Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR; 11. JANÚAR 1990 38 Minning: Guðbjörg Guðjóns- dóttirfrá Aiimmúpi Fædd 20. ágúst 1897 Dáin 31. desember 1989 Hver fögur dyggð í fari manns er fyrst af rótum kærleikans. Af kærleik sprottin auðmýkt er, við aðra vægð og góðvild hver og friðsemd hrein og hógvæit geð og hjartaprýði stilling með. (Kingo, - H. Hálfd.) Þessar ljóðlínur komu mér í hug er ég hugðist festa á blað örfáar minningar um tengdamóður mína, Guðbjörgu Kristjönu Guðjónsdóttur frá Arnarnúpi í Dýrafirði, er lést 31. desember 1989. Fædd var hún 20. ágúst 1897 að Arnarnúpi, eist 13 barna sæmdarhjónanna Guðjóns Þorgeirssonar og konu hans, Elín- borgar Guðmundsdóttur er þar bjuggu. 011 urðu þau systkini þekkt fyrir samviskusemi, vandvirkni og dugnað, enda eftirsótt til verka. Eftirlifandi eru nú 5 af- þessum hópi. Þar sem Guðbjörg var elst fór hún snemma að leggja lið við bú- störfin og mun snemma hafa komið í ljós áhugi hennar á vinnunni og löngun til að láta muna um sitt framlag. Snemma mun fólki nafn þótt eftirtektarvert hve henni var umhugað um að bæði mönnum og málleysingjúm liði vel. Guðbjörg giftist Kristjáni Guð- mundssyni, bónda á Höfn í Dýra- firði, 26. september 1919. Á Höfn hófu þau búskap og bjuggu þar til vorsins 1922 er þau fluttu að Am- arnúpi og bjuggu þar á hálfri jörð- inni á móti foreldrum hennar en síðan allri til ársins 1956. Er heilsa Kristjáns bilaði færðu þau sig til Reykjavíkur og áttu þar heima síðan, uns Kristján lést árið 1973. Fljótt kom í ljós er Guðbjörg fór að stjórna hve einstök skapgerð hennar var. Hógværð, mildi og kærleikur voru henni í blóð borin. Þau eignuðust níu böm, átta kom- ust til fullorðinsára, fimm éru eftir- lifandi. Guðbjörg var einstök móðir, umhyggjan, kærleikurinn og mildin var hennar leiðarljós. Þess nutu líka öll þau börn sem á heimilið komu en þau voru mörg og sum til fullorð- insára. Bamaskólinn í Keldudal var farskóli og auk þess sem kennarinn hafði samastað á heimilinu fylgdu honum oft börn. Þá voru líka vistuð börn þar frá þeim bæjum sem lengst áttu að í sveitinni af þeim sem sækja áttu þennan skóla. Guðbjörg var sanntrúuð kona sem lagði kirkju sinni að Hrauni lið eftir mætti. Þar stýrði hún söng við hveija athöfn. Nokkra tilsögn hafði hún fengið í orgelleik hjá 01- afí Ólafssyni, kennara á Þingeyri. Kristján var líka meðhjálpari við kirkjuna og saman gengu þau með prestinum til og frá kirkju í hvert sinn er messað var eða önnur at- höfn gerð, enda Amamúpur talinn sjálfsagður viðkomustaður prests- ins. Þegar mágkona hennar, Ingi- björg Markúsdóttir, missti mann sinn eftir skamma sambúð, kom hún með son sinn 1 árs að Arnar- núpi og áttu þau þar heimili æ síðan. Sama má segja um Bjarna Guðbjömsson sem var henni sem uppeldisbróðir. Amma hennar tók hann sem bam og við heimilið var hann ávallt tengdur. Bæði þessi trúu og dyggu hjú fluttu með þeim til Reykjavíkur og áttu heimili hjá þeim þar. Allrar aðhlynningar nutu þau sem Guð- björg gat þeim í té látið, þar til Bjami fór á sjúkradeild Hrafnistu í Reykjavík, enda heilsan að bila hjá þeim öllum. Eftir að Kristján lést fluttist Guðbjörg í Hafnarfjörð til dóttur sinnar og tengdasonar. Var hún hjá þeim í tólf ár eða þar til hún fór á Hrafnistu í Reykjavík. Aldrei féll Guðbjörgu verk úr hendi og lítill tími vannst til bók- lestrar. Yndi hafði hún þó af lestri góðra bóka. Hún var hafsjór af fróð- leik enda stálminnug. Aldrei gengu pijónarnir hraðar en ef lesið var gott efni í útvarpinu eða lesin var saga á vökunni. Þess nutu líka börn- in, barnabörnin og barnabarnaböm- in. Enginn kann tölu á háleistunum, sokkunum og vettlingunum sem hennar gjöfulu hendur framleiddu og ekki gleymist bros þessa hóps á afmælum, jólum og við mörg önnur tækifæri er handfjatlaðir voru mjúkir pakkar frá ömmu Guggu. Vettlingar dregnir á hendur og dá- samaðir fyrir mýkt og hlýju. Allir munir sem Guðbjörg vann sýndu að þar var að verki sú sem ekki sætti sig við neitt meðal gott. Allt varð að vera fullkomið. Hversu margt mætti ekki skrifa um þessa konu sem einskis krafðist fyrir sjálfa sig, en átti svo ómældan kærleika og mildi að miðla öðrum. Það má líka geymast í hugum af- komenda hennar og vina. Eg vil að endingu senda hjúkrunarfólki á Hrafnistu kærar kveðjur og þakkir fyrir ólýsanlega nærgætni og alúð sem það sýndi henni til hinstu stundar. Af heilum hug kveð ég kæra tengdamóður. Hjörleifur Guðmundsson Elskuleg föðursystir mín og fóst- urmóðir er látin. Hún lést á gaml- árskvöld á 93. aldursári og hafði því lifað langa ævi. Mér er ljúft að minnast hennar svo margar hlýjar og ljúfar minn- ingar á ég um hana, ástúð hennar, kærleikur, umhyggja og umburðar- lyndi hennar var einstök. í minum huga var hún ímynd alls hins góða sem strauk hendi um vanga, þerr- aði tár og huggaði ef eitthvað bar út af. Hún var sanntrúuð kona sem setti allt sitt traust á handieiðslu guðs, sótti sinn innri styrk í trúna. Arnarnúpsheimilið var alltaf fjöl- mennt. Það voru ekki einungis hennar börn heldur oftast eitt eða tvö aðkomubörn sem dvöldu þar um lengri eða skemmri tíma, sum í mörg ár. Þó hún væri húsmóðir á stóru heimili þar sem í mörg horn var að líta, þá var hún líka hinn trausti og góði uppalandi sem stöð- ugt kenndi okkur að vera ávallt heiðarleg og sönn í öllum okkar orðum og gjörðum. Guðbjörg var fædd 20. ágúst 1897 að Arnamúpi í Keldudal í Dýrafírði. Foreldrar hennar voru Elínborg Guðmundsdóttir og Guð- jón Þorgeirsson sem þar bjuggu. Hún var elst 13 systkina og er hún sú áttunda af þeim sem hverfur héðan. Guðbjörg ólst upp á Arnam- úpi til fullorðinsára, eða þar til að hún giftist 26. september 1919 Kristjáni Guðmundssyni frá Höfn í Dýrafirði. Þau bjuggu fyrstu þijú árin í Höfn en fluttust þá að Árn- amúpi þar sem þau bjuggu í rúm þijátíu ár eða þar til þau brugðu búi og fluttust til Reykjavíkur árið 1956. Þau settust að á Tunguvegi 7 þar sem þau áttu heima í 12 ár. Þá eignuðust þau litla íbúð í Stóra- gerði 1 og áttu þar heima þar til Kristján lést í desember 1973. Þá fluttist Guðbjörg til Sigríðar dóttur sinnar og eiginmanns hennar, Hjör- leifs Guðmundssonar, og var hjá þeim þar til hún fór á öldrunar- heimili DAS árið 1985 og dvaldi þar það sem eftir var. Guðbjörg og Kristján eignuðust níu börn. Fyrst tvíbura, annar lést strax eftir fæðingu en hinn, Guð- mundur Jón, lést 2. október 1988. Hann var kvæntur Ásmundu Ólafs- dóttur; Guðmunda, hún var gift Óskari Magnússyni. Þau eignuðust tvo syni. Guðmunda lést 1959; Guðjón, hann er kvæntur Rann- veigu Ólafsdóttur og eiga þau fímm börn; Sigríður, hún er gift Hjörleifi Guðmundssyni. Þau eiga fímm börn; Elías, hann er kvæntur Önnu Óskarsdóttur. Þau eiga fimm börn; Bjarni, hann er kvæntur Ester ís- aksdóttur og eiga þau þijú börn; Ingvar Stefán, hann var kvæntur Aðalheiði Björnsdóttur. Þau eignuð- ust þijá syni. Stefán lést 1979; Björgvin, hann er kvæntur Matt- hildi Gestsdóttur. Þau eiga þijú börn. Þá ólst upp hjá þeim á Árn- amúpi sá sem þetta skrifar frá eins árs aldri til fullorðinsára. Þau Guðbjörg og Kristján höfðu búið saman í farsælu hjónabandi í 52 ár þegar Kristján lést. Þau skil- uðu miklu og góðu ævistarfí. Guð- björg var ávallt við góða heilsu þar til seint á árinu 1988 að hún fékk heilablæðingu og náði sér ekki eftir það, enda aldurinn orðinn hár og hún þrotin að kröftum. Hún var hógvær og hljóð á hveiju sem gekk og hafði mikinn innri styrk, trúði á handleiðslu guðs. Það var alltaf mikil birta og fegurð yfír henni. Á Arnarnúpi fæddist hún og ólst upp. Þar fæddi hún börnin sín og kom þeim til fullorðinsára. I Keldudal stendur kirkjan hennar þar sem hún hafði forsöng við mess- ur og Kristján var meðhjálpari. Af þeim fjórum ábúendum sem voru í Keldudal þegar við vorum að alast upp er hún sú síðasta sem hverfur héðan úr heimi. Að leiðarlokum þakka ég Guggu minni fyrir handleiðsluna og það veganesti sem hún gaf mér út í lífíð. I mínum huga mun hún ávallt geymast sem mild og kærleiksrík móðir. Guð blessi minningu hennar. Markús Stefánsson í dag er til moldar borin Guð- björg K. Guðjónsdóttir. Löngu og gifturíku ævistarfí er lokið. Þótt Ijóst hafi verið um nokkurn tíma að hveiju stefndi er kveðjustundin sár. Á slíkri stundu vakna upp minningar frá liðnum tíma. Minning tengdasonar um hlýjar móttökur á kærleiksríku heimili að Arnarnúpi og síðar í Reykjavík svo og ómetanlegur stuðningur á mikl- um erfiðleikatíma. Hugljúfar minn- ingar dóttursona um bjarta sumar- daga í Dýrafirði hjá ömmu og afa við leik og störf. Eftir flutning þeirra suður til Reykjavíkur vildi svo vel til að stutt var á milli heim- ila okkar. Við bræðurnir sóttum mikið til ömmu og afa inn á Tungu- veg. Vegna veikinda móður okkar og síðar fráfalls hennar áttum við okkar annað heimili hjá þeim um skeið. Nutum við ástríkis og umönn- unar ömmu og afa á þessum erfíðu tímum. Einstök hlýja ömmu og góðvild gerði söknuð okkar létt- bærari. Oft höfum við eflaust reynt á þolinmæði hennar en ekki minn- umst við þess að ró hennar hafi verið raskað. Ávallt munum við minnast skilnings ömmu og upp- byggilegra samtala sem lýstu henn- ar jákvæða og kærleiksríka hugar- fari. Það lýsir mannkostum þessarar mætu konu hið hlýja viðmót er hún sýndi Sigríði og hennar bömum og sá vinskapur sem þróaðist með þeim eftir að heimilishald hófst á ný í Hamarsgerði. Ekki var gert upp á milli okkar barnanna enda litu stjúpbömin og síðar systir okkar, Guðmunda, sem hlaut nafn móður okkar, til Guðbjargar sem ömmu. Amma bar mikla umhyggju fyrir bömum sínum og fjölskyldum þeirra. Fylgdist hún vel með högum allra. Gott var að koma til hehnar og frétta af frændfólkinu. Þrátt fyrir ýmislegt mótlæti lét amma ekki bugast. Þungbært varð henni . fráfall eiginmannsins og missir fjögurra barna. Hennar innri styrk- ur kom þá best í ljós og auðnaðist henni að telja kjark í aðra sem einn- ig áttu um sárt að binda. Á slíkri kveðjustund er erfítt að tjá þakklæti í orðum fyrir alla þá hlýju og þann stuðning sem við höfum orðið aðnjótandi. En ljúfar minningar um góða og heilsteypta ömmu og tengdamóður munu ætíð lifa með okkur. „Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt." (V. Briem) Óskar, Guðmundur og Kristján. Ég var á fimmta árinu í fyrsta sinni sem ég trítlaði um hlaðið á Arnarnúpi. Eg var að koma frá Bolungarvík til afa míns og ömmu sem bjuggu á Skálará. Ekki bara í heimsókn heldur til þess að vera. Síðan eru liðin 68 ár. 11 ár átti ég heima í þessum dal sem ber með réttu nafnið Keldudalur og stendur utarlega við Dýrafjörð sunnanverð- an, þar sem Arnarnúpurinn gnæfir í ögrandi tign yfir dalnum, þar sem Skálará kúrir undir brekkum skál- arinnar, milli Saurhornsins og Hundshornsins hinum megin árinn- ar sem hlykkjast eftir dalnum endi- löngum. Þessi dalur. Þessi af- skekkti, hýri en hijúfi dalur var sögusvið þessarar hugljúfu konu, sem við fylgjum nú til grafar. Þegar árin mætast. Heilsast og kveðjast líður mörgum í barm ang- urværð og tregi. Margur saknar og fagnar í senn. Saknar ljúfra stunda frá vori bernsku sinnar þegar ævin- týrin gerðust af minnsta tilefni. Fagnar með þeim sem þungar byrð- ar hafa axlað og fá nú hvílt sín lúnu bein, brunnin að skari. Þegar gamla árið kvaddi að þessu sinni rann einnig „í aldanna skaut“ lífsþráður konunnar, sem í mínum huga var síðasta konan í dalnum. Guðbjörg Guðjónsdóttir frá Arnar- núpi lést á gamlársdag á 93. aldurs- ári. Arnarnúpur er fornt höfuðból í Keldudal sem margan íslendinginn hefír alið og komið vel til manns. í þeim hópi er Guðbjörg Bjamadótt- ir, móðuramma þessarar Guðbjarg- ar sem ég er að skrifa um og heit- in er eftir henni. Auðvitað. En Guð- björg Bjamadóttir var kvenhetja svo ekki sé meira sagt. Hún var búandi á Arnarnúpi um langan tíma að manni sínum látnum sem hún missti í miklum harmleik í brimlend- ingu við Skaga. En þótt hún missti þar bónda sinn, vinnandi menn af búinu og skip sitt, lét hún ekki bilb- ug á sér finna. Af reisn og mildi leit hún einnig til þess að aðrir höfðu líka misst í þessum harmleik. í þeim hópi var Ragnheiður Péturs- dóttir föðuramma mín. Hún missti þar mann sinn og fyrirvinnu. Stóð uppi með fjögur börn og vafalaust ónóg þeim til framfæris. Þá brá Guðbjörg á það ráð að hún tók alla fjölskylduna til sín að Arnarnúpi, ura einhvern tíma á meðan þau réðu ráðum sínum. Það virðist hafa bjargað einhverju á bágri stund. Það eru meira en 100 ár síðan hún vann þetta miskunnarverk. Þannig steig þessi kona fram af mannúð og myndugleik, fram úr mistri þess þjóðlífs sem alltof lítinn gaum gaf að áföllum heimilanna í landinu, þegar örlögin laust þau með harm- inum og splundraði þeim. Það þurfti ekki brimlendingu til. Alltaf vofði það sama yfír með hvaða hætti sem fyrirvinnan brást. Sólin virtist til sævar gengin um hádegisbil. Eng- inn styrkur. Engin gleði, aðeins harmur í litlum bæ. Inn í þetta aldarfar barst dóttur- dóttirin Guðbjörg Guðjónsdóttir og mótaðist af því. Hún fæddist á Arnarnúpi. Hún ólst upp á Arnar- núpi, skaut þar föstum rótum sem hún hlúði vel að svo að þær hrísluð- ust um allan dalinn. „Á velli tíndu brúðir blíðar blóhi og krýndu unn- ustann.“ Liðlega tvítug giftist hún Kristjáni Guðmundssyni frá Höfn og settu þau saman heimili og dvöldu þar næstu tvö árin. Þar fæddist þeim þeirra fyrsta barn. Þau tóku sig upp þaðan. Þau byggðu sér bú í bænum lága, undir núpnum háa, sem gnauðaði og hvein. Hjalaði blítt og hvíslaði draumfögrum óð í eyru fólksins sem eijaði við rætur hans í mikilli önn. Hann söng það í svefn meðan blær- inn lék við blóm og strá og lömbin léku um laut og barð. Máninn glotti eins og venjulega í ævintýrum. En hér stóðu bernskurætur Guð- bjargar. Hér stóð hún á æskureit sínum, heimavelli er það víst kallað um þessar mundir. Hún vann hjúskaparheit sitt drengskaparmanni, sem setti svip prúðmennsku og göfuglyndis á mannlífið í dalnum. I tíma og ótíma var hann kallaður til ef eitthvað bjátaði á á hinum bæjunum vítt og breitt um sveitina alla. Kýr fengu doða og slen. Ær gátu ekki borið. Hrútur þembdist upp þegar verst gegndi. Hestar fengu fótarmein og heltust og jafnvel mannfólkið fékk gigt og innvortis kreppu og fannst það þá hyggilegra að Ieita hans ráða, áður en meira væri að gert. Ef kona gat ekki fætt var hann kallaður til aðstoðar lækninum og yfírsetukonunni. Allt þetta og miklu meira var honum falið að leysa úr og oftar en ekki tókst honum það. Ótal sinnum trítlaði ég að Arnar- núpi með álíka útköll og hér eru nefnd í þau 11 ár sem ég átti heima á Skálará. Kristján var maður með sögu góðviljans, manndóms og göfug- lyndis að baki sem stóð meðan stætt var í ljúfum dal við ysta haf. Guðbjörg hlaut í vöggugjöf heiða og tæra sál eftir því sem það verð- ur skilgreint á mannlegan mæli- kvarða. Hún ræktaði með sér tryggð og trúfesti við guð sinn, þann guð sem hún var skírð til. Kannski var það þess vegna sem hún átti aldrei í árekstrum eða úti- stöðum við neinn. Ekki einu sinni börnin sín þótt hún þyrfti að aga þau, né vinnuhjú sín en sum þeirra fórnuðu ævistarfi sínu með henni og fyrir hana. Geðprýði hennar kom í veg fyrir það. Ef til vill var það vegna tilbeiðslu við guð sinn sem frá henni stafaði ávallt ró og frið- ur, hvort heldur að hún var í önnum eða á þeim fáu stundum sem hún hafðist ekki að. Máske var það þess vegna að hún átti mannúð og ná- ungakærleik í ríkari mæli heldur en margur annar, svo að eftir var tekið. Samviska hennar leyfði það ekki að hún færi í neinu í bága við átrúnað sinn. Ef til vill var það af nálægð við guð sinn sem hún var sterk í harminum og hógvær í gleð- inni. Hún var mannbætandi kona. Hún möglaði aldrei eða sífraði um þröngan kost í hlutskipti sínu þótt átta börn þeirra hjóna væru á gólfí í torfbæ með litlu rými. Heldur tóku þau þijú eða fleiri börn í fóstur af frændliði sínu þegar þar kreppti að, sem dvöldust þar um lengri eða skemmri tíma hjá þeim. En það var eins og blessun fylgdi hveiju þeirra barni sem í heiminn kom. Bú þeirra blómgaðist og þau byggðu sér nýjan bæ. Börnin þeirra komu svo þaðan út í mannlífið með bros á vör, prúð og mannvænleg, í leit sinni að bústað og bólfestu á glæstari ökrum og víðari völlum heldur en dalurinn þeirra gat Iátið þeim í té. Þannig hefír það lengi gerst með þjóðinni og gerist enn. Þau hafa alltaf borið uppruna sinn með sér og gerst verðugir fulltrúar dalsins sem ól þau og reynst hið traustasta og trúverðugasta fólk á vinnumarkaðinum og sjaldan eða aldrei skipt um vinnustað, sem seg- ir sína sögu þar um, Þijú þeirra eru látin langt um aldur fram en fimm þeirra halda uppi merki þessa vammlausa fólks og standa eins og fagrir laukar í ættboga Guðbjargar Bjarnadóttur, langömmu þeirra, sem er afar mannmargur og vel skipaður af farsælu fólki. Guðbjörg Guðjónsdóttir var lauf- sproti á þeirri eik mannlífsins sem dalalífið eitt getur mótað „inn milli fjallanna“, þar sem hún átti heima í meira en 60 ár. Þar stóðu rætur hennar sem hún hafði ekki bolmagn til að rífa eða slíta upp og taka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.