Morgunblaðið - 11.01.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANUAR 1990
49'
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
SLITIN DEKK
Til Velvakanda.
Það hafa skapast miklar umræð-
ur um það hvort nagladekk séu
nauðsynlegt en margir vilja meina
að snjódekkin dugi vel þó þau séu
ónegld. Sjálfur hætti ég við nagla-
dekkin fyrir nokkrum árum og hef
komist allra minna ferða. Hins veg-
ar er nauðsynlegt að dekkin séu í
góðu ásigkomulagi. Nokkuð er allt-
af um það að menn séu á sumar-
dekkjum í úmferðinni og er það
ótækt þegar færð versnar.
Þeir sem ekki hafa búið bíla sína
snjódekkjum ættu ekki að hreyfa
bílinn í hálku. Ég hef tekið eftir
því að ökumenn eru kærulausir
varðandi það að endurnýja dekk og
eru það allt of margir sem aka um
á gatslitnum dekkjum. Snjódekk
sem mest allt mynstur er farið úr
koma að litlu gagni. Ólafur
Óvönd-
uð vinnu-
brögð
Til Velvakanda.
Ein lítil sag-a af samskiptum
mínum við símaþjónustu þessa
lands. í ágúst 1989 þurfti ég að
láta vekja hjá mér vegna ferðalags
bróður míns til útlanda. Hann varð
andvaka og sofnaði ekki þá nótt,
en viti menn, síminn hringdi aldr-
ei. Ég hringdi strax daginn eftir
og kvartaði yfir þessu og einnig
lagði ég áherslu á að kostnaður
yrði ekki lagður á reikning minn.
Það fyrsta sem ég sá á mínum
næsta símareikningi voru kr. 65
fyrir þjónustu við að vekja. Þetta
vekur upp þá hugsun, vegna
óvandaðra vinnubragða hjá síma-
þjónustunni, hvað erum við að
borga í ósundurliðuðum fjárhæð-
um á símareikningum okkar,
kannski margar 65 krónur sem
okkur ekki ber?
Margrét Elíasdóttir
HVÍLÍK MISKUNN SEMI
Kæri Velvakandi.
Gjörvöll heimsbyggðin hefur ný-
lega haldið jólin hátíðleg. Þessa
miklu hátíð ljóss og friðar, minning-
arhátíð guðssonarins, Jesú Krists.
Á þessari miklu hátíð opnaði ég
heilaga ritningu, bók bókanna, og
las í orði Guðs í Jóhannesarguð-
spjalli 17. kafla þar sem segir frá
því er Jesús var að biðja til Guðs
föðurs á himnum. Sannlega má þar
sjá hve Jesús elskar okkur synduga
mennina. Bænin hans til Guðs vitn-
ar um óflekkaðan kærleika, tak-
markalausa elsku hans sem sagði
í þjáningu sinni á krossinum: Faðir
fyrirgef þeim, því þeir vita ekki
hvað þeir gjöra.
Eða þegar faríseamir og fræði-
mennirnir komu til hans með kon-
una sem staðin var að hórdómi og
sögðu að slíkar konur ætti að grýta.
Þá mælti hann hin fleygu orð: Sá
yðar sem syndlaus er kasti fyrsta
steininum.
Engum steini var þá kastað, en
Jesús mælti við konuna: Ég sak-
felli þig ekki heldur. Far þú. Syndga
ekki framar.
Hvílík miskunnsemi! Enda var
þetta maðurinn og guðsson sem
sagði: Biðjið fyrir þeim sem of-
sækja yður. Ef þér fyrirgefið mönn-
unum misgjörðir þeirra, þá mun og
faðir yðar himneskur fyrirgefa yð-
ur. Verið glaðir og fagnið, því að
laun yðar eru mikil á himnum.
Það er ekki fyrir ekki neitt að
orð hinnar helgu bókar er stundum
nefnt Hið lifandi orð, því svo mátt-
ugt er það og kröftugt. Minnumst
þess að Jesús elskar okkur. Elskum
því hvort annað í sönnum kærleika
Krists frelsara okkar og tökum
undir orð Símonar Jóhannessonar,
sem við þekkjum betur undir nafn-
inu Pétur og Jesús fól forystu hins
krisna safnaðar: Drottinn, þú veist
allt. Þú veist að ég elska þig.
Einar Ingvi Magnússon
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn og auka einbeitingu við lestur?
Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum?
Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða og bættri
námstækni?
Svarir þú játandi, skaltu láta skrá þig á næsta hraðlestramámskeið
sem hefst fimmtudaginn 25. janúar nk.
Skráning öll kvöld frá kl. 20.00-22.001 síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
~Bridsskóiinn
Ný námskeió
hefjast 22. og 23. janúar
Boðið er upp á námskeið í
byrjenda- og framhaldsflokki
Hvert námskeið stendur yfir í 11 kvöld, einu sinni í viku.
Kennsla í byrjendaflokki fer fram á mánudagskvöldum
milli kl. 20.00 og 23.00, en í framhaldsflokki er spilað
á þriðjudagskvöldum frá kl. 20.00 til 23.30.
Vönduð námsgögn fylgja.
Námskeiðin fara fram í húsi Sóknar, Skipholti 50a.
Frekari upplýsingar og innritun í síma 27316 milli kl.
15.00 og 18.00 virka daga og milli kl. 13-18 sunnud.
Heba heldur víð heilsunni
Námskeið hefjast 15. janúar
Bjódum upp á:
Dag- og kvöldtíma í
þolaukandi (aerob.), vaxtarmótandi, liðkandi og
megrandi leikfimi með músík (víxlþjálfun).
Breytilegir flokkar:
1. 2. 3.
Almennir Vöðvabólga Hebu-línan
Rólegir Bakverkir átak
Hraðir Trimmform í megrun
STÓRAR KONUR
Innritun og upplýsingar um flokka í
símum 642209 og 641309 (Elísabet).
Ath! Nýtt símanúmer 642209.
Kennari:
Elísabet Hannesdóttir, íþróttakennari.
Heilsurcektin Heba
Auðbrekku 14. Kópavogl.
Margar tegundir
Margir litir
Margar stærðir
V/S4®
Góð greiðslukjör
Húsgagná'hollln
Teg: Sole/2
- svört/grá - breidd 272 cm
REYKJAVfK
J