Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú átt auðvelt með að vinna með maka þínum í dag og nýt- ur þín afburðavel á félagslega sviðinu ekki síður en heima fyr- ir. Naut (20. apríl - 20. maí) Þér miðar vel áfram í starfinu ef þú tekur daginn snemma, en ýmislegt gæti farið úrskeiðis seinni hluta dagsins. Þú færð góðar fréttir. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Farðu út að skemmta þér, en eyddu ekki um efni fram. Þú færð umbun á vinnustað. Þér bjóðast góð tækifæri í peninga- málum. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú kemur ýmsu þarflegu áleið- is heima við í dag. Eftir það verður þú í skapi til að iétta þér upp. Rómantíkin færir þér hamingju. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú upplifir rómantískar stundir í gegnum starf þitt. Samstarfs- maður þinn er eitthvað við- kvæmur í dag. Æskileg þróun í fjölskyldulífi þínu gerir kvöld- ið ánægjulegt. Meyja (23. ágúst - 22. september) M Kauptu snemma inn í dag. I kvöld viltu líta eins vel út og mögulegt er af því að þá er fýsilegt að fara út á meðal fólks eða hitta góða vini. Vog (23. sept. - 22. október) Góðar horfur örva þig til að koma hlutum á hreyfingu. Frá- bært starfstækifæri getur kom- ið upp í hendumar á þér. Þú átt góðar stundir heima fyrir. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Það blæs byrlega fyrir þér nú um stundir. Heillandi fram- koma þín hjálpar þér mikið í dag. Þú færð góðar fréttir. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Þú ert að leggja drög að,því að hálda samkvæmi. Þú færð ef til vill góða gjöf eða góðar fréttir sem varða fjárhag þinn. Vinur þinn virðist vera svolítið upptekinn af sjálfum sér i kvöld. Steingeit (22. des. - 19.Janúar) Þú ert sérlega aðlaðandi og lif- andi í dag, en gættu vel að öll- um kurteisisvenjum í viðskipt- um þínum við starfsfélagana. Kvöldið er fullt af fyrirheitum. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Þú ætlar að heimsækja vini sem búa í fjarlægð. Þér gæti boðist gott tækifæri í starfi þínu í dag. Þú ert með hugann við eitthvert góðgerðarmálefni. Rómantíkin er á næsta leiti. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) !£ Morgunstund gefur gull í mund. Það á einnig við í starfi þínu. Góður tími tii að fara út á meðal fólks. Kvöldið verður skemmtilegt. AFMÆLISBARNIÐ er fjöl- hæfara en venjulegt er um fólk í þessu stjömumerki. Það kýs helst að vera á sjálfs sín vegum og hafa hiutina eftir sínu höfði. Það hefur áhuga á stjórnmálum og þjóðfélagsmáium almennt og er umbótasinnað. Það yrði, gðður ráðgjafi í viðskiptum, en nýtur sín betur á sviði lista eða í sérfræðistörfum. Stjörnusþána á aó lesa sem dœgradvól. Sfidr af þessu tagi byggiast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. GARPUR GRETTIR SMÁFÓLK Munið að við erum hérna úti til að Reynum að eiga vinsamlegan leik. skemmta okkur. Gott! Ég ætla að faðma að mér leik- mann. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Eftir tveggja lita innákomu vesturs var líklegt að austur væri feitur fyrir í lykillitum sagnhafa. Suður gefur; NS á hættu. Vestur ♦ DG932 ¥8 ♦ KD7654 ♦ 4 Norður ♦ K104 V ÁD7 ♦ Á82 ♦ 8532 II Austur ♦ 765 ♦ G1096 ♦ G10 ♦ KG109 Suður ♦ Á8 V K5432 ♦ 93 ♦ ÁD76 Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta 2 hjörtu 2 spaðar Pass 3 lauf Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: tígulkóngur. Vestur sýndi spaða og láglit með tveggja hjarta sögninni, og norður krafði í geim með því að melda lit vesturs. Sagnhafi virðist vera með fjóra óhjákvæmilega tapslagi: einn á tígul, einn á tromp og tvo á lauf. En sjáum til: Það er hæpið að vestur eigi 7-Iit í tígli, svo það sakar ekki að dúkka fyrsta slaginn. Vestur gerir best í því að spila tígli áfram. Nú er hjartað prófað: fyrst er kóngurinn tekinn og svo ásinn. Hugmyndin er að vera inni í borðinu ef trompið liggur í hel. Næst er laufdrottningu svínað og ásinn tekinn. Síðan kemur tromp inn á blindan og tígull stunginn (austur má greinilega ekki trompa). Þá er spaða spilað þrisvar og suður fær 10. slaginn á tromp, hvort sem austur stingur eða hendir laufi. Svokailað „undanbragð". SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á þriðja opna móti strmeist- arasambandsins í Palma á Mall- orca í desember kom þessi staða upp í skák hins gamalreynda sovézka stórmeistara Bukhuti Gurgenidze (2.370), sem hafði hvítt og átti leik, og hins unga júgóslavneska stórmeistara Ivan Sokolov (2.525). Svartur lék siðast 22. - g7-g6? 23. Bxg6! - hxg6 24. Dxg6 - Rc8 (Þar sem svarti kóngpirinn er í algjörri spennitreyju er ekki auð- velt að benda á betri leiki.) 25. Bh6+ - Hxh6, 26. Dxh6+ - Kf7, 27. Dh7+ - Ke6?, 28. Dg8+ - Kd7, 29. Dd5+ og svartur gafst upp, því hrókurinn á a8 fellur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.