Morgunblaðið - 18.01.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990
41
ísköldu mjólkinni, súkkulaðikök-
unni með þykka súkkulaðihjúpnum
og hinum víðfrægu pönnukökum
sem engum tókst að líkja eftir.
Amma hafði sérstakt lag á að
koma manni í gott skap, eitt af því
sem hún notaði svo skemmtilega
var að segja „brosum“, þannig að
ekki var hægt annað en að brosa
með henni.
Alltaf var hægt að reiða sig á
ömmu, hvort sem leitað var ráða
hjá henni í veraldlegum eða andleg-
um málefnum. Amma var samein-
ingartákn fjölskyldunnar, hún var
fastur punktur í tilveru okkar
krakkanna, sú sem alltaf var til
staðar. Amma er okkur öllum til
eftirbreytni.
Með þessum orðum viljum við
þakka fyrir allar yndislegar sam-
verustundir okkar með henni og
þær minningar sem við eigum og
aldrei munu gleymast um þessa
einstöku konu.
Inga, Hilniar, Halla, Halli, Ingó,
Addi, Kitta, Andri, Harpa,
Valur, Markús, Binni, Logi,
Nína og Sylvía Þöll.
Þegar ég var barn held ég að
mér hafi þótt Ingibjörg Árnadóttir
vera einhver mesta kona í heimi.
Hún bjó á hæðinni fyrir ofan for-
eldra mína og okkur systkinin og
sonur hennar, Ingvar, var leikfélagi
minn frá því ég fyrst man eftir,
þótt hann væri raunar næstum því
þremur árum eldri. Eins og gengur
fundum við stundum upp á ýmsu
sem fullorðna fólkinu þótti ekki
hæfa að börn fyndu upp á, og þá
nægði að Ingibjörgu sæist bregða
fyrir í glugga til að við hættum,
en aðrar konur í götunni hefðu
þurft að viðhafa mörg orð og jafn-
vel beita handafli til að ná sama
árangri.
Enn er ég þeirrar skoðunar að
Ingibjörg hafi verið mikil kona og
um margt merkileg. Hun fæddist í
Hafnarfirði 13. apríl 1910, dóttir
hjónanna Árna Sigurðssonar raf-
stöðvarstjóra og trésmiðs og Sylvíu
Isaksdóttur. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Flensborgarskólanum
1927, hélt síðan áfram námi í
Kvennaskólanum í Reykjavík og
sótti síðar námskeið í skriftar-
kennslu og öðrum handmennta-
greinum. Arin 1939-44 kenndi hún
skrift og handavinnu við Flens-
borgarskólann og var síðan próf-
dómari við skólann í þessum grein-
um í mörg ár.
10. nóvember 1934 giftist Ingi-
björg Hallsteini Hinrikssyni íþrótta-
kennara. Hallsteinn var upprunninn
austur í Mýrdal, hafði stundað nám
í Samvinnuskólanum (og hafði mik-
ið dálæti á Jónasi frá Hriflu alla
tíð síðan) og íþróttakennaraskóla í
Kaupmannahöfn. Hann fluttist til
Hafnarfjarðar 1929, ráðinn til
starfa sem íþróttakennari við báða
skólana, barnaskólann og Flens-
borgarskólann. Á fyrsta ári sínu í
bænum beitti hann sér fyrir stofn-
um Fimleikafélags Hafnaríjarðar —
FH — og var aðalþjálfari þess í
mörgum íþróttagreinum í mörg ár.
Sennilega er það handknattleikur-
inn sem núna heldur nafni Hall-
steins helst á lofti, — en hann
kenndi Hafnfirðingum þá íþrótt og
leiddi fyrstu hafnfirsku meistarana
í henni til sigurs, en á þessum árum
hafði hann þó meira dálæti á frjáls-
um íþróttum, sem hann lagði eink-
um stund á sjálfur með þeim
árangri að verða íslandsmeistari
bæði í hlaupum og stangarstökki.
Þegar Hallsteinn og Ingibjörg
giftust fluttu þau inn í nýbyggt hús
á Tjarnarbraut 11, tvíbýlishús sem
Hallsteinn og faðir minn, Olafur
Þ. Kristjánsson, höfðu komið sér
upp í sameiningu, en þeir voru þá
samkennarar við Barnaskóla Hafn-
arfjarðar. Á efri hæðinni í því húsi
(miðhæðinni eftir að Hallsteinn
byggði þriðju hæðina til viðbótar)
bjuggu þau alla tíð meðan Hall-
steinn lifði, en hann dó 10. október
1974, sjötugur að aldri. En síðustu
árin bjó hún á Víðivangi 12, í sama
húsi og dóttir hennar Sylvía.
Þau Ingibjörg og Hallsteinn eign-
uðust fjögur börn. Elstur er Ingv-
ar, f. 1935, prentverkfræðingur í
Bandaríkjunum; þá Orn, f. 1941,
prentari í Reykjavík; næst Sylvía,
f. 1945, bankamaður og húsmóðir
í Hafnarfirði; og yngstur er Geir,
f. 1946, íþróttakennari í Hafnar-
fírði. 011 vöndust börn þeirra
íþróttaiðkunum frá blautu barns-
beini og hafa náð langt á því sviði,
Ingvar í ftjálsum íþróttum, einkum
spjótkasti, en hin í handknattleik.
Kjarninn í fyrsta meistaraflokks-
liði FH í handknattleik, sem vakti
verulega athygli, voru piltar í svip-
uðum aldri og Ingvar og flestir
þeirra áttu heima í næsta ná-
grenni. Sumir höfðu verið heima-
gangar á Tjarnarbraut 11 áður,
eins og bræðurnir úr Snorrabak-
aríi, Bergþór og Ragnar, en aðrir
lögðu þangað oft leið sína eftir að
þeir voru farnir að æfa íþróttina
fyrir alvöru. Heimili Ingibjargar og
Hallsteins var ævinlega opið þess-
um piltum og stundum var þar
býsna fjölmennt, jafnvel svo að það
færi að minna á járnbrautarstöð.
Hallsteinn hafði gaman af að tala
og hann var af þeirri gerð að vita
ævinlega upp á hár hvernig allt
ætti að vera (og það var auðvitað
alltaf allt öðruvísi en það raun-
verulega var) og fór aldrei dult með
skoðanir sínar, þótt hann að vísu
ætti það til stundum að slá dálítið
úr og í. Og þegar kom að helsta
áhugasviði hans, íþróttunum, var
hann mikill eldhugi, hafði mikinn
metnað og dreymdi stóra drauma.
Tíminn gat því liðið nokkuð hratt
heima hjá Hallsteini, en Ingibjörg
sá ævinlega til þess að öllu væri
haldið í skorðum; hún var kjölfestan
á heimilinu og einhvern veginn held
ég að það hafi oftast komið í henn-
ar hlut að sjá um það sem oft eru
kallaðir „praktískir hlutir“ í heimil-
isrekstrinum.
Þetta og ýmislegt fleira rifjaðist
upp þegar ég fékk fregnina um
andlát Ingibjargar fyrir fáeinum
dögum. Ég á þess því miður ekki
kost að vera viðstaddur útför henn-
ar, en vildi í staðinn með þessum
fáu orðum votta henni virðingu
mína og þakklæti fyrir gömul kynni.
Með Ingibjörgu er gengin mikilhæf
kona, traust og heilsteypt, sem hef-
ur haft meiri áhrif á samtíð sína
en ætla mætti í fljótu bragði, því
að ég efast um að án hennar hefði
Hallsteinn náð þeim árangri sem
hann náði. Og eftir á að hyggja
finnst mér ómetanlegt að hafa feng-
ið tækifæri til að alast upp í nálægð
þeirra hjóna, Ingibjargar og Hall-
steins, og ég held að áhrifa frá
þeim báðum eigi eftir að gæta hjá
mér til æviloka.
Kristján B. Ólafsson
Kveðja frá Fimleikafélagi
Hafnarfjarðar
í dag kveðjum við hinstu kveðju,
mikla sómakonu, frú Ingibjörgu
Árnadóttur, sem lengst af ævi
sinnar bjó á Tjarnarbraut 11 hér í
bæ eins og eldri Hafnfirðingar vita.
Það hús og hennar heimili var höf-
uðstöðvar FH-inga í nærfelld fjör-
utíu ár. Ingibjörg var tíguleg kona
og virðuleg í alla háttu. Hún starf-
aði sem kennari og prófdómari við
Flensborgarskóla í um þijátíu ár.
Ingibjörg var gift Hallsteini Hin-
rikssyni íþróttafrömuði. Þeirra far-
sæla hjónaband gaf af sér fjögur
glæsileg börn, sem öll urðu þekkt
á sviði íþrótta og öll vqru valin til
keppni með landsliðum íslands. Þau
eru: Ingvar, prentverkfræðingur,
kvæntur Edith Hallsteinsson, þau
eiga fjögur börn og búa í Banda-
ríkjunum; Orn, prentari, kvæntur
Valgerði Eiríksdóttur, þau eiga tvo
drengi og búa í Reykjavík; Sylvía,
bankastarfsmaður, gift Helga
Númasyni, þau eiga þijár stúlkur
og eitt barnabarn og búa í Hafnar-
firði og Geir, íþróttakennari, kvænt-
ur Ingibjörgu Logadóttur og eiga
þau fjögur börn og búa í Hafnar-
firði.
Starfi húsbóndans og þátttaka
barnanna í íþróttum, fylgdi oft mik-
ill erill og að sjálfsögðu kom þetta
við heimilislífið á Tjarnarbraut 11
og starf húsmóðurinnar. Mikill
fjöldi ungra Hafnfirðinga kom á
heimili þeirra hjóna, þar hittust
FH-ingar ■ oft fyrir leiki og mót,
haldnir voru þár stjórnarfundir og
annað er tilheyrir félagsskap sem
FH.
Frú Ingibjörg tók þessu öllu með
einstakri ró og jafnaðargeði, hélt
uppi aga og stjórnaði öllu að því
er virtist án fyrirhafnar. Þeir fjöl-
mörgu sem nutu gestrisni þar á
heimilinu, minnast nú þeirra stunda
með hlýhug og þakklæti. Þessar
góðu minningar munu lengi lifa í
hugum FH-inga. Þarna var FH
mótað. Það er ljóst hver áhrif Hall-
steins heitins í mótun FH voru en
áhrif húsmóðurinnar hafa verið
minna áberandi. Þó er ljóst að Ingi-
björg með hógværð sinni kom víða
við í uppbyggingu félagsins og átti
hún t.d. verulegan þátt í mótun
gamla FH-merkisins og keppnis-
búnings FH-inga. Fyrir þetta vildu
FH-ingar þakka og kusu hana heið-
ursfélaga á 45 ára afmæli félagsins
1974.
Ingibjörg bjó síðustu árin i góðu
sambýli við dóttur sína og í ná-
grenni við börn sín og fjölskyldur
þeirra. Lengst af var hún heilsu-
hraust, en nú síðustu mánuði átti
hún við erfið veikindi að stríða.
Eins og oft áðut- reyndi þá á per-
sónuleika hennar og brást ekki ró
hennar og yfirvegun, á þessum erf-
iðu tímum. Nú rétt fyrir síðustu
jól, kom elsti sonurinn heim frá
Bandaríkjunum til að kveðja móður
sína því ljóst var að hveiju stefndi,
þar á milli hefur alla tíð ríkt mikil
hlýja og ástúð.
Um leið og við FH-ingar sendum
fjölskyldu Ingibjargar dýpstu sam-
úðarkveðjur, sendum við hlýjar
kveðjur til Ingvars og íjölskyldu
sem ekki eiga þess kost að vera
viðstödd á þéssari kveðjustund.
Blessuð sé minning Ingibjargar
Árnadóttur, megi minning um góða
konu, móður og ömmu sefa sorg
aðstandenda.
Leiðrétting
í minningargrein í blaðinu, sl.
miðvikudag, um Dagbjörtu Eiríks-
dóttur, brenglaðist frásögnin í einni
málsgrein. Um leið og hún er birt
hér eins og hún átti að hljóða er
beðist velvirðingar á mistökunum:
Ekki svo að skilja að hana hafi
skort menntun. Hún stóð vel að
vígi faglega, en hún hafði meira í
farteskinu. Hún hafði til að bera
hæfileika sem allir sannir uppalend-
ur hafa, skilyrðislausa virðingu fyr-
ir barninu sem jafningja og það sem
e.t.v. var enn dýrmætara, kímni-
gáfu og einlægni, sem gerði henni
kleift að skilja barnshugann og ná
þangað sem flestum fullorðnum er
fyrirmunað.
Kvöldstund með
EDDIE SKOLLER
laugardaginn 20. jan. og sunnu-
daginn 21. jan. kl. 20.30.
Miðasala í Islensku óperunni.
Opiðkl. 15-19.
Múlalundur
BREFA-
BINDIN j
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað. 5
VIÐSKIPTATÆKNI
Aukín samkeppni í verslun og víð-
skíptum kallar á sérhæft nám í hernaðarlist
viðskiptanna.
Raunhæf dæmi krufin tíl mergjar, farið
yfir gmnnatríði og nýjar baráttuaðferðir í
stjórnun og stefnumótun , Qármálum og
markaðsmálum. 92 tímar.
Skráning hafm í síma 626655.
Viðskiptaskólinn
HAGNÝTT NÁM - ÞEKKING SEM NÝTIST!
Ráðstefna um
ÞÝÐINGAR Á
TÖLVUÖLD
Reykjavík, miðvikudaginn 24. janúar 1990
IBM á íslandi og Orðabók Háskólans efna til ráðstefnu
undir yfirskriftinni „Þýðingar á tölvuöld“ hinn 24. janúar
nk. kl. 10:00-16:45. Ráðstefnan er haldin í tilefni af 5 ára
samstarfsafmæli Orðabókarinnar og IBM á sl. ári.
Vandaðar þýðingar skipta miklu fyrir framvindu og rækt
íslensks máls. Vel fer á því að ráðstefna um þetta efni skuli
haldin nú í framhaldi af málræktarátaki því sem staðið
hefur yfir að undanfbmu að fmmkvæði menntamálaráð-
herra.
Undanfarin ár hefur Orðabók Háskólans unnið að um-
fangsmiklum þýðingum tölvuforrita og tölvubóka fyrir IBM
á Islandi. Því þótti vel til fundið að samstarfsafmælisins
yrði minnst með ráðstefnu þar sem fjallað yrði um þýðing-
ar frá sem flestum sjónarhomum, mismunandi þýðingar-
svið og notkun tölvutækninnar við þýðingar. Alls verða
fluttir níu fyrirlestrar á ráðstefnunni þar sem fjallað verður
um bókmenntaþýðingar, biblíuþýðingar, orðabókaþýðing-
ar, íðorðaþýðingar, þýðingar forrita, vélrænar þýðingar,
leiðbeiningar um þýðingar og þýðingarstarf IBM í alþjóð-
legu samhengi. Ræðumenn verða: Kristján Árnason, bók-
menntafræðingur, Guðrún Kvaran, orðabókarritstjóri, Jón
Hilmar Jónsson, orðabókarritstjóri, Sigrún Helgadóttir,
tölfræðingur, Njörður P. Njarðvík, dósent, Stefán Briem,
eðlisfræðingur, Helga Jónsdóttir, deildarstjóri, Höskuldur
Þráinsson, prófessor, Heimir Pálsson, cand.mag. og Örn
Kaldalóns, deildarstjóri.
Ráðstefnustjóri verður dr. Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðla-
fræðingur.
Ráðstefnan fer fram í AKOGES-salnum í Sigtúni 3, en í
því húsi er þýðingastöð Orðabókar Háskólans. Þátttakend-
um verður einnig kynnt starfsemi þýðingastöðvarinnar.
Þátttöku skal tilkynna til IBM í síma 91-697790 eða til
þýðingadeildar OH í síma 91-68 60 15 fyrir 22. janúar nk.
I tsalan lótus .
1 álClrt ÁLFTAMÝRI 7, SÍMI 35522