Morgunblaðið - 14.02.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 14.02.1990, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRUAR 1990 UMROTIÐ I SOVETRIKJUNUM Stefiit að markaðsbúskap og einkaeignarréttur skal leyfður Miðstjórnin fordæmir hugmyndina um al- ræði öreiganna og þröngsýna stéttahugsun Moskvu. Reuter. SOVÉSKI kommúnistaflokk- urinn vill koma á „skipulögð- um markaðsbúskap" þar sem ólikum eignarréttarformum verður gert jafn hátt undir höfði, þar á meðal einkaeign- arrétti á framleiðslutækjum. Kemur þetta fram í samþykkt miðstjórnarinnar frá því í fyrri viku en hún var birt í heild í gær. Segir þar ennfremur, að komið skuli á „lýðræðislegu Flóttamenn frá Káka- sus skapa vandamál Moskvu. Reuter. Tugþúsundir flóttamanna hafa að undanförnu komið til Moskvu frá Kákasuslöndunum Armeníu og Azerbajdzhan vegna þjóðaólg- unnar þar. Margir þeirra kvarta yfir því að þeir þurfí að lifa við sult og seyru og sumir sofa á götunum þar sem þeir fá hvergi húsaskjól. Höftiðborgarbúar eru lítt hrifiiir af flóttamanna- straumnum og óttast að erjur bijótist út á milli Armena og Azera í borginni. „Ég er allslaus núna. Hef enga íbúð, ekkert rúm og fæ hvergi gistingu. Það sem ég á er í tveim- ur pokum og ég á tuttugu rúbl- ur,“ sagði armensk flóttakona, Arúsíja Stepanova. Hún er 69 ára gömul og grét fyrir framan skrán- ingarskrifstofu fyrir flóttamenn í Moskvu, sem ekki hafði veitt henni neina aðstoð. Sovésk stjórnvöld höfðu lofað að hver flóttamaður fengi hundr- að rúblur, um 10.000 ísl. kr., til að kaupa matvæli við komuna til Moskvu og hafa útvegað nokkrum þeirra gistingu í þeim fáu hótel- herbergjum sem völ er á. „Við höfum verið hér í rúma tvo mán- uði og höfum ekki enn fengið neina hjálp frá ríkinu,“ sagði 24 ára armensk kona sem flúið hafði Bakú, höfuðborg Azerbajdzhans, ásamt eiginmanni sínum. Margir Moskvubúar eru andvígir því að ríkið styðji flótta- mennina og blaðafregnir benda til þess að flóttamannastraumur- inn auki andúð Rússa á fólki af öðru þjóðemi. Eitt af dagblöðum höfuðborgarinnar Vetsjernjaja Moskva kvartar yfir því að armen- skir og azerskir flóttamenn hafi hafnað atvinnutilboðum frá öðr- um borgum Sovétríkjanna og kos- ið að búa í Moskvu vegna þess að vöruúrvalið sé þar meira og höfuðborgin hafi meira upp á að bjóða. Talið er að allt að 30.000 Rúss- ar hafi einnig flúið til Moskvu frá Bakú vegna ótta við hefndarað- gerðir eftir að Rauði herinn réðst inn í borgina. Yfírvöld hafa ekki sinnt þeim en Moskvubúar hafa stofnað félag til að koma þeim til hjálpar. forsetavaldi“ og eins og áður heftir komið fram ætlar flokk- urinn að falla frá tilkalli sínu til valdaeinokunar í þjóðfélag- inu. I samþykktinni, sem verður lögð fyrir þing kommúnista- flokksins á sumri komanda, er alræði öreiganna fordæmt og einnig sá siður að nota stéttabar- áttuna sem viðmiðun í samskipt- unum við aðrar þjóðif. „Markmiðið er manneskjuleg- ur, lýðræðislegur sósíalismi" seg- ir í samþykktinni en eftir sem áður er lýst yfir trúnaði við hug- sjónir brautryðjendanna, þeirra Karls Marx, Friedrichs Engels og Vladímírs Leníns. Þá segir, að þróun þjóðfélagsins útiloki ekki, að aðrir stjómmálaflokkar verði stofnaðir. Um efnahagsstefnuna sagði, að stefnt skyldi að „skipulögðum markaðsbúskap" og jafnræði komið á með ýmsum eignarrétt- arformum, þar á meðal einka- eignarrétti á framleiðslutækjum. Voru þessi mál ekki útlistuð nán- ar en þau virðast boða, að horfið verði frá einni helstu kenningu kommúnismans, sem er, að öll framleiðslutæki skuli vera á hendi ríkisins eða opinberra aðila. Áður hefur komið fram, að til stendur að leggja niður stjórn- málaráðið í núverandi mynd og stofna nýtt, sem skipað verði fulltrúum kommúnistaflokka allra Sovétlýðveldanna, og mið- stjórnin samþykkti einnig að koma á „lýðræðislegu forseta- valdi“. Ekki var sagt hvemig forseti yrði kjörinn en ljóst er, að völd hans eiga að aukast veru- lega. Urðu miklar umræður um það fyrirkomulag og kom fram ótti við, að hættulegt gæti verið að afhenda einum manni of mik- il völd. Formlega hefur Míkhaíl Gorbatsjov nú meiri völd en nokkur fyrirrennara hans í sæti Sovétleiðtoga. Samt hafa stuðn- ingsmenn hans í ýmsum fjölmiðl- um rekið áróður fyrir því að völd hans verði enn aukin, einkum framkvæmdavaldið. Boris Jeltsín. Jeltsín segir hættu á blóðugri byltingn St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. BORIS Jeltsín, sovéskur umbótasinni sem gagnrýnt hefur Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtoga, varaði við hættu á blóðugri byltingu í Sovétríkjunum í viðtali við The Sunday Times sl. sunnudag. Jeltsín var eini miðstjómarmað- urinn, sem greiddi atkvæði gegn tillögum Gorbatsjovs þar sem m.a. var kveðið á um afnám valdaein- okunar sovézka kommúnista- flokksins í síðustu viku. Jeltsín sagði, að mikilvægast væri að halda breytingum á valdakerfi Sovétríkjanna innan siðlegra marka eins og í Tékkóslóvakíu, Búlgaríu og Austur-Þýzkalandi. Aðalhættan væri, „af því að við höfum skrýmsli eins og KGB, að breytingamar fylgi fordæminu frá Rúmeníu og út brjótist borgara- styrjöld." Jeltsín segir í viðtalinú, að aft- urhaldsmenn í miðstjórninni hafi ráðizt á Gorbatsjov á fundinum fyrir að sleppa takinu á ríkjunum í Austur-Evrópu. Einn ræðumað- urinn hafí ásakað Gorbatsjov um að fóma varnarbelti Sovétríkj- anna í Evrópu, sem Stalín hafi unnið með því að úthella miklu sovézku blóði í styijöldinni við Hitler. Jeltsín segir þetta vera dæmi um gamlan hugsunarhátt Kreml- veija að líta á fólk sem peð í valda- tafli. Jeltsín sagðist hafa greitt at- kvæði gegn tillögum Gorbatsjov, vegna þess að þær hefðu ekki verið skýrar og þær hefðu ekki heldur verið rétta svarið við ósk- um almennings um breytingar. Hann segir Gorbatsjov ekki hafa náð tökum á vandamálum Sov- étríkjanna, bara frestað þeim. Jeltsín segir einnig, að þessar breytingar komi allt of seint. Al- varlegustu mistök Gorbatsjovs hafí verið að taka tillit til aftur- haldsmannanna. Jeltsín telur Gorbatsjov ofmet- inn á Vesturlöndum. Ákvörðun miðstjórnarinnar hafí verið algert lágmark en marki engin þáttaskil í þróun Sovétríkjanna. Rostropovítsj á æfíngu í Moskvu í gær. Rostropovítsj í Moskvu eftir 16 ára langa útlegð MnL'l/ini Pnlllai* MSTÍSLAV Rostropovítsj, sovéski sellóleikarinn og hljómsveitarstjór- inn heimskunni, sem hefiir verið í útlegð í 16 ár, vitjaði ættlandsins aftur á sunnudag og var þá tekið með kostum og kynjum. Voru mörg hundruð manns samankomin á Sheremetjevo-flugvelli í Moskvu til að fagna honum. A síðustu árum hafa sovésk stjómvöld sýnt vilja til að sættast við Rostropovítsj, sem yfírgaf Sov- étríkin 1974, og í febrúar fyrir ári var tilkynnt, að aðild hans að sov- éska tónskáldafélaginu hefði verið endurvakin. í síðasta mánuði fengu Rostropovítsj-hjónin svo aftur full borgararéttindi og Rostropovítsj var boðið að koma í hljómleikaför til Sovétríkjanna. í viðtali við Interfax, fréttabréf Moskvuútvarpsins, sagði Rostropovítsj, að hann ætlaði að vanda vel til þeirra verka, sem hljóm- sveitin flytti, og vakti sérstaka at- hygli á Pathetique, sjöttu sinfóníu Tsjakovskíjs. „Því verki stjórnaði ég seinast í Moskvu áður en ég fór í útlegð og það má segja, að meb flutningi þess nú sé ég að reyna að brúa þessi 16 ár,“ sagði Rostropovítsj. Fundur utanríkisráðherra NATO og Varsjárbandalagsins í Kanada: Samstaða vex um fyrirkomu- lag sameiningar Þýskalands Sovétmenn halda ekki til streitu kröfunni um hlutleysi Þýskalands Ottawa. Reuter. FUNDUR utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Varsjárbandalagsins í Ottawa í Kanada hefur fyrst og fremst snúist um sameiningu þýsku ríkjanna. Minna hefiir farið fyrir umræðum um fundarefnið sjálft, opnun lofthelgi. Það er mál manna á fundinum að Sovétmenn, Bandaríkjamenn og Vestur-Þjóðverjar hafi nálgast hver annan mjög í afstöðunni til framtíðar Þýskaiands og þar með Evrópu. Fréttaskýrendur segja að í síðustu viku hafí tvö stór ágrein- ingsmál verið leyst. Niðurstaðan sé sú að Þýskaland verði sameinað á næsta ári og samið á þessu ári um mikla fækkun í heijum í Evrópu. „Ennþá á eftir að afgreiða smáat- riðin. Megindrættimir eru ljósir," sagði ónefndur bandarískur emb- ættismaður í gær. Ágreiningurinn stendur einkum um það hvort sameinað Þýskaland verði í NATO eins og vestræn ríki krefjast eða h'lutlaust eins og Sov- étríkin hafa lagt til. Bandaríkja- menn hafa tekið undir hugmynd Hans-Dietrichs Genschers, utanrík- isráðherra Vestur-Þýskalands, um að sameinað Þýskaland verði í NATO en hersveitir þess fari ekki austur yfir Saxelfi sem skilur Aust- ur- og Vestur-Þýskaland að. Sov- étríkin og Austur-Þýskaland hafa þangað til fyrir skemmstu haldið fast í hugmyndir um hlutlaust Þýskaland en um helgina virtist sem Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi færðist nær Vestur-Þjóðveijum í afstöðu sinni. „Hann viðurkenndi þá afstöðu okkar að þýskt hlutleysi kemur ekki til greina," sagði Helm- ut Kohl, kanslari Vestur-Þýska- lands, eftir heimsókn sína til Moskvu. Edúard Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði á blaðamannafundi á mánu- dag í Ottawa að hlutleysi væri „besti kosturinn en ekki sá eini“. Stjórnmálaskýrendur segja að Gorbatsjov geri sér grein fyrir því að aðstaða hans til að hafa áhrif á sameininguna sé ekki sterk. Mark- mið hans hljóti að vera að tryggja öryggishagsmuni Sovétríkjanna sem best hann má. Þar sé sameinað Þýskaland með eigin her utan hern- aðarbandalaga ekki álitlegur kost- ur. Vonist hann til að fá því komið til leiðar að sovéskir hermenn verði á því landsvæði sem nú heitir Aust- ur-Þýskaland um nokkurt skeið eft- ir að sameiningin er farin af stað. Bandaríkjamenn hafa lagt til að nefnd sex ríkja; Bretlands, Frakk- lands, Sovétríkjanna, Banda- ríkjanna og þýsku ríkjanna tveggja, fyalli um öryggismál og önnur vandamál sem tengjast sameiningu. Heimildarmenn Reuters-fréttastof- unnar segja að James Baker, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, hafí reifað þessa hugmynd fyrir hálfum mánuði. Síðan hafi hann rætt hana við Gorbatsjov og She- vardnadze í Moskvu í síðustu viku. ■ MOSKVA - , Míkhaíl Gorb- atsjov Sovétforseti nýtur vinsælda hjá 43% Sovétmanna samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í viku- ritinu Ogonjok í gær. Einungis 22% landsmanna bera fyllsta traust til kommúnistaflokksins samkvæmt könnuninni. Könnun þessi var gerð í ágúst síðastliðnum en ekki var frá því greint hvers vegna nú fyrst er sagt frá úrslitum. Spurt var hver væri fremsti leiðtogi landsins og hlaut Gorbatsjov þá einkunn hjá 43% aðspurðra. Ekki var getið um vinsældir annarra leiðtoga landsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.