Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 51 HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD ípRÚm ■ FOLK I ■ ÞORBERGUR Aðalsteinsson og félagar hans í Saab höfðu betur í viðureigninni við Ystad, sem Gunnar Gunnarsson leikur með, í sænsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik í gærkvöldi. Saab sigraði með fimm marka mun, 23:18, og er nú í þriðja sæti deildarinnar. ■ GUÐMUNDUR Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í FH, fékk knöttinn í andlitið í lok fyrri hálf- leiks gegn KR í gær og lék ekki meira með eftir það. Hann fékk blóðnasir og fann til í höfðinu á eftir. ■ FH-INGAR léku með sorgar- bönd í leiknum gegn KR í gær til ( minningar um Ingibjörgu Árna- dóttur, ekkju Hallsteins Hinriks- sonar, sem oft var kallaður faðir ■ handknattleiksins í Hafnarfírði. Þau voru foreldrar þess kunna handboltafólks, Geirs, Arnar og | Sylvíu. ■ ÞORSTEINN Guðjónsson, leikmaður KR-inga, lék ekki með félögum sínum í gær. Hann sleit liðband á vinstra hnéi og verður frá í tvær vikur. Friðrik Þorbjörns- son, sem verið hefur fyrirliði KR, gat heldur ekki leikið þar sem hann fíngurbrotnaði á æfíngu fyrir skömmu. ■ JÓN Kr. Gíslason og félagar hans hjá danska körfuknattleikslið- inu SISU töpuðu, 110:113, fyrir Skovbakken í dönsku úrvalsdeild- inni um helgina. Jón Kr. skoraði tuttugu stig í leiknum. ■ SISU er í öðru sæti með sextán 4 stig, en BMS er í efsta sæti með tuttugu stig. Hart er barist um fjög- ur efstu sætin, sem gefa rétt á sæti ( í úrslitakeppninni. Nokkur lið eru með fjórtán og tólf stig. Sex um- ferðir eru eftir í deildinni. I B JENS Einarsson, fyrrum landsliðsmarkvörður í handknatt- leik, sem sér nú um þjálfun mark- varða landsliðsins, fær það hlutverk að vera „yfirnjósnari" á HM í Tékkóslóvakíu. B JENS verður með bækistöð í Zilina, þar sem Sovétríkin, A-Þýskaland, Japan og Pólland leika, en þremur þessara fjögurra liða mun Island mæta í milliriðli í Bratislava, ef íslenska landsliðið nær því að komast í milliriðil. B BOGDAN, landsliðsþjálfari, fær aðstoð frá Guðjóni Guðmunds- syni, Stefáni Carlssyni, lækni og , Davíð Sigurðssyni í sambandi við ' leiki landsliðsins á HM. H ASGEIR Sigurvinsson var í { sjöunda sæti á listanum yfir bestu miðvallarspilara V-Þýskalands, í könnun sem blaðið Sport-Bild gerði | hjá lesendum sínum. 25 þús. lesend- ur tóku þátt í könnunni. Ásgeir fékk 3% atkvæða, en sá sem var valinn bestur er Andreas Möller hjá Dortmund, með 27% atkvæða. Ásgeir fékk flest atkvæði hjá fólki á aldrinum 20-29 ára, eða 4%. Morgunblaðið/RAX Jón Eriing Ragnarsson skoraði fjögur mörk fyrir FH. Hér skorar hann eitt marka sinna úr hraðaupphlaupi í fyrri hálfleik. Leifur Dágfinnsson, markvörður KR, kemur engum vömum við þrátt fyrir góð tilþrif. Spennan helst á toppi 1. deildar FH-INGAR sigruðu KR í miklum baráttuleik, 24:22, í Laugar- dalshöll í gærkvöldi og halda þar með spennunni á toppi 1. deildar. FH og Valur hafa bæði 19 stig eftir ellefu umferðir og stefnir í einvígi milli þeirra, þó svo að of snemmt sé að af- skrifa Stjörnuna og KR. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik þar sem baráttan og krafturinn réðu ríkjum. Sóknarleikurinn var ekki markviss enda varnir beggja liða sterkar. KR- ingar komu vel út á móti Héðni Gilssyni og náði hann aðeins að skora eitt mark í fyrri hálfleik og það úr hraðaupp- hlaupi. Staðan í hálfleik var 10:10. FH-ingar breyttu sóknarleik sínum í síðari hálfleik. Guðjón og Óskar skiptu um hlutverk þannig að Óskar kom inn á miðjuna og Guðjón fór yfir á hægri vænginn. Við þetta riðlaðist varnarleikur KR-inga og Héðinn fékk meira pláss vinstra megin. KR átti ekkert svar við þessu og FH náði mest fímm marka forystu um miðjan hálfeikinn er staðan var 17:12. KR náði að minnka muninn í tvö mörk, 18:20, og virtist vera að komast meira inn í leikinn, en þá fékk Leif- ur, markvörður, rauða spjaldið fyrir að mótmæla dómi. „Ég er ánægður með leik okkar í seinni hálfleik. Sigurinn var mjög mikilvægur og heldur okkur í topp- baráttunni áfram. KR-liðið er gott og á örugglega eftir að bíta frá sér og það er of snemmt að afskrifa það. Dómaramir voru slakir án þess þó að það hafí ráðið úrslit- um,“ sagði Guðjón Árnason, fyrir- liði FH. „Við tökum hvem leik fyr- ir sig og nú er það KA á laugardag- inn. Það er mikið eftir af mótinu og staðan er fljót að breytast," sagði Guðjón. KR-ingar léku vel í fyrri hálfleik og enginn betur en Páll Ólafsson, sem virðist óðum vera að komast í sitt besta form. Stefán Kristjánsson var full skotgráðugur á stundum. Sigurður Sveinsson komst vel frá leiknum, en Konráð var sérstaklega óheppinn með skot sín. Gísli Felix varði þokkalega. Leifur lét skapið hlaupa með sig í gönur, kannski ekki furða miðað við það sem á undan var gengið í slakri dóm- gæslu. FH-ingar hafa yfir jöfnu Iiði að ráða, góðum einstaklingum sem ná vel saman ef sá gállinn er á þeim. Guðjón var bestur þeirra og dreif samherja sína áfram með krafti og útsjónasemi. Héðinn náði sér vel á strik í síðari hálfleik og gerði þá fimm gullfalleg mörk. Gunnar Bein- teinsson er öryggið uppmálað í horninu og Jón Erling gaf honum lítið eftir. Þorgils Óttar virðist ekki njóta sín eins og áður þar sem hug- ur hans virðist vera mikið við þjálf- unina. Bergsveinn tók stöðu Guð- mundar Hrafnkelssonar, sem varð fyrir smávægilegum meiðslum, undir lok fyrri hálfleiks, stóð í markinu út leikinn og lék. ■ Sóknarnýting liðanna í fyrri hálf- leik var 47 prósent. Sóknarnýting KR í seinni hálfleik var 48 prósent, en 55 prósent hjá FH. URSLIT Handknattleikur 1. deild kvenna: Víkingur-KR.........................23:13 2. deild karla: Ármann-Þór Ak...................... 22:22 Selfoss-FH b........................25:29 3. deild kariæ ÍS-Afturelding...,..................21:35 2. deild kvemuu Selfoss-ÍR..........................29:24 KR — FH 22 : 24 Laugardalshöll, Íslandsmótið ! hand- knattleik - 1. deild, miðvikudaginn 17. jan- úar 1990. Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 2:4, 3:5, 5:5, 7:7, 8:8, 9:10, 10:10, 10:12, 11:14, 12:14, 12:17, 13:18, 17:19, 18:21, 20:24, 21:24. Mörk KR: Páll Ólafsson 8/1, Stefán Kristj- ánsson 7, Sigurður Sveinsson 4, Konráð Olavson 2, Einvarður Jóhannsson 1. Vari skot: Leifur Dagfmnsson 6 (þar af 3 til mótheija), Gisli Felix Bjarnason 9 (þar af 2 til mótheija). Utan vallar: 6 mínútur. Leifur Dagfinnsson fékk rauða spjaldið undir lok leiksins. Mörk FH: Héðinn Gilsson 6, Guðjón Árna- son 5, Jón Erling Ragnarsson 4, Gunnar Beinteinsson 3, Óskar Ármannsson 3/3, Þorgils Ótar Mathiesen 2, Halfdán Þórðar- son 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 9 (þar af 4 tii mótheija). Bergsveinn Berg- sveinsson 13 (þar af 2 til mótheija). Utan vallar: 8 mínútur. Áhorfendur: Um 500. Dómarar: Guðjón Sigurðsson og Hákon Siguijónsson. Voru slakir, misstu tökin á leiknum um tíma í síðari hálfleik. PP Páll Ólafsson, KR. Guðjón Árnason, FH. P Gísli Felix Bjarnason, Sigurður Sveinsson og Stefán Kristánsson, KR. Héðinn Gilsson, Bergsveinn Bergsveinsson, Gunnar Bein- teinsson, Jón Erling Ragnarsson og Þorgils Óttar Mathiesen, FH. Skíðastökk ^ Stökk af 90 m palli, ! Zakopani í Póllandi í gær. Mótið er liður í heimsbikarkeppninni. (Heildarstig og stökklengdir) 1. Jens Weissflog, A-Þýskal. ..207 (104.5/108) 2. Andreas Felder, Austurríki .204 (104/111.5) 3. Olle Fiejjestoel, Noregi.199 (110/100) 4. Pavel Ploc Tékkóslóvakía .196 (103.5/105.5) 5. Emst Vettori, Austurríki.193.5 (98.5/109.5) 6. Miran Tepes, Júgóslavíu.,.193 (104.5/102.5) 7. Frantisek Jez, Tékkósl. .191.5 (101.5/103.5^ 8. WemerHeim, Austurriki....l90 (103.5/98.^^ 9. Virginio Lunardi, tlalfu.189 (101/100.5) Valur B. Jónatansson skrífar Fj.leikja U J T Mörk Stig 11 11 11 11 11 11 11 11 11 11 VALUR FH STJARNAN KR ÍR GRÓTTA VÍKINGUR HK KNATTSPYRNA Ekki spenntur fyrir Stoke“ - segir Gunnar Gíslason sem hefur æft með liðinu í viku GUIMNAR Gíslason,landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Hácken í Svíþjóð, hefur undanfarna viku dvalið hjá enska annarrar deildarliðinu Stoke City við æfingar. Liðið vantaði miðvörð og bauð Gunnari að koma og æfa, en að sögn Gunn- ars verður líklega ekkert úr samningum. Eg get ekki sagt að ég sé spenntur fyrir Stoke enda er ég ekki ýkja hrifinn af knatt- spyrnu á botni annarrar deildar í Englandi. Aðstæðurnar eru held- ur ekki sérlega spennandi og líklega ekki mikið sem leikmenn bera úr býturn," sagði Gunnar. Gunnari hefur gengið vel á æfíngum með varaliðinu og lék með því gegn aðalliðinu á þriðju- daginn. „Þeir hafa reyndar sagt að ég sé of lítill fyrir miðvarðar- stöðuna en að öðru leyti hefur gengið mjög vel,“ sagði Gunnar. Umboðsmaður Tony Wood- cocks, hins kunna leikmanns Arsenal og Köln hér á árum áð- ur, hafði samband við Gunnar og bauð honum að koma til Stoke enda vantaði liðið sterkan varnar- mann. „Það var svosem allt í lagi að koma hingað en það er margt sem kemur í veg fyrir samning, m.a. greiðslur til Hácken, og því er ég bara á heimleið," sagði Gunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.