Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14.’ FEBRÚAR 1990
Vaglaskógur:
Gróðurhús
hrundi undan
snjóþunga
EITT af þremur heilsársgróður-
húsum í Vaglaskógi hrundi und-
an snjóþunga fyrir skömmu og
er áætlað að tjónið sem af því
varð nemi um einni milljón
króna.
Sigurður Skúlason skógarvörður
í Vaglaskógi sagði að húsið hefði
hreinlega sligast undan snjóþung-
anjim, en snjórinn væri óvenju-
þungur. Húsið var byggt úr tveggja
tommu galvaníseruðum pípum og
plastdúkur strengdur yfir. „Húsið
brotnaði niður eins og spilaborg,"
sagði Sigurður.
Skógarplöntum hefur verið sáð
í húsið á vorin og þær teknar upp
á haustin, auk þess sem í húsinu
hafa verið geymd jólatré. Húsið var
autt er það hrundi. Tjónið er áætl-
að um ein milljón króna. Sigurður
sagði að þrátt fyrir að húsið hefði
hrunið yrði reynt að láta það ekki
raska framleiðslunni. Að líkindum
yrði húsið byggt upp aftur í áföng-
um.
Hinum húsunum tveimur var
bjargað og unnu tíu manns við
snjómokstur af þeim heilan dag,
auk þess sem stór vélskófla var
fengin til að flytja snjóinn frá hús-
Mikill snjór er nú í Vaglaskógi,
eða 160 metra jafnfallinn snjór,
sem er um einum sentímetra meira
en var þegar snjór var mestur í
skóginum um páska í fyrra.
Frá borgarafúndi um lagningu Dalsbrautar.
Borgarafundur í Lundarskóla:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stöð 2 datt út
vegna viðgerð-
ar á aðalrofa
SÍMINN hringdi látlaust lyá sjón-
varpsstjóra Eyfírska sjónvarps-
félagsins eftir kl. eitt á föstudags-
kvöld, en þá hafði rafmagn verið
tekið af í hluta Eyjafjarðar og við
það datt sending Stöðvar 2 út.
Verið var að vinna við lagfæringar
á aðalrofa í aðveitustöð.
Bjarni Hafþór Helgason sjón-
varpsstjóri Eyfirska sjónvarpsfélags-
ins sagði að fjölmargir sjónvarps-
áhorfendur hefðu látið í sér heyra,
en þegar rafmagnið var tekið af
svæðinu hafi frumsýning staðið yfir
á vinsælli gamanmynd. Hann sagði
að um 75% heimila, eða um 3.500
heimili í allt, nytu útsendinga Stöðv-
ar 2 í Eyjafirði. „Það hefur mikið
verið kvartað vegna þessa og þetta
mun ekki vera í fyrsta skipti sem
atvik sem þetta kemur upp á.“
Ingólfur Ármannsson hjá Raf-
magnsveitum ríkisins sagði að vinna
hefði staðið yfir við lagfæringar aðal-
rofa í aðveitustöð. Auglýst hefði ver-
ið í útvarpi að rafmagnslaust yrði
frá Hjalteyri fram í Eyjafjarðarbotn.
Skiptar skoðanir nm lagningu
Dalsbrautar um Limdarhverfi
ENGA Dalsbraut, eru þau skilaboð
sem skipulagsstjóri Akureyrar-
bæjar fékk á borgarafúndi sem
haldinn var í Lundarskóla í fyrra-
kvöld, en skilaboðin eru frá For-
eldrafélagi Lundarskóla annars
vegar og stjórn Knattspyrnufélags
Fundur í Félagi um
sorg og sorgarviðbrögð
FÉLAG um sorg og sorgarviðbrögð á Norðurlandi heldur almennan
félagsfúnd í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju annað kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 15. febrúar, og hefst hann kl. 20.30.
Félagið var stofnað skömmu fyr-
ir síðustu jól og eru félagar á milli
60 og 70. Fundir verða framvegis
haldnir hálfsmánaðarlega í Safnað-
arheimilinu og verða þeir á fimmtu-
dagskvöldum. Sá háttur verður
hafður á að fenginn verður fyrirles-
ari á annan hvern fund.
Félagið er öllum opið, ekki ein-
ungis þeim sem misst hafa ástvini
sína, heldur einnig þeim sem um
sárt eiga að binda af öðrum ástæð-
um, svo sem vegna hjónaskilnaðar
eða atvinnuleysis.
Akureyrar hins vegar. Til fúndar-
ins var boðað til að ræða lagningu
Dalsbrautar, en samkvæmt drög-
um að aðalskipulagi Akureyrar til
ársins 2007 er brautin merkt sem
punktalína, sem þýðir að brautin
verði ekki lögð á þessu skipu-
lagstímabili nema í neyð, en byggð
á götustæðinu er ekki heimOuð.
Gatan er hugsuð sem framhald af
Tryggvabraut, framhjá gömlu
Sambandsverksmiðjunum og upp
á Þingvallastræti framhjá spenni-
stöð og áfram suður úr.
Ingibjörg Jónasdóttir formaður
Foreldrafélags Lundarskóla sagði að
fólk í hverfinu hefði áhyggjur ef
gatan yrði lögð í gegnum gróið íbúða-
hverfi, því það gerði að verkum að
Lundarskóli yrði nánast girtur af
uppi á umferðareyju. Ingibjörg sagði
það vilja íbúa hverfisins að umrætt
svæði yrði skipulagt sem útivistar-
svæði, en lítið væri um slík svæði í
hverfinu.
„Yfirgnæfandi meirihluti fundar-
manna var hlynntur því að Dals-
brautin verði þurrkuð út og það er
baráttumál okkar í foreldrafélaginu,“
sagði Ingibjörg. Hún sagði næsta
skref að hvetja sem flesta íbúa hverf-
isins til að senda inn athugasemdir
við aðalskipulagið. „Okkar aðalrök í
málinu eru þau að við viljum búa vel
að börnum okkar, en slysahætta
eykst til muna verði af lagningu
Dalsbrautar. Auk þess teljum við
hverfíð meira aðlaðandi verði útivist-
arsvæði gert á þessum stað.
Sveinn Brynjólfsson sem sæti á í
stjóm KA og túlkaði sjónarmið
stjómar félagsins sagði að svæðið
sem félagið hefði til umráða væri
alltof lítið og álag á völlum væri of
mikið. Félagið hefði fyrir allmörgum
ámm sótt um viðbótarsvæði fyrir
starfsemi sína. Það yrði því til mik-
illa bóta fyrir félagið að fá afnot af
götustæði Dalsbrautar. KA hefur til
umráða um 5 hektara lands, en
Sveinn sagði æskilegt að þeir yrðu
10. „Það er vilji stjómar KA að
Dalsbrautin verði ekki lögð,“ sagði
Sveinn.
Ámi Ólafsson skipulagsstjóri
sagði að Dalsbrautin yrði mikil sam-
göngubót, miþið álag væri á þeim
tengibrautum sem tengja Oddeyrina
við hverfín á brekkunni, þ.e. Þómnn-
arstræti og Kaupvangsstræti. Verið
væri að hugsa til framtíðar með lagn-
ingu Dalsbrautar, en gert væri ráð
fyrir íbúðahverfi, allt að 7-10 þúsund
manna byggð sunnan núverandi
byggðar í Lundarhverfí. Það væri
stórvarasamt að beina mikilli umferð
um tvær éðumefndar götur og Dals-
brautin væri lykillinn að umferð inn
í hið nýja óbyggða hverfi. „Það eru
kannski ekki nein rök fyrir lagningu
brautarinnar nú, en þegar horft er
til framtíðar er þessi gata mjög mikil-
væg fyrir umferð norður og suður
um bæinn,“ sagði Ámi.
Pólstjarnan hf. á Dalvík:
Einbýlishús til sölu
við Fjólugötu á Akureyri, 114 m2 á tveimur
hæðum. Mikið endurnýjað. Laust strax.
Upplýsingar í síma 96-23429 milli kl. 13 og 16.
Oskudagsbúningar
Hárkollur, andlitslitir
Legákubbar, 25% afslðttur.
Lególand, Tækni- og Fabuland.
Bómullarpeysur. Sendum myndalista.
flngóranærföt. Barnasokkar úr flHGÓRflULL.
Pðstsendum. Sími 96-27744.
Leikfangamarkaðurmn PARÍS hf.,
Hafnarstræti 96, Akureyri.
Lifrarvertíð að hefjast en
lélegt verð fæst í Rússlandi
Fyrirhugað að reisa myndarlega lifrarbræðslu
VERÐ fyrir niðursoðna lifúr á Rússlandsmarkað hefúr lækkað um
14% frá því í fyrra, að sögn Jóns Tryggvasonar framkvæmdastjóra
Pólstjörnunnar hf. á Dalvík, en þar eru starfsmenn nú farnir að
undirbúa sig fyrir lifrarvertíðina sem er að fara í gang. Tveir nýir
hluthafar, Lýsi hf. og Bernhard Petersen hf., hafa gengið inn í félag-
ið og er hugmyndin að stækka lifrarbræðslu fyrirtækisins. Þá er
einnig steftit að því að byggja við núverandi húsnæði, sem keypt
var um áramót.
Jón Tryggvason framkvæmda-
stjóri Pólstjörnunnar hf. á Dalvík
sagði að lifrarvertíðin væri að fara
i gang um þessar mundir, en vcrð
sem fengist fyrir niðursoðna lifur á
Rússlandsmarkaði væri afar lélegt.
„Verðið hefur lækkað um 14% frá
því í fyrra og er alveg í botni, við
rekum þetta á núlli. En menn vilja
halda í þennan markað í von um
betra verð síðar,“ sagði Jón. Um
helmingur framleiðslunnar í fyrra
fór til Rússlands og hinn til Kanada,
en samningar um sölu á niðursoð-
inni lifur til Kanada hafa enn ekki
tekist. Jón sagði þó að þreifingar
væru í gangi um sölu þangað.
Pólstjarnan hf. keypti um áramót
tæplega 300 fennetra húsnæði sem
áður var leigt. Fyrirhugað er að
byggja við húsið í sumar um 400
fermetra. Jón sagði að menn von-
uðu að sölumálin þróuðust til betri
vegar og uppgangur yrði á ný í
þessari framleiðslu.
Fyrirtækið hefur fleiri járn í eld-
inum, en niðurlögð þorskhrogn und-
ir nafninu Tamara hafa verið seld
til Frakklands frá því í fyrrasumar
og hefur einn aðili keypt þá vöru
frá Pólstjörnunni og sagði Jón að
fleiri kaupendur væru að velta
kaupum fyrir sér. Þá framleiðir
fyrirtækið einnig rækju, síld og sjó-
lax, en á þeirra vöru hefur verið
stígandi eftirspurn á innanlands-
markaði síðustu fimm árin. Lifrar-
bræðsla hefur verið starfrækt í litl-
um skúr við húsnæði Pólstjörnunn-
ar og sagði Jón að nýir hluthafar
hefðu gengið inn í félagið, Lýsi hf.
og Bemhard Petersen, og væri hug-
myndin að reisa stóra myndarlega
lifrarbræðslu á staðnum.