Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 42
42 ■ BJARNI Friðriksson j údómað- ur keppti á alþjóðlegu júdómóti í París um helgina og féll úr í fyrstu umferð. Andstæðingur Bjama í fyrstu umferð var frá Afríku. ís- lenska landsliðið tekur þátt í Mats- umae-mótinu sem fram fer í Kaup- mannahöfn um næstu helgi. Auk Bjama keppa þar Sigurður Berg- mann, Halldór Hafsteinsson, Freyr Gauti Sigmundsson, Karl Erlingsson, Eiríkur Kristinsson og Helgi Júlíusson. ■ BJARKI Sigvrðsson gerði þrjú mörk í öðrum leik íslands og Rúm- eníu en ekki tvö eins og sagt var í blaðinu í gær. ■ LANDSLIÐSNEFND FRÍ hefur valið þijá keppendur tíl að keppa á Evrópumeistaramótinu innanhúss í frjálsum íþróttum, sem fer farm í Glasgow 3.-5. mars. Það eru: Pétur Guðmundssoh, HSK, kúluvarp, Þórdís Gísladóttir, HSK, hástökk og Gunnar Guð- mundsson, FH, sem keppir í 200 og 400 m hlaupi. Þjálfari og farar- stjóri er Erlendur Valdimarsson. ■ EYJÓLFUR Ólalsson, knatt- spymudómari, mun dæma leik Englands og Belgíu í Evrópu- keppni landsliðs kvenna, sem fer fram 7. apríl. ■ GUÐMUNDUR Haraldsson mun dæma landsleik Svía og Jap- ana, sem fer fram 23. maí í Svíþjóð. Línuverðir verða þeir Sveinn Sveinsson og Bragi Berg- mann. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14, FEBRÚAR 1990 SUND Ragnheiður í ellefta sæti á heimslistanum Eðvarð Þór Eðvarðsson er byrjaður að æfa af full- um krafti og nálgast sitt fyrra form RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir, sunddrottning frá Akranesi, er í ellefta sæti á heimslistanum yfir bestan árangur í 100 m bringusundi í 25 m sundiaug. Ragnheiður, sem æfir nú og keppir með háskólanum í Alabama í Bandaríkjunum náði tímanum 1.10,78 mín. á Evrópumeistara- mótinu í desember og kom sá árangur henni á listann. Ragnheiður er í nítjánda sæti á listanum yfir árang- ur í 200 m bringusundi, á tímanum 2.33,39 mín. Listinn spannar yfir árangur á tímabilinu frá júlí 1989 til lok janúar 1990. íslandsmet Ragnheiðar í 100 m bringusundi er 1.10,78 mín., en sá árangur myndi færa Ragnheiði upp í áttunda sæti. íslandsmet hennar í 200 m bringusundi er 2.32,35 mín., en sá tími myndi færa hana upp í þrettánda sæti. Ragnheiður er í stöðugri framför og það kæmi eng- um á óvart þó að hún kæmist inn á heirnslistann í 200 m fjórsundi - næst þegar listinn verður gefinn út. Eðvarð Þór aftur á ferðina Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundkappi frá Njarðvík, er byijaður að æfa á fullum krafti og nálgast óðum sitt gamla form. Eðvarð Þór stefnir nú á að taka þátt í Evrópumeistaramótinu í Róm, sem verður í ágúst. Breyting hefur verið gerð á mótinu, sem verður fram- vegis opið sundmönnum frá öðrum heimsálfum. Eðvarð Þór Eðvarðsson byijaður að æfa á fullu. Eðvarð Þór mun keppa á ipnanhússmeistaramóti íslands, sem verður haldið í Vestmannaeyjum um aðra helgi. Ef hann nær sér vel á skrið í mótinu ætti hann að geta skotist inn á heimslistann - í hóp fimmtán bestu baksúndamanna. Sviss vann A-Þýskaland Svisslendingar, sem leika hér tvo landsleiki - á morgun og föstudag, komu hingað frá Frakk- landi. Þar hafa þeir verið að keppa í móti ásamt Frökkum, Dönum og A-Þjóðveijum. Svisslendingar sá íslenska liðið leika gegn Rúmeníu í gærkvöldi. Svisslendingar unnu A-Þjóð- veija, 26:23, eftir að þeir höfðu tapað, 19:23, fyrir Frökkum. Danir unnu A-Þjóðveija, 31:28, en þeir máttu síðan þola tap gegn Frökk- um, 19:22. HANDBOLTI SKOTSAMBAND ISLANDS „Mikið karp um liðna tíð“ - segir Þorsteinn Ásgeirsson, formaður STÍ, um Skotþingið „ÞAÐ kom berlega fram á þing- inu að það er almenn ánægja með stjórnina. Ég er þó ekki ánægður með þingið sem slíkt því menn voru of mikið að karpa um liðna tíð í stað þess að leggja línurnar fyrir framtíð skotíþróttarinnar," sagði Þor- steinn Ásgeirsson við Morgun- blaðið eftir að hafa verið end- urkjörinn formaður Skotsam- bands íslands með 3/4 hluta atkvæða á ársþingi sambands- ins, sem fram fór í íþróttamið- stöðinni í Laugardal á laugar- daginn. inghald gekk frekar hægt fyrir sig þar sem fundarmenn eyddu of miklum tíma í óþarfa karp og skutu oft yfir markið, í stað þess ■■■■■■ að ná samstöðu og ValurB. vera málefnalegir. Jónatansson Menn skiptust í tvær skrifar fylkingar; fulltrúar Skotfélags Reykjavíkur annars vegar og hagla- byssumenn hins vegar, en þeir voru í miklum meirihluta. Fjölmargar tillögur lágu fyrir þinginu og voru þær flestar frá Skotfélagi Reykjavíkur, en ekki gafst nægur tími til að ræða þær, eða að ná um þær samkomulagi í nefndum og var þeim því flestum vísað til milliþinga- nefndar. Beðið var með mestri eftirvænt- ingu eftir stjómarkjörinu og þá aðallega formannskjörinu þar sem tveir gáfu kost á sér; Þorsteinn Ásgeirsson, formaður STÍ, og Árni Þór Helgason, formaður Skotfélags Reykjavíkur. Það má segja að Þor- steinn hafí skotið SR-menn útaf skífunni í kosningu til formanns. Hann hlaut_ 32 atkvæði gegn 10 atkvæðum Árna Þórs, tveir seðlar voru auðir. Aðrir í stjórn eru; Hann- es Harldsson, sem er gjaldkeri og Eiríkur Bjömsson, sem er ritari og kemur nýr inn í stjórnina í stað Ferdinands Hansen sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Síðasta ár Þorsteins sem formaður STÍ „Ég þakka þeim sem studdu mig til áframhaldandi formennsku," sagði Þorsteinn. „Ég hef þegar ákveðið að þetta verði síðasta ár mitt sem formaður STÍ. Framundan er mikið starf og þá sérstaklega við að virkja félögin til betra sam- starfs. Eins ætlum við að fá hingað erlendan þjálfara og einnig verður reynt á senda keppendur á mót erlendis á þessu ári.“ Fulltrúar Skotfélags Reykjavíkur deildu hart á stjórn STÍ fyrir að mismuna skotgreinum. Töldu að riffil- og skammbyssugreinunum hafi ekki verið gefínn sami gaumur og haglabyssunni síðustu tvö árin. Eins gagnrýndu þeir stjórnina fyrir valið á „skotmanni ársins" síðustu tvö árin og var Carl J. Eiríksson þar fremstur í flokki. Athygli vakti er Carl fór í ræðustól að stjórnar- menn STÍ gengu þá úr fundarsaln- um! „Það var ákveðið 1987 að gera sérstakt átak í uppbyggingu á haglabyssunni og það hefur verið gert. Keppendum hefur fjölgað þar mikið og eins er aðstaðan orðin mjög góð víða. Sambandið styrkti einnig æfíngaaðstöðu sem komið hefur verið upp hjá Skotfélagi Kópavogs í skammbyssu- og riffil- skotfimi, svo það er ekki hægt að segja að þær greinar hafi verið hundsaðar. Varðandi skotmann árs- ins er það alfarið á valdi stjórnar STÍ að velja hann,“ sagði formaður- inn. Reikningar sambandsins fyrirtvö síðustu ár voru lagðir fram til sam- þykktar á þinginu og var lítil um- ræða um þá. Eins var fjárhagsáætl- un þessa árs lögð fram og hljóðaði hún upp á 960 þúsund krónur, eða svipað og síðustu tvö árin. 90 pró- seny tekna Skotsambandsins kom frá ÍSÍ og Lottóinu. Skotmenn til Barcelona 1992 Á þinginu var samþykkt að stjóm STÍ hefji kynningu og uppbyggingu á loftskammbyssugreinum. Þessi grein á að stuðla að aukinni þátt- töku og möguleikum barna og ungl- inga í skotíþróttinni. Einnig var samþykkt að STÍ, í samráíji við Ólympíunefnd íslands, hlutist til um að gefa skotmönnum möguleika á þátttöku í Ólympíuleikunum í Barcebna 1992 og að Ólympíu- nefnd íslands setti tilskilin lágmörk fyrir leikana. -stigs námskció Dagana 2.-4. mars nk. efnir fræðslunefnd íþróttasam- bands fatlaðra til A-stigs fræðslunámskeiðs í íþróttum fyrir fatlaða. Fer námskeiðið fram í íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst kl. 09.00 föstudaginn 2. mars. Tilkynna þarf þátttöku á námskeiðið ti! skrifstofu íþróttasambands fatlaðra, (þróttamiðstöðinni í Laug- ardal, fyrir 23. febrúar. Síminn á skrifstofunni er (91 >-83377. Þar er einnig unnt að fá allar nánari upp- lýsingar um námskeiðið. BLAK Morgunblaðið/Guðmundur Þorsteinsson Best og efnilegust Uppskeru- og árshátíð Blaksambands íslands fór fram um helgina, og voru þar kunngjörð úrslit í kjöri bestu og efnilegastu leikmanna ojg besta dómara. Þau sem hlutu viðurkenningu eru, frá vinstri: Kári Kárason IS, efnilegastur í 1. deild, Oddný Erlendsdóttir UBK, best í 1. deild kvenna, Þorvarður Sigfússon ÍS, bestur í 1. deild karla og Jón Lind Sævarsdóttir, Víkingi, efnilegust í 1. deild kvenna. Fyrir framan er besti dómarinn, Björn Guðbjartsson. Breiðablik deildar- meistari kvenna HK lagði nýkrýnda deildarmeistara úr ÍS en Víkingur jafnaði í næstu 15:6. Þriðja hrinan var eign KA, 11:15. Síðan tóku Víkingsstúlkur til sinna ráðu og unnu næstu tvær, 15:8 og 15:9 en það nægði ekki. HK í úrslitakeppnina í karlaflokki sigraði HK ný- krýnda deildarmeistara úr ÍS í hör- kuleik 3:2. í úrslitakeppni fjögurra liða í karlaflokki leika: ÍS, KA, Þróttur og HK, en í kvennaflokki leika: Breiðablik, Víkingur, KA óg ÍS. BREIÐABLIK varð deildar- meistari kvenna í blaki. Úrslitin réðust um helgina er Víkingur vann KA 3:2. Það dugði Blika- stúlkum til sigur á hagstæðara hrinuhlutfalli en Víkingsstúlkur sem fengu jafnmörg stig. Víkingsstúlkur, sem unnu stöilur sínar úr UBK fyrr í vikunni, geta nagað sig í handarbökin eftir leikinn gegn KA á laugardaginn. Víkingi nægði að vinna, 3:1, til að hljóta deildarmeist- aratitilinn. KA vann fyrstu hrinuna 4:15 Guðmundur Þorsteinsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.