Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 1
64 SIÐUR B
14. tbl. 78. árg._________________________________FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Erfiðleikar norskra
sjómanna:
Afborgun-
um og vöxt-
um frestað
NORSKA stjórnin hefiir ákveðið,
að sjómenn, sem nú eiga í erfíð-
leikum vegna aflabrests og lítils
kvóta, þurfi ekki nú um sinn að
greiða afborganir og vexti af
opinberum lánum með veði í
húsi eða bát. Hefur þar með ver-
ið komið til móts við eina helstu
kröfu sjómanna og að auki verð-
ur kvótanum deilt á fleiri skip
en áður var fyrirhugað. Sagði frá
þessu í norska blaðinu Aftenpost-
en í fyrradag.
Ríkisstjórnin hefur auk þessa til-
kynnt, að innan hálfs mánaðar verði
greint frá þeim aðgerðum, sem hún
ætlar að grípa til vegna ástandsins
í Norður-Noregi og raunar víðar.
Sagði Svein Munkejord sjávarút-
vegsráðherra, að þá yrði meðal
annars ákveðið að deila kvótanum
á fleiri skip, á 3.300 í stað 2.800,
eins og sjómenn hafa krafist og
hann gaf einnig ádrátt um, að ýsu-
kvótinn yrði aukinn um 10-30%
fyrir báta, sem eru undir 90 fetum
og gerðir út fyrir norðan 62. breidd-
arbaug.
Munkejord lagði hins vegar
áherslu á, að kvótinn ykist ekki um
kíló þótt honum væri deilt á fleiri
báta og hann sagði, að Norðmenn
yrðu með öllum ráðum að byggja
fiskstofnana upp aftur. Um það
væri líka samstaða á Stórþinginu
og almennur skilningur á því, að
skipin væru allt of mörg. Sagði
hann meðal annars stefnt að því,
að þegar bátseigendur eða útgerð-
arfélög yrðu gjaldþrota yrði við-
komandi skipum lagt.
Snjóleysi
gerirstrikí
reikninginn
Snjóleysi í hlíðum Alpafjalla veld-
ur því að keppendur í heims-
bikarkeppninni í bruni, sem fram
á að fara í Hahnenkamm-braut-
inni í Kitzbúhl í Austurríki á
laugardag, þurfa að fara tvær
ferðir þar sem brautin er styttri
en venjulega. Slíkt hefur ekki
gerst áður í 24 ára sögu heims-
bikarkeppninnar. Myndin gefur
nokkra vísbendingu um vandann
sem umsjónarmenn keppninnar
þurfa að glíma við. Undanfarna
tíu daga hafa þeir varið 1,17
milljón dala, 72 milljónum ísl.
kr., til að flytja snjó á þyrlum í
keppnisbrautina.
Keuter
Hermenn handtaka þjóðernissinnaðan Azera sem hafði ásamt fleirum ráðist á herbúðir og þannig reynt
að komast yfir hergögn.
Ungveijaland:
Afsögn vegna
hneykslismáls
Búdapest. Reuter.
JOZSEF Horvath, yfírmaður
ungversku öryggislögreglunnar,
sagði af sér í gær vegna upp-
ljóstrana um að fylgst hefði verið
náið með sljórnarandstöðunni
þrátt fyrir umbætur á öðrum
sviðum þjóðlífsins.
Samband fijálsra demókrata,
flokkur fyrrverandi andófsmanna,
upplýsti fyrr í mánuðinum að inn-
anríkisráðuneytið hefði látið njósna
um stjórnarandstæðinga þrátt fyrir
að slíkt hefði verið .bannað með
nýrri stjórnarskrá. Einnig hafði
Miklos Nemeth forsætisráðherra
heitið því að slíkir siðir yrðu aflagð-
ir. Boðað hefur verið að Istvan
Hoivath innanríkisráðherra geri
grein fyrir hneykslismáli þessu á
þingi í dag.
Sovéskur herforingi sem fluttur var særður frá Azerbajdzhan:
Vopnaðar sveitir Azera ráðast á hermenn o g skriðdrekalestir
'Moskvu. Nikósíu. Reuter.
YFIRMAÐUR í sovéska hernum
sagði i viðtali við útvarpsstöð I
Jerevan, höfnðborg Armeniu, að
bardagar milli Azera og Armena
væru að fara úr böndunum. „Við
þessi skilyrði duga einungis
harkalegar aðgerðir — átökin eru
að snúast upp í borgarastyrjöld,"
sagði herforinginn, sem fluttur
var óvígur frá Azerbajdzhan. Her-
menn fengu í gær fyrirmæli um
að grípa til vopna og skutu þeir
Reuter
á vopnaða Azera sem reyndu að
ná fimm skriðdrekum á sitt vald
í héraðinu Shamkor sem er norður
af Nagorno-Karabak.
„Ástandið er óþolandi og þess
vegna hefur forysta varnarmálaráðu-
neytisins, innanríkisráðuneytisins og
[öryggislögreglunnarj KGB heimilað
undirmönnum sínum að beita skot-
vopnum,“ sagði í opinberri tilkynn-
ingu sem lesin var í sovéska sjón-
varpinu í gærkvöldi. Þar sagði að
fram til þessa hefðu hermenn haldið
aftur af sér en árásir „öfgasinnaðra
glæpamanna" á sovéska hermenn og
vopnabúr þeirra leiddu til þess að
gefin hefði verið heimild' til að skjóta
á vopnaða Armena og Azera.
Átökin í Kákasuslýðveldum Sov-
étríkjanna blossuðu upp fyrir viku
en á mánudág ákváðu yfirvöld í
Moskvu að senda 11.000 manna liðs-
styrk á vettvang. Hægt hefur gengið
að koma hermönnunum á áfangastað
einkum vegna þess að vopnaðar
sveitir Azera hafa komið fyrir vegar-
tálmum við stærstu borgir í Az-
erbajdzhan. .
í gærmorgun fundust fjögur lík í
Bakú, höfuðborg Azerbajdzhan, og
er tala látinna nú a.m.k. komin upp
í 60 í bardögum undanfarna viku.
Málgagn Sovétstjórnarinnar, /z-
vestíja, lýsti því í gær hvernig þús-
undir Armena hefðu verið hraktar
frá heimilum sínum með hrottalegum
hætti. Þeim sem tregðuðust við var
jafnvel hent út um glugga. Segir
blaðið að Azerar hafi hreiðrað um
sig í íbúðum Armena. Kveikt var í
fjórum mönnum á járnbrautarstöð
fyrir nokkrum dögum, að sögn blaðs-
ins. Fréttastofan Tass segir að um
það bil 7.000 Armenar hafi verið
fluttir frá Bakú, flestir með ferju
yfir Kaspíahaf til Krasnovodsk í
Túrkmenistan. Þaðan flaug fólkið til
Jerevan.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
lýsti á þriðjudag yfir skilningi á hern-
aðaraðgerðum Sovétstjórnarinnar
við aðstæður sem þessar. Ali Kha-
meini, andlegur leiðtogi írana, hvatti
Sovétstjórnina í gær til að taka ekki
of harkalega á þjóðaólgunni í Kákas-
uslöndunum. „Þarna er múhameðs-
trú á ferðinni og hana er ekki hægt
að kæfa,“ sagði Khameini.
Kólombía:
Vilja snúa
við blaðinu
Bogota. dpa.
ÞAU boð bárust frá eiturlyQa-
kóngum í Kólombíu í gær að
þeir væru reiðubúnir að hætta
smygli til annarra landa og
hryðjuverkum ef stjórnvöld
gæfu þeim kost á að snúa til
hefðbundinna starfa í þjóð-
félaginu.
Carlos Lemos Simmonds, inn-
anríkisráðherra Kólombíu, sagð-
ist taka þessum skilaboðum með
varúð en kvað þau sýna að eitur-
lyfjasalar hefðu tapað stríðinu
við stjórnvöld sem staðið hefur
í fimm mánuði. Eiturlyfjasalar
segjast nú reiðubúnir til að leysa
upp vopnaðar hryðjuverkasveitir
sínar, láta vopn af hendi og
hætta kókaínframleiðslu. Lög-
regla í Kólombíu segir ekki fylli-
lega ljóst hvaða skilyrðUm þetta
tilboð sé bundið.
Átökin eru að snúast
upp 1 borgarastyrjöld