Morgunblaðið - 07.03.1990, Page 44
MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
100 aðstoðar-
læknar leggja
niður vinnu
-^ÐSTOÐARLÆKNAR á spít-
tlunum, um 100 talsins, ætla að
leff£)a niður vinnu á morgun,
fimmtudag, til þess að mótmæla
stórhækkun á gjaldtöku ríkisins
vegna útgáfii lækningaleyfa og
leyfa til sérfræðinga. Félag
læknanema styður þessar aðgerð-
ir og beinir því til félaga að sinna
ekki störfúm aðstoðarlækna.
Lækningaleyfið hækkaði um ára-
mót úr 4 þúsund krónum í 50 þús-
und eða um 1.250% og sérfræðinga-
leyfið úr 14 þúsund í 75 þúsund eða
um 525%.
Jón Hilmar Friðriksson, formaður
Félags ungra lækna, sagði að lækn-
ingaleyfið væri ekki rekstrarleyfi og
-því ólíkt ýmsum öðrum leyfisveiting-
um ríkisins. Það væri staðfesting á
að viðkomandi hefði lokið tilteknu
námi og reynslutíma og væri til að
mynda forsenda fyrir framhalds-
námi erlendis.
„Við sjáum engin önnur úrræði.
Við fáum engin viðbrögð eða rök-
stuðning fyrir þessari hækkun eftir
eðlilegum leiðum og verðum því að
grípa til aðgerða, en þetta er neyðar-
úrræði.“ Hann sagði að aðgerðirnar
ættu ekki að hafa hættu í för með
-^pr, en myndu valda óþægindum.
Slitnað upp
úr viðræðum
við sjómenn
ÁRANGURSLAUSUM fundi
samningancfnda Sjómanna-
sambands Islands og viðsemj-
enda þeirra var slitið í gær án
þess að til annars fúndar væri
boðað og hefúr SÍ boðað for-
mannafund á þriðjudag.
Óskar Vigfússon, forseti SÍ,
'segir að sjómönnum hafi aðeins
verið boðinn hluti af því sem felst
í kjarasamningi Alþýðusambands
Islands við vinnuveitendur og í
því sambandi sé skírskotað til
sérstöðu kjarasamnings þeirra
miðað við aðra. Það sætti sjó-
menn sig ekki við. Kjarasamn-
ingurinn sé orðinn þriggja ára
gamall og þurfi endurskoðunar
við. Það þýði þó ekki að sjómenn
geri kröfur um að fá meira í sinn
hlut en aðrir.
Ljósmynd/Jim Smart.
Barnakór söng við athöfn í Listasafni íslands þar sem kynnt var afmælisrit til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands, og sjóður
sem ágóði af sölu afmælisritsins á að renna í. Sjóðurinn verður færður íslenskri æsku til ræktunar landsins.
Afmælisrit í tilefiii af sextugsafmæli forseta íslands:
Allur ágóði í skógræktar-
sjóð handa æsku landsins
í TILEFNI af sextugsafinæli forseta íslands, Vigdísar Finnbogadótt-
ur, 15. apríl næstkomandi verður gefið út aftnælisrit henni til heið-
urs þar sem nær sextíu skáld, rithöfúndar og fræðimenn skrifa ljóð,
sögur og greinar sem allar fjalla um ræktun í víðasta skilningi
þess orðs. Ágóði af sölu aftnælisritsins rennur í sjóð, sem að ósk
Vigdísar Finnbogadóttur verður færður íslenskri æsku, og er stefiit
að því að sjóðurinn verði það öflugur að hann geti staðið undir
kaupum á trjáplöntum handa öllum grunnskólanemendum á hverju
vori. Bæði aímælisritið og sjóðurinn munu bera naíhið Yrkja.
Afmælisritið og skógræktarsjóð-
urinn voru kynnt í gær í Listasafni
íslands. Fram kom í máli Njarðar
P. Njarðvík lektors, eins ritstjóra
afmælisritsins, að hugmyndin að
ritinu hefði vaknað í septémber
síðastliðnum og strax fengið mjög
góðar undirtektir allra.
Ákveðið var að gefa öllum íslend-
ingum kost á að rita nöfn sín á
heillaóskaskrá, og gerast um leið
áskrifendur að ritinu. Þá varð ljóst
að ágóði af sölu ritsins gæti orðið
umtalsverður, og var rætt við
Vigdísi Finnbogadóttur hvernig
best mætti vetja honum. Að ósk
Vigdísar var ákveðið að stofna
skógræktarsjóð sem ágóði af sölu
bókarinnar rynni í. Matthías Jo-
hannessen ritstjóri og skáld hefur
að beiðni forseta íslands fallist á
að gegna formennsku í sjóðnum,
en stjórn hans verður að öðru leyti
skipuð fulltrúum Skógræktarfélags
íslands, Skógræktar ríkisins,
menntamálaráðherra og kennai
samtaka.
Sjá firásögn á bls. 18-19.
Kröfur í þrotabú íslandslax hf.
nema 1.500 mílljónum króna
Eitt tilboð hefur borist í eignir búsins
LÝSTAR kröfiir í þrotabú íslandslax hf. eru samtals tæplega 1.500
milljónir króna. Eignir búsins eru metnar á 900 milljónir kr., en
endanlegt verðmæti skýrist ekki fyrr en og ef kaupandi fínnst sem
veðkröfúhafar sætta sig við. Á fyrsta skiptafundi búsins sem haldinn
var í Keflavík gær, hjá skiptaráðandanum í Grindavík, kom fram
að eitt tilboð hefur borist í eignirnar frá einstaklingi í Vestmannaeyj-
ura. Efnisatriði tilboðsins eru trúnaðarmál en ljóst að tilboðið er
lægra en mat þrotabúsins á eignunum. Áætlað tap kröfuhafa er því
að minnsta kosti 600 milljónir kr. og verður meira ef eignir seljast
undir matsverði. Fyrirtækið hefur verið auglýst til sölu erlendis.
Tilboðið í eignir íslandslax 'hf.
er frá Gísla Ragnarssyni vélvirkja
sem rekur Vélaverkstæði GG í Vest-
mannaeyjum. Tilboðið gildir út
rnánuðinn. Gísli vildi í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi hvorki
gefa upp hversu hátt tilboðið væri
né hveijir stæðu að því með honum.
Það væri trúnaðarmál. Tilboðið er
nú til athugunar hjá veðkröfuhöfum
og verður svarað fyrir mánaðamót
að sögn Sigurmars K. Albertssonar
hrl., sem kosinn var skiptastjóri
búsins á fundinum í gær ásamt
Garðari Garðarssyni hrl.
Forgangskröfur í þrotabúið voru
tæpar 13 milljónir kr., veðkröfur
voru 554 milljónir og almennar
kröfur í íslenskum krónum 637
milljónir kr. Aðrar kröfur voru m.a.
kröfur í norskum krónum að jafn-
gildi 220 milljónum íslenskra kr.
Einnig voru kröfur í dollurum og
dönskum krónum, samtals um 40
milljónir kr. Alls voru lýstar kröfur
um 1.480 milljónir kr. Flestum
veðkröfunum var hafnað í bili, af
tæknilegum aðstæðum, að sögn
skiptastjóra. Farið verður yfir þær
með kröfuhöfum á næstunni.
Stærsta krafan er frá Fiskveiða-
sjóði vegna ábyrgðar á láni Nor-
ræna fjárfestingabankans, um 300
milljónir kr. Landsbankinn lýsti
kröfum að fjárhæð um 230 milljón-
um kr. og Framkvæmdasjóður um
100 milljónum kr. Þá lýstu báðir
eigendahóparnir kröfum vegna
ábyrgða og fyrirgreiðslu að fjárhæð
um 200 milljónir hvor hópur. Eig-
endur voru Samband íslenskra sam-
vinnufélaga ásamt tengdum fyrir-
tækjum og norska fyrirtækið
Noraqua.
Sigurmar K. Albertsson sagði að
verðmæti eigna væri óljóst á meðan
þær væru óseldar. Sérfróðir menn
sem bústjórarnir kölluðu til mátu
fasteignir búsins á um 680 milljón-
ir og fiskurinn er talinn vera um
200 milljóna króna virði og með
öðrum eignum er verðmætið talið
um 900 milljónir kr.
Virðisauka-
skatturinn
hækkar verð
á flotgöllum
VINNUFLOTGALLAR, sem
sjómenn klæðast við störf sín
um borð í skipum, hækkuðu
verulega í verði þegar virðis-
aukaskattur tók gildi um ára-
mótin. Sem dæmi um hækkun
gallanna um áramót má
neftia, að algeng tegund
þeirra hækkaði úr um 17
þúsund krónum i 21.300.
Vegna þrýstings frá hags-
munasamtökum sjómanna
hafði söluskattur á þessa
galla verið felldur niður á
síðasta ári.
„Flotgallar af þessari gerð
hafa oft átt þátt í að bjarga
mannslífum við strendur lands-
ins á undanförnum misserum,
síðast í Jökulfjörðum um
síðustu helgi. Það er kannski
ekki ástæða til að skylda notkun
þessara galla líkt og björgunar-
flotgallanna. Hins vegar er rétt
að skoða allar leiðir til að auð-
velda sjómönnum að ráðast í
kaup á slíkum fatnaði, þar sem
hann er dýr,“ sagði Árni Frið-
riksson hjá Siglingamálastofn-