Morgunblaðið - 14.02.1990, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990
AFGASRULUIB
fyrir bílaverkstæði
Olíufélagið hf
681100
áeiti tíflíethíkei&u,!
BLÓMAFRJÓKORN
EGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 685300
eðaheflar
samstæður
Níðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stilfanlegar stærðir.
Hentarnánast
allsstaðar.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitift upplýsinga
UMBOÐS- OG HEILDVERSL UN
BlLDSHÖFÐA 16 SÍMt 6724 44
Morgunblaðið/Araór.
Davíð Oddsson borgarstjóri tók þátt í sveitakeppni Bridshátíðar
og spilar hér við Jón Steinar Gunnlaugsson lögmann.
Morgunblaðið/Arnór.
Tveir kunnir bridsspilarar af landsbyggðinni, Magnús Aðalbjörns-
son og Þórir Leifsson ræða spilin.
Bridshátíð lokið:
Flugleiðir unnu Flugleiðamótið
SVEIT Flugleiða vann Flug-
leiðamótið á Bridshátíð með
yfirburðum á mánudagskvöld.
Sveitin leiddi mótið frá annari
umferð og vann alla leiki sína
nema einn. Flugleiðasveitina
skipa Aðalsteinn Jörgensen,
Jón Baldursson, Matthías Þor-
valdsson, Ragnar Hermanns-
son, Ragnar Magnússon og
Rúnar Magnússon.
Sveit Flugleiða endaði með 197
stig. í öðru sæti varð sveit Mike
Polowan með 181 stig, en auk
hans spiluðu Bjöm Fallenius,
Lynn Deas og Lars Blakset. I
þriðja sæti varð sveit Icelandair-
Sveden með sænsku Evrópumeist-
arana Hans Göthe, Tommy Gull-
berg, Anders Morath og Magnus
Lindkvist innanborðs. Þeir enduðu
með 179 stig.
Spilaðar voru 10 umferðir eftir
monrad-kerfi, 10 spila leikir. ís-
lenskar sveitir skipuðu efstu sætin
lengst af, en erlendu sveitimar
fóra svo að sækja í sig veðrið
undir lokin. Þegar tveimur um-
ferðum var ólokið var Modem
Iceland í 2. sæti, 7 stigum fyrir
neðan Flugleiði og Svíamir vora
komnir í 3. sætið.
En í næst síðustu umferð voru
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
Sveit Flugleiða. Frá vinstri eru Björn Theódórsson framkvæmdastjóri Iijá Flugleiðum, Aðalsteinn
Jörgensen, Jón Baldursson, Ragnar Magnússon, Matthías Þorvaldsson, Rúnar Magnússon og Ragn-
ar Hermannsson.
úrslitin nánast ráðin, þegar Flug-
leiðir unnu sinn leik stórt meðan
næstu sveitir töpuðu báðar. Flug-
leiðir höfðu þá 14 stiga forskot á
næstu sveit fyrir síðustu umferð,
og sveitin tryggði sér sigurinn
með því að fá 20 stig í síðustu
umferð. Sveitin tapaði aðeins ein-
um leik í mótinu, fyrir Polowan.
Þetta er í annað skipti sem
íslensk sveit vinnur Flugleiðamót-
ið, og i fyrsta skipti síðan mótið
var opnað. Sveit Karls Sigurhjart-
arsonar vann mótið þegar það var
fyrst haldið árið 1982, en þá var
sérstaklega boðið til þess sex
sveitum, þar af þremur erlendum.
Þrjátíu og níu sveitir tóku þátt
í Flugleiðamótinu að þessu sinni.
Óvenju skamman tíma tók að raða
saman sveitum í hverja umferð,
og var það að þakka sérstöku
tölvuforriti sem VKS & Tölvuþró-
un hafa útbúið fyrir Monrad-mót.
Þetta forrit hefur áður verið notað
í skákmótum en var endurhannað
með Flugleiðamótið í huga.
Röð efstu sveitanna á mótinu
varð annars þessi:
1. Flugleiðir 197
2. Polowan 182
3. Icelandair-Sweden 179
4. Modern Iceland 173
5. Sigmundur Stefánsson 170
6. Tryggingamiðstöðin hf. 167
7. Verðbréfam. ísl.banka 166
7. Hulda Hjálmarsdóttir 166
9. Magnús Torfason 165
9. BM Vallá 165
Ester Hermanns-
dóttír — Kveðjuorð
Fædd 23. mars 1928
Dáin 26. janúar 1990
Með örfáum orðum langar mig
að minnast Esterar Hermannsdótt-
ur, sem andaðist í Reykjavík 26.
janúar sl.
Móðir mín, Ester Eggertsdóttir,
og Ester Hermannsdóttir kynntust
fyrst þegar Eggert afi minn varð
héraðslæknir í Borgamesi fyrir hart
nær hálfri öld. Þá flutti hann með
fjölskyldu sína í sama hús í Borgar-
nesi og Sigríður Jónsdóttir bjó í með
böm sín tvö, Jón og Ester. Þau kynni
urðu ævilöng.
Þegar ég man fyrst eftir Ester
bjuggu þau systkinin ásamt Sigríði
móður sinni í litlu húsi við Egilsgötu
í Borgamesi og þar varð undirrituð
fljótlega heimagangur. Eitt af því
fyrsta, sem ég man eftir úr bemsku,
era heimsóknimar á sunnudögum á
Egilsgötuna til Siggu, Esterar og
Nonna. Þær heimsóknir urðu síðan
daglegar þegar ekki þurfti lengur
aðstoðar afa við að komast leiðar
sinnar. Það var ekki undarlegt þó
að ég og frændsystkini mín, sem oft
dvöldu í Borgamesi á sumrin, sækt-
um fast að fara í heimsóknir til
t
Faðir okkar,
EIRÍKUR LOFTSSON,
lést í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 2. febrúar sl.
Bálförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þórdfs Eiríksdóttir,
Loftur Atli Eiríksson.
t
Minningarathöfn um eiginmann minn, son, föður, tengdaföður
og bróður,
GUÐJÓN INGVA GÍSLASON,
sem lést af slysförum 17. nóvember sl., fer fram frá Akranes-
kirkju föstudaginn 16. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minn-
ast hans er bent á Siysavarnafélag íslands.
Valdís Guðnadóttir,
Ingileif Guðjónsdóttir,
Inga Lilja Guðjónsdóttir, Einar Maríasson,
Guðný Guðjónsdóttir,
Gísli Pált Guðjónsson,
Oddur Gislason, Egill S. Gfslason.
Nýtt
INNHVERF ÍHUGUN er huglæg þroskaaðferð, sem
allir geta Iært. Iðkun hennar vinnur gegn streitu og
stuðlar að heilbrigði og ánægju í daglegu lífi.
Nýtt námskeið hefst með kynningarfyrirlestri á
morgun, fimmtudag kl. 20.30, á Laugavegi 18a (4.
hæð).
Aðgangur ókeypis. Upplýsingar í síma 16662.
íslenska íhugunarfélagið.
Maharishi Mafacsh Yogi
Esterar því ekki skorti athyglina,
sem böm fengu á heimilinu. Ester
var víðlesin ekki síður en Jón bróðir
hennar þó að skólaganga yrði ekki
löng og hún gaf sér löngum tíma
til að hlusta og útskýra hina ýmsu
hluti. Þær urðu einnig margar
bílferðirnar um Borgames og ná-
grenni þar sem saga staðarins var
sögð og ömefni tíunduð.
Þeim sem Ester varð samferða á
lífsleiðinni reyndist hún með afbrigð-
um vel, bæði vinum og vandamönn-
um. Að leiðarlokum þakka ég henni
samfylgdina fyrir mína hönd og
móður minnar og sendi okkar inni-
legustu kveðjur til Nonna og ann-
arra aðstandenda.
Gunnvör Karlsdóttir
t
Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
Útför,
GUNNLAUGS H. GUÐMUNDSSONAR,
Helgamagrastræti 23,
Akureyri,
áður bónda á Hrappsstöðum,
Bárðardal.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og hjúkrunarfólki Krist-
nesspítala fyrir góða umönnun í langvarandi veikindum hans.
Helga Guðvarðardóttir,
Guðmundur Vföir Gunnlaugsson, Margrét Þorsteinsdóttir,
Sigrfður St. Gunnlaugsdóttir, Pétur Oddsson,
Sverrir Gunnlaugsson, Gunnhildur Frfmann,
Guðvarður Már Gunnlaugsson, Þóra Hjartardóttir
og barnabörn.