Morgunblaðið - 07.03.1990, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
Heilsugæslustöðin:
Guðmundur Sig-
valdason ráðinn
framkvæmdastj óri
GUÐMUNDUR Sigvaldason hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri, en hann kemur til starfa í
júní næstkomandi.
Guðmundur hefur verið sveitar-
stjóri á Skagaströnd síðustu ár.
Hann er fæddur árið 1954 og hefur
lokið BS-prófi í landafræði frá Há-
skóla íslands, auk þess sem hann
Tónlistar-
skólinn:
Tvennir tón-
leikar í vikimni
NEMENDUR á neðri náms-
stigum Tónlistarskólans á Ak-
ureyri koma fram á tvennum
tónleikum í vikunni.
Fyrri tónleikamir eru i kvöld,
miðvikudagskvöld, og hefjast
þeir kl. 20. á sal skólans. Tónleik-
amir em á vegum strengjadeild-
ar skólans.
Síðari tónleikarnir verða á
laugardaginn, einnig á sal tón-
listarskólans og hefjast þeir kl.
16. Á tónleikunum munu ungir
píanónemendur spreyta sig á tón-
leikapallinum. Aðgangur er
ókeypis og em allir velkomnir.
hefur lokið prófí í uppeldisfræðum
og kennsluréttindum.
Ragnar Steinbergsson hefur
gegnt starfi framkvæmdastjóra
Heilsugæslustöðvarinnar um árabil
með starfí sínu sem forstjóri Sjúkra-
samlags Akureyrar, en þar hefur
einungis verið um hálft starf að
ræða. Helgi Bergs formaður stjómar
Heilsugæslustöðvarinnar sagði að í
kjölfar breytingar á lögum um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
hefði staðan verið gerð að heilli.
Útgjöld til snjómoksturs eru aukin vegna mikillar snjókomu í vetur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar samþykkt:
Gjaldskrárhækkíinir í sam-
ræmi við verðlagsforsendur
- sagði Sigfus Jónsson bæjarstjóri við síðari umræðu um flárhagsáætlunina
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjar-
sjóðs Akureyrar og haftiarsjóðs,
hita-, raf- og vatnsveitu var sam-
þykkt á fúndi bæjarstjórnar Ak-
ureyrar í gær. Áætlaðar sameig-
inlegar telyur bæjarsjóðs af út-
svörum, aðstöðu- og fasteigna-
gjöldum eru um 1.255 milljónir
króna. Rekstrargjöld eru áætluð
tæplega 900 milljónir og rekstr-
araflcoma bæjarsjóðs er því 355
Tannlæknastofa til sölu
meó öllum tækjum, handverkfærum, lager af borum,
demöntum, ásamt stórri Bauer loftpressu, Ritterunit,
Airotor, Can-Can stóll og Philips röntgentæki.
Verö kr. 100.000.
Kúrt Sonnenfeld, tannlæknir,
sími 96-2350Ó milli kl. 1 8 og 20.
Forstöðumaður
Húsnæðisskrifstofan á Akureyri auglýsir laust til
umsóknar starf forstöðumanns. Starfið fellst í
yfirstjórn skrifstofu og samræmingu þeirrar
starfsemi sem þar fer fram. Forstöðumaður ber
ábyrgð á fjármálum, starfsmannahaldi, áætlana-
gerð og öðrum þáttum í rekstri gagnvart rekstr-
arnefnd. Leitað er eftir umsækjanda, sem hefur
reynslu og þekkingu á stjórnun á skipulagningu.
Forstöðumaður hefur réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna. Starfskjör eru miðuð við sam-
bærileg störf hjá Akureyrarbæ. Húsnæðisskrif-
stofan á Akureyri er sameignastofnun Akureyrar-
bæjar, Húsnæðisstofnunar ríkisins og stjórn
Verkamannabústaða á Akureyri.
Skrifstofan mun sinna verkefnum á sviði hús-
næðismála, sem eigendurnir fela henni að ann-
ast fyrir sína hönd. Starfið veitist frá 1. maí nk.
eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um starfið veita hagsýslustjóri Akur-
eyrarbæjar og starfsmannastjóri Akureyrarbæjar
í síma 96-21000.
Umsóknarfrestur er til 11. mars nk.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannadeild
Akureyrarbæjar.
Rekstrarnefnd húsnæðisskrifstofu á Akureyri.
milljónir króna án vaxta. Að við-
bættri annarri fjáröflun, eins og
nýrra langtímalána upp á 115
milljónir, afborgana af verðbréf-
um í eigu bæjarsjóðs, gjaldfærðra
og eignfærðra Qárfestinga hefur
bæjarsjóður til ráðstöfunar 648
milljónir króna. Helstu breyting-
ar sem orðið hafa á fjárhagsáætl-
uninni frá fyrri umræðu, sem var
í lok janúar eru breyttar forsend-
ur vegna nýrra kjarasamninga,
þá er einnig búið að skipta upp
framkvæmdafé bæjarins og einn-
ig hefur verið að fúllu gengið frá
ýmsum styrkjum til félagasam-
taka.
í ræðu Sigfúsar Jónssonar bæjar-
stjóra kom fram að frá fyrri um-
ræðu hafi forsendur breyst vegna
nýrra kjarasamninga, tekjur af út-
svörum lækki sem nemur breyttum
forsendum um hækkun launa milli
ára, en tekjur bæjarsjóðs af að-
stöðu- og fasteignagjöldum haldast
óbreyttar. Hins vegar sé lagt til að
óráðstöfuðum tekjuafgangi vatns-
veitunnar upp á um 18 milljónir
króna verði varið til að veita bæj-
arbúum afslátt af fasteignagjöldum
íbúðarhúsa og mun hann nema
8,5%. Þá sagði Sigfús að bæjar-
stjóm muni halda gjaldskrárhækk-
unum innan þeirra marka sem verð-
lagsforsendur segi til um og miðað
sé við í forsendum fjárhagsáætlun-
ar.
Hvað varðar ráðstöfun þeirra 648
milljóna króna sem bæjarsjóður hef-
ur á árinu, er áætlað að fjárfest
verði í langtímakröfum fyrir 40
milljónir króna, en þar er um að
ræða skuldbreytingar t.d. í gegnum
Atvinnutryggingasjóð. Þá er áætlað
að gjaldfærðar fjárfestingar verði
225 milljónir og eignfærðar fjárfest-
ingar 227 milljónir. Gert er ráð fyr-
ir 150 milljónum vegna afborgana
langtímaskulda. Sigfús sagði í ræðu
sinni að hækkun á hreinu veltufé
bæjarins yrði því tæpar 6 milljónir
króna.
Langtímalán að upphæð
115 milljónir króna
Áætlað er að taka ný langtímalán
á árinu að upphæð 115 milljónir
króna, en afborganir langtímalána
verða 150 milljónir, þar af greiðir
ríkissjóður 30 milljónir vegna láns
sem tekið var fyrir FSA á síðasta
ári. Sigfús sagði að því mætti segja
að hreyfmgar langtímalána væru
jákvæðar að upphæð 5 milijónir.
Því til viðbótar væri gert ráð fyrir
að skammtímaskuldir verði 5,8
milljónum króna lægri í árslok en
var í ársbyijun, þar sem skamm-
tímalán um næstu áramót væru
áætl'uð 43,5 milljónir króna, en voru
50 milljónir um síðustu áramót. Þá
gat Sigfús þess að nú væri i fyrsta
sinn tekið tilíit til áfallinna verðbóta
og gengismunar á langtímaskuld-
um, sem ekki koma til greiðslu á
árinu, að upphæð 72,5 milljóna.
227 miHjónum varið til
nýbygginga á árinu
Til framkvæmda verður varið 227
milljónum króna á þessu ári og hef-
ur þeirri upphæð verið skipt á milli
verkefna. Framlag bæjarins til
Fjórðungssjúkrahússins verður var-
ið 14,5 milljónum króna. Ráðgert
er að byggja tvær lausar kennslu-
stofur við Síðuskóla og verður 10
milljónum króna varið til þess.
Framlag til Verkmenntaskólans
verður 67,2 milljónir króna. í bygg-
ingu er ný dagvist við Þverholt og
til að ljúka byggingunni og til kaupa
á búnaði verða 19,5 milljónir króna
lagðar í það verk. Til hönnunar
nýbygginga, m.a. við Amtsbókasafn
og vegna slökkvistöðvar auk breyt-
inga og viðbyggingar við Geislagötu
9, ráðhúsið, er áætlað að verja 17
milljónum króna. Þá er gert ráð
fyrir að samningar takist við Flug-
málastjórn um byggingu sameigin-
legrar slökkvistöðvar á flugvelli, en
hlutur Akureyrarbæjar í því mann-
virki gæti orðið 50-60%. Lagt er til
að 6 milljónum króna verði varið til
byrjunarframkvæmda við slökkvi-
stöð. Alls verður varið 14,5 til
íþróttamannvirkja og hefur íþróttar-
áð lagt til að því verði skipt þannig:
4 milljónum verði varið til lyftu-
kaupa í Hlíðarfjalli, 6 milljónum til
áframhaldandi framkvæmda við
íþróttahöll og vegna hönnunar lóðar
og framkvæmda við Sundlaug Ak-
ureyrar verði varið 4,5 milljónum.
Vegna gjaldþrots verktaka seink-
aði verki við sundlaug við Glerár-
skóla og fór hluti þess yfír á þetta
ár. Kostnaðaráætlun við að ljúka
framkvæmdum og kaupum á stofn-
búnaði er 6 milljónir króna. Þá verð-
ur 10,5 milljónum króna varið til
dvalarheimila og 32,7 milljónum
vegna þjónustukjama við íbúðir
aldraðra við Víðilund. Loks er gert
ráð fyrir 17,2 milljónum króna til
vélakaupa og 12 milljónum til kaupa
á fasteignum.
Framkvæmdir haftiar við
Ráðhústorg í sumar
Þá má nefna að gert er ráð fyrir
að 1,1 milljón króna vegna nýs tjald-
svæðis og 1 milljón króna vegna
nýrrar félagsmiðstöðvar við Síðu-
skóla, en þar hefur ekki áður verið
starfrækt félagsmiðstöð. Þá verður
einnig ráðist í meiriháttar fram-
kvæmdir á fráveitukerfí bæjarins á
árinu og verður 20 milljónum króna
varið til þess verkefnis, auk fram-
kvæmda við lögn við Glerá. Á
síðasta ári var 42 milljónum króna
varið til gatnagerðar, en verður nú
90 milljónir, þar af verður 20 millj-
ónum varið til framkvæmda við
Ráðhústorg.
Vegna félagslegra íbúða verður
16,5 milljónum varið til Verka-
mannabústaða vegna úthlutunar
fyrir síðasta ár og 9,2 milljónum
vegna úthlutunar þessa árs. Til
leiguíbúða vegna úthlutunar síðasta
árs er varið 8,2 milljónum og 3,7
vegna úthlutunar þessa árs. Þá
verður 1,5 milljónum króna varið
vegna úthlutunar félagslegra kaup-
leiguíbúða fyrir árið 1988 og sömu
upphæð vegna úthlutunar á þessu
ári.
Snjómokstur áætlaður
16,8 milljónir
ÍBA og Akureyrarbær hafa gert
með sér rammasamning um sam-
starf og í fjárhagsáætlun bæjarins
er gert ráð fyrir 15,5 milljónum
króna vegna þess. Einnig má nefna
að sjómokstur er hækkaður um 6
milljónir frá fyrri tillögu vegna mik-
illar snjókomu að undanförnu og
verður því rúmlega 16,8 milljónum
króna varið til snjómoksturs á árinu.
Ákveðið hefur verið að fresta af-
greiðslu á fjárhagsáætlun Fram-
kvæmdasjóðs að öðru leyti en því
að til hans verður veitt 17,5 milljón-
um á árinu. Afgreiðslu er frestað
vegna óvissu um með hvaða hætti
sjóðurinn tekur þátt í fjárhagslegri
endurskipulagningu ístess hf. á
næstunni auk þess sem endanlegár
ákvarðanir um uppbyggingu
Krossanesverksmiðjunnar hafa ekki
verið teknar.