Morgunblaðið - 14.02.1990, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990
ntmmn
I 9/39
„Ef ég borga alla þessa skatta verð ég orðinn skatt-
fijáls vegna hallareksturs."
.að hjálpa henni á hak.
TM ReQ. U.S. P*t Off.—all riQhu
--------- . . _ wSyf
° 1990 Lo* Angeles Twne* Syndicat*
'N
126
Ég get ekki séð neitt að
tungunni...
HÖGNI HREKKVtSI
Svikull gróði
Til Velvakanda.
Sala áfengis á sl. ári jókst um
fjórðung. Þetta er því miður sorgleg
staðreynd. Bjórinn veldurþar mestu
og unglingamir hafa hann fyrir
stökkbretti upp í annað sterkara.
Eins og sáð er svo er upp skorið.
Hollvinir Bakkusar á Alþingi, sem
komu þessari veitu inn í landið,
geta nú fagnað áfanga (því ekki
hætta þeir við svo búið). Nú sjá
þeir árangur erfiðisins: Bjórstofur
alls staðar fullar af fólki frá morgni
fram á nótt og biðraðir fyrir dyrum
úti. Þarna er gróðinn. En heilsa og
hreysti tapar. Það er sorglegt
hversu þeir sem síst skyldi ota fólk-
inu niður hjarnið. Okkur sem viljum
hér betra þjóðfélag virðist ganga
miður. Ég hefi oft hugsað um það
hversu margt myndi batna í þjóð-
félagi okkar ef við fyiktum okkur
um konung krossins, sjálfan Jesú
Krist og kirkja hans væri betur
sótt en hof Bakkusar. En gróðaöfl-
in hefðu kannski ekki eins mikið
upp úr því?
Árni Helgason
Fallegt lag
Til Velvakanda.
Við höfðum eitt af fallegustu lög-
um sem íslenskt tónskáld hefur
búið til í höndum okkar en við ís-
lendingar tókum ekki eftir því, eða
að minnsta kosti mjög fáir. Jú,
níunda dómnefndin taldi það vera
besta lagið: Til þín eftir Gunnar
Þórðarsson, sungið af Björgvini
Halldórssyni. Þetta lag hefði hrifið
hlustendur um alla Evrópu eða náð
að komast í eitt af fyrstu fimm
sætunum í Eurovision söngva-
keppninni að mínu mati.
Við völdum Eitt lag enn, sem er
að vissu leyti ágætt lag. Söngur
og bros Sigríðar Beinteinsdóttur og
reyndar þeirra beggja á eftir að
bjarga því en sviðsframkoma er líka
áríðandi og tel ég þau vera mjög
góð á sviðinu.
En það skiptir kannski ekki máli
að vinna einhveija söngvakeppni
en ég vil þakka Gunnari Þórðarsyni
fyrir að mega njóta þess að hlusta
á þetta fallega lag hans um ókomna
framtíð. Hann á vissulega hrós ski-
lið og einnig Björgvin Halldórsson
sem syngur lagið.
Thea
HEILRÆÐI
„Hmfur og skæri -
ekki barnameðfæri“
Yíkveiji skrifar
Það kemur oft fyrir, að vinsam-
legir lesendur senda blaða-
mönnum úrklippur úr erlendum
blöðum, þeim til fróðleiks eða í
því skyni að sagt verði frá efninu.
Kunna blaðamenn yfirleitt vel að
meta slíkt, þótt þeir nýti efnið
auðvitað með misjöfnum hætti.
Lykilatriði er, þegar slíkt efni er
sent, að skilmerkilega komi fram
hvar og hvenær það birtist. Fólk
áttar sig oft ekki á nauðsyn þess
að skrifa dagsetningu og heiti
blaðs eða tímarits á úrklippu.
Víkverji telur sér ekki fært að
nota aðsent efni af þessu tagi,
nema þessar grunnupplýsingar
liggi fyrir.
lega að verki staðið fyrir skatt-
peningana hans.
fylgjast með því að farið væri að
þess eigin lögum. . .“
Með þessa vinnureglu í huga
varð Víkveiji því undrandi þegar
honum barst í síðara hluta janúar
umslag frá utanríkisráðuneytinu
með ljósriti af úrklippu úr erlendu
blaði og korti með áletruninni:
Með kveðju frá utanríkisráðuneyt-
inu. Úrklippan bar hvorki með sér
úr hvaða blaði hún var né hvaða
dag umrætt tölublað þess var gef-
ið út. Fyrir vikið lagði Víkverji
þessa úrklippu til hliðar og hugs-
aði að ,ekki, yæri þarna fagmann-
Víkverji getur sér þess til, að
einhverjir vilji vita, hvað það
var sem sjálft utanríkisráðuneytið
sendi frá sér með þessum klaufa-
lega hætti. Um var að ræða grein
í bresku eða bandarísku blaði um
að Fríverslunarbandalag Evrópu
(EFTA) og Evrópubandalagið
(EB) hefðu komið sér saman um
að efla efnahagsleg tengsl sín.
Strikað hafði verið við þrjár
setningar í greininni. í fyrsta lagi
þessa í íslenskri þýðingu: „Jón
Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra íslands — sem er núna
formaður EFTA-ráðsins — sagði
að hann væri „ákaflega ánægður"
með niðurstöðu fundarins í gær“
í öðru lagi þessa: „Mr. Hannibals-
son kallaði Comecon [efnahags-
bandalag kommúnistaríkjannaj
„leifar liðins tíma“ og sagði að
atburðirnir í Mið- og Austur-
Evrópu sönnuðu, að þessi ríki
væru „að brjótast út úr þessum
samtökum“.“ Og í þriðja lagi:
„Mr. Hannibalsson sagði að hvort
ban^alag myndi halda áfram að
Þeir sem fylgjast með viðræð-
um EFTA og EB geta giskað
á að þetta hafi birst í hinu erlenda
blaði 20. desember eða þar um
bil og þarna sé verið að segja frá
sameiginlegum ráðherrafundi EB
og EFTA sem var í Brussel 19.
desember, ef Víkverji man rétt.
Umslagið frá utanríkisráðuneyt-
inu með þessari margræddu úr-
klippu er hins vegar póststimplað
18. janúar 1990, eða tæpum mán-
uði eftir að hið erlenda blað birti
fréttina, sem þar er kennd við
fréttastofuna Associated Press, og
allt sem í henni stóð hafði þegar
komið fram í íslenskum fjölmiðlum
en um áramótin lét Jón Baldvin
af formennsku í EFTA-ráðinu.
Víkverji telur, að það hafi ekki
aðeins verið klauflega að frágangi
úrklippunnar staðið af hálfu ut-
anríkisráðuneytisins heldur hafi
beinlínis verið út í hött hjá ráðu-
neytinu að senda svona gamla
frétt frá sér með þessum sérkenni-
lega hætti. Vill upplýsingadeild
ráð\,ineytipji>^ upplýsa málið?