð bjartsýn á þetta nýja ár, þrátt fyrir að áfram- haldandi samdráttur sé fyrirsjáan- legur. Þetta er spurning um hvern- ig hægt er að spila úr því sem maður hefur, en það á eftir að koma í ljós,“ sagði Gunnar, en vel rættist úr á síðasta ári, sérstak- lega var seinnihluti árs góður. Gunnar sagði að ekki hefði verið jafnmikil vinna í frystihúsinu í desember síðan árið 1982. „Það rættist vel úr haustinu, tíðin var góð og við yfirborguðum tvo tog- ara, Baldur og Dalborguna, þann- ig að við höfðum stöðugt hráefni, Guðmundur Sigurbjörnsson hafn- arstjóri sagði að fækkunin kæmi fyrst og fremst til af því hvérsu fá loðnuskip komu til Krossaness vegna lélegrar loðnuveiði. Reiknaði hann með að um 150-200 skip kæmu til hafnar á Akureyri vegna loðnuvertí- ðarinnar á ári. Á síðasta ári komu 860 skip til hafnar á Akureyri og voru þau 988 þúsund brúttórúmlestir að stærð. Á milli áranna 1988 og 89 varð 6% fjölgun á skipakomum til hafna á auk þess keyptum við um 180 tonna ýsukvóta.“ Gunnar sagði að samdráttur í vinnslunni á milli ára næmi um 500 tonnum, en um 7.000 tonn voru unnin á árinu 1988 á móti 6.500 tonnum á síðasta ári. Akureyri, en á árinu 1988 komu 936 skip í höfn og voru þau rétt rúmlega ein milljón brúttórúmlestir að stærð. Fækkun á skipakomum síðasta árs sagði Guðmundur einkum stafa af lélegri loðnuveiði, en reikna mætti með um 60 færri skipakomum í haust vegna þess. Þá sagði Guðmundur að gróflega áætlað yrði Akureyrarhöfn af um tveggja milljón króna tekjum, m.a. vegna afla- og vörugjalda, ef ekki verður brædd loðna í Krossa- nesi á þessari vertíð. Akureyrarhöfti: Skipakomum fækkaði um 8% á síðasta ári SKIPAKOMUM í Akureyrarhöfn fækkaði um 8% á síðasta ári ef miðað er við árið þar á undan. Á árinu 1989 komu 860 skip í höfh á Akureyri, en þau voru 936 árið á undan. Sýningin „Komdu í kvöld“ í Hollywood SÝNINGIN „Komdu í kvöld“, sem var í veitinga- húsinu Broadway í haust, verður á næstunni sett upp í Hollywood. Ákveðið hefur verið að söðla um í Holly- wood og miða staðinn og skemmtiatriði þar við eldra fólk en verið hefur. í sýningunni „Komdu í kvöld“ flytja fimm söngvarar lög eftir Jón bankamann Sig- urðsson. Söngvararnir eru Ellý Vilhjálms, Þorvaldur Halldórsson, Björgvin Hall- dórsson, Hjördís Geirsdóttir og Trausti Jónsson. Hljóm- sveit Jóns Sigurðssonar leikur undir. Sýningin verður á efri hæð skemmtistaðarins og þar verða gerðar ýmsar breytingar til að taka á móti matargest- um, en borinn verður fram kvöldverður fyrir sýningu. Eftir sýningu leikur hljómsveit Jóns Sigurðssonar fyrir dansi, en á neðri hæðinni leikur hljómsveitin Lónlí Blú Bojs. Sýningin „Komdu í kvöld“ verður í fyrsta sinn í Holly- wood föstudaginn 19. janúar. Frekari upplýsingar og borða- pantanir era í Hollywood. Lónlí Blú Bojs leika hins vegar í fyrsta sinn í Hollywood um næstu helgi, 12. og 13. janúar. Eddie Skoller á hljómleikum. Eddie Skoller kemur hingað í annað skipti HINN þekkti danski skemmtikraftur, grínisti, háðfugl og söngvari Eddie Skoller er væntanlegur til íslands og mun halda hljóm- leika í Gamla bíói 20. og 21. janúar næstkomandi auk þess sem hann skemmtir á Herrakvöldi Lionsklúbbsins Njarðar 18. janúar en á veg- um hans kemur Eddie Skoll- er nú öðru sinni. Eddie Skoller er danskur en reyndar var faðir hans rússneskur gyðingur, en móðir hans sænsk, og hann fæddist í Bandaríkjunum 1944, en ólst upp í Danmörku frá 6 ára aldri. Hann útskrifaðist úr Verzlunarháskólanum í Kaup- mannahöfn með ágætiseink- unn, en leiddist skrifstofuvinn- an og langaði að skemmta fólki. Fyrir 20 árum skemmti hann í Tivoli í Höfn, og það tókst með slíkum ágætum, að síðan hefur hann getað helgað líf sitt þeirri köllun að skemmta fólki. Hljómleikarnir í Gamla bíói 20. og 21. janúar hefjast kl. 20.30, en miðasala er frá 11. janúar kl. 15-19., (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.