Morgunblaðið - 07.03.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
21
Reuter
Komið íleitirrmr
Lögregluþjónn í Istanbul heldur á 17. aldar málverki eftir hollenska málarann Gabriel Metsu. Málverk-
ið heitir Kona les bréf og var því rænt árið 1986 á írlandi og er nú loks komið í leitirnar. Fimm menn
hafa verið handteknir í Istanbul grunaðir um aðild að þjófnaðinum.
Frakkland:
Perrier-vatn
selt að nýju
París. Reuter.
SALA á franska ölkelduvatninu
Perrier hefst á ný í verslunum
í Frakklandi í dag eftir mikla
hreinsun á lindum vatnsins.
Vatnið var afturkallað úr versl-
unum víða um heim fyrir um mán-
uði eftir að efni sem veldur
krabbameini hafði fundist í því.
Það verður sett á markað á ný
í Belgíu, Sviss og Lúxemborg í lok
vikunnar og í öðrum löndum fyrir
miðjan apríl.
„Perrier býður neytendum að
leita að nýju merki, sem tryggir
að vatnið hefur verið skoðað sér-
staklega í alþjóðlegum rannsókn-
arstofum," segir í auglýsingu frá
fyrirtækinu.
„Nýtt lið sérfræðinga, sem beit-
ir háþróaðri tækni, hefur kannað
hreinleika ' vatnsins og eftirlitið
hefur verið aukið á öllum stigum
framleiðslunnar," segir þar enn-
fremur.
Auglýsingaherferð fyrirtækis-
ins þykir hafa tekist fádæma vel.
BÚLGARÍUVIKA
4.-9. mars
í Blómasal
Hótels Loftleiða
Skemmtiatriði og
sérstakur 4ra rétta
búlgarskur matseðill
Borðapantanir í
síma 22321
Eþíópía:
Fyrirheitum Mengistus um
efiiahagsumbætur fagnað
Skæruliðar í Erítreu haftia boði hans um samstarf
Addis Ababa. Reuter.
NOKKUR hundruð þúsund við umbæturnar, sem Mengistu
Eþíópíumanna, einkum náms- Haile Miriam, forseti Eþíópíu,
menn, gengu um götur Addis boðaði í fyrradag. Mengistu lof-
Ababa í gær til að sýna stuðning aði þá víðtækum efnahagsumbót-
Bretland:
Brúin yfir Forth-
Qörð aldargömul
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Á sunnudag voru 100 ár liðin frá því járnbrautarbrúin yfir Forth-
fjörð var tekin í notkun. Hún er glæsilegasta tækniafrek Viktoríu-
tímans á Bretlandseyjum.
Brúin var sjö ár í byggingu og var
á þeim tíma stærsta mannvirki í
veröldinni, sem eingöngu var byggt
úr stáli. Tveir verkfræðingar hönn-
uðu brúna, Sir John Fowler og Benj-
amin Baker. Þeir höfnuðu að byggja
brúna úr járni, eins og Eiffeltuminn,
sem verið var að byggja á sama tíma.
Brúin er tæplega tveggja og hálfs
kílómetra löng og ekkert er á henni
til skrauts heldur gegna allir hlutar
hennar tilteknu hlutverki. í brúna
fóru 54 þúsund tonn af stáli og 6
og hálf milljón stálbolta. Brúin á að
standast 50 punda vindþrýsting á
hvert þverfet, en nú þykir nægilegt
að brýr standist 30 punda þrýsting.
Þegar flest var, unnu 5 þúsund
manns við brúarbygginguna, 57
þeirra létu lífið og 500 slösuðust.
Það kostaði þijár og háifa milljón
sterlingspunda að byggja hana. Allt
það fé kom frá járnbrautarfélögum,
sem þá voru einkafyrirtæki.
Þótt svo kunni að virðast, að brú-
in haggist hvergi, þá er hún um ein-
um metra lengri á hlýju júnísíðdegi,
en á köldu vetrarkvöldi. Brúarend-
arnir hvíla á hjólum og hreyfast til.
Sömuleiðis sígur hún tæpa 20 senti-
metra undan hverri þeirra 200 lesta,
sem fara yfir hana á hveijum degi.
En vindurinn getur ekki sveigt hana,
svo mælanlegt sé.
Brúin hefur verið rauðmáluð frá
upphafi og málningin er enn unnin
í sömu verksmiðjunni og fyrir öld.
28 málarar eru í fastri vinnu við að
mála brúna og það tekur þá sex ár
að fara eina umferð.
Upphaflega stálið er að megninu
til enn í brúnni, en þó hefur verið
skipt um fáeina hluta, sem neðstir
standa við sjávarmál. Yfirmaður brú-
arinnar hjá Brezka járnbrautarfélag-
inu segir, að hún sé eins vel á sig
komin nú og fyrir einni öld og virð-
ist þess vegna geta staðið til eilífð-
arnóns.
um og bauð stjórnarandstæðing-
um að ganga í flokk hans en
skæruliðar í Erítreu í norður-
hluta landsins höfnuðu tilboðinu
i gær.
Mengistu, sem hefur farið með
völdin í landinu í þrettán ár, hét í
ræði? sem hann flutti á mánudag
að stefnt yrði að blönduðu hag-
kerfi. Einkafyrirtæki yrðu leyfð,
reglur um ljárfestingar erlendra
aðila í landinu gerðar frjálslegri og
bændum heimilað að yrkja eigin
jarðir í stað ríkisjarða.
Mengistu boðaði einnig að marx-
istaflokki hans yrði breitt þannig
að sem flest stjórnmálaöfl gætu
tekið þátt í störfum hans. Flokkur-
inn yrði ekki lengur kenndur við
verkalýð heldur lýðræðislega sam-
einingu. „Félagar flokksins þurfa
ekki endilega að aðhyllast neina
sérstaka hugmyndafræði,“ sagði
Mengistu í ræðunni.
Forsetinn sagði að umbæturnar
væru í samræmi við „aðstæðurnar
í landinu og breytingar á alþjóða-
vettvangi". Stjórnarerindrekar í
Addis Ababa sögðust túlka ræðuna
þannig að í henni fælist mikilvæg
viðurkenning á því að marxista-
stjórninni hefði orðið á mistök og
þörf væri á breytingum. Hins vegar
sögðu þeir fátt benda til þess að
Mengistu stefndi að fjölflokkakerfi
líkt og Austur-Evrópuríkin.
Mengistu hvatti meðal annars
skæruliðahreyfingar í norðurhéruð-
um landsins, Erítreu og Tigray, til
að ganga í flokkinn en Erítreumenn
höfnuðu tilboðinu í gær. Talið er
víst að Tigray-menn geri hið sama.
Helsta ástæðan fyrir stefnu-
breytingu Mengistus er sögð sú að
efnahagur landsins sé í rúst vegna
óstjómar. Hungursneyð er yfirvof-
andi í landinu vegna þurrka og
stríðsins í norðurhéruðum landsins.
Þá hafa Sovétríkin og Austur-
Evrópuríki dregið mjög úr stuðningi
sinum við Marxistastjórn Mengist-
Norsku Stil ullamærfötín
Þeim
verður ekki
kalt aUan
daginn.
Dæml um verð:
Stærð
4-6-8
10-12
Buxur
elnf. fóðr.'
1291- 1394-
1344- 1451-
Bollr
elnf. fóðr.'
1397- 1527-
1503- 1633-
* fóðruð með mjúku Dacron efni.
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855
fmf\ rtrnmriS'Tv
m o
Seljum í dag og næstu daga nokkur
lítiÚega útlitsgölluð GRAM tæki 3ja
með góðum afslætti. áraábyrgð
GOÐIR SKILMALAR
TRAUST ÞJÓNUSTA
/FQniX
HÁTÚNI 6R REYKJAVÍK SÍMI (91)-24420
Sálfræðistöðin
Námskeið
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir i árekstrum
► Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
■ Innritun og nánari upplýsingar
í símum Sálfræðistöðvarinnar: í V/SA
62 30 75 og 21110 Id. 11-12.