Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990
KNATTSPYRNA || KNATTSPYRNA / ENGLAND
Hörðurí Leiftur
Hörður Benónýsson, sem lék með
Völsungi í fyrra, hefur ákveðið að
leika með Leiftri, í 2. deildinni í
knattspyrnu, næsta sumar. Hörður
hafði reyndar áður ákveðið að þjálfa
lið HSÞ-b í 4. deildinni en snerist
hugur.
Hörður lék nieð Leiftri í 1. deild
1988 og í 1. deild með Völsungi
1987 og í 2. deild í fyrra.
Klaufar að vinna ekki
- eftir að hafa náð tveggja marka forystu, sagði Þorvaldur Örlygsson, sem
lagði uppfyrra mark Nottingham Forest í 2:2 jafntefli gegnTottenham
í kvöld
Körfubolti
Þrír léikir verða í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í kvöld og hefjast allir
kl. 20. Grindavík og KR leika í
Grindavík, Haukar og Valur í Hafnar-
firði og ÍBK og Tindastóll í Keflavík.
Einn leikur er ! 1, deild karla, Stúd-
entar og Laugdælir mætast í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans kl. 20.
Badminton
Opna meistaramót KR í badminton
í einliðaleik karla og kvenna fer fram
í kvöld og hefst kl. 19.00 ! KR-
heimilinu. Allir bestu badmintonleik-
arar lapdsins verða meðal þátttak-
enda.
Handbolti
Einn leikur er ! 3. deild karia í
handknattleik, B-lið Gróttu tekur á
móti ÍH ! íþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi kl. 19.
áeu) ti$befiu, hei&J
HIGH-DESERT
BLÓMAFRJQKORN
ÞORVALDUR Örlygsson lagði
upp fyrra mark Nottingham
Forest er liðið gerði jafntefli,
2:2, við Tottenham f 8-liða úr-
slitum ensku deildarbikar-
keppninnar [Littlewoods-] í
gærkvöldi á heimavelli sínum i
Nottingham. Þorvaldur þótti
leika mjög vel ífyrri hálfleikn-
um og framan af þeim síðari,
skv. því sem Morgunblaðið
fregnaði frá Engiandi ígær, en
var minna áberandi eftir því
sem líða tók á leikinn — enda
náði Tottenham þá undirtökun-
um.
Segja má að tveir Norður-
landabúar hafi átt þátt í fyrra
marki Forest, því Þorvaldur sendi
knöttinn vel fyrir markið, Norðmað-'
urinn Erik Thorstvedt í marki Tott-
enham náði ekki að halda knettin-
um og Gary Crosby þurfti ekki
annað en að renna honum yfir
marklínúna. Þetta gerðist á 35.
mínútu. „Ég gaf fyrir, Crosby náði
ekki til boltans sem skoppaði á
ósléttum vellinum, upp í bringuna
á Thorstvedt sem náði ekki að halda
honum og þá var Crosby fljótur að
átta sig og skoraði örugglega,"
sagði Þorvaldur er Morgunblaðid
náði tali af honum seint í gærkvöldi.
Á 56. mín. 'komst Forest í 2:0
með mark Garry Parker, og svo
virtist sem deildarbikanneistararnir
væru næsta öruggir áfram. En leik-
menn Lundúnaliðsins neituðu að
gefast upp. Enski landsliðsmiðherj-
inn Gary Lineker minnkaði muninn
með 15. marki sínu í vetur og Steve
Sedgley jafnaði tíu mín. fyrir leiks-
lok með skoti af 20 m færi. „Við
vorum klaufar að vinna ekki leikinn
eftir að hafa komist tveimur mörk-
um yfir,“ sagði Þorvaldur. „Þegar
Lineker skoraði fékk hann langa
sendingu fram völlinn, komst einn
ínn fyrir og skoraði." Þorvaldur
sagði heppnisstimpil hafa verið á
síðara markinu; skot Sedgleys utan
úr teighorninu hefði smogið inn
með nærstönginni.
Kaflaskipt
Lið Forest var mun betra í fyrri
hálfleiknum en í þeim síðari náði
Tottenham undirtökunum, eftir að
HRAÐLESTRAR-
NÁMSKEIÐ
★ Langar þig að lesa meira af góðum bókum?
★ Fylgist þú ekki nógu vel með nýjungum á
þínu verksviði í vinnunni?
★ Er vinnuálagið í skólanum að drepa þig?
★ Er lítill tími til að sinna áhugamálunum?
Það er staðreynd, að ekkert dregur jafn mikið úr
námsárangri og lítill lestrarhraði. Lestrarhraði nem-
enda Hraðlestrarskólans undanfarin 10 ár hefur auk-
ist um 300% til jafnaðar, hvort heldur er í erfiðu eða
léttu lesefni.
Hver er þinn lestrarhraði? Er hann yfír 600 orð á
mínútu, eða einungis um 150 til 180 orð á mínútu,
eins og flestra nemenda í upphafí námskeiðs?
Viljir þú bætast í hóp ánægðra nemenda skólans,
skaltu skrá þig strax á næsta námskeið, sem hefst
fimmtudaginn 25. janúar nk.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00
í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKÓLINN
»o bas already given
th« (rigfit oí Iheir livos.
t from Ihe ceid iias ao
Iwoek's Líttlowooas
LnTLEWOODS CUP
F0REST VSPURS
"lcaland míjjhl n«l ba ihoughl ol
8$ a fooiballiop courtiry hut I am
tu'B íi will b» m tbo IuIuib. Ihero
aro a number of playera in mir
cpuntrv who aro qoo<I onouan «o
nwko me grado In profos jional
focfbnll.
’ Sitjsi Jamson was tha firti to
#omo to Enflland and he wai
alway* a uuud young player but I
bupe to ilo al loeit ae woll os ha
h»a done and It wowld not lurptlso
mo H olhor lcelandio playera
fedowod.
‘I would »*y that Iho bo«t toams
in lcelem) would fao obout Saeond
Piyltlen tUndtrd Lut tboro it no
doubt tbat tho umo It totter ond
mor» phytlool nore.
"You pley to mony oamet In
k»;t l'm L^ur»«
Þorvaldur hefur verið mikið í sviðs-
ljósinu síðan hann gekk til liðs við
Forest fyrir skömmu. Hann náði þegar
í stað að vinna sér sæti í aðalliði félags-
ins. Hér er hluti úrklippu úr knatt-
spyrnuritinu Shoot sem fjallaði sér-
staklega um Norðurlandabúana Þor-
vald og Erik Thortvedt, vegna leiksins
í gærkvöldi, og birti tvær litmyndir
af Þorvaldi eins og sjá má.
Forest gerði síðara markið. Þorvaldi
var skipt út af þegar um tíu mín.
voru eftir, skömmu áður en Sedgley
jafnaði fyrir Tottenham.
Guðni Bergsson var ekki í leik-
mannahópi Tottenham, sem fór til
Nottingham. Liðin mætast að nýju
á White Hart Lane, leikvangi Tott-
enham, á miðvikudag í næstu viku.
Þorvaldur vildi ekki gera mikið
úr frammistöðu sinni í gærkvöldi,
sagðist hafa leikið betur síðan hann
kom utan. Sagðist til dæmis hafa
fengið knöttinn mun meira í leikn-
um gegn Millwall um sl. helgi, en
þá þótti hann hafa leikið sérlega vel.
Þrír reknir út af
Tveir aðrir leikir fóru fram í 8-
liða úrslitum deildarbikarkeppninn-
ar og var hart barist í þeim báðum.
Sunderland og Coventry gerðu
markalaust jafntefli á Roker Park
í Sunderland og var einum manni
úr hvoru liði vísað af velli, Gary
Bennett fyrirliða Sunderland — sem
lék einmitt áður með Coventry —
og David Speedie, en þeir tóku upp
á því að slást.
í London mættust West Ham og
Derby og þeim leik lauk eining með
jafntefli, 1:1. Martin Allen, leikmað-
ur West Ham, fékk að sjá rauða
spjaldið fyrir ljóta tæklingu. Julian
Dicks kom 2. deildarliði West Ham
yfir á 38. mín. en Dean Saunders
tryggði Derby jafntefli 12 mín. fyr-
ir leikslok — komst inn í lélega
sendingu Tony Gales aftur til mar-
kvarðarins og skoraði.
Einn leikur var í 3. ufnferð ensku
bikarkeppninnar, Everton og Midd-
lesbro mættust í þriðja sinn. Tvi-
svar höfðu liðin slrilið jöfn, en nú
skreið Everton áfram í 4. umferð
með 1:0 sigri. Norman Whiteside
gerði eina markið á 88. mín. Mið-
vallarleikmaðurinn sterki, sem
skoraði tvívegis gegn Southampton
í deildinni á laugardaginn var, eins
og sást í beinni útsendingu í Sjón-
varpinu, þrumaði í netið af stuttu
færi eftir að mikil þvaga hafði
myndast á markteig Middlesbro.
Áður höfðu varamennirnir Tony
Cottee og Raymond Atteveld báðir
verið nálægt því að skora.
TENNIS / OPNA ÁSTRALSKA MEISTARAMÓTIÐ
McEnroe byrjar vel
JOHN McEnroe segist gera sér
góðar vonir um að ná langt á
opna ástraiska meistaramót-
inu í tennis, sem hófst á mánu-
daginn. McEnore byrjaði vel
og sigraði Frakkann Thierry
Tulasne6:2,6:1 og 6:2, í fyrstu
umferð og Austurríkismanninn
Alex Antonitisch í 2. umferð.
Margir þekktir leikmenn féllu
úr keppni þrátt fyri r að festir
af þeim efstu hafi haldið velli.
Boris Becker er einnig talinn
líklegur til afreka. Hann hefur
aldrei náð lengra en í 8-manna úr-
slit en segir að nú sé stundin runn-
in upp. „Ég held að ég eigi góða
möguleika ef ég gæti þess að vera
á toppnum á réttum tíma. Maður
má ekki leika of vel í fyrstu leikjun-
um því þá bitnar það á þeim
síðustu," sagði Becker, eftir að
hafa sigraði Hollendinginn Paul
Haarhuis, 6:1, 6:2 og 6:1. Hann lék
að kvöldlagi og sagðist vera mjög
ánægður með það: „Ég vona að ég
fái alltaf að leika að kvöldi. Þá eru
bestu aðstæðumar, hvorki sterk sól
né vindur, og lítil hætta á að tapa
á slæmum aðstæðum," sagði Beck-
er. Hann hefur æft með Steffi Graf
að undanförnu, í fyrsta sinn í tíu
Reuter
John McEnroe bytjaði vel á opna
ástralska meistaramótinu í tennis,
vann Frakkann Thiery Tulsane í fyrstu
umferð og fagnar hér þeim sigri.
ár, og segir að hún hafi líklega aldr-
ei verið betri.
Andrei Tsjesnokov frá Sovétríkj-
unum átti í mestu vændræðum með
Ástralann Mark Kratzmann, tapaði
tveimur fyrstu lotunum og var und-
ir, 4:5 í þeirri þriðju. „Þá lokaði ég
augunum, hugsaði með mér að ef
ég tapaði færi ég til Moskvu á
morgun, og sló boltann eins fast
og ég gat.“ Það gekk upp því
Tsjesnokov sigraði í þremur síðustu
lotunum.
Heimamenn leggja allt sitt traust
á Pat Cash enda er hann talinn sá
eini sem á raunhæfa möguleika á
sigri.
Steffi Graf er spáð sigri í kvenna-
flokki enda hefur hún verið óstöðv-
andi síðustu misseri en búast má
við því að Gabrielu Sabatini veiti
henni harða keppni.
Meðal þeirra sem töpuðu í fyrstu
umferð voru Darren Cahill og John
Fitzgerald, sem báðir eru í landsliði
Ástralíu, Carl-Uwe Steeb og Eric
Jelen (V-Þýskalandi), Tim Mayotte
og Jim Pugh (Bandaríkjunum),
Goran Ivanisevic (Júgóslavíu), Am-
os Mansdorf (ísrael), Jakob Hlasek
(Sviss), Emilio Sanchez (Spáni) og
Jan Gunnarsson (Svíþjóð). Steeb,
Mayotte og Sanchez voru allir í
hópi tíu efstu manna á styrkleika-
lista mótsins. I kvennaflokki voru
það aðeins aðeins þrjár úr hópi
efstu, Larissa Savsjenkó, Claudia
Kohde-Kilsch og Lori McNeil, sem
féllu úr keppni.