Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
Umhverfis-
ráðherrar
Norðurlanda
mótmæla
Dounreay
Umhverfisráðherrar Norður-
landanna ætla sameiginlega að
aflienda fulltrúum bresku rikis-
stjórnarinnar formleg mótmæli
gegn hinni íyrirhuguðu vinnslu-
stöð fyrir kjarnorkuúrgang í Do-
unreay í Skotlandi á blaðamanna-
fundi á Norðursjávarráðstefiiunni
í Haag í Hollandi, en ráðsteftian
er í dag og á morgun.
í fréttatilkynningu frá umhverfis-
ráðuneytinu segir að umhverfísráð-
herra, Júlíus Sólnes, muni leggja
fram yfirlýsingu fyrir hönd íslensku
ríkisstjórnarinnar á fundinum, varð-
andi mengun sjávar.
í yfirlýsingunni kemur meðal ann-
ars fram að Islendingar hafi áhyggj-
ur af mengun Norðursjávar, þar sem
hún berist til íslands með hafstraum-
um 4-6 árum eftir að hennar verður
vart í Norðursjó. Þá er í yfirlýsing-
unni sagt frá þriggja ára fram-
kvæmdaáætlun ríkisstjómarinnar,
sem lúti að umfangsmikium mæling-
um á sjávarmengun við Island.
Bretadrottning
sér íslenska
listasýningu
Björgunarsveitarmenn og lögregla ýta bíl á Arnarneshæö milli Kópavogs og Garðabæjar í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Sverrir
Þreifandi bylur á Suðurlandi
Þreifandi bylur var á sunnan-
verðu landinu í gærkvöldi. Atti
lögregla víða annríkt við að að-
stoða ökumenn sem höfðu fest
bíla sína.
Á höfuðborgarsvæðinu var færð
víða erfið, einkum á svæðum sem
liggja hátt. í Kópavogi voru flestar
götur ófærar. Arnameshæð var
ófær, aðallega vegna þess að bílar
á sumardekkjum stóðu þar fastir
og tepptu umferð, og greip lög-
regla til þess ráðs að flytja þá bíla
út fyrir veg.
Heilisheiði var ófær og mjög
blint í Þrengslum. I Skaftafellssýsl-
um var einnig blindbylur. Rútur frá
Austurleið, á suður og austurleið,
em veðurtepptar í Skaftártungum.
Skólabörn úr nærsveitum Kirkju-
bæjarklausturs komust ekki heim
til sín í gær.
Vegna samsláttar í raflínum á
Landeyjasandi var ekkert rafmagn
frá landi í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi og rafmagn frá vararaf-
stöðvum skammtað þar.
Á Suðumesjum átti lögregla víða
annríkt vegna ófærðar, og á Akra-
nesi voru mörg gatnamót ófær
vegna þess að bílar stóðu þar fastir.
Veður var byrjað að versna um
norðanvert landið undir miðnættið.
ELÍSABET II Bretadrottning
heimsækir í kvöld íslenska lista-
sýningu í Barbican-listamiðstöð-
inni í London.
Á sýningunni em 76 íslensk verk
frá árunum 1909-1989 og nefnist
hún Landslag frá norðlægri breidd-
argráðu (Landscapes from a High
Latitude). Hér er um farandsýningu
að ræða sem áður hefur verið í Hull
og Grimsby. Frú Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands, opnaði sýning-
una í Londorr mánudaginn 26. febrú-
ar.
Nokkru áður en Ólafur Egilsson
lét af störfum sendiherra íslands í
London fyrr í vetur færði hann Breta-
drottningu veglegt kynningarrit á
ensku um íslenska myndlist sem
gefið var út í tengslum við sýning-
una. I framhaldi af því lýsti Elísabet
II yfir áhuga á að sjá sýninguna.
Engar athugasemdir gerð-
ar við skelfiskveiðar bátsins
- segir útgerðarmaður Guðmundar B. Þorlákssonar sem fórst í Jökulfjörðum á sunnudag
„ÞESSI bátur hefur áður verið notaður til skelfiskveiða, og honum
var ekki breytt svo heitið geti frá árinu 1988 og þá undir eftirliti
Siglingamálastofiiunar,“ sagði Arnar G. Hinriksson útgerðarmaður
Guðmundar B. Þorlákssonar sem sökk á Jökulfjörðum um helgina.
í Morgunblaðinu í gær er hafl, eftir Magnúsi Jóhannessyni siglinga-
málastjóra að bátnum hafi verið breytt úr rækjuveiðibáti í skelfisk-
veiðibát eftir skoðun á honum í september síðastliðnum, án vitundar
Siglingamálastofnunar. Sjópróf í málinu hófúst á ísafirði í gær.
„Þegar við keyptum bátinn í ur var upp gálgi í staðinn fyrir
ágúst 1988 hafði hann áður verið tromluna. Þessar breytingar var
Svart á hvítu
gjaldþrota
BÓKAÚTGÁFAN Svart á hvítu
hefúr verið tekin til gjaldþrota-
skipta hjá skiptaráðandanum í
Reykjavík.
Urskurðurinn var kveðinn upp í
lok síðustu viku. Bústjóri hefur ver-
ið skipaður Halldór Þ. Birgisson hdl.
á skelfisk- og línuveiðum. Skömmu
seinna varð hann fyrir sjóskaða, og
þá var honum breytt á þann hátt
að spil sem verið hafði miðskips var
flutt aftur á skut, og sett var upp
veiðarfæratromla fyrir snurvoð og
rækjutroll, og fóru þær breytingar
fram í fullu samráði við Siglinga-
mála.stofnun,“ sagði Amar. „Eftir
þetta var báturinn stöðugleikapróf-
aður, og hélt svo á rækju- og snur-
voðarveiðar. Um vorið var hann svo
á ný útbúinn til skelveiða, þ.e. sett-
starfsmanni Siglingamálastofnunar
á ísafirði fullkomlega kunnugt um,
hann gerði við þær sínar athuga-
semdir sem tekið var tillit til. Hon-
um var einnig gerð grein fyrir
þyngd hvers hlutar sem fór um
borð vegna veiðanna, og hefur
stofnunin aldrei gert athugasemd
við skelfiskveiðar þessa báts eftir
það.“ Snemma sumars sagði Arnar
að aftur hefði verið skipt á gálgan-
um og tromlunni, og haldið á snur-
voðarveiðar. „Þannig var báturinn
Siðanefiid Læknafélags Islands:
Fjórír læknar áininntir vegna
brota á siðareglum og lögum
SIÐANEFND Læknafélags íslands kvað upp þijá úrskurði þann
10. nóvember síðastliðinn og fjölluðu þeir allir um samskipti lækna
á Isafirði. Úrskurðirnir eru birtir í nýjasta hefti Læknablaðsins
og kemur þar fram að Siðanefhdin kvað upp sérstakan úrskurð,
þar sem allir fjórir læknamir eru áminntir vegna brota á siðaregl-
um lækna og lögum um lækna, vegna þess að þeir höfðu allir
sent nefndinni gögn um sjúklinga og, að ástæðulausu, gættu ekki
nafhleyndar gagnvart sjúklingunum.
Tveir úrskurða nefndarinnar
varða kærur læknanna hvers í
garð annars fyrir vinnubrögð og
fyrir ummæli á opinberum vett-
vangi. Þeir sem í hlut áttu voru
áminntir um að halda siðareglur
lækna, svonefndan Codex Ethic-
us.
Læknamir íjórir sendu nefnd-
inni gögn, máli sínu til stuðnings.
Þar voru sjúkraskýrslur frá hér-
aðslækni og fyrirmælablöð
sjúkrahússlækna varðandi með-
ferð sjúklinga. í þessum gögnum
var nöfnum sjúklinganna ekki
leynt.
í Læknablaðinu er birt úrskurð-
arorð Siðanefndarinnar um brot
læknanna gagnvart nafnleynd
sjúklinganna og er það á þessa
leið: „Siðanefnd LÍ telur Bergþóru
Sigurðardóttur, héraðslækni, Geir
Guðmundsson, heilsugæslulækni,
Kristin Benediktsson, yfirlækni,
og Þóri Kolbeinsson, heilsugæslu-
lækni, hafa með afhendingu
gagna til nefndarinnar brotið 9.
gr. I. kafla og 3. gr. II. kafla
Codex Ethicus, svo og læknalög
nr. 53/1988 1. mgr. 15. gr. sbr.
5. mgr. sömu greinar.
Siðanefnd áminnir læknana
Bergþóru Sigurðardóttur, Geir
Guðmundsson, Kristin Benedikts-
son og Þóri Kolbeinsson um að
halda ofangreind og önnur ákvæði
Codex Ethicus."
þegar hann var skoðaður í septem-
ber, en ekki á rækjuveiðum, líkt og
haft er eftir siglingamálastjóra. I
lok september var skelveiðibúnaðin-
um aftur komið fyrir um borð, og
skelveiðar stundaðar um mánað-
artíma, er skipt var yfir í rækjuveið-
ar og gálginn notaður við þær. í
desember var síðan ákveðið að snúa
á ný til skelfiskveiða, og þann 4.
janúar, en ekki þann 9. febrúar eins
og siglingamálastjóri segir, var
haldið í fyrsta skelróðurinn," sagði
Arnar.
í Morgunblaðinu í gær og við
sjóprófin kom fram, að skipstjóri
bátsins hafði áður lent í erfiðleikum
þegar verið var að hífa skelplóginn
um borð. Arnar sagði, að sér hafi
aldrei borist upplýsingar um að
hætta hafí stafað af veiðum á þess-
um bát.
Sjálfvirkur sleppibúnaður björg-
unarbáts virkaði ekki í slysinu, og
kvaðst Amar ekki kunna neinar
skýringar á því. „Mér leikur for-
vitni á' að vita hvers vegna svo
mikilvægt öryggistæki kemst í
gegnum skoðun og bregst svo á
úrslitastundu," sagði hann.
ASÍ krefet flárnáms
í eignum Stálvíkur
ALÞÝÐUSAMBAND fslands
hefúr krafist fjárnáms í eignum
Stálvíkur hf. vegna vangoldinna
launa til um 60 starfsmanna,
sem eiga inni um tveggja mán-
aða laun hver frá janúar og
febrúar á síðasta ári.
Höfuðstóll skuldar Stálvíkur við
mennina er um 5 milljónir króna,
og telur Lára V. Júlíusdóttir fram-
kvæmdastjóri og lögfræðingur
ASÍ að með áföllnum vöxtum og
öðrum kostnaði sé skuldin nú kom-
in í 8-10 milljónir. Fáist ekki pen-
ingar með fjárnámskröfu verður
krafist gjaldþrotaskipta, til að
tryggja mönnunum launin, annað-
hvort úr búinu eða samkvæmt lög-
um um ríkisábyrgð á laun við
gjaldþrot fyrirtækja.
í nóvember síðastliðnum var
Stálvík hf. dæmd til að greiða
launin til starfsmannanna, en ekk-
ert hefur verið greitt ennþá, að
sögn Láru.
Hún segir óvíst hvenær menn-
irnir fái launin greidd. „Þetta er
allt í gangi og á réttu róli, en það
tekur sinn tíma,“ segir Lára V.
Júlíusdóttir.
Operan Dido
og Aeneas
í Langholts-
kirlgu í kvöld
ÓPERA Henrys Purcells,
Dido og Aeneas, sem frum-
flytja átti í Langholtskirkju
í gærkvöldi en varð að fresta
vegna illviðrisins, verður
sýnd í Langholtskirkju í
kvöld klukkan 21.
Eins og fram hefur komið
er það Islenska hljómsveitin
undir stjóm Guðmundar Emils-
sonar sem ásamt kammerkóm-
um Hljómeyki auk sjö ein-
söngvara og sex dansara sem
flytur óperuna. Leikstjóri er
Sigurður Pálsson.