Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
7
Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor við brautskráningu kandídatá:
Leita þarf fleiri leiða til að afla nýrrar
þekkingar og færni fyrir atvinnulífið
I RÆÐU sinni við brautskráningu kandídata frá Háskóla íslands
síðastliðinn laugardag sagði Sigmundur Guðbjarnason háskólarekt-
or, að leita yrði fleiri leiða til að afla nýrrar þekkingar og færni
fyrir íslenskt atvinnulíf. Hann sagði að ein leið væri sú að kandídat
gerði náms- og starfssamning við ákveðið fyrirtæki á þá lund að
kandídatinn færi utan til náms og starfsþjálfúnar hjá erlendu fyrir-
tæki, þar sem hann fengi þá þekkingu og þjálfun sem íslenska fyrir-
tækið leitaði eftir, en að því loknu væri kandídatinn skuldbundinn
til að starfa hjá því fyrirtæki í ákveðinn áraQölda.
Sigmundur sagði að önnur leið
væri að skapa fleiri nýsköpunar-
hreiður þar sem kandídatar fengju
tækifæri til að vinna að nýjum hug-
myndum í þeim tilgangi að stofna
ný fyrirtæki eða þróa nýjan at-
vinnurekstur. í slíkum rannsókna-
og tæknigarði væri unnt að láta
efnilegum kandídat í té húsnæði
og aðstöðu, til dæmis til þriggja ára
án endurgjalds, og gæfist honum
tækifæri til að sannprófa hugmynd-
ir sínar, aðferðir eða afurðir. Ef
hugmyndin væri góð og lífvænleg
færi þessi nýgræðingur úr nýsköp-
unarhreiðrinu og reyndi að spjara
sig með öðrum hætti.
Sigmundur gat þess að Efna-
hagsbandalagið leggði nú mikla
Borgarráð:
Lóðum út-
hlutað við
Borgar-
spítalann
BORGARRÁÐ hefur samþykkt,
úthlutun á tveimur lóðum við
Sléttuveg á svæði vestan Borg-
arspítalans til Oryrkjabandalags
Islands og Samtaka aldraða
ásamt Ármannsfelli hf.
Öryrkjabandalag ísiands fær út-
hlutað byggingarrétti fyrir dagvist-
un og þjálfunarstöð auk fjölbýlis-
húss fyrir um 20 íbúðir. Lóðin eru
um 18.000 fermetrar að stærð við
Sléttuveg á byggingarreit I. Gert
er ráð fyrir að byggt verði á lóðinni
í tveimur áföngum.
Úthlutun til Samtaka aldraðra
og Ármannsfells hf. nær til um 50
íbúða fyrir aldraða í fjölbýlishúsi á
um 12.500 fermetra lóð við Sléttu-
veg á byggingarreit II.
Borgarráð:
Nýr veit-
ingastaður í
Kringlunni
BORGARRÁÐ hefúr samþykkt
umsókn Tómasar A. Tómassonar
veitingamanns, um leyfí til að
innrétta nýjan veitinga og
skemmtistað í kjallara Kringlun-
ar 4. Samþykkt borgarráðs bygg-
ir á Qölgun bílastæða úr 264 í
308 í kjallara Kringlunar 6, þar
sem fyrirhugað var að setja upp
prentsmiðju.
í umsókn Tómasar kemur fram,
að húsnæðið er samtals 700 fer-
metrar og hyggst hann reka þar
veitinga og skemmtistað, eftir kl.
19 á kvöldin með fullu vínveitinga-
leyfi. Staðurinn er hugsaður sem
matsölu- og dansstáður og verður
opið til kl. 03 um helgar.
áherslu á að koma á samstarfi milli
háskóla og fyrirtækja um þjálfun
sem tengist nýjungum og notkun
nýrrar tækni, en bandalagið kannar
hvar þörf er þjálfunar og leitar leiða
til úrbóta. Unnið er að þessu verk-
efni samkvæmt svonefndri Co-
mett-áætlun, sem EFTA-löndum
hefur verið veitt aðild að, en áætlun-
inni er ætlað að koma á samstarfi
milli háskóla og atvinnulífs um
frumþjálfun og símenntun á tækni-
eða hátæknisviðum. Tekið er mið
af hinni hröðu tækniþróun sem nú
á sér stað og þörfum atvinnulífsins
fyrir upplýsingar um nýjustu tækni
og hvernig henni verði beitt í þágu
hagvaxtar.
Áætlunin skiptist í ýmsa þætti
og snýr einn þátturinn einkum að
nemendum og kandídötum. Nem-
endum á kandídatsstigi verður
veittur stuðningur til starfsþjálfun-
ar hjá iðnfyrirtækjum í öðrum lönd-
um, og er þjálfunartíminn 3-12
mánuðir. Þá er nýútskrifuðum
kandídötum veittur stuðningur til
samsvarandi þjálfunar, og getur
hún minnst varað 6 mánuði en
messt allt að tveimur árum. Einnig
er starfsmönnum háskóla gert kleift
að starfa í iðnfyrirtækjum í 2-12
mánuði, og starfsfólki fyrirtækja á
sama hátt gert kleift að koma til
starfa við háskóla.
Sigmundur sagði tækifæri skap-
ast með þessum hætti, sem Islend-
ingar ættu að gefa gaum að og
nýta sér, en áætlun þessi væri ein
af mörgum slíkum sem spretta upp
af vaxandi áhuga á einingu Evrópu
og auknum samskiptum á sviðum
mennta og menningar, vísinda og
viðskipta. Hann sagði að Háskóli
íslands myndi einnig taka þátt í
þessari áætlun, og væri nú leitað
eftir þáttöku úr íslensku atvinn-
ulífi, en Þorsteinn Helgason próf-
essor stjórnaði þessu verkefni fyrir
hönd Háskólans.
Tryggðuþér
lægra verð með
Veröld til Mallorka
í sumarleyfinu og
pjakkaafslátt
að auki
Nú eru 6 brottfarir til Mallorka uppseldar í sumar og aðsóknin einstak-
lega mikil til þessarar fegurstu strandar Mallorka, Alcudia. Hér býður
Veröld glæsilega nýja gististaði á frábæru verði og þú getur notið hins
besta í sumarleyfmu fyrir mun lægra verð en í fyrra.
Mallorka
þann 22. maí á Sea Club, glæsilegu nýju hóteli
á Alcudiaströndinni, kostar nú aðeins
kr 159.900,-
fyrir Qölskylduna í 2 vikur.
Verð p. mann kr. 39.975,-
Costa del Sol
þann 14. júní á Benal Beach í íbúð með einu
svefnherbergi fyrir 4 manna Qölskyldu
kostar nú aðeins
kr. ^^3^200^
í 2 vikur fyrir íjölskylduna.
2 í stúdíói, 2 i. júní í 2 vikur
kr.53^800^
PASKAFERÐIR
Benidorm 10. apríl - uppselt • Costa del Sol 10. apríl - uppselt • Suður-Ameríka 6. apríl - 8 sæti laus
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK, SÍMI: (91) 622011 & 622200.