Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 Fimmtán ára piltar játa sprengingar í Hafnarfírði Sprengjurnar sömu gerðar og hjá IRA PILTAR, sem rannsóknarlögreglan í Hafnarfírði yfirheyrði á þriðju- dagskvöld, játuðu að vera valdir að sprengingu við iþróttahús Víði- staðaskóla fyrr um kvöldið. Þá játuðu þeir einnig að hafa, ásamt fleirum, sprengt þrjár kröftugar rörasprengjur við leikskólann að Víðivöllum á miðvikudag í síðustu viku, með þeim afleiðingum að 5 stórar rúður brotnuðu og hurð stórskemmdist. Lögreglan segir sprengjurnar jafii öflugar og handsprengjur, enda sömu gerðar og írski lýðveldisherinn notaði í eina tíð. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær var mikið lán að ekki hlaust stórslys af þegar sprengjan sprakk við hurð Víði- staðaskóla um klukkan 20 á þriðju- dagskvöld. Fjöldi unglinga var á handboltaæfingu, en þykk dýna hafði verið reist upp við hurðina að innanverðu og er það talið hafa forðað stórslysi. Þegar hurðin sprakk gengu brot úr henni allt að 15 senmtimetra inn í dýnuna. Gluggi með 10 millimetra öryggis- gleri, sprakk í smátt. Skömmu eftir sprenginguna handtók lögreglan þijá pilta, sem voru á gangi skammt frá skólan- um. Lögreglan hafði haft þá grun- aða um að vera valdir að spreng- ingum áður. í ljós kom að þeir voru með sprengjur og ýmsan annan búnað á sér, sem var sömu gerðar og fannst við íþróttahúsið. Piltarnir, sem eru 15 ára, voru yfirheyrðir og neituðu í fyrstu aðild að sprengingunni. Síðar ját- uðu þeir og lögreglan upplýsti einnig, að þeir höfðu ásamt öðrum sprengt þrjár sprengjur við leik- skólann að Víðivöllum í fyrri viku. Alls tengjast 9 piltar á svipuðum aldri sprengingunum. Að sögn rannsóknarlögreglunn- ar í Hafnarfirði leit sprengjusér- fræðingur Landhelgisgæslunnar á sprengjubrotin við Víðistaðaskóla og taldi að sprengjan hefði verið jafn öflug handsprengju, enda sömu gerðar og írski lýðveldisher- inn notaði í eina tíð. Þá voru rann- sóknarlögreglumenn uggandi yfir þeim upplýsingum sprengjus- érfræðingsins, að við framleiðslu púðurs séu notuð tvö mismunandi efni, sem alls ekki megi blanda saman. Þessar heimatilbúnu röra- sprengjur hafa einmitt verið gerðar með því að blanda saman ólíku púðri úr ýmsum sprengjum og flugeldum. Slík blanda getur sprungið af minnsta tilefni. Rannsóknarlögreglan sagði, að mál piltanna væri nú til meðferðar hjá barnaverndarnefnd, en kæmi einnig til kasta sýslumanns. Pilt- arnir mættu eiga von á að þurfa að bæta tjónið sem þeir hafa vald- ið, sem væri mikið. VEÐURHORFUR í DAG, 18. JANÚAR. YFIRLIT í GÆR: Norðaustanstinningskaldi eða allhvasst og snjó- koma á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands, en breytileg átt, gola eða kaldi og snjó- eða slydduél í öðrum landshlutum. Kaldast var 5 stiga frost á Hveravöllum, en miidast þriggja stiga hiti á Vatnsskarðshólum í Mýrdal. SPÁ: Norðaustangola eða -kaldi og él norðanlands en hæg breyti- leg átt og þurrt syðra. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðlæg átt og frost um allt land. Él um norðanvert landið en þurrt og víða léttskýjað syðra. HORFUR Á LAUGARDAG: Austan- og suðaustanátt og hlýnandi veður. Slydda á Suður- og Vesturlandi en annars þurrt. TÁKN: A Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- A stefnu og fjaðrirnar Heiðskírt ▼ vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. \ÆH Léttskýjaft r r r r r r r Rigning Hálfskýjað r r r * r * Skýiað r * r * Slydda r * r Alskýjað * * * * * * * Snjókoma # * * •Jfl Hitastig: 10 gráður á Celsius Y Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður * ai ÉK* l 3 % T V' *r VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +2 alskýjað Reykjavfk 0 snjóél Björgvin 7 skúrir Helsinki •=■3 snjókoma Kaupmannahöfn 7 skýjað Narssarssuaq vantar Nuuk vantar Ósló 6 skýjað Stokkhólmur 6 skýjað f Þórshöfn 5 skýjað Algarve 15 háifskýjað Amsterdam 9 skýjað Barcelona 12 heiðskírt Berlín 11 rigning Chicago 12 rigning Feneyjar 6 þokumóða Frankfurt 10 rigning Glasgow 6 haglél Hamborg 9 skýjað Las Palmas 16 léttskýjað Lundúnir 9 léttskýjað Los Angeles 9 léttskýjað Lúxemborg vantar Madríd 6 mistur Malaga 11 hálfskýjað Mallorca 15 léttskýjað Montreal +3 frostúði New York vantar Orlando vantar París vantar Róm 11 þokumóða Vín 14 léttskýjað Washington 4 mistur Winnipeg +7 þokumóða Skólakrakkar skoða skemmdimar á hurðinni í gærmorgun. Vestmannaeyjar; Sj álfstæðismenn ákveða prófkjör Vestmannaeyjum. FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum ákvað að viðhafa prófiyör við val fulltrúa á lista flokksins fyrir sveitarsfjórnar- kosningarnar í vor. Prófkjörið á að fara fram fyrir febrúarlok. Stjórn fulltrúaráðsins lagði til við fundinn að viðhaft yrði út- keyrsluprófkjör. Prófkjör þetta fer þannig fram að sendir eru kjör- seðlar til allra þeirra sem ekki eru yfirlýstir stuðningsmenn annarra flokka. Seðlarnir eru sóttir aftur sólarhring síðar og þá fer talning fram. Fulltrúaráðið samþykkti til- löggi stjórnarinnar samhljóða. Sjálfstæðismenn hafa viðhaft samskonar prófkjör við val fram- bjóðenda síðustu tvær sveitar- stjómakosningar. Á fulltrúaráðsfundinum fór fram viðhorfskönnun þar sem fulltrúa- ráðsmeðlimir skrifuðu niður nöfn 10 manna sem þeir vildu sjá á framboðslista flokksins fyrir kosn- ingarnar í vor. Alls voru 56 nöfn nefnd. Auglýst .verður eftir fram- bjóðendum í prófkjörið innan tíðar og mun þessi mikli fjöldi tilnefninga auðvelda störf kjörstjómar við að afla þátttakenda í prófkjörið. Grímur Benedikt á Stað- arbakka látinn BENEDIKT Guðmundsson bóndi á Staðarbakka í Miðfirði lést í gærmorgun á sjúkrahúsinu á Hvammstanga, 84 ára að aldri. Hann var lengi oddviti og hrepp- stjóri Ytri-Torfustaðahrepps og fréttaritari Morgunblaðsins um árabil. Benedikt fæddist 30. nóvember 1905 í Hnausakoti í Miðfirði í Vest- ur-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru Guðmundur Gíslason bóndi í Hnausakoti og síðar bóndi og hrepp- stjóri á Staðarbakka og Margrét Elísabet Benediktsdóttir kona hans. Benedikt fluttist tveggja ára að Staðarbakka. Hann varð búfræðing- ur frá Hvanneyri 1931. Frá árinu 1930 stóð hann ásamt Gísla bróður sínum fyrir búi móður þeirra að föður þeirra látnum og frá 1945 var hann bóndi á Staðarbakka, síðustu árin ásamt Rafni syni sínum. Benedikt gengdi fjölda trúnaðar- starfa fyrir sveit sína og hérað. Hann var í hreppsnefnd 1937-1962, þar af oddviti í 14 ár, sat í sýslu- nefnd í tæpa tvo áratugi og var lengi hreppstjóri. Hann starfaði mikið fyrir kirkjuna á Staðarbakka, var í áratugi í sóknarnefnd og lengi safnaðarfulltrúi. Benedikt var lengi formaður og í stjórn Veiðifélags Miðfirðinga og starfaði fyrir búnað- arfélagið, meðal annars sem fulltrúi á fundum Stéttarsambands bænda. Meðal annarra félagsmálastarfa má Benedikt Guðmundsson. nefna að hann var einn af stofnend- um og fyrsti formaður Ungmennafé- iagsins Grettis 1928. Eftirlifandi kona Benedikts er Ásdís Magnúsdóttir frá Torfustöð- um. Þau eignuðust fjögur börn: Margréti, Ingimund, Jón Magnús og Rafn. Benedikt á Staðarbakka var lengi fréttaritari Morgunblaðsins. Morg- unblaðið sendir ástvinum hans sam- úðarkveðjur. Loðnuskipið Skarðs- vík SH selt til Akraness Akranesi. Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan á Akranesi heftir fest kaup á loðnuskipinu Skarðsvík SH 205 og mun taka við skipinu 1. maí næstkomandi. Þetta eru góð tíðindi fyrir atvinnulífið á Akranesi. Skarðsvík er um 300 tonna skip með um 18.000 tonna loðnukvóta auk nokkurs kvóta af öðrum fisk- stofnum. Skipið hefur alltaf þótt fengsælt og vonandi breytist það ekki við eigendaskiptin. Með til- komu þess í flota Akumesinga tryggir Síldar- og fiskimjölsverk- smiðjan hf. sér aukið hráefni til vinnslu en hún á fyrir loðnuskipið Víking AK sem er eitt af stærri fiskiskipum landsins. Auk þess eru nú í flota Akurnesinga þijú önnur loðnuskip. - J.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.