Morgunblaðið - 07.03.1990, Qupperneq 35
35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
fflgjgM
'■
s^nmmnnimniwvtnmí
v. &£*«**< wttnwnwwwttri ww««
áiwteffggwmmíBí
félk f
fréttum
LANDINN í NEW YORK
Islensk námsmey leigir íbúð
með þekktum myndaleikara
KUGUN
Nicu Ceausescu misnotaði
Nadíu Comaneci árum saman
HANDKNATTLEIKUR
„Er að uppörva
Islendinga“
- segir Pétur Dockladal, kaþólskur
prestur frá Ostrava
Zlin, Tékkóslóvakíu. Frá Steinþóri Guðbjartssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
EG er að uppörva íslendinga,“
sagði Pétur Dockladal ka
þólskur prestur í Ostrava í sam-
tali við Morgunblaðið í íþróttahöll-
inni í Zlin eftir tapið gegn Spán-
veijum fyrir síðustu helgi.
Pétur sem er 43 ára er mikill
áhugamaður um allt sem íslenskt
er og heimsótti landið í fyrsta sinn
í fyrrasumar. Ferð er fyrirhuguð
næsta sumar. „Vinur minn á
Akranesi sendi mér leiki íslands
i B-keppninni í Frakklandi á
myndbandi og ég hefði sérstak-
lega gaman af stórsigrinum gegn
Póllandi í úrslitaleiknum," sagði
presturinn, sem veifaði íslenska
fánanum og hrópaði stöðugt
„áfram ísland, áfram ísland.“
Pétur talar vel skiljanlega
íslensku. „Þegar ég var ungur sá
ég danska mynd um ísland og
varð heillaður. Ég lærði fyrst
ensku en skrifaðist á við Torfa
Ólafsson [formann kaþólskra leik-
manna á íslandi] og hann sagði
mér að læra íslensku."
Presturinn sagði að ísknattleik-
ur og knattspyrna væru vinsælli
íþróttagreinar en handbolti í
Tékkóslóvakíu, en hann sagðist
fylgjast vel með handboltanum.
„Það var ekki nógu gott að tapa
þessum leik.“ Svo bætti hann við:
„Ég hef líka áhuga á íslenskri
tónlist. Sykurmolarnir eru bestir
en Megas og Bubbi eru líka góð-
ir.“
ingar hans gefið, en árið 1981
breyttist allt. Forsetinn skipaði son
sinn í embætti æskulýðsmálaráð-
herra og um líkt leyti var Nadía
að hætta fimleikum. Hana vantaði
vinnu og Nicu sá sér leik á borði,
enda orðinn stórlax. Hann réð hana
sem íþróttaþjálfara og fór strax á
fjörurnar við hana á ný. Enn þráað-
ist Nadia við, en smám saman náði
Nicu yfirhöndinni, Nadia var pen-
ingalítil og mátti sín lítils, þegar
Nicu tók að venja komur sínar til
hennar. Þá var hann oftast kóf-
drukkinn og hinn versti viðureign-
ar. Er Nicu hótaði að hafa af henni
vinnuna gaf Nadia eftir. Og er hún
var komin undir hramminn, skrúf-
aði Nicu fyrir allar launagreiðslur
til hennar í því skyni að auka vald
sitt yfir henni.
Alexandrina segir einnig frá því
að Nadia hafi iðulega komið heim
frá Nicu blá og einu sinni hafði
Nicu slitið neglurnar af öllum tíu
fingrum Nadíu. Þá kynnti hann
hana fýrir snötum sínum og undir-
sátum sem „leikfangið“ sitt. Hann
hringdi í Nadiu á hvaða tíma sólar-
hringsins sem var og skipaði henni
að koma til sín. Varð Nadía þá
aka 300 kílómetra leið til borgarinn-
ar Sibiu þar sem Nicu var foringi
kommúnistaflokksins. í fimm ár
var niðurlæging Nadiu algjör, en
þegar færi gafst til að flýja land
var hún ekki sein á sér að grípa
það, þrátt fyrir þá lífshættu sem
hún tók.
Nadía Comaneci býr nú vestur í
Bandaríkjunum. Hún hefur skrifað
móður sinni og segist ætla að heim-
sækja hana í Búkarest mjög bráð-
lega. Annars uni hún hag sínum
vel í vestrinu. Unnið er að því að
gera kvikmynd um viðburðaríka
ævi fimleikadrottningarinnar
frægu.
m.a. Todd Anderson í myndinni
Bekkjarfélaginu „Dead Poets
Society“ sem verið er að sýna í
Bíóborginni um þessar mundir og
væntanleg er til sýninga hérlendis
kvikmyndin „Dad“ þar sem hann
leikur á móti Jack Lemmon og
Ted Danson. Þótt Ehtan sé aðeins
19 ára er hann orðinn þekktur í
Bandaríkjunum, sérstaklega með-
al ungs fólks og verða þau vör
við ýmisskonar óþægindi af þeim
sökum.
Alexandrina Comaneci, móðir
lýrrverandi fimleikadrottn-
ingarinnar Nadia Comaneci, hefur
gengið fram fyrir skjöldu og tjáð
fréttamönnum að dóttir hennar
hafi árum saman mátt sæta hroða-
legri meðferð frá hendi Nicu Ceau-
sescu, sonar hins fallna einræðis-
herra Rúmeníu. Sé það hin raun-
verulega ástæða fyrir því að hún
afréð að flýja land skömmu áður
en byltingin var gerð. Segir Alex-
andrina að Nicu hafi pyntað hana
bæði andlega og líkamlega, hótað
að limlesta hana og jafnvel drepa
ef hún yrði ekki við hverri ósk
hans. Vildi hann gera hana svo
háða sér að hún yrði sem viljalaust
verkfæri. „Helst vildi ég hengja
hann upp á tungunni og láta hann
dingla þar til yfir lyki,“ segir Alex-
andrina biturlega. Nicu Ceausescu
situr nú á bak við lás og slá í Rúm-
eníu og bíður réttarhalda. Það er
mál margra að hann sé lúsheppinn
að hafa ekki verið líflátinn ásamt
með foreldrum sínum á dögunum.
Kann líflát að bíða hans vegna
ákæru um aðild að þjóðarmorði.
Frú Comaneci segir að Nicu hafi
fengið augastað á Nadíu meðan hún
var frægasti íþróttamaður Rúmeníu
snemma á áttunda áratugnum.
Nadíu var hins vegar lítt um þreif-
Nadía Comaneci
Sambýlið gengur annars mjög
vel og er Ethan oft að heiman á
kvikmyndahátíðum eða við upp-
tökur. Nú er hann við gerð nýrrar
kvikmyndar í Alaska og er íbúðin
á Manhattan full af íslendingum
á meðan!
Parson’s School of Design
þykir einn besti skóli Banda-
ríkjanna í fatahönnun og þaðan
hafa útskrifast margir frægir
fatahönnuðir, s.s. Calvin Klein,
Patrick Kelly, Louis Dell’Olio og
Donna Karan auk nokkurra ís-
lendinga.
Halldóra og Ehtan í íbúðinni sem þau leigja saman á Manhattan
í New York.
Námsmenn taka sig oft saman
um að leigja íbúðir til að
minnka framfærslukostnaðinn
bæði hér heima og erlendis. Halld-
óra Ingþórsdóttir nemandi við
Parson’s School of Design í New
York er ein þeirra sem á fullt í
fangi með að borga skólagjöld og
hvað þá húsaleigu sem er óheyri-
lega há í New York. Hún var svo
heppin að kynnast ungum Banda-
ríkjamanni í gegnum vinkonu sína
síðasta sumar og ákváðu þau að
leigja saman íbúð á Manhattan.
Hann heitir Ethan Hawke og
er kvikmyndaléikari. Hann lék
Kvikmyndin „Dad“ verður sýnd hérlendis bráðlega. í henni
leikur Ethan eitt aðalhlutverkið ásamt Jack Lemmon og Ted
Danson.
Morgunblaðið/Júlíus Siguijónsson
Pétur Dockladal, kaþólski presturinn frá Ostrava sem hvatti
íslendinga til dáða í Zlin.