Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990 Verðlagsráð sjávarútvegsins: Enn ágreiningnr um uppbót vegna löndunar í heimahöfii ENN ER unnið að því innan Verðlagsráðs sjávarútvegsins að ná sam- komulagi um svokallaðan heimalöndunarbónus til að greiða fyrir ákvörðun almenns fískverðs. Segja má, að aðilar innan ráðsins séu sammála um nauðsyn slíkra uppbóta, en mikill ágreiningur sé um það, hve miklar þær eigi að vera og með hvaða hætti þær skuli reikn- aðar. Náist samkomulag á þessum nótum, er jafnframt fyrirliggjandi samkomulag um 3% hækkun fískverðs á samningstímanum. Fundað verður um fiskverðið árdegis í dag. Samkvæmt þeim hugmyndum, senj mest hafa verið reifaðar innan ráðsins af fulltrúum seljenda, er tal- að um að markið verði sett við 70% heimalöndun og komi uppbætur á það, sem landað er heima umfram það. Þannig vilja sjómenn og útgerð- armenn að fyrir hvert 1% umfram 70%, sem landað er beint til vinnslu heima, komi hækkun um 0,7% á verð alls aflans. Fyrir 80% heima- löndun komi 7%, 14% fyrir 90% heimalöndun og 21% leggist ofan á lágmarksverðið, sé öllu landað heima. Þessu unir vinnslan hins veg- ar ekki og hefur talað um að mark- ið verði við 85% og 0,5% uppbætur komi á hvert 1% afla sem landað er heima umfram það. Þannig geti mest orðið um 7,5% hækkun á allan afla. Um framkvæmdina er einnig ágreiningur. Sjómenn vilja að miðað verði við hveija veiðiferð togara og hvern mánuð í útgerð báta. Annað sjónarmið er að samningstímabilinu, sem er til fyrsta desember næstkom- andi, verði skipt í þijú tímabil og uppgjör miðað við ráðstöfun aflans á hveiju fyrir sig. Loks er deilt um það hvort í þessum tilfellum eigi að miða við hveija helztu nytjategund- ina fyrir sig, þorsk, ýsu, karfa, ufsa og grálúðu eða aflann allan án þess að skipta honum eftir tegundúm. Uppbæturnar eru hugsaðar ekki aðeins til að jafna laun í útgerð og sjómennsku, heldur einnig að draga úr þrýstingi þessara aðila á að siglt verði með afla. Fulltrúar vinnslunnar óttast hins vegar, að verði upp- bætumar of háar, snúist þetta við. Aðeins útflutningur ísaðs físks geti staðið undir útgjaldaaukningunni. Uppbætumar koma fyrst og fremst til góða þeim, sem landa öll- um afla sínum til vinnslu í heima- höfn. Meðal slíkra útgerða má nefna Útgerðarfélag Akureyringa. Fisk- vinnsla hjá því þyrfti þá að taka á sig 21% hækkun fiskverðs umfram 3% hækkun á lágmarksverði, komi þetta til, en tekjur skipanna og sjó- manna myndu aukast að sama skapi. ÚA gerir út 5 togara og var aflaverð- mæti þeirra á síðasta ári rúmar 500 milljónir króna. Útgjaldaaukning vegna 21% uppbóta vegna heima- löndunar þýðir því meira eh 100 milljóna útgjaldaaukningu fyrir fisk- vinnslu fyrirtækisins, en sé miðað við 7,5% nemur aukníng útgjalda tæpum 40 milljónum. Fyrir ýmsar aðrar útgerðir breyta uppbætumar engu og má þar nefna alla stóru togarana, sem gerðir eru út frá Reykjavík og Hafnarfirði, en megnið af afla þeirra hefur verið selt á mörkuðum heima og erlendis. Umtalsverðar yfirborgánir á ver- tíðarsvæðinu eru þegar orðnar stað- reynd og munu samningar um heimalöndunaruppbót væntanlega ekki leggjast ofan á þær yfirborgan- ir, sem þegar hefur samizt um. Listaverkagjöf Errós: Virðisaukaskatt- ur felldur niður VEÐUR VEÐURHORFUR IDAG, 14. FEBRÚAR YFIRLIT í GÆR: Austlæg átt á landinu, víðast gola eða kaldi. Við norðurströndina var súld eða rigning en skýjað og þurrt annars staðar. Um austanvert landið var 2ja til 3ja stiga hiti, en 0 til 6 stiga frost um landið vestanvert. SPÁ: Austlæg átt, víðast gola eða kaldi. Skúrir eða slydduél á víð og dreif við sjávarsíðuna um mest allt land en víða bjart í innsveit- um. Frostlaust um austanvert landið en hiti um eða rétt undirfrost- marki vestanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðaustan átt og él við norður- og austurströndina, en breytileg átt og víðast þurrt annars gtaðar. - Hiti nálægt frostmarki. HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- og suðaustanátt og heldur hlýn- andi. Slydda eða rigning um sunnanvert landið, en úrkomulítið um landið norðanvert. TAKN: Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * # * * * * * Snjókoma # * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus XJ Skúrir # V E1 = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur ■|- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 skýjað Reykjavík -i-1 úrkoma í grennd Bergen vantar Helsinki 0 skýjað Kaupmannah. 6 léttskýjaó Narssarssuaq -=•21 heiðskírt Nuuk -=-15 snjókoma Osló 2 slydda Stokkhólmur 4 skýjað Þórshöfn 3 hálfskýjað Algarve 17 léttskýjað Amsterdam vantar Barcelona vantar Berlín 4 alskýjað Chicago 11 skýjað Feneyjar 6 þokumóða Frankfurt 5 skýjað Glasgow 3 slydda Hamborg 4 skýjað Las Palmas 20 hálfskýjað London 6 súld Los Angeles 12 skýjað Lúxemborg 3 skýjað Madrid 15 léttskýjað Malaga 17 léttskýjað Mallorca 20 skýjað Montreal +5 snjókoma New York 2 alskýjað Orlando 11 léttskýjað París 5 rigning og súld Róm 13 léttskýjað Vín 6 skýjað Washington 2 mistur Winnipeg +26 heiðskírt FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að fella niður aðflutnings- gjöld og virðisaukaskatt af gjöf Errós til Listasafns Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum. í frétt frá ráðuneytinu segir: „Eins og kunnugt er færði listamað- urinn Erró Listasafni Reykjavíkur að gjöf mikið safn málverka sinna þegar sýnt var úrval verka hans á Kjarvalsstöðum síðasta haust. Þessi listaverk eru nú að berast til ís- lands, og hefur fjármálaráðherra ákveðið á grundvelli viðeigandi laga að aðflutningsgjöld öll, þar á meðal virðisaukaskattur, skulu felld niður af þessari gjöf. Á sama hátt voru skattar og gjöld felld niður af hluta gjafarinnar í lok október síðastliðn- um.“ Þá segir að á grundvelli tollalaga og söluskattslaga hafi verið fallist á beiðni um niðurfellingu á gjöldum vegna blindrammanna er fylgdu myndum Eitós. Erindi um niðurfell- ingu gjalda þegar síðari hluti gjaf- arinnar kom til landsins fyrir ára- mót hafi verið annars eðlis auk þess sem virðisaukaskattur hafði leyst söluskattinn af hólmi. „Þessa beiðni varð því að athuga sérstak- lega í ráðuneytinu, og var meðal annars beðið um frekari upplýsing- ar frá Listasafni Reykjavíkur. Á grundvelli þessarar athugunar tók ráðherra síðan ákvörðun um niður- fellinguna." Tekið er fram að við umskiptin um áramótin þegar virðisauka- skattur tók við af söluskatti urðu í sjálfu sér engar breytingar á heim- ild ráðherra til að fella niður gjöld af gjöfum sem þessum. Athugunin beindist því fyrst og fremst að því hvort uppfyllt væru skilyrði tolla- laga um að gjöfín væri gefin af sérstöku tilefni, en hefð er fyrir að túlka þetta atriði frekar þröngt. „Að sjálfsögðu var aldrei ætlun ráðu- neytisins að innheimta skatta af hinni höfðinglegu gjöf Errós til landa sinna.“ Aburðarverksmiðjan: Tap á þessu ári verð- ur 110-113 milljónir HÁKON Björnsson, fram- kvæmdastjóri Áburðarverk- smiðju ríkisins, segir að fyrirsjá- anlegt tap á rekstri verksmiðj- unnar á þessu ári verði á bilinu 110-113 milljónir króna ef áburð- arverð hækki einungis um 12%, eins og bændum var gefið fyrir- heit um í tengslum við nýgerða kjarasamninga. „Við töldum okkur þurfa 22% hækkun á gjaldskrá, þar af um 17% vegna verðlagshækkana milli ára, en 5% er arfur frá fyrra ári þegar hækkunarbeiðni okkar var skorin niður. Þetta er það mikill mismunur að við sjáum ekki að við getum á svo skömmum tíma náð því með spamaðaraðgerðum. Ef hækkunin verður 12% þá þýðir það að um 110-113 milljóna tap verður á rekstrinum á þessu ári, en við reikn- um með að velta fyrirtækisins verði um 1200 milljónir fyrir utan virðis- aukaskatt," sagði Hákon. Hann sagði að starfsfólki verk- smiðjunnar hefði verið fækkað úr 205 í 140 á síðustu fjórum árum, og sífellt væru einhveijar aðgerðir í gangi til hagræðingar. Meðal ann- ars nefndi hann að umfangsmikil tölvuvæðing hefði átt sér stað hjá fyrirtækinu á þessu og síðasta ári, sem hefði í för með sér fækkun starfsfólks, en samkomulag væri um að sú fækkun gerðist eftir því sem starfsfólk hætti, en því yrði ekki sagt upp. „Þetta er því lengur að skila sér en ella, og við sjáum ekki fyrir endann á þeirri fækkun fyrr en 1992.“ Framfærslu- vísitalan hækk- ar um 1,6% VÍSITALA framfærslukostnaðar reyndist 1,6% hærri í byijun fe- brúarmánaðar en hún var mán- uðinn áður eða 141,5 stig. Undan- farna þijá mánuði hefur visitalan hækkað um 4,3% en það jafhgild- ir 18,2% verðbólgu á heilu ári. Undanfarna 12 mánuði heíur framfærsluvísitalan hins vegar hækkað um 23,9%. Af einstökum verðhækkunum má nefna að 11,4% hækkun við- haldskostnaðar í kjölfar upptöku virðisaukaskatts hafði í för með sér um 0,5% vísitöluhækkun, 6% hækk- un á orlofsferðum til útlanda olli um 0,2% og hækkun á mat- og drykkjavöru hafði í för með sér 0,2%. Verðhækkun ýmissa annarra vöru- og þjónustuliða olli um 0,7% hækkun á vísitölunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.