Morgunblaðið - 07.03.1990, Síða 42

Morgunblaðið - 07.03.1990, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Langsóttir möguleikar ísland á enn möguleika á að bjarga sérfrá því að verða B-þjóð og leika í Austurríki 1992 ISLENDINGAR vega nú salt á barmi þess að vera með far- seðil á Ólympíuleikana í Barcel- ona 1992 og HM í Svíþjóð 1993, eða fara í B-keppnina sem verður í Austurríki 1992. Þar sem Spánveijar, sem halda ÓL 1992 og Svíar, sem halda HM 1993, eru á meðal áttu efstu þjóðanna í HM í Tékkóslóvakíu, gefur níunda sætið í Tékkóslóvakíu farseðilinn í áðurnefnd stórmót ísland er enn inni í myndinni, en til þess þarf íslendingum að ganga allt í haginn. ísland verður að vinna A-Þýskaland í síðasta leik sínum í milliriðli á morgun og Pólveijar verða þá að tapa fyrir Júgóslövum. ísland getur aldrei keppt nema um níunda sætið í besta falli. Þá gegn Frökkum eða Suður-Kóreumönn- um. Þar sem S-Kórea er Asíuþjóð, er best að leika gegn þeim um níunda sætið. Þó svo að við myndum ekki vinna þá, dugar tíunda sætið til þess að fá farseðilinn til Barcel- ona 1992, en það nægir ekki til að tryggja sæti á HM í Svíþjóð 1993. Til þess að_ komast til Svíþjóðar 1993 verður ísland að vera í einu af efstu fjórum sætunum í B- keppninni í Austurríki 1992. Róður- inn gæti orðið erfiður þar. Bæði vegna þess að margir af bestu hand- knattleiksmönnum íslands ætla að leggja skóna á hilluna eftir HM í Tékkóslóvakíu og þá er ljóst að í B-keppninni eru mörg geysilega sterk lið. Þjóðir eins og t.d. Frakk- land, V-Þýskaland, Danmörk og Sviss. Kóreumenn eins og krakkar í höndunum á Svíum Svíar burstuðu Suður-Kóreu- menn, 34:23, og tryggðu sér þar með rétt til að leika um heims- meistaratitilinn. Þeir mega tapa með tíu marka mun fyrir Rúmenum á morgun. Suður- Kóreumenn voru eins og krakkar í höndunum á Svíum, sem náðu fljót- lega yfirburðastöðu. Tölur eins og 5:2, 9:3 og í hálfleik 17:7 gefa Frá Þorbergi Aðalsteinssyni iiýSvíþjóð góða mynd af yfirburðum Svía. Magnus Wislander var marka- hæstur Svía með 9 mörk. Gamla kempan, Bjöm Jilsen sem er að leika í sinni þriðju heimsmeistara- keppni, kom næstur með níu. Hann hefur nú skorað 107 mörk í heims- meistarakeppni. Hinn ungi Tomas Svensson var í markinu og varði alls 22 skot. Svíar gátu leyft sér þann munað að láta besta markvörð sinn Mats Olson hvíla í þessum leik. Morgunblaðið/Júlíus Guðmundur Guðmundsson skorar gegn Pólveijum. Guðmundur lék vel. „Hafa enga ástæðu til að vera taugaóstyrkir11 - segir Anders-Dahl Nielsen, landsliðsþjálfari Dana um íslensku leikmennina ANDERS-DAHL Nielsen, landsliðsþjálfari Dana í handknatt- leik, fylgist með leikjunum í milliriðlinum í Bratislava. „Þetta er ótrúlegt," sagði hann við mig eftir tapið gegn Pólverjum. „Pólverjarar eru slakir, Bogdan Wenta þreyttist snemma í leiknum, íslendingar voru með góða stöðu en fóru á taugum. Þeir hafa enga ástæðu til að svona taugaóstyrkir." Landsliðsþjálfarinn hristi höfuðið, en hann hefur sterkar taugar til Islands og Íslendínga, eins og flestum handboltaáhugamönnum er kunnugt. „íslenska Steinþór landsliðið hefur sýnt Guðbjartsson handboltaheiminum skrifar frá að það er í hópi átta Bratislava bestu þjóða heims og á þar heima. Ég hef alltaf verið hreykinn af íslenska liðinu og það er mikið betra en það pólska, sem er hvorki fugl né fiskur. Ég veit ekki og skil ekki hvað gerðist fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik, en þetta er áfall. Nú getur ekkert nema kraftaverk haldið liðinu í hópi A- þjóða, en það er sannarlega of sterkt til að þurfa að taka þátt í B-keppn- . inni í Austurríki eftir tvö ár.“ Anders sá leikinn gegn Sovét- mönnum og meðan á leiknum gegn Pólveijum stóð var hann alla tíð sig- urviss, þar tii allra síðustu mínút- urnar. „Það sem ég hef séð núna, er allt annað en ég veit. Ég veit að íslenska liðið er gott, en hérna spilar það eins og danska liðið og það geng- ur ekki. Reynslan er fyrir hendi, en þegar í óefni er komið ætla leik- mennimir að gera hlutina upp á eig- in spýtur. Það er vonlaust, ef árang- ur á að nást í heimsmeistarkeppni. Það getur enginn einn unnið leik — þetta er leikur liðsheildar. Það er auðveh. að segja þetta, en erfitt að framkvæma og ég tala af reynslu. Það er ekki mitt að gagnrýna liðið eða Bogdan en ég sé að Kristján er ekki sá Kristján, sem égþekki. Hann berst alitaf, en skýtur ekki eins og áður og því er auðveldara að veij- ast. Þetta er mikilvægt atriði. Alfreð er Alfreð, en Guðmundur er ekki fyrsti markvörður landsliðsins og hann veit það. Það getur haft áhrif, en þessi taugaveiklun er óskiljanleg. Strákamir glopra boltanum hvað eftir annað til móthveija, og sitja eftir. Hvar er sjálfstraustið?“ spurði þjálfarinn. Anders var lengi einn af bestu leikmönnum Dana og hefur verið á HM síðan 1974 sem leikmaður, áhorfandi eða þjálfari, en hann tók við danska landsliðinu sumarið 1987. Hann sagði að sá þjálfari mætti vera góður, sem ekki lærði neitt á HM. „Hér er tækifærið til að sjá það besta, fylgjast með æfingunum, sjá kerfin útfærð í leik, sem skiptir máli. Heimsmeistarakeppnin er það eina sem skiptir máli, allt snýst hana. Allur undirbúningur, allir aðr- ir leikir, allt annað er aðeins til að byggja upp,_ öðlast reynslu fyrir lokaátökin. íslensku leikmennirnir eru með það mikla reynslu að það á ekki að skipta máli hvort þeir eru mánuðinum lengur eða skemur sam- an fyrir mótið. Aðalatriðið er að Morgunblaðið/Júlíus Anders-Dahl Nielsen fylgist með leik íslendinga og Pólveija í Bratislava í gær. þeir trúi að sá undirbúningur, sem þeir fá, sé sá besti og heppilegasti fyrir liðið. í heimsmeistarakeppni duga eng- ar afsakanir. Það vita allir að Sovét- menn eru bestir. Leikur íslendinga gegn þeim hefði verið fyrirgefanleg- ur, ef hann var hugsaður sem undir- búningur fyrir viðureignina gegn Póllandi og hún unnist, en nú er ekkert eftir nema að biðja, bíða og vona. Ég átti von á að íslandi yrði í hópi 8 efstu liða, þar sem liðið á heima, en þessi frammistaða veldur mér áhyggjum og kemur á óvart. Til að ná einu af fimm efstu sætun- um í svona keppni þarf að koma með eitthvað nýtt, sýna ný andlit. Hver þjálfari verður að vega og meta hvað er best hveiju sinni. Ég er viss um að Bogdan hefur fyrst og fremst hugsað um að halda liðinu í hópi A-þjóða og taka síðan til við endurbygginguna fyrir næstu keppni. En svo hrinur allt. Ég skil þetta ekki. ísland er með leikreynda menn og þeir eiga að klára dæmið, þeir gátu það og þeir fengu tækifærið." Anders sagði að þróunin í hand- boltanum hefði verið hröð undanfar- in ár. „Kóreumenn komu með hrað- ann og önnur lið urðu að aðlagast honum. Hraðinn hefur aukist og líkamlegur styrkur einnig, en vegna þessara breytinga er tæknin mikil- vægust. Lið frá Vestur-Evrópu eru að ná Austurblokkinni því þau æfa meira en áður. Æfingin er grund- vallaratriðið. Sjáðu Kóreumenn. Þeir æfðu þrisvar á dag í nokkur ár. Og hafa haldið sér í hópi þeirra bestu, en endurnýjunina vantar, þeir hafa ekki kraft í að æfa eins mikið og eiga á hættu að falla niður. Peningarnir hafa líka mikið að segja. Það þarf að gera mönnum kleyft að stunda handboltann í heimalandi sínu við sambærileg kjör og þeim bjóðast annarsstaðar. Fjár- hagslega er það gott fyrir leikmenn að gerast atvinnumenn eriendis, en það er slæmt fyrir deildarkeppnina í heimalandinu að missa bestu menn- ina úr landi og eins kemur það niður á undirbúningi landsliðsins. Ef vel á að vera þarf að koma á móts við þá bestu og halda þeim heima. Þetta er ekki afsökun vegna gengi íslenska liðsins. Það á ekki að vera í þessari_ stöðu. Þetta er ekki rétt- látt og íslendingar eiga alla mína samúð.“ H VASILE Stinga, leikmaður rúmenska landsliðsins, handar- brotnaði í leik Rúmena og Tékka í riðlakeppninni. Stinga hefur því ekki getað leikið með liðinu í milli- riðlinum og hefur það veikt liðið. Stinga lýsti því yfir í samtali við Morgunblaðið, er liðið var hér á landi fyrir skömmu, að hann ætlaði ekki að leika með Rúmenum í Tékkóslóvakíu en hefur greinilega sætst við þjálfara sinn og látið til leiðast. Óheppnin virðist elta Stinga í heimsmeistarakeppni því hann kinnbeinsbrotnaði í fyrsta leik Rúmena á HM í Sviss 1986. ■ STEINAR Birgisson, fyrrum landsliðsmaður sem nú leikur í Noregi, er meðal áhorfenda á heimsmeistarakeppninni í Tékkó- slóvakíu. Meðal annarra íslend- inga sem fylgjast með keppninni er Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnariirði, og fyrr- um leikmaður FH. ■ ERMAN Velic, annar mark- vörður Júgóslava, sleit krossbönd í leik Júgóslava og Austur-Þjóð- veija á mánudaginn og leikur ekki meira með liðinu í keppninni. ■ GUNNAR Gunnarsson, blaða- fulltrúi HSÍ, fór fýluferð til Zilina á laugardaginn. Hann átti að taka upp leik Sovétmanna og Austur- Þjóðveija á myndband. Leikurinn átti upphaflega að hefjast kl. 17.00, en var flýtt og þegar Gunnar kom var leikurinn búinn. Mótshöldurum hafði láðst að tilkynna þessa breyt- ingu. STAÐAN MILLIRIÐILL í BRATISLAVA ISLAND- SOVÉTRÍKIN ......19:27 SPÁNN - PÓLLAND..........24:17 JÚGÓSLAVÍA- A-ÞÝSKALAND..21:20 SOVÉTRÍKIN - JÚGÓSLAVÍA..24:22 PÓLLAND- (SLAND .........27: 25 A-ÞÝSKALAND- SPÁNN.......25:20 ÁMORGUN LEIKA: SPÁNN — SOVÉTRÍKIN JÚGÓSLAVÍA— PÓLLAND ÍSLAND — AUSTUR—ÞÝSKALAND Fj. leikja U J T Mörk Stig SOVÉTR. 4 4 0 0 111: 81 8 SPÁNN 4 3 0 1 81: 77 6 JÚGÓSL. 4 2 0 2 87: 82 4 A-ÞÝSKAL. 4 2 0 2 89: 92 4 PÓLLAND 4 1 0 3 82: 100 2 ÍSLAND 4 0 0 4 82: 100 0 MILLIRIÐILL í OSTRAVA SVÍÞJÓÐ - TÉKKÓSLÓVAKÍA.26:20 UNGVERJALAND - S-KÓREA..27:24 FRAKKLAND- RÚMENÍA .....21:25 TÉKKÓSLÓVAKÍA- FRAKKLAND.21:21 RÚMENÍA- UNGVERJALAND ..21:24 S-KÓREA- SVÍÞJÓÐ ..-....23:34 ÁMORGUN LEIKA: FRAKKLAND - SUÐUR-KÓREA UNGVERJALAND — TÉKKÓSLÓVAKÍA SVÍÞJÓÐ — RÚMENÍA Fj. leikja U J T Mörk Stig SVÍÞJÓÐ 4 4 0 0 110: 81 8 RÚMENÍA 4 3 0 1 97: 86 6 UNGVERIAL. 4 3 0 1 90: 88 6 TÉKKÓSL. 4 1 1 2 87: 96 3 FRAKKLAND 4 0 1 3 78: 90 1 S-KÓREA 4 0 0 4 95: 116 0 BOTNRIÐILL ALSÍR- KÚBA.........20:20 SVISS- JAPAN.........22:12 JAPAN - ALSÍR.......21:20 KÚBA- SVISS ........26:32 Fj.leikja u J T Mörk Stig SVISS 2 2 0 0 54: 38 4 JAPAN 2 1 0 1 33: 42 2 ALSÍR 2 0 1 1 40:41 1 KÚBA 2 0 1 1 46: 52 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.