Morgunblaðið - 07.03.1990, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7..MARZ 1990
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) a-ft
!Forðastu deiiur við fjölskylduna.
Þú lendir í erfiðleikum með að
ná í einhvern í dag eða færð loð-
in svör við spumingum þínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reiðin dregur úr afköstum þínum
í dag. Reyndu að vera hlutlægur
í viðræðum og hafðu gætur á
skapi þínu. Kurteisi er sjálfsögð
umgengnisvenja.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
t Smávægilegur skoðanamunur
gæti orðið hjá þér og samstarfs-
fólki þínu. Þér eða maka þínum
hættir til að eyða of miklu. Flýttu
þér hægt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) H&S
Fáðu umsögn fleiri en eins um
framkvæmdir sem þú ætlar að
ráðast í heima fyrir. Reyndu ekki
að fá þitt fram með offorsi. Vertu
samstarfsfús og mættu fóiki á
miðri-leið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef þú flýtir þér um of kemur það
niður á verkinu sem þú ert að
vinna. Það gæti orðið snúið að
' komast hjá erfiðleikum i viðskipt-
um við samstarfsmann í dag.
Hættu ekki við hálfnað verk.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ef þú ert ofurviðkvæmur þegar
þú hittir fólk I dag er viðbúið að
þú lendir í illdeilum. Skemmtu
þér, en eyddu ekki um of.
Vog
(23. sept. — 22. október)
Láttu vini þina ekki tefja þig frá
því að ljúka nauðsynlegu verki.
Haltu j)ig við tímaáætlun þína i
dag. Osamkomulag getur orðið
miili þín og einhvers í fjölskyld-
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér hættir til að bregðast of hart
við ef einhver er ósammála þér
í dag. Þetta er ekki heppilegur
tími fyrir þig til að kynna hug-
myndir þínar. Óþolinmæði þín
getur orðið þér fjötur um fót.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú og venslamaður þinn lítið ekki
eins á málin í dag. Peningar geta
orðið misklíðarefni milli þín og
nákomins aðila. Sýndu sérstaka
aðgætni ef þú kaupir inn í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Þú gætir sýnt einum of mikla
aðgangshörku við einhvern sem
er nákominn þér og átt á hættu
að lenda í rifrildi. Það er oft erf-
itt að komast að samkomulagi
þegar peningar eru annars vegar.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Hjón eru ekki sammála um inn-
kaup til heimilisins. Þar skilur
misjafn smekkur á milli. Leggðu
ekki á flótta frá verki sem biður
þín.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú hefur óþarflega miklar
áhyggjur af smávægilegum hlut-
um í starfi þínu í dag. Þú verður
undrandi þegar þú skynjar öfund
hjá vini þínum.
AFMÆUSBARNIÐ hefur góða
greiningarhæfileika og því vinnst
best þegar það starfar eitt sér.
Það hneigist gjama til lærdóms-
eða vísindaiðkana og gegnir oft-
lega forystuhlutverki á sinu sviði
vegna frumleika í hugsun. Það
kann því best að fara sínar eigin
leiðir og hefur minni þjónustu-
lund til að bera en almennt er
með fólk í þessu stjömumerki.
Það getur náð langt sem sálfræð-
ingur eða ráðgjafi og er liklegt
til að láta til sin taka í sjálfstæð-
um rannsóknum.
Stjörnusþána á aó tesa sem
dœgradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
EG VEITEKKI - ■ KfiNNSKl HEFok
HANN FENG/Ð KETTU HU6MyND/NA t
GRETTIR
ÉG VI9SI EKKI AÐ ÞÚ G/ETIR
SttERT'A pét? TIERNAR, GZETTil?
í VATNSMÝRINNI
LJOSKA
E3 VIL KOMA /NNH.SKKIF.
5TOF0NA ÞlNAOG SJA f>IG
ÖNNUAI KAFINN !
Y ÉG GET \>AO, JÚLfUS
ÉG LOTA Pvi'
EN Þö v/eepu^ AÐ gbra
yWIKLU /MEIKI HAVA&A 'APOR
EKI ÞCl Rypsr INN oN
FERDINAND
2l££^ lt
SMÁFÓLK
MAVE I EVER TOLP THE
U)ORLP WARI FLYIN6 ACE
HOW MUCH I APMIRE HI5
BEAUTIFUL SILK. SCARF?
-JT
ó c 0) PERHAPS THE FLYIN6 ACE MI6HT 3E LJILLIN6T0TRAPE IT FOR A LITTLE KlSS...
1 t/J
a> 3 ro O)
? V G( s \
c r> CT> © réí
Hef ég nokkurn tíma sagt flug-
kappanum úr fyrri heimsstyrjöld-
inni, hve mikið ég dáist að lallega
hálsklútnum hans?
Flugkappinn væri kannski til í að
hafa skipti á honum og smá kossi...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Innákoma vesturs er leiðar-
vísirinn að 10 slögum í fremur
hæpnu geimi suðurs:
Austur gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 985
VÁ962
♦ 65
♦ 10842
Vestur
DG104
K3
ÁD432
♦ D9
Austur
♦ 632
VG4
♦ G987
♦ G765
Suður
♦ ÁK7
VD10875
♦ K10
♦ ÁK3
Vestur Norður Austur Suður
— Pass 1 hjarta
2 tíglar 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: spaðadrottning.
Þriggja hjarta sögn norðurs
var af hindrunarætt, enda orðið
algengt að spila hækkun í lit
mótherja sem geimáskorun. En
með 19 punkta stóðst suður
freistinguna að segja fjögur
hjörtu.
Fimm tapslagir blasa við, svo
hér dugir ekkert minna en tvö-
falt innkast. Sagnhafí hausar
svörtu litina og spilar svo þriðja
spaðanum. Vestur lendir inni og
verður nú að gefa sinn fyrsta
slag. Þegar spilið kom upp valdi
hann að leggja niður tígulás og
spila tígli. Skömmu síðar var
hann inni á trompkóng og varð
nú að gefa síðari slaginn með
því að spila út í tvöfalda eyðu.
Hið versta mái, en eftir á að
hyggja sáu menn hvernig vestur
gat bjargað slag: með því að
spila tíguldrottningu þegar hann
var inni í fyrra sinnið. Þannig
opnar hann leið yfir á hönd
makkers, sem getur þá tekið
slag á laufgosa.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á svonefndu Silvan Cup-móti í
Græsted í Danmörku í febrúar
kom þetta skemmtilega endatafl
upp í skák dönsku alþjóðameistar-
anna Klaus Berg (2.410), sem
hafði hvítt og átti leik, og Erling
Mortensen (2.480).
50. Hxfö! (Veikara er 50. Rb3 —
e3, 51. Rcl — Bd6l, því svarti
biskupinn stöðvar hvitu frípeðin)
50. — Hxf8, 51. c5 — e3, (51. —
e2 er auðvitað svarað með 52.
Rcl — el=D, 53. Rd3+ og svarti
hrókurinn ræður síðan ekki við
hvítu frípeðin) 52. Rb3 — Hd8,
53, Rcl - Hd2+, 54. Kc3 -
Hdl, 55. Rd3+! - Hxd3+, 56.
Kxd3 - e2, 57. b8=D - eDD,
58. Df4+ - Kg2, 59. De4+ og
svartur gafst upp.
Úrslit mótsins urðu þessi: 1.
Vasjukov (Sovétr.) 6 v. af 9 mögu-
legum, 2. Davies (Englandi) 5‘A.
3.-4. Hector (Svíþjóð) og Kuijf
(Hollandi), 5. Bent Larsen 4'Av.,
6.-8. Lars Bo Hansen, Klaus
Berg og Levitt (Englandi) 4 v.,
9.—10. Erling Mortensen og Curt
Hansen 3'Av. Úrslitin eru hrika-
legt áfall fyrir danska skákmenn.
Stigahæsti keppandi þeirra varð
t.d. neðstur. Eini Daninn i Norður-
landaúrvalinu í Reykjavík verður
Erling Mortensen, núverandi Dan-
merkurmeistari.