Morgunblaðið - 14.02.1990, Page 44

Morgunblaðið - 14.02.1990, Page 44
Kringlan 5 Sími 692500 sjóvápPalmennar MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRUAR 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Niðurskurðaráformríkisstjórnariiinar: Endanleg niðurstaða nálægt einum milljarði RÍKISSTJÓRNIN fjallaði á fundi sínum í gær um með hvaða hætti mögulegt verður að skera niður ríkisútgjöld á þessu ári, og er liklegt, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að ákveðinn verði nálega eins miHjarðs króna niðurskurður. Mestur verður niðurskurðurinn þjá samgönguráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, menntamálaráðuneyti og íjármálaráðuneyti. Samtals verða þessi ráðuneyti að skera útgjöld sín niður um nánast hálfan milljarð króna. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að samgönguráðuneytið muni þurfa að skera niður hjá sér um 130 milljónir króna, sem er mun lægri upphæð en upphaflegar tillögur 01- afs Ragnars Grímssonar fjármála- ráðherra gerðu ráð fyrir. Þá mun landbúnaðarráðuneytið þurfa að skera niður um 33 milljónir króna, félagsmálaráðuneytið þarf að skerða framlag til byggingarsjóða um 100 milljónir króna, menntamálaráðu- neytið var beðið um að skera niður hjá sér um 200 milljónir króna, en líklegra er að niðurstaðan þar verði um 122 milljónir króna. Þá hefur Bílum fækkaði um tæp 3.300 á síðasta ári BÍLUM íslendinga fækkaði uni 3.289 á síðasta ári, að sögn Karls Ragnars framkvæmda- stjóra Bifreiðaskoðunar ís- lands hf. Ekki liggja enn fyrir nákvæmar upplýsingar um heildarfjölda bíla í landinu í árslok, en Karl sagði töluna ekki vera fjarri 142 þúsund- um. Allt árið í fyrra voru afskráð- ir 10.767 bílar. Nýskráðir voru á sama tíma 7.478 bílar. Skipting nýskráðra bíla var þannig, að 6.241 voru nýir fólksbílar, 472 voru notaðir fólksbflar. Sendibflar, rútur og vörubílar voru nýir 472 og not- aðir 293. Eigendaskipti notaðra bíla skráð hjá Bifreiðaskoðun voru alls 57.094 á síðasta ári og bílar skoðaðir aðalskoðun voru 77.671. Um 14 þúsund bílar skiluðu sér ekki í aðalskoðun og sagði Karl Ragnars það stafa öðrum þræði af því, að þeim hefði verið hent og eig- endur trassað að tilkynna þá ónýta. fjármálaráðherra sjálfur fallist á að útgjöld ráðuneytis hans verði 90 milljónum króna lægri en gert var ráð fyrir. Orku- og iðnaðarráðuneyt- ið mun skera niður hjá sér um 30 milljónir króna og þá er ákveðinn sparnaður fyrirhugaður í heilbrigðis- og dómsmálaráðuneytinu. Niðurskurðaráform ríkisstjórnar- innar verða kynnt þingflokkum ríkis- stjórnarinnar í dag. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra seg- ist telja að samstaða hafi tekist á ríkisstjómarfundinum í gær um nið- urskurðartillögumar, en hann muni ekki fjalla um þær opinberlega fyrr en þingflokkar ríkisstjórnarflokk- anna hafi fjallað um þær. Steingrímur J. Sigfússon, sam- gönguráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann liti þannig á, að þessu máli væri ekki lokið, fyrr en þingflokkar stjómar- innar hefðu fjallað um það og tekið afstöðu til þeirra tillagna sem verða kynntar þeim í dag. Morgunblaðið/Einar Falur Brunað í brekku Frost í háloft- um bendir til ózóneyðingar SAMKVÆMT háloftaathugunum, sem Veðurstofan lætur gera á Keflavíkurflugvelli, mældist 10.-28. janúar óvenju mikið frost yfir landinu í 20-27 km hæð, eða 78-85,8 gráður. Að sögn Borgþórs H. Jónssonar veðurfræðings er talið að eitt af skilyrðum i lofthjúp jarðar til að ózón eyðist sé að frostið fari niður fyrir 78 gráður. Hann sagði miklar líkur til þess að gat hafi verið á ózónlaginu yfir íslandi þessa daga. Borgþór sagði að frostið félli nið- ur fyrir 78 gráður, þegar ózón eyð- ist í háloftunum vegna sambanda klórflúorkolefnasambanda. Fyrir rúmu ári mældist gat í ózónlaginu yfir Norðurlöndum og þá jókst frost- ið í háloftunum yfir Osló í um 23 km hæð og fór nokkuð niður fyrir 80 gráður. Nokkru síðar kom óz- ónríkt loft í háloftunum frá Kanada og Alaska og fyllti upp í skarðið. „Eg hugsa að svipað hafi verið að gerast hjá okkur. Frostið hefur minnkað um nær 50 gráður síðan 29. janúar sem er mikil upphitun á ekki lengri tíma. Ég held að í þetta skipti höfum við fengið ósónríkt loft einhvers staðar að, en við höfum ekki fylgst nógu vel með þessu. Það er þess virði að ózonlagið sé athugað gaumgæfilega og reglulega, því það gæti veríð lífsnauðsynlegt,“ sagði Borgþór. Formaður Lyfjafræðingafélagsins um nýja reglugerð: Ríkíð hækkar lyfjakostnað sjúklinga um 30 af hundraði Heilbrigðisráðherra segir að verð breytist ekki á meirihluta algengustu lyfja FORMAÐUR Lyfjafræðingafélagsins segir að með nýrri reglugerð um greiðslur almannatrygginga í lyfjakostnaði sé ríkið að hækka lyfja- kostnað sjúklinga um 30%. Heilbrigðisráðherra segir að samkvæmt reglugerðinni breytist ekki verð á meirihluta algengustu lyfja og reglu- gerðin muni enn fremur leiða til notkunar á ódýrari lyfjum. Umrædd reglugerð tekur gildi á morgun, 15. febrúar. Samkvæmt henni hækkar fastagjald fyrir lyf úr 550 krónum í 750 krónur eða um Borgin greiðir 385 millj. í virðisaukaskatt ÚTGJÖLD Reykjavíkurborgar vegna virðisaukaskatts verða samtals 385 miiyónir króna á þessu ári. Við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun borgarinnar var ekki gert ráð fyrir skattinum, sem leggst á mun fleiri liði en söluskatturinn gerði, heldur tekið fram að reynt yrði að meta áhrif hans á milli umræðna, þar sem áhrifin væru enn ójjós. „Þetta er stærsta breytingin á fjárhagsáætlun borgarinnar,“ sagði Davíð Oddsson borgarstjóri, en áætl- unin kemur til síðari umræðu á fundi borgarstjórnar á morgun. Borgar- stjóri sagði, að nýgerðir kjarasamn- ingar auðvelduðu borginni að nokkru leyti að mæta þessum mikla skatti, á því væri enginn vafi þó svo ágóði þeirra eyddist og vel það. „Útsvarstekjur minnka miðað við það sem gert var ráð fyrir með ný- gerðum kjarasamningum og Iækk- uðu kaupi manna," sagði Davíð. „Það mun verða veruleg raunlækkun á rafmagns-. og hitaveitu til borg- arbúa á þessu ári og er það tilraun borgarinnar til að koma inn í þessa samninga og mæta fólki þar. Þau eru náttúrlega afar sérkennileg ummæli utanríkisráðherra í Morgun- blaðinu, þar sem hann er að beina því til sveitarfélaga að lækka útsvör sín af þessu tilefni en ríkið er ný- búið að hækka tekjuskattinn þó svo Alþýðuflokkurinn hafi lofað allt öðr- um hlutum. Hann ætti að líta í eigin barm.“ 36%. Gjald fyrir öryrkja og ellilífeyr- isþega hækkar úr 170 krónum í 230 krónum. Með reglugerðinni fylgir hins vegar listi yfir rúmlega 70 lyfja- tegundir í um 140 pakkningum sem kosta sjúklinga áfram 550 krónur og 170 krónur. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir for- maður Lyfjafræðingafélagsins sagði við Morgunblaðið, að stjórnvöld segðust með þessu vera að beina notkun yfir á ódýrari lyf og fá lækna til að skrifa upp á minni skammta í hvert skipti. „En sá galli er á gjöf Njarðar, að það er aðeins um 5% af skráðum lylj'um á þessum iista, svo það segir sig sjálft að í mörgum tilfellum er útilokað að nota þau. Að auki virðist hafa verið valið á listann af handahófi því ein 9 lyf á honum eru greidd að fullu af sjúkra- samlögum. Þau eiga því ekkert er- indi á listann,“ sagði Guðbjörg. ■ Guðmundur Bjarnason heilbrigð- isráðherra sagði við Morgunblaðið að þetta væru allt aðrar upplýsingar en hann hefði um málið. Þvert á móti væru á þessum lista yfír „bestu- kaupalyf" verulegur hluti algeng- ustu lyfja. Sumirteldu að um 70-80% þeirra væru á listanum, en sennilega væri þar rúmlega helmingur. Á þess- um forsendum hefði verið farið af stað með málið og hann hefði ekki ástæðu til að efast um þær. Guðbjörg sagði, að ýmislegt fleira væri athugavert við lyfjalistann. Þar væru til dæmis aðeins stærri pakkn- ingar af ýmsum sýklalyfjum, sem fengjust í fleiri pakkningastærðum. í sumum tilfellum gætu 50 töflur á ákveðnu lyfi kostað 550 krónur meðan 30 töflur kostuðu 750 krón- ur, og það stangaðist á við þann yfirlýsta tilgang af fá lækna til að ávísa minna magni af þessum lyfj- um. Guðmundur Bjarnason sagðist verða að játa að hann væri ekki fagmaður í lyfjamálum, en þessi listi hefði verið unninn af fagmönnum, aðallega Ingólfi Petersen, lyfjafræð- ingi ráðuneytisins og Guðmundi Sig- urðssyni, heilsugæslulækni á Seltj- arnarnesi. „Eg hlýt að treysta því að þetta sé gert eins og réttlátast er. En slíkar ábendingar og athuga- semdir mun ég að sjálfsögðu taka til meðferðar og bendi á að þessi lyfjalisti er ekki endanlegur og auð- velt að breyta honum með auglýs- ingu,“ sagði Guðmundur. „Þegar farið er ofan í saumana á þessu, virðist tilgangurinn vera sá einn að slá ryki í augun á fólki og drága athyglina frá því, að verið er að hækka þessa opinberu þjónustu. Þama er verið að hækka hlut sjúkl- inga um 30% og spara ríkinu um 100 milljónir króna á sama tíma og gerðir er kjarsamningar þar sem helsta forsendan er að gjald fyrir opinbera þjónustu hækki ekki,“ sagði Guðbjörg Edda Eggertsdóttir. Selurinn kvið- klippir aflann „ÞAÐ ER mikið um sel, sem kviðklippir fiskinn og lyá mér hefúr hann eyðilagt 10-15% af aflanum. Selnum fer fjölg- andi og ástandið er verst með þorskanetin, því það hefúr komið fyrir að nær hver fisk- ur í þeim er klipptur," sagði Gunnar Jóhannsson, sjómað- ur á Siglufirði. Gunnar gerir út 6 tonna bát, Jökul II. „Eg hef verið á rauð- maga frá því í byijun janúar þegar gefið hefur á sjó, en það hefur ekki verið nema fjórum sinnum,“ sagði hann. „Það er greinilegt að selnum íjölgar allt- af, enda er nú hætt að nýta hann. Hann sækir því mikið í netin, þar sem hann getur í ró og næði étið úr þeim. Stundum er hann við borðstokkinn þegar verið er að draga netin og þorsk- urinn kemur stundum spriklandi inn yfir borðstokkinn, þó búið sé að klippa á kviðinn á honum, svo nýskeð er það.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.