Morgunblaðið - 05.04.1990, Side 1
72 SIÐUR B
80. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
*
A sorphaugi sögunnar?
Starfsmaður í fyrrum höfuðstöðvum kommúnistaflokks Austur-
Þýskalands sýnir nokkra af dýrgripunum á háaloftinu. Fremstir eru
Engels og Marx, að baki þeim vísar Lenín veginn og á skinnstrang-
ann er máluð mynd góðlátlegs landsföður, Erichs Honeckers. A
málverkinu er Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, við hlið
Honeckers.
Austur-Þýskaland:
Stefiia að stjórnar-
myndun fyrir páska
Austur-Berlín. Reuter.
Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD), Kristilegi demókrataflokkur-
inn (CDU) og fleiri flokkar í Austur-Þýskalandi eiga ekki langt
í land með að mynda fyrstu stjórn landsins eftir lýðræðislegar
kosningar, að því er skýrt var frá í gær. Gert er ráð fyrir því
að Lothar de Maiziere, leiðtoga kristilegi-a demókrata, verði
falin stjórnarmyndun í dag er austur-þýska þingið kemur saman
í fyrsta sinn eftir kosningarnar 18. mars.
Martin Kirchner, ritari Kristi-
lega demókrataflokksins, sagði að
Maiziere yrði að öllum líkindum
kjörinn forsætisráðherra þegar
hann legði ráðherralista sinn fyrir
þingið á miðvikudag í næstu viku.
„Við viljum að nýja stjórnin taki
við fyrir páska,“ sagði Kirchner.
Heimildarmenn innan Jafnaðar-
Sy ðri-Straumlj örður:
Ferðamanna-
miðstöð í stað
herstöðvarinnar
Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKA landsstjórn-
in hefiir á prjónunum að gera
bandarísku herstöðina í Syðra-
Straumfirði að miðstöð fyrir
ferðamenn að því er fram kem-
ur í danska blaðinu Land og
Folk.
mannaflokksins, sem er næst
stærsti flokkur landsins á eftir
Kristilega demókrataflokknum,
sögðu að þótt stjórnarmyndunar-
viðræðurnar væru komnar á góðan
rekspöl væri nokkrum spurningum
enn ósvarað. Kirschner sagði að
flokkarnir hefðu komist að sam-
komulagi um að tengsl þingmanna
við „Stasi“, öryggislögreglu
kommúnista, yrðu rannsökuð. Því
hefur verið haldið fram að allt að
tíundi hver þingmaður hafi starfað
fyrir lögregluna.
Hans-Dietrich Genscher, ut-
anríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, sagði eftir að hafa rætt við
George Bush Bandaríkjaforseta í
gær að vestur-þýska stjórnin von-
aðist til þess að sendinefndir þýsku
ríkjanna tveggja og fjórveldanna,
sigurvegara heimsstyrjaldarinnar
síðari, hæfu viðræður um samein-
ingu Þýskalands síðar í mánuðin-
um.
Sjálfstæðisbarátta Eystrasaltsríkjanna:
Stjórn sögð
í burðarliðn-
um í Israel
Jerúsalem. Reuter.
FORYSTUMENN Verkamanna-
flokksins í ísrael sögðu í gær
að flokkurinn nyti nógu mikils
stuðnings á þingi tfl að geta
myndað stjórn og óskuðu eftir
sérstökum þingfúndi til að hægt
yrði að kynna hana.
Leiðtogi Verkamannaflokksins,
Shimon Peres, hefur að undan-
förnu átt í viðræðum við nokkra
smáflokka um myndun stjórnar,
sem stefndi að friðarviðræðum við
Palestínumenn. Stjórn Verka-
mannaflokksins og Likud-flokks-
ins féll vegna ágreinings um þetta
mál.
„Við ræddum í dag við forseta
þingsins og óskuðum eftir sérstök-
um fundi vegna þeirrar lagagrein-
ar, er kveður á um að þeir sem
mynda stjórn beri að kynna hana
fyrir þinginu,“ sagði Haim Ramon,
einn af forystumönnum Verka-
mannaflokksins. Hann svaraði
ekki spurningum um hversu marg-
ir þingmenn myndu styðja stjórn-
ina. Verkamannaflokkurinn hafði
áður tryggt sér stuðning 60 þing-
manna og nægilegt var að einn
þingmaður til viðbótar kæmi til liðs
við flokkinn til að hann gæti mynd-
að stjórn.
Boða þarf sérstakan þingfund
vegna þess að sjö vikna hlé var
gert á störfum þingsins í fyrri viku
vegna páskahátíðar gyðinga.
í blaðinu sagði, að Jonathan
Motzfeldt, formaður landsstjórnar-
innar, hefði samþykkt þessar áætl-
anir og hefðu þær einnig verið
kynntar dönskum stjórnvöldum. Á
fundi í Kaupmannahöfn í næsta
mánuði verða þær lagðar fyrir
Bandaríkjamenn en þeir hafa eins
og kunnugt er ákveðið að leggja
niður starfsemina í Syðra-Straum-
firði í áföngum.
í Syðra-Straumfirði er nátt-
úrufegurð mikil. Þar er hægt að
fara á skíði, ganga á fjöll, skoða
sig um í hinum fagra Paradísar-
dal, sigla á firðinum eða ganga á
sjálfan meginlandsísinn.
Gorbatsjov fordæmir áform
Eistíendinga um sambandsslit
Moskvu, Washington, London. Reuter, dpa.
EISTNESKUR þingmaður, ígor Gijazín, skýrði frá því í gær að
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti hefði fordæmt þá ákvörðun eistneska
þingsins að slíta sambandi ríkisins við Sovétríkin í áföngum. Gorb-
atsjov hefði gefið í skyn að Sovétstjórnin myndi bregðast við slíkum
áformum á sama hátt og gert hefur verið í Litháen. Litháíska þing-
ið sakaði sovésk sljórnvöld um að reyna að steypa réttkjörinni sljórn
landsins.
ígor Gijazín sagði að Gorbatsjov
hefði hringt í Arnold Ruutel, for-
seta Eistlands, og sagt að enginn
munur væri á ákvörðun eistneska
þingsins og sjálfstæðisyfirlýsingu
Litháa frá 11. mars. Eistneska
þingið samþykkti á föstudag að slíta
tengsl Eistlands við Sovétríkin í
áföngum og stefna að sjálfstæði
innan nokkurra ára, væntanlega
eftir samningaviðræður við sovésk
stjórnvöld.
Litháíska þingið samþykkti í gær
Belgíukonungnr neitar að und-
irrita lög um fóstureyðingar
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunbiaðsins.
BALDVIN Belgíukonungur afsalaði sér konungstign seint á þriðju-
dag eftir að hafa neitað af samviskuástæðum að undirrita lög sem
heimila fóstureyðingar í Belgíu. I framhaldi af því sagði konungur
af sér og ríkisstjórnin tók við völdum hans. Fyrsta verk hennar
var að staðfesta lögin. Báðar deildir belgíska þingsins koma saman
til fundar í dag, til að setja Baldvin inn í embætti á ný.
Langvinnar og hatrammar deil-
ur hafa staðið um það hvort heim-
ila eigi fóstureyðingar í Belgíu.
Kaþólska kirkjan, sem flestir Belg-
ar tilheyra, hefur barist gegn því
að fóstureyðingar verði leyfðar.
Lögin sem samþykkt voru heimila
fóstureyðingu á fyrstu tólf vikum
meðgöngu ef líklegt er að fæðing-
in geti valdið móðurinni umtals-
verðri streitu.
Baldvin konungur sagði að það
stríddi gegn trú sinni og samvisku
að undirrita lögin. Ljóst þykir að
með þessu hafði Baldvin tekið per-
sónulega afstöðu sína fram yfir
hlutverk sitt sem þjóðhöfðingja og
að mati sumra er líklegt að þetta
atvik leiði til breyttra viðhorfa
meðal almennings til embættis
konungs. Baldvin sem hefur ríkt í
39 ár, og drottning hans, Fabiola,
hafa notið mikilla vinsælda meðal
þegna sinna og verið sameiningar-
tákn fyrir þjóðirnar tvær, Vallóna
og Flæmingja, sem byggja Belgíu.
Afsögn Baldvins, sem byggist á
82. grein stjórnarskrárinnar, hefur
verið kölluð misnotkun og hártog-
un á greininni en hún gerir ráð
fyrir því að ríkisstjórnin taki við
völdum konungs, ef hann getur
ekki sinnt embætti vegna veikinda,
andlegra eða likamlegra.
Baldvin Belgíukonungur
Reuter
ályktun þar sem sovéski herinn er
sakaður um að hafa reynt að koma
aftur á því stjórnskipulagi sem var
í Litháen fyrir kosningarnar í ríkinu
í febrúar. „Sú ógnun er því fyrir
hendi að réttkjörinni stjórn landsins
verði steypt,“ segir í ályktuninni.
Litháísk sendinefnd kom til
Moskvu á þriðjudag til að ræða við
sovésk stjórnvöld um tillögur Litháa
varðandi samningaviðræður.
Nefndin ræddi í gær við Alexander
Jakovlev, sem á sæti í Forsætisráði
Sovétríkjanna, en talsmaður upp-
lýsingaskrifstofu litháíska þingsins
sagði að fundurinn hefði ekki borið
árangur. Nefndinni var synjað um
fund með Dmítrí Jasov, varnar-
málaráðherra Sovétríkjanna, um
málefni ungra Litháa sem neita að
gegna herþjónustu í sovéska hern-
um. Fundi hennar með sovéska inn-
anríkisráðherranum, Vadím Bak-
atín, var aflýst.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti með 416 atkvæðum
gegn þremur ályktun þar sem skor-
að er á George Bush Bandaríkjafor-
setá að búa sig undir að koma sem
fyrst á eðlilegum samskiptum við
nýju stjórnina í Litháen. Forsetinn
er ekki hvattur til þess að viður-
kenna sjáifstæði Eystrasaltsríkisins
þegar í stað eins og margir repú-
biikanar hafa lagt til.