Morgunblaðið - 14.02.1990, Side 36
86
MPRfiUNftLAÐIÐ. MIÐyiKUDAGUR 14, f^BRpAR 1990
fclk í
fréttum
VOPNAHLE
Konungleg hjónabands-
rækt á Mauritius
Frá því var greint fyrir nokkru,
að Sylvía, hin austurríska
drottning Svía, hefði tekið bónda
sinn í sátt eftir uppgjör í kjölfar
orðróms um meint kvennafar hans
hvenær sem færi gæfist, síðast á
íslandi er hann skrapp hingað til
lands til hreindýraveiða í haust
að sögn danska blaðsins BT. Þau
fóru til Mauritius í 10 daga til
að rækta hjónabandið og að sögn
var ferðin vel heppnuð og Svía-
kóngur hagaði sér vel. Myndimar
em teknar á Mauritius og ber
ekki á öðm en að allt hafí gengið
að óskum hvað svo sem síðar verð-
ur.
BORGARAFLOKKURINN
ALMENNUR
STJORNMALAFUNDUR
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Mikið Qölmenni var þegar almenningi var boðið að koma og þiggja
kaffiveitingar i nýja húsnæðinu.
VESTMANNAEYJAR
A
Vígsluhóf í Asgarði
Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyj-
um, vígðu fyrir nokkru nýtt fé
lagsheimili. Húsinu var í vígsluhófi
gefið nafnið Asgarður.
Sjálfstæðisfélögin í Eyjum festu
í upphafi vetrar kaup á hluta hús-
eignarinnar Heimagötu 35-37, af
Knattspymufélaginu Tý. Húsnæðið
er á fjórða hundrað fermetra, jarð-
hæð og kjallari. Undanfarnar vikur
hefur verið unnið við að mála og
snyrta húsið auk þess sem innan-
stokksmunir hafa verið keyptir.
Formleg vígsla hússins fór fram
laugardaginn 3. febrúar. Opið hús
var um miðjan daginn þar sem
Vestmannaeyingum var boðið að
skoða húsið og þiggja kaffiveitingar
sem sjálfstæðiskonur buðu upp á.
Fjöldi fólks leit inn og skoðaði hina
glæsilegu aðstöðu.
Á laugardagskvöld var síðan
vígsluhátíð. Hátíðin hófst með borð-
haldi en síðan tóku við ávörp, og
ýmis létt skemmtiatriði. Ólafur Elís-
son, formaður Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna, rakti aðdragand-
ann að húsakaupunum og þá vinnu
sem unnin hefur verið á síðustu
vikum en sagði síðan húsið form-
lega tekið í notkun. Unnur Tómas-
dóttir, sem sæti á í hússtjórn sjálf-
stæðisfélaganna, gaf síðan húsinu
nafn. Hún sagði að leitað hefði ver-
ið eftir hugmyndum að nafni hjá
þeim gestum er komið hefðu í heim-
sókn um daginn og eitt nafn hefði
greinilega fallið fólki best í geð,
nafnið Ásgarður. Hún sagði að
nafnið væri sótt í goðafræðina, það
væri fallegt og reisn yfir því sem
væri vel við hæfi á þessu næst
stærsta félagsheimili sjálfstæðis-
manna á landinu.
Halldór Blöndal, alþingismaður,
var heiðursgestur á vígsluhátíðinni.
Flutti hann ávarp og sló á létta
strengi. Árni Johnsen var veislu-
stjóri og stjómaði fjöldasöng fram
eftir nóttu.
Á vígsluhátíðinni afhenti Magnús
Jónasson málverk eftir Bjarna Ólaf
Magnússon að gjöf frá nokkrum
sjálfstæðismönnum, og á það að
prýða nýja húsnæðið.
Sjálfstæðisfélögin hafa nú opnað
skrifstofu í nýja húsnæðinu og verð-
ur hún opin fýrst um sinn fyrir
hádegi alla virka daga.
Grímur
i ]
Frá borðhaldi vígsluhátíðar, talið frá vinstri: Arni Johnsen, Halldóra
Filippusdóttir, Halldór Blöndal alþingismaður, heiðursgestur kvölds-
ins, Stella Skaftadóttir og Ólafur Elísson formaður Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna.
Þingflokkur Borgaraflokksins heldur fund í Danshöllinni Þórskaffi fimmtu-
daginn 15. febrúar og ræðir m.a.:
- Kjarasamninga
- Stjórnmálaástandið
- Þingstörf
- Fiskveiðistefnu
- Sveitarstjórnamál
- Skattamál
- Umhverfismál
og margt fleira.
Formaður Borgaraflokksins flytur framsögu-
ræðu og í kjölfarið verða opnar umræður þar
sem þingflokksmenn sitja fyrir svörum.
Öllum er heimil þátttaka.
Húsið opnað klukkan 20.00 og hefst fundur-
inn stundvíslega klukkan 20.30.
Alllr velkomnir.
Þlngfíokkur Borgarafíokksins.
COSPER
COSPER £„p.l° Uiz.^ - ~
Stefnumót okkar er orðið öðruvísi en fyrst.