Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990 5^ faém FOLK ■ TINDASTÓLL og Haukar áttu að leika í úrvalsdeildinni á Sauðárkróki í fyrrakvöld. Leiknum var frestað vegna ófærðar og verð- ur í kvöld kl. 20.00 ■ HENNING Henningsson, knattspyrnumaður úr FH, hefur ákveðið að leika með KS frá Siglu- firði í 2. deild í sumar. Henning er fjölhæfur íþróttamaður því hann er einn lykilmanna í úralsdeildarliði Hauka í körfuknattleik. ■ TVEIR íslendingar, búsettir í Kaupmannahöfn, Viðar Birgis- son og Óttar Ottósson, hafa ákveðið að standa fyrir hópferð á heimsmeistarakeppnina í hand- knattleik í Tékkóslóvakíu. Verð fyrir 11 daga ferð með hóteli í Bratislava og Prag, hálfu fæði, rútuferðum og miðum á leikina er 28.000 kr. en lagt er upp frá Kaup- mannahöfn. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við þá félaga í síma 9045-42652096 eða 9045- 33321244. ■ UM ÁRAMÓTIN fór fram golf- mót á vegum Samvinnuferða- Landsýnar á Benidorm. í karla- flokki sigraði Bergur Eggertsson á 83 höggum og Jón Friðriksson var í 2. sæti með 96 högg. í kvenna- flokki sigraði Margrét Sveins- dóttir með 104 högg. ■ SKAGAMENN sigruðu í Litlu bikarkeppninni í knattspymu inn- anhúss sem fram fór í Kópavogi um helgina. Skagamenn unnu Keflvíkinga 5:3 í úrslitaleik. Víðir hafnaði í 3. sæti eftir sigur á Stjörnunni, 4:3. Næstu lið voru Breiðablik, Selfoss, FH og loks Haukar. ■ MEISTARARNIR í NFL- deildinni, San Francisco 49ers tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lands- deildarinnar með stórsigri á Minne- sota Vikings, Frá Gunnarí 41:13, um helgina. Valgeirssyni í Minnesota hefur Bandaríkjunum verið tai;ð besta varnarlið deildarinn- ar en réði ekki við hinn snjalla Joe Montana, leikstjórnanda San Francisco. Liðið mætir Cleveland Browns í úrslitaleiknum um næstu helgi en Cleveland sigraði Buffalo Bills, 34:30. ■ MIKIL spenna var í leik New York Giants og Los Angeles Rams í New York. Framlengja þurfti leikinn og Willy Anderson gerði sigurmark LA Rams eftir að hafa fengið sendingu af 30 metra færi. Anderson greip boltann hlaupandi og hélt áfram og hægði ekki á sér fyrr en hann var kominn inn í búningsklefa! Anderson vildi eiga boltann sem minjagrip og vildi því ekki sleppa honum. LA Rams mætir Denver Broncos í úrslitum í Ameríkudeildinni en Denver sigr- aði Pittsburg Steelers, 24:23. Sig- urvegarar í úrslitaleikjunum tveim- ur mætast í stóra leiknum „Super bowl“ sem fram fer eftir þijár vik- ur. ■ PA UL Azinger sigraði í Meist- arakeppninni í golfi sem fram fór í Kaliforníu um helgina. Hann lék síðasta hringinn á þremur höggum undir pari og skaust þannig framúr Ástralíumanninum Ian Baker- Finch. í heild lék Azinger 54 holur á 13 undir pari og en Baker-Finch á 11 undir pari. Mark Calcavec- chia hafnaði í 3. sæti. ■ SOVÉSKA fréttastofan TASS hefur valið tenniskonuna Steffi Graf íþróttamann ársins í heiminum 1989. FÉLAGSMAL Firmakeppni Víkings Hin árlega félaga- og firma- keppni Víkings í innanhúss- knattspyrnu verður haldin helgina 13.-14. janúar. Skráning í síma 83254 og 676073. SKIÐI Alþjóðleg mót í BláQöllum FlS-mótin sem fram áttu að fara á ísafirði og í Reykjavik í apríl hafa veriðfeld niður. i stað þess verða tvö alþjóðleg mót í Bláfjöllum í framhatdi af Vetrariþróttahátíðinni á Akureyri. Tvö FlS-mót verðp í Bláfjöllum 3. apríl í framhaldi af Vetrar- íþróttahátíðinni. Eins og áður hef- ur komið fram verða alþjóðleg Fis-mót samhliða Vetrarhátíðinni á Akureyri og Dalvík 27. mars til 1. aprfl. Niðurröðun FlS-mótanna hér á landi verður sem hér segir: 29. mars: Stórsvig karla á Dalvík og stórsvig kvenna á Akureyri. 30. mars: Stórsvig kvenna á Dalvík og svig karla á Akureyri. 31. mars: Svig karla á Dalvík og svig kvenna á Akureyri. 1. apríl: Svig kvenna og karla á Akureyri. 3. apríl: Svig kvenna og karla í Bláfjöllum. Sigurður Einarsson, formaður SKÍ, segir að viðmiðunarpunktar (FlS-stig) fyrir alþjóðamótin hér verði nú 40 stig, en voru 60 í fyrra. Það má því gera ráð fyrir að mótin verði sterkari ( ár. Búist er við að erlendir keppendur verði ekki færri en á síðasta ári. Skíðamót íslands fer fram í BiáQöllum helgina eftir páska, 18. til 22 apríl. Andrésar-andar leik- amir fara fram á Akureyri sömu daga og landsmótið. KNATTSPYRNA HANDBOLTI Guðmundur kom St. Mirren á bragðið Derby tapaði heima iyrir Port Vale Guðmundur Torfason Guðmundur Torfason bætti enn einu markinu í safnið í gær- kvöldi og kom samheijum sínum í St. Mirren á bragðið í 2:0 sigri gegn Dunfermline í skosku úrvals- deildinni. Guðmundur skoraði eftir fimm mínútna leik og er í hópi markahæstu manna deildarinnar. Átta leikir fóru fram í 3. umferð ensku bikarkeppninnar og bar helst til tíðinda að Port Vale sló Derby út — vann 3:1 á Baseball Ground og voru öll mörkin gerð í seinni hálfleik. Aston Villa, sem mætir Port Vale í 4. umferð, átti í mestu erfið- leikum með Blackburn, sem m.a. tókst ekki að skora úr vítaspymu. Önnur úrslit voru samkvæmt „bók- inni“. Rögnvald Stefán Stefán og Rögn- vald dæma ámótií Tékkóslóvakíu STEFÁN Amaldsson og Rögn- vald Erlingsson, handknattleiks- dómarar, hafa þegið boð tékkneska handknattleikssambandsins, um að dæma á alþjóðlegu kvennamóti sem hefst í lok þessa mánaðar. ■Þá má geta þess að frágengið er að tékkneskir dómarar koma hingað til lands og dæma leikina gegn Rúmenum í byijun febrúar, ef af þeim verður. ■ LEE Chapman var í vikunni seldur frá Nottingham Forest til Leeds United sem er efst í 2. deild. Wilkinson, framkvæmda- ■^■■■1 stjóri Leeds og fyrr- Frá Bob um stjóri hjá Sheffi- Hennessy eld Wednesday, lEnglandi greiddi 400 þúsund pund fyrir Chap- man og er hann fimmti fyrrum leik- maður Sheffield Wednesday sem Wilkinson kaupir til Leeds. Haiin ' hefur greitt 3,5 milljónir punda fyr- ir leikmenn, síðan hann tók við stjórninni á Elland Road fyrir 16 mánuðum. Chapman, sem er þrítugur, gerði 19 mörk í fyrra fyr- ir Nottingham Forest og níu það sem af er þessu tímabili. Hann gerði alls 78 mörk fyrir Wednesday í 183 leikjum. ■ MICKY Hazard var í gær seld- ur frá Chelsea til Portsmouth fyr- ir 100 þúsund pund, en fyrir skömmu hafnaði hann tilboði frá Newcastle. ■ ROY Aitken, fyrirliði skoska landsliðsins og Celtic, tók boði Newcastle, sem bauð 500.000 Sund í kappann. I IAN McCall var seldur frá Glasgow Rangers til Bradford City fyrir 200.000 pund. ■ LÓU Macari bauðgt til að segja af sér fyrir bikarleik West Ham gegn Torquay, en nokkrir leik- menn og starfsmenn West Ham fengu hann til að vera áfram. Eftir tapið situr hann hins vegar í enn heitara sæti. ■ CARDIFF fékk 50.000 pund í aðgangseyri á bikarleiknum gegn QPR og hafði félagið ekki fengjj^ svo mikla peninga úr miðalúgunum í langan tíma. Það var skammgóður vermir, því þegar peningakassarnir voru opnaðir á mánudag, komust menn að því að innbrotsþjófar höfðu verið fyrri til. HANDBOLTI 120tillögurað merki HM ’95 Skilafrestur í samkeppni um merki fyrir heimsmeistarakeppnina i handknattleik, sem verður hér á landi 1995, rann út fyrir skömmu. Alls bárust 120 tillögur að merki keppninnar, að sögn Jóns Hjaltalíns Magnússonar, formanns HSÍ. Jón sagði að tilkynnt yrði í lok mánaðar- ins hvaða merki yrði valið. UtiHuw FOLK ■ ANDREAS Brehme var kjör- inn knattspyrnumaður ársins 1989 hjá Kicker, en hann leikur með Inter Mílanó á Ítalíu. Þá varð hann stigahæsti FráJóni leikmaður í einkun- Halldóri nagjöf eins ítalska Garðarssynii íþróttablaðsins fyrir V-Þýskalandi ^,.jð f fyrra 0g 0far. lega á blaði hjá öðrum. ■ LANDSLIÐ V-Þjóðverja skip- að leikmönnum 21 árs og yngri, sem var í riðli með íslendingum í Evr- ópukeppninni, var í Kamerún um síðustu helgi og lék tvívegis við A-landslið heimamanna. Þjóðver- jarnir unnu fyrri leikinn 1:0 og þeim síðari lauk með 1:1 jafntefli. Islendingar gerðu jafntefli við þetta þýska lið ytra í haust. ■ BERTI Vogts, sem tekur við v-þýska landsliðinu eftir HM á It- alíu, hefur boðið Rainer Bonhof starf aðstoðarþjálfara. Þeir léku um árabil saman hjá Gladbach. Bon- hof er nú aðstoðarþjálfari hjá Bay- er Uerdingen og hefur verið boðið að verða framkvæmdastjóri þar. KNATTSPYRNA Piontek til Hamburger? Danska knattspyrnusambandinu finnst peningakröfur hans of háar SEPP Piontek, landsliðsþjálfari Danmerkur íknatt- spyrnu, verður að slá verulega af kröfum sínum um laun, til þess að danska knattspyrnusambandið sé tilbúið að gera nýjan samning við hann. Við getum ekki gengið að kröfum Piontek, eins og þær eru nú,“ segir Carl Nielsen, formaður danska knatt- spyrnusambandsins. Sá orðrómur er nú uppi að Hamburg- er SV hafi mikinn hug á að fá Piontek sem yfirþjálfara hjá félaginu, eftir að félagið rak Willie Reimann fyrir sl. helgi. Eins og menn vita þá er Piontek V-Þjóðveiji og hann hefur alltaf sagt að hann hafi hug á að gerast þjálfari í V-Þýska- landi er hann hættir með danska landsliðið. Sepp Piontek ÚRSLIT Handknattleikur 2. deild karla: Haukar—ÍBK.....................30:20 Knattspyrna 3. umferð ítölsku bikarkeppninnar: Ascoli—Inter Mílanó.,.............2:1 Nápólí—Bologna...................2:0 AC Mílanó—Messina...............6:0 Spænska bikarkeppnin, 8-Iiða úrslit: Real Madrid—Real Valladolid.....3:0 Sporting Gijon—Cadiz.,..........0:0 Real Zaragoza—Valencia..........2:1 Gnska bikarkeppnin, 3. umferð: Aston Villa—Blackburn...........3:1 Bradford—Charlton...............0:3 Crewe—Chelsea...................0:2 Derby—Port Vale............... 2:3 Everton—Middlesbrough......... 1:1 Norwich—Exeter..................2:0 Oldham—Birmingham...............1:0 QPR— Cardiff....................2:0 Skoska úrvalsdeildin: St. Mirren—Dunfermline..........2:0 Vináttuleikur í Frakklandi: Mónakó—Argentína................2?0 (Jose Toure 24., Youssouf Fofana 55.) SKOTFIMI STÍboðar til skotþings Fyrsta þing sambandsins í þrjú ár Skotsamband íslands hefur boðað skotþing 10. febrúar næstkomandi. Eins og komið hef- ur fram í Morgunblaðinu hefur skotþing ekki verið haldið síðan i desember 1987. Stjórn Skotfélags Reykjavíkur fór fram á það við ÍSI í desember sl. að stjóm ÍSÍ tæki við stjórn málefna skotsam- bandsins. Stjórn ÍSÍ ákvað í fram- haldi af því að gefa STÍ frest fram til 10. janúar til að auglýsa skot- þing — a'nnars mundi ISÍ sjá um að boða þing og þar með taka við stjórn sambandsins. Sigurður Magnússon, framkvædastjóri ISI, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að STÍ hafi sent út formlegt fund- arboð í fyrradag vegna skotþings.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.