Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 34

Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 -t ■34 8 EG HEF ALLTAF VERll) SÖNGELSKUR FINNBOGILÁRUSSON Á HELLNUM Á SNÆFELLSNESISEGIR FRÁ KIRKJUSÖNG, KYNNUM AF JÓHANNESIKJARVAL OG ÓTALMÖRGU ÖÐRU Hellnar í Breiðuvíkurhrepp var áður ein stærsta verstöð Snæfells- ness. Árið 1703 voru þar 6 grasbýli og 32 þurrabúðir, þar sem 200 mannsþreyðu þorrann og góuna og nutu sumarblíðunnar þegar hún gafst. í góðu veðri er afar fallegt á Hellnum en heldur er þar kulda- legt um að litast þegara veður er slæmt. í vetur heimsótti ég Finn- boga Lárusson bónda á Laugarbrekku í Hellnum. Veður var slæmt, hvöss norðarátt, snjófjúk og sjór úfinn mjög. En íbúðarhúsið á Laug- arbrekku er traust og hlýtt, rösklega 13 ára gamalt. Áður hafði Finnbogi reist þar lítið steinhús, 56 férmetra að stærð árið 1932. Það gekk raunar ekki þrautalaust að koma því húsi upp. Finnbogi og Ólafur bróðir hans reistu nýbýli á Laugarbrekku. Höfðu alist upp á næsta bæ, Brekkubæ, hjá foreldruin sínum Guðbjörgu Stefaníu Ólafsdóttur og Lárusi Lárussyni. Jörðina átti bróðir Lárusar, Finn- bogi sem árið 1906 hóf að versla á Búðum. Hann vildi selja frændum sínum Brekkubæ á 4800 krónur en þeim þótti það of dýrt og tóku heldur Hól, sem var eyðijörð einnig í eigu Finnboga. Hún var tölu- vert landmeiri en Brekkubær og mun ódýrari, kostaði 1000 krónur. Hún var hins vegar algerlega húsalaus. „Ég átti þrjú hundruð krón- ur eftir vetrarvertíðina þegar kaupin voru gerð,“ segir Finnbogi hæglátlega. „Þúsund krónur var talið nóg verð þá, enda ekki lófa- stór blettur á jörðinni ræktaður. Finnbogi Lárusson varð áttræður þann 8. október í haust. Hann hefúr um árabil gegnt margvíslegum ábyrgðarstöðum fyrir sína sveit. Embætti hans eru víst varla færri en 30 og því líklega hægara að telja upp það sem hann hefúr ekki gert en hitt sem hann hefur gert. Auk þess hefur hann fengist við dýralækningar, verslunarrekstur og verið fréttaritari Morgunblaðs- ins þar vestra langa hríð. Það Iætur því að líkum að hann muni vera maður fylginn sér og duglegur þó hann virðist fara sér hægt og sé fremur Iágróma. Fanney Jóhannesdóttir að var Thor Thors sem hjálpaði okkur bræðrum að koma fyrra íbúðar- húsinu upp,“ heldur Finnbogi áfram frásögn sinni. „Til þess að fá lán út á húsið þurfti að vera búið að byggja það, en við bræður áttum lít.ið sem ekk- ert til og vissum varla hvað taka ætti til bragðs. Svo datt mér í hug að fara suður til þess að finna Thor og biðja hann ásjár. Hann var þing- maður okkar þá. Thor hlustaði á mig, leitaði sér svo upplýsinga um okkur Ólaf hjá Guðlaugi Halldórs- syni oddvita hér og sagðist að því loknu ætla að reyna að fá vin sinn Karl forstjóra hjá timburverslun Árna Jónssen til þess að lána okkur efnivið í húsið og ganga sjálfur í ábyrgð fyrir okkur. Það fannst mér fallega gert af ókunnugum manni. Við Olafur voru þannig sinnaðir að við vildum vera hér. Eg hafði lært smíðar um tíma hjá Guðjóni Sigurðs- syni smið í Ólafsvík. Ég fékkst svo töluvert yið smíðar seinna og byggði m.a. hús hér i sveitinni. Afi minn Lárus var mikill smiður, hann er eini maðurinn sem ég hef heyrt tal- að um að hafi spengt lampaglös. Faðir minn var aftur enginn smiður. Foreldrar okkar fóru með okkur hingað þegar við vorum búnir að byggja húsið 1934. Það voru tölu- verð umskipti fyrir okkur öll að flytja. Það hafði oft verið kalt í Brekkubæ en við höfðum þó elda- vél. Foreldrar mínir fengu sér fyrst manna í þessari sveit eldavél sem hægt var að baka.í. Það var mikið notað af lyngi til upphitunar hér í kring. Mótekja var heldur slæm. Eftir að húsið hér í Laugarbrekku komst upp bjuggum við bræðurnir saman hér þar til árið 1942 er Ólaf- ur drukknaði af bát sem hét Pilot sem Karel Ögmundsson gerði út frá Hellissandi. Eftir að hann dó varð ég að taka við öllu hér. Um þetta leyti var ég kosinn í sóknarnefnd en formaður hennar hef ég verið í 50 ár. Ég var einnig for- söngvari í kirkjunni um árabil, org- anisti í 47 ár, safnaðarfulltrúi í 28 ár umsjónarmaður kirkju og kirkju- garðs í 51 ár og meðhjálpari í 12 ár. Á Hellnum var sett kirkja um 1880 er Einarslóns- og Laugar- brekkusóknir höfðu verið sameinað- ar. Nú er hér útkirkja frá Staðarstað og hefur svo verið frá 1917. Núver- andi kirkja er steinsteypt og var vígð 1945. í kirkjunni er mikið listaverk sem er altaristöflurammi sem er skorinn í mahoní. Hann er skorinn af Jóhannesi Helgasyni frá Gíslabæ. Hann lærði hjá Stefáni Eiríkssyni skurðmeistara í Reykjavík. Ramman smíðaði hann við slæm skilyrði í gömlu eyðihúsi sem kallað var Bjarg. Það var heldur kalt í húsinu og eina ljósið var tíulínu lampi og verkfærin voru fábrotin. Efnið í þennan ramma var fengið á rekafjöru.Hann gaf rammann kirkjunnni árið 1919 til minningar um foreldra sína frá sjálf- um sér og systkinum sínum. Árið eftir varð það hörmulega slys að hann varð úti á milli Hellissands og Hellna. Hann var trúlofaður þegar þetta var og bróðir unnustunnar fjórtán ára fór með honum þessa hinstu ferð sem farin var á afmælis- degi systur hans. Hann hafði skorið út kassa í afmælisgjöf fyrir systur sína en hann komst þá áldrei með kassann alla leið. Pilturinn ungi varð ekki úti. Þeir voru komnir svo nærri byggð að þeir sáu ljós í glugga í nærliggjandi húsi en Jóhannes gafst upp og komst ekki lengra. Pilturinn sótti hjálp en hún kom of seint. Ki r kju o rgani sti í fjölmörg ár Ég skil ekki í því enn í dag að ég skyldi áræða að fara að spila á Finnbogi Lárusson og kona hans orgel í kirkjunni. Lærdómurinn var nánast enginn. Nóturnar kenndi mér Haraldur Jónsson í Gröf barnakenn- ari. Hann kenndi mér líka hækkunar og lækkunarmerki. Seinna fór ég suður og átti að læra svolítið að spila fyrir kirkjuna hjá Páli ísólfs- syni. Ég var heilan mánuð í Reykjavík hjá kunningjafólki og æfði af kappi á gamalt orgel en ég fékk ekki nema tvo hálftíma hjá Páli þennan mánuð. Ég átti að fá fjóra tíma en hann var alltaf svo önnum kafinn.Svo fór ég heim og æfði mig þar og komst það langt að taka að mér að spila við messur. Það hefur gengið slysalaust en ég var ákaflega taugatrekktur fyrst þó ekki færi leikurinn út um þúfur fyr- ir það. Árið 1942 var stofnaður kirkjukór hér, sá fyrsti á Nesinu. Sigurður Birkis kom og stofnaði kórinrt með 16 manns og æfði okkur fyrsta hálfan mánuðinn en svo tók ég við. Það var mikill kraftur í sönglífinu hér. Áður höfðu forsöngv- arar leitt kirkjusönginn. Sigmundur heitinn á Hamraendum var t.d. for- söngvari í 27 ár. Hann va rótrúlega lagvís en ég fann þegar ég fór að spila eftir nótum að lögin voru ekki alltaf rétt. Það voru bara örfáir sem gátu tekið að sér forsöng, það er erfitt a muna öll lögin og hafa öngv- ar nótur að styðjast við. Kona Sig- mundar hafði feikna rödd og þegar þau sungu ásamt Guðmndi Einars- syni presti þá þurfti ekki fleira söng- fólk. Það voru erfið ár hjá mér þegar ég þurfti að kenna margar raddir og óskaplegan tíma tók það. Ég varð að leggja á mig feiknarlegar vökur á þeim árum. Én áhuginn hjá söngfólkinu var mikill. Ég hafði lítið orgel á Arnarstapa sem kom úr norskum hvalfangara. Einu sinni fór ég sem oftar um miðnætti út að Stapa og kominn þangað klukkan eitt. Bassamennirnir sem ég ætlaði að æfa voru báðir háttaðir en ég fór tii þeirra og þeir voru ekki Iengi að rífa sig uppúr rúmunum og koma. Það voru ekki umyrði, þetta var al- veg sjálfsagður hlutur þó aldrei væri borguð króna fyrir allt þetta starf. Nú er orðið fátt söngfólk hér, helst kvenfólk. Ég hef öngvan bassa- mann og öngvan tenór. Staðarsveit- arkórinn hjálpar okkur þegar mikið stendur til. Það var mikil byggð hér í kring þegar ég hóf búskap árið 1932. Býlin voru þá mikilu fleiri en nú er en þó hafði þeim fækkað frá því sem verið hafði fyrir mitt minni. Þá var hér einnig margt þurrabúðarfólk sem sumt kom af Suðurnesjum því hér var bæði fiskisæld og stutt á miðin. Sextíu bátar voru hér þegar flest var. Fólk hafði hér í sig og á eða eins og faðir minn orðaði það einu sinni: „Hér verður enginn ríkur en hér þarf heldur enginn að svelta." FVá lífi þeirra tíma segir t.d. frá í æfisögu séra Árna Þórarinssonar. Ég man eftir séra Árna. Hann kom einu sinni fyrir annan prest og lét mig lesa. Það gekk þokkalega, for- • eldrar mínir höfðu kennt mér. Seinna fór ég í barnaskóla. Skólinn var far- skóli og var hafður á ýmsum stöð- um. Hann var löngum á Arnarstapa þegar ég var í skóla. Seinna var hann hér hjá mér. Það var margt af ungu fólki hér á mínum ung- dómsárum. Þá var enga atvinnu að fá og því var fólkt heima og vann foreldrum sínum langt fram á full- orðinsár. Hér var því fjörugt fé- lagslíf á þeim tíma. Ég tók mikinn þátt í félagslífinu, var m.a. formaður ungmennafélagsins og málfundafé- lags sem við stofnuðum. Við gáfum út blað sem hét Neisti. Þar birtist blóminn af skáldskap sveitunganna. Ég fékkst töluvert við að yrkja og bar einnig við að semja lög. Vinur minn og fermingarbróðir Þorleifur Kristófersson frá Skjaldaratröð gaf mér fyrstu harmónikkuna sem ég eignaðist. Hún var tvöföld og é spil- aði á hana fyrir dansi í mörg ár. Við vorum fjögur sem spiluðum á nikku og við skiptumst á að spila á böllunum. Ég lærði aldrei neitt á nikku nema af sjálfum mér. Ég not- aði hveija lausa stund til þess að æfa mig en þær voru því miður ailt- of fáar. Ég hef alltaf verið söngelsk- ur eins og móðir mín var, hún var sí syngjandi og við raunar líka systk- inin. Eg hafði líka gaman af leiklist og lék alltaf, þegar færi gafst, með ungmannafélaginu. Ég hef alltaf haft ákaflega gaman af að leika og sjálfur fengist við að semja skemmti- efni fyrir margvíslegar skemmtanir hér í sveitinni. Ég lék síðast fyrir tveimur árum á þorrablóti. Ég setti líka stundum saman gamanvísur sem sungnar voru á skemmtunum hér . Seinni árin höfum við hjónin farið í margar orlofsferðir og við þau tækifæri hef ég sett saman margar vísur. Orlofsferðirnar hafa mér þótt frábærlega skemmtilegar og þær verða til þess að tengja fólk saman vináttuböndum. Hér áður voru margir með kýr og þá var skipt niður á bæi eftir kúafjölda að reka kýrnar og sækja. Nú eru breyttir tímar, kúnum hefur fækkað hér einsog fólkinu. Hér í sveitinni eru nú aðeins um 60 manns en voru þegar best lét um tvö hundr- uð. Það hefur verið hörmulegt að horfa uppá ágætis jarðir fara í eyði. Eini ljósi bletturinn í þessu er útgerð- in á Stapa og hafnarframkvæmdir þar. Einnig ber að nefna sumarbú- staðaframkvæmdir hér í kring. Það er upplyfting fyrir sveitina að fá þetta fólk þó ekki sé nema á sumr- in. í þessum bústöðum eru líka stundum sjómenn sem stunda róðra á Arnarstapa. Maður vonar að byggðin haldist hér eins og hún er og fólki fækki ekki meira. Ein af ástæðum þessarar þróunar er vafa- laust að síðan bílasamgöngur hófust höfum við verið einangraðri en nær- sveitirnar. Sérleyfið hefur ekki farið nema að Búðum undanfarin ár og svo yfir Fróðárheiði. Nú eru því eng- ar áæltlunarferðir hingað en voru þó ein í viku framan af. Það eru tugir ára síðan ég fór að skrifa um vegamál. Ég hef haldið því fram að Útnesvegurinn þyrfti að byggjast upp sem vetrarleið. Æ fleiri hallast nú að þessari skoðun. Þá þyrfti ekki að berjast þetta við að moka Fróðár- heiði og Kerlingarskarð. Það er mun snjóþyngra þar og veður verri en niðri I byggð.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.