Morgunblaðið - 07.03.1990, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 07.03.1990, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 % ©1989 Universal Press Syndicate „ er ríscLskrýmsL i fyrir utan oy hann. 5eg)r henni ai> setja. Lcku -fyrirdyrnar. * Ast er ... . . . að gefa henni nýjan kjól. TM Reg U.S. Pat Off.—all rights reserved © 1990 Los Angeles Times Syndicate Við erum þá sammála. — Kona! Kona! Fljót, hundur- Ég segi honum ekkert. inn er banhungraður...! HÖGNI HREKKVlSI Landgræðslan og eldhúsin I Land^ræð^iai^iefer^Hliusmu Til Velvakanda. Það var þetta með landgræðsl- una. Það finnst vart sá íslendingur f dag sem vill láta taka sig alvar- lega sem ekki talar um land- græðslu og uppgrasðslu landsins í sífellu. Það sé nú hið allramesta þarfaþing. En hver er svo ekki. reyndin? Jú, þessir sömu íslendingar hafa vart lokið við fúkyrði sín í garð „þeirra“ (?) sem rifið hafa niður skóga landsins og gróður (bænda- greyin væntanlega) fyrr en þeir hinir sömu eru sestir að snæðingi við að háma í sig blásaklausu kind- umar góðu (en að sjálfsögðu ban- hungruðu), sem verða að naga þessi síðustu strá sem enn finnast á af- réttunum, til að þóknast eigéndum sínum og væntanlegum ætum. Mér hefur oft fundist minna ætti að röfla um uppgræðsluna en meira að gera í máJinu þess í stað. Um- það langar mig aðeins að nöldra. En íslendingar góðir. Það er ekki nokkur leið til þess að bjarga því sem bjargað verður héðan af í land- græðslumálum með því að halda iþessari kindahelför okkar áfram á yfimöguðum afréttum landsins. Ekki nokkur leið. Allt annað er jblekking. Algiör siálfBblekking. Það ræða. Og því ekki annað að gera en að ganga á skóginn sífellt. í hinn stað gátu forfeður okkar ekkert farið héðan af landi brott eftir því sem gæðum landsins hnignaði vegna þessa skógarhöggs ing um það. Og það hefðu allir I dag gert einnig í sporum forfeðr- anna og mæðranna. En nú eru aðrir tímar. Iðnbylting- in er gengin í garð svo við getum með ýmsum tilfæringum og verk- »lrtað hórj Til Velvakanda. Enn og aftur leggur Magnús H. Skarphéðinsson á brattan með illa yddaðan blýantinn sinn. Greinin í þetta skipti ber heitið „Landgræðsi- an hefst í eldhúsinu“ og bar fyrir augu lesenda Morgunblaðsins þann 23. febrúar. í fyrsta lagi eru það tæpast „bændagreyin væntanlega" eins og hvalavinurinn orðar það, sem hafa það á samviskunni að skógur og gróðurlendi hér á landi eru illa farin. Svo ég talin nú ekki um hálendið og óbyggðir. Það má vera og er augljóst að sauðkindin á þar stóran hlut að máli, ásamt hrossastóði sem gengur víðu um land okkar, allra sinna ferða og að auki veldur stórtjóni á viðkvæmum svæðum. En þá verður Magnús H. Skarphéðinsson líka að gera sér grein fyrir, hvar ísland er á hnettinum. Hér eru oftar en ekki erfiðir vetur, forsthörkur á nánast nakta jörð og kuldar langt fram á sumar. Svo geisa stormar og þurrkar svo dögum og jafnvel vikum skiftir, þegar blessuð sólin kastar frá sér sínum sterkustu og fegurstu geisl- um. Tökum sem dæmi sumarið 1989. Blýantstubburinn hans Magnúsar H. Skarphéðinssonar veit sennilega ekki hvernig ástandið var norðan og austan lands. Hvernig væri að fræðast um það? Sandstormar, þurrkar og uppblástur. Síðan vil ég fræða stubbinn um það að hér á landi eru jökulár, jöklar og virkar eldstöðvar sem brjótast fram þegar þeim dettur í hug. Ef Magnús H. Skarphéðinsson sér lausn eða leið til að stemma stigu við því litrófi sem náttúruöflin á jarðarkringlunni geta framreitt, getur hann eflaust grætt landið skógum og gróanda. En lausnin er ekki sú að lítilsvirða bændur og hvetja þá til að aflífa eða útrýma sauðkindinni og jafnvel urða. „Þeim er búið fall sem byrgir sín augu.“ Landgræðslan hefst hugsanlega í eldstónni hjá Magnúsi H. Skarp- héðinssyni, en líklega brennur þar allt eins og annar eldsmatur. Gísli Konráðsson Hvenær á að snúa við? Kæri Velvakandi. Áfengisneysla er sjúkdómur segja menn í afsökunartón. I æsku minni var þetta kallað ýmist ljótur vani eða hreint og beint ræfildóm- ur. Sé þetta sjúkdómur, þá er það eini sjúkdómur í heiminum sem menn kaupa dýrum dómum. Við kaupum lækningu ofsa verði og er þá ekki á bætandi að kaupa sjúk- dóminn líka, en svona getur þjóð- félagið verið vitlaust. Það var um daginn verið að bjóða út flutninga á áfengi og allskonar eiturefnum, og það voru ekki neinar smáeining- ar sem átti að bjóða í. Ekki aldeilis. Hvað skyldi þessi varningur kosta erlendis? Og verður svo ríkið ekki að kaupa þetta upp á krít og bæta þar við erlendar skuldir ríkis- sjóðs, sem alltaf fara hækkandi? Mestu hugsjóna- og ágætismenn þjóðarinnar og allra þjóða hafa allt- af sagt og stuðst þar við reynslu allra alda: Áfengi og íþróttir fara aldrei saman. Hvemig skyldu stjómendur og aðalfundir ÍSI fram- kvæma þetta og er ekki alltaf verið að taka þá sem sprauta sig eiturefn- um í keppnum fyrir að nota meðöl sem síðar koma þeim í koll í íþrótt- inni. Afleiðingar áfengisins segja allstaðar til sín, það þarf enga fræðslu um það. Áfengið leggur fleiri í gröfina en nokkrar styijald- ir. Þetta er reynsla allra alda. Og nú kaupa menn þessi efni í tonna- tali, og eins og sagði í æsku minni, peningarnir sem áttu að fara fyrir föt og fæði fóru til að eitra samfélagið og svo greiða alþingis- menn á þinginu atkvæði með því að auka á vandann og þá em hend- ur sumra fljótt á lofti. Og þó þykj- ast þessir sömu menn vera að vinna að heill þjóðarinnar. Hvílík vinnu- brögð. Hafa ráðamenn þjóðarinnar kynnt sér hvað er að gerast á drykkjumannaheimilum Iandsins (sem fer alltaf fjölgandi ár frá ári)? Hafa þeir kynnt sér og séð hvernig heilbrigt líf fer í hundana og meira en það? Eru þeir ekki til að gæta bróður síns? Ráðamenn gera það með því að halda áfengisveislur í tíma og ótíma. Það þarf ekki nema auvirðilegur félagsskapur að halda fund eða ráðstefnu og biðja um brennivfn þá flýtur það eins og hver vill. Kirkjan sem við höfum treyst sem boðberum þess besta í veröldinni, hvað segir hún? Er allt þjóðlífið sýkt? Já, það er ömurlegt þegar æðsta stofnun þjóðarinnar selur áfengi í tonnatali til að koma sem flestum þegnum þjóðfélagsins á drykkjuheimili þar sem hún svo verður að annast þá og jafnvel það sem eftir er af lífi þeirra. Hvílík ósköp! Og svo erum við að syngja um gróandi þjóðlíf. Getur vitleysan náð lengra og ömurlegheitin? Hve- nær á að snúa við? Árni Helgason Víkveiji skrifar Umræðurnar um ríkisstyrki til dagblaða og kaup ríkisins á þeim hníga í sömu átt hér á landi og annars staðar, að eðlilegt sé að skattgreiðendur hlaupi undir bagga með fjölmiðlum til að stuðla að því að sem flest sjónarmið fái að njóta sín. Röksemdirnar eru einfaldlega þær, að úr því að almenningur vilji ekki kaupa blöð eigi ríkið að gera það fyrir hann. Kann þá að vera skammt í það að ríkið skipi mönnum að lesa eitthvað ákveðið efni eða banni þeim að kynna sér annað. Er betra að blöð séu háð geðþótta stjórnarherra en duttlungum mark- aðarins? Ríkisforsjárhyggjan á helst upp á pallborðið meðal þeirra þjóða, sem eru að dragast aftur úr með einum eða öðrum hætti. Ættum við að huga að ástæðunum fyrir því að við höldum alls ekki í við önnur aðildarríki OECD, þegar litið er til hagvaxtar. Verðlagseftirlit, hvort sem það er í höndum verkalýðs- félaga eða annarra, og niðurgreiðsl- ur leiða til hins sama hér og ann- ars staðar: Markaðurinn visnar og skilar minni árangri en ella, fyrir- tækin verða veikbyggðari, slegið er á frumkvæði og dregið úr hag- sýni. XXX Víkveija flaug þetta í hug þegar hann las um það í erlendu tímariti, að dagblað breska komm- únistaflokksins Morning Star hefði orðið fyrir þungu höggi úr óvæntri átt á dögunum: Sovétstjórnin ákvað að hætta að styrkja útgáfu þess. Sérhæfð sovésk innkaupastofn- un, Mejkniga, keypti dag hvem 11.000 eintök af blaðinu, um helm- ing upplagsins, en ákvað fyrirvara- laust í janúar að láta markaðinn ráða. Það kostaði töluverðan gjald- eyri að kaupa þessi 11.000 eintök. Blaðið lá frammi í blaðasölum hót- ela við hliðina á L’Humanité, blaði franskra kommúnista, og Granma, blaði kommúnista á Kúbu. Áhugi almennings var hins vegar sáralítill og sátu Sovétmenn ekki uppi með annað en kostnaðinn og fyrirhöfn- ina, sem hingað til hefur verið af- skrifuð með vísan til sameiginlegra hugsjóna. Nú hefur „ný hugsun“ skotið rótum í þessum viðskiptum og Morning Star situr eftir bjargar- laust. Upplagið hefur minnkað jafnt og þétt. Fyrir þremur árum varð blaðið að selja húsnæði sitt til að bjarga sér úr fjárhagsvandræðum. xxx Ur því að Sovétmenn era hættir að styrkja Morning Star með því að kaupa hálft upplagið geta kommúnistar og sósíalistar annars staðar tekið til við að endurskoða afstöðu sína til ríkisstuðnings við blaðaútgáfu. Línan frá Moskvu er skýr. Blaðakóngurinn mikli, Rupert Murdoch, hefur keypt 50% hlut í tímaritinu Reform í Ungveijalandi og breski blaðajöfurinn Robert Maxwell á 40% hlut í Magyar Nem- zet, málgagni ungversku ríkis- stjórnarinnar. Hvenær ætli Pravda og Izvestía í Sovétríkjunum komist í einkaeign og losni af ríkisjötunni? Eins og þeir hafa reynt á Morning Star er framtíðin ekki tryggð með öflugum ríkisstyrk, jafnvel þótt stórveldi eigi í hlut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.