Morgunblaðið - 14.02.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÍÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990
7
Loðnan stendur
undir aflaaukningu
Mestu landað á Seyðisfirði
FISKAFLINN í janúar varð alls um 240.000 tonn, sem er um
36.000 tonnum meira en í fyrra. Mismunurinn liggur nánast allur
í meiri loðnuafla nú. Þorskafli er nokkru minni en í fyrra, en
afli annarra helstu nytjategunda hefur aukizt.
Alls öfluðust nú 21.163 tonn
af þorski en 24.859 í fyrra. Um-
talsverð aukning er á ýsu- og
karfaafla, nokkur aukning varð
ennfremur á ufsaafla og nú veidd-
ust 2.000 tonn af síld en 700 í
fyrra. Loðnuaflinn nú varð
203.000 tonn á móti 168.000 í
fyrra.
Afli togara þennan fyrsta mán-
uð ársins varð um 1.000 tonnum
minni en í fyrra og skiptir þar
mestu að þorskaflinn er nú 2.400
tonnum minni. Um 1.000 tonnum
meirra hefur hins vegar veiðzt af
karfa. Bátaflinn jókst um 36.000
tonn en það samsvarar aukningu
loðnuafla milli mánaðanna og ýsu-
afli jókst verulega eða úr 828 tonn-
um í 1.363. Smábátar juku hlut
sinn lítils háttar og fiskuðu 1.145
tonn alls.
Mestum afla var í janúar landað
á Seyðisfirði og er loðna uppistað-
an eins og á þeim stöðum öðrum.
þar sem miklu hefur verið landað.
Alls bárust þar 36.782 tonn að
landi. í Eyjum var landað 28.950
tonnum, á Eskifirði 27.350 tonn-
um, í Neskaupstað 22.326 og í
Siglufirði 19.478 tonnum. Erlendis
var landað 9.977 tonnum en
24.071 í janúar í fyrra.
Drukknaði í
Eskifjarðará
MAÐURINN, sem drukknaði í
Eskifjarðará á fostudaginn, hét
Ragnar Þorsteinsson.
Ragnar var á 55. aldursári, fædd-
ur 18. ágúst 1935. Hann bjó á
Strandgötu 7b á Eskifirði. Ragnar
lætur eftir sig eiginkonu og þijú
uppkomin börn.
Fundur í bankaráði
Landsbanka síðdegis
EYJÓLFUR K. Siguijónsson, formaður bankaráðs Landsbankans
hefúr boðað fund bankaráðsins kl. 15 í dag, samkvæmt beiðni
meirihluta bankaráðsins, þeirra Friðriks Sophussonar, Kristins
Finnbogasonar og Kristínar Sigurðardóttur.
„Ég fagna þvi að formaður
bankaráðs skuli að þessu sinni
fara að lögum,“ sagði Friðrik í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði að hann vildi að öll
tvímæli yrðu tekin af á fundinum
í dag með hvaða hætti ákvörðun
verður tekin um það hvort greiða
beri Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga vexti af kaupverði á
hlut þess í Samvinnubankanum,
frá 1. september sl. til 31. desem-
ber.
„Ég hef lýst því yfir að ég sé
ekki tilbúinn til að greiða atkvæði
með því að Sambandinu verði
greiddir vextir af kaupverðinu
þennan tíma. Það er í fullu ósam-
ræmi við tilboð bankaráðs Lands-
bankans frá 29. desember sl. Ég
vil bara að það komi fram við
hvað hafi verið átt, þegar af-
greiðsla síðasta fundar fór fram,“
sagði Friðrik.
& Ármúla 29 simar 38640 - 686100
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Armstrong LDFTAPLCTnjR
kORKO PtA«T GÓLFFLÍSAR
^ARKAPLAST EINANGRUN
VIIMKLARÁTRÉ
Öll fjölskyldan
klæðist norsku ullamærfötunum,
venjulegum eða fóðruðum!
Þö svo að Stil ullarnærfötin stingi ekki er komin á
markaðinn ný tegund sem er fóðruð með mjúku Dacron efni.
Fóðrið gerir fötin mýkri og þægilegri fyrir þá sem ekki
þola ullina næst sér af einhverjum ástæðum.
_____________Fjölskyldutilboð________
í tilefni kynningar á nýju fóðruðu ullarnærfötunum bjóðum
vlð hagstætt kynningarverð á fóðruðum nærfötum
i barna- og unglingastærðum.
Skoðaðu verðskrána!
Verðskrá
Stærðir Buxur einf. fóðrað Bollr einf. fóðrað
Herra 2052- 2150- 2122- 2298-
Dömu Barna 1698- 1785- 2122- 2298-
4-6-8 1291- 1394- 1397- 1527-
10-12 1344- 1451- 1503- 1633-
14-16-18 1486 1598- 1609- 1810-
Stuttermabolir á dömur og herra kr. 1857-
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2. Rvík., sími 28855
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjörður: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
Siglufjörður: Rafbær sf., Aðalgötu 34.
Akureyri: Sír hf„ Reynishúsinu Furuvöllum 1.
• Húsavík: Öryggi sf„ Garðarsbraut 18a.
• Neskaupstaður: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Ásvegi 13.
• Höfn í Hornaflröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Rötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðabraut 2a.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.