Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990
39
Guðrún Þ. Jóhanns
dóttir - Minning
Fædd 27. ágúst 1914
Dáin 11. janúar 1990
Margs er að minnast þegar
elskuleg móðursystir, Guðrún
Þórdís Jóhannsdóttir, uppáhaldst-
anta okkar bræðra, kveður að lo-
knu erfiðu helstríði. Samveru-
stundir voru að sönnu ekki mjög
margar á síðustu árum, en spanna
þó hátt í hálfa öld og á bernsku-
og mótunarárum undirritaðs stóð
Gunna tanta foreldrum hans einna
næst að mikilvægi. A fallegt og
friðsælt heimili þeirra Karls á
Kjartansgötu og síðar á Ásvalla-
götu var ungur frændi ávallt vel-
kominn og jafnan tlmi til að setj-
ást niður og rabba um heima og
geima, oft um hinar svokölluðu
æðri listir, en jafnoft jarðbundnari
áhyggjur frændans úr daglega
lífinu. í minningunni lifir sérstak-
lega sá hæfileiki Guðrúnar að láta
ungum dreng finnast hann hafa
eitthvað til málanna að leggja,
hans skoðanir skipti máli og hann
því jafnvel nokkurs virði sjálfur.
Þessi gjöf var manni í mótun mik-
ils virði og veldur því, þótt ekkert
annað kæmi til, að minning Gunnu
töntu verður honum ávallt mjög
kær. Mannkostir Guðrúnar myndu
fylla langan lista og verður því
sleppt hér en minnast skal þó
þeirra eiginda, er hún, að viti und-
irritaðs, hafði umfram flesta aðra
dauðlega menn. Er hér átt við
hversu rausnarleg og veitul hún
var og nutu jafnt vinir, frændur
sem og vandalausir góðs af. Veisl-
ur þeirra Karls voru öðrum boðum
betri, ekki einungis veitinganna
vegna, heldur einnig vegna þess
glæsileika og um leið notalegheita
sem einkennandi var. Allra best
voru gamlárskvöldin, sérstökum
ljóma slær á þau ágætu samkvæmi
I minningum okkar frændanna.
Dæmigerð voru viðbrögð Guðrún-
ar er hún frétti um nálægð sláttu-
mannsins fyrir nokkrum árum,
ekkert víl né vol, heldur boðið til
veislu vinum og frændum og þeir
kvaddir með þeirri reisn og mynd-
ugleik, sem einkenndu allt líf
minnar ágætu töntu. Mikið var á
hana lagt síðustu árin, en ekki var
kvartað, þótt þjáningarnar væru
miklar. Langt og farsælt hjóna-
band hennar og Karls einkenndist
af gagnkvæmri virðingu og hlý-
leika. Veikindi beggja hin síðustu
ár færðu þau sennilega enn nær
hvoru öðru og umhyggja Karls
takmarkalaus í þessu hans erfið-
asta læknishlutverki.
Með söknuði og hlýhug er mín
kæra Gunna tanta kvödd í dag,
um leið og við þökkum hennar
langþráðu hvíld.
Innilegar samúðarkveðjur,
elskulegi Karl, Kristín og Axel.
Leifúr N. Dungal
Glöð með glöðum varstu
göfg og trygg á braut
þreyttra byrði barstu,
blíð í hverri þraut.
Oft var örðugt sporið,
aldrei dimmt í sál,
sama varma vorið,
viðkvæm lund og mál.
(Magnús Markússon)
Þessi orð finnst mér lýsa vel
tengdamóður minni, Guðrúnu
Cterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Þórdísi Jóhannsdóttur, sem við
kveðjum í dag frá Dómkirkjunni
í Reykjavík.
Mig langar að kveðja hana með
nokkrum orðum en mikið skelfing
held ég að hún kunni mér litlar
þakkir fyrir það. Heldur gæti ég
trúað að hún hefði vegna sinnar
hógværðar, treyst mér til að sjá
um að Morgunblaðið kæmi ekki
út í dag, hefði hætt að taka við
minningargreirium um síðustu
áramót eða bara eitthvað slíkt.
En ég get ekki látið hjá líða að
minnast hennar og þakka henni
allt það sem hún var okkur. Hún
tók mér og mínum strax af stakri
vinsemd og væntumþykju. Aldrei
fannst henni hún gera manni nógu
gott, ef komið var í heimsókn, þó
gestrisnin væri einstök. Alltaf var
á boðstólum eitthvað svolítið sérs-
takt. Henni fannst það bara aldrei
alveg nógu gott, eða mikið.
Kannski af því að seinni árin
fannst henni hún ekki geta gert
allt jafn vel eða auðveldlega og
áður, þegar heilsan var óskert.
Guðrún var ákaflega fríð og
fínleg kona, sannkölluð dama. HÚn
hafði afar næmt fegurðarskyn og
bar heimili hennar þess ótvírætt
vitni. Hjónaband henanr og eftir-
lifandi manns hennar, Karls Sig.
Jónassonar læknis, var einstak-
lega hamingjusamt. Þau nutu þess
sameiginlega að gera vinum gott
og gleðjast á góðum stundum.
Heimili þeirra stóð opið öllum vin-
um og vandamönnum og var þar
oft glatt á hjalla. En það var ekki
bara á gleðistundum sem vinir leit-
uðu á „Ásvallagötuna". Guðrún
hafði sérstakt lag á því að laða
að sér þá sem þurftu uppörvun
og hvatningu þegar að steðjuðu
erfiðleikar af einhveiju tagi. Hjálp-
semi og áhugi á högum annarra
var henni í blóð borin.
Tónlistin átti hug hennar og
hjarta, en hún kenndi píanóleik
um árabil. Fátt veitti henni meiri
ánægju en að setjast við píanóið,
eða setja góða plötu á fóninn.
Manni sínum var hún stoð og
stytta í erilsömu starfi hans sem
læknir. Hef ég oft heyrt hann
þakka henni það hve vel og lengi
hann gat stundað sitt starf.
Þegar hún fyrir nokkrum árum,
veiktist af þeim sjúkdómi, sem
varð henni að aldurtila, tók hún
því af stillingu og æðruleysi. Hún
þakkaði hvem dag, sem hún fékk
að hafa að annast um „sinn mann“
eins og hún orðaði það. Saman
hafa þau haldið sitt gamla heimili
síðustu árin, ýmist annað eða oft-
ast bæði sárlasin. Svo hjálparlítið,
að eigin ósk, að okkur þótti oft
nóg um.
Að morgni 11. janúar kvaddi
hún þetta jarðlíf. Þar með lauk
langri þrautagöngu. Ég þakka fyr-
ir að hafa fengið að kynnast þess-
ari mætu konu. Söknuður okkar
allra er mikill, en Karls þó mest-
ur. Við biðjum Guð að gefa honum
styrk og blessa minningu hennar.
Sigurður Þórðarson
ÚTSALAN
HEFST í DAG
í Kringlunni kl 12.00
KRIN GLUNNI
SIEMENS-dæd/
STORGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur (
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð
tímamótavél ( hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding ( áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
í gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér til
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. ítarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
SMITH&
-AND