Morgunblaðið - 05.04.1990, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1990
Mikligarður
yfirtekur
rekstur KRON
MIKLIGARÐUR hf. yfirtekur
verslunarrekstur KRON frá 1.
apríl síðastliðnum að telja, sam-
kvæmt samþykkt fundar fram-
kvæmdastjórnar Sambandsins á
mánudag og samstarfssamningi
Sambandsins og KRON.
Á fundi framkvæmdastjórnar
Sambandsins mánudaginn 2. apn'l
síðastliðinn var ákveðið að Sam-
bandið legði fram 102,1 milljóna
króna hlutafé í Miklagarð hf. í þess-
ari samþykkt framkvæmdastjórnar
er einnig gert ráð fyrir að aðrir.
aðilar leggi fram álíka fjárhæð, um
100 milljónir króna, segir í frétt frá
Sambandinu.
Sinfóníuhljómsveit:
Tónleikum í
kvöld aflýst
Holræsalögn viðÆgissíðu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞESSI voldugu holræsarör voru í gær flutt að Ægisíðunni í Reykjavík en þau eiga að fara í fyrsta áfanga holræsalagnar meðfram Ægissíðu
og Faxaskjóli að Þormóðsstaðavör. Að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar aðstoðargatnamálastjóra voru rörin keypt frá Noregi, þar sem ekki
var hægt að framleiða nógu stór rör hér á landi. Þessi fyrsti áfangi holræsalagnarinnar er um 1.000 metrar að lengd og verður væntanlega lokið
í haust. Þá ættu Reykvíkingar að geta séð aftur út á sjóinn af Ægissíðunni en moldarhraukar hafa skyggt á útsýnið undanfarið.
TÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveit-
ar Islands, sem vera áttu í kvöld,
heíur verið frestað.
Gunnar Egilsson, skrifstofustjóri
Sinfóníuhljómsveitarinnar, sagði
ástæðuna vera þá að kór sem syngja
átti í flutningi á 13. sinfóníu Sjosta-
kovitsj við ljóð Evtusjenko á rússn-
esku, hefði ekki verið tilbúinn og því
hefði stjórnandinn, Eri Klas frá Eist-
landi, tekið þessa ákvörðun, en auk
hans hafði bassasöngvarinn Aage
Haugland verið fenginn til að syngja
á tónleikunum.
Flutningur sinfóníu Sjostakovitsj
átti að vera aðalefni tónleikanna.
Gunnar sagði að vonir stæðu til áð
hægt yrði að halda þá í heild sinni
í janúar á næsta ári, en ekki væri
hægt að fullyrða um það að svo
stöddu, þar sem Klas og Haugland
væru önnum kafnir og bókaðir langt
fram í tímann.
Æfíng lögreglu:
Gíslar frels-
aðir úr klóm
byssumanns
LÖGREGLAN í Kópavogi æfði í
gær viðbrögð vegna gíslatöku
vopnaðs manns. Æfð voru bæði
viðbrögð lögreglunnar í Kópa-
vogi og hvernig gengur að kalla
út sérsveit lögreglunnar í
Reykjavík og fela henni aðgerðir
á vettvangi.
Æfingin fólst í því, að laust upp
úr klukkan sex í gær kom tilkynn-
ing um ferðir vopnaðs manns í
Smárahvammslandi. Við athugun
komst lögreglan að því að maðurinn
hafði tekið tvo menn í gíslingu.
Ný reglugerð um útflutning á ferskum, imiium físki:
Fiskurinn afhendist inn-
an sjö daga frá veiðidegi
FISKUR, sem er hausaður, flattur, flakaður, eða unninn á annan hátt
og ætlaður til sölu eða verkunar, sem ekki er í beinu framhaldi af
annarri vinnslu, verður að komast í hendur kaupanda eða viðtakanda
á vinnslu- eða dreifingarstað eigi síðar en 7 dögum eftir að fiskurinn
var veiddur, segir meðal annars í reglugerð, sem sjávarútvegsráðuneyt-
ið gaf út í gær. Ráðuneytið boðar jaínframt reglur um síðasta söludag
á óunnum fiski. Reglúgerðin öðlast gildi 9. apríl næstkomandi og þá
fellur jaíhframt úr gildi reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins frá 2.
mars sl., sem bannaði útflutning á ferskum, flöttum fiski með skipum.
Jón Ásbjörnsson fiskútflytjandi
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann teldi reglugerðina, sem
sjávarútvegsráðuneytið setti í gær,
mjög eðlilega að mörgu leyti. „Eg
fagna þessari reglugerð mjög og
geri ráð fyrir að með henni falli um
sjálfa sig málshöfðun vegna banns
við útflutningi á ferskum, flöttum
fiski með skipum,“ sagði Jón. Hann
sagði að útflytjendur á ferskum,
flöttum fiski hefðu ekki orðið fyrir
miklum skaða vegna þessa banns,
þar sem utanríkisráðherra hefði
leyft þeim að flytja út léttsaltaðan
fisk til 8. apríl nk.
í reglugerðinni, sem sjávarút-
vegsráðuneytið setti í gær, segir
að Ríkismat sjávarafurða hafi eftir-
lit með vinnslu á ferskum, unnum
fiski og tilkynna skuli skrifstofu
stofnunarinnar um útflutning á
þessum fiski með hæfílegum fyrir-
vara. í tilkynningunni skuli koma
fram hvaða dag fiskurinn var veidd-
ur, hvar hann sé unninn og hvernig
honum verði komið til kaupanda eða
viðtakanda innan settra tímamarka.
Ríkismatið gefur út útflutningsvott-
orð fyrir fiskinn, m.a. á grundvelli
mats á því hvort hann nái til viðtak-
anda eða kaupanda innan 7 daga
Utflutningsverðmæt-
ið 1,4 milljarði minna
Útflutningsverðmæti loðnuaf-
urða á þessari vertíð er um 4,6
milljarðar króna, eða 1.400
milljónum minna en á síðustu
vertíð. Þessari vertíð er að öll-
um líkindum lokið, þar sem eng-
in loðna hefúr fúndist undan-
farna daga. Islensku loðnuskipin
hafa veitt um 660 þúsund tonn
af loðnu á þessari vertíð og hef-
ur því ekki tekist að veiða um
100 þúsund tonn af loðnukvóta
sínum.
íslensku loðnuskipin lönduðu um
25 þúsund tonnum af loðnu erlend-
is á þessari vertíð en á síðustu
vertíð lönduðu þau um 57 þúsund
tonnum erlendis. íslensku loðnu-
verksmiðjurnar framleiddu um 110
þúsund tonn af loðnumjöli á þess-
ari vertíð fyrir um 3,3 milljarða
króna og um 61 þúsund tonn af
loðnulýsi fyrir um 900 milljónir. Á
síðustu vertið framleiddu þær hins
vegar tæp 150 þúsund tonn af
mjöli fyrir 4 milljarða og rúm 70
þúsund tonn af lýsi fyrir 1,5 millj-
arða.
Fryst voru um 2 þúsund tonn
af loðnu á þessari vertíð en á
síðustu vertíð voru fryst 4.075 tonn
af loðnu fyrir um 170 milljónir
króna. Á þessari vertíð voru fryst
2.250 tonn af loðnuhrognum fyrir
260 milljónir króna en á síðustu
vertíð voru fryst um 3 þúsund tonn
af loðnuhrognum fyrir um 290
milljónir króna.'
frá því hanh var veiddur.
í fréttatilkynningu frá sjávarút-
vegsráðuneytingu segir að megin-
niðurstaða nýrrar tilraunar Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins á
geymsluþoli flatts þorsks í ís sé sú
að á 10. degi sé komin fram
skemmd í fiskinum, samkvæmt
skynmati. Hins vegar sé tekið fram
í skýrslu stofnunarinnar að hér sé
um hámarksgeymsluþol að ræða, Loðnu landað.
miðað við bestu aðstæður.
Loðnuafiirðir á þessari vertíð:
Frumvarp um sljórn fískveiða:
Níu alþingismenn hafa óskað
efitir umsögn Lagastofiiunar
Vilja fá skorið úr um hvort aftiotaréttur á fískistofhum geti myndað eignarrétt
NÍU þingmenn úr ýmsum flokkum, þar af fimm stjórnarþingmenn,
hafa óskað eftir því við formenn sjávarútvegsnefnda beggja þing-
deilda að nokkur atriði í frumvarpi sjávarútvegsráðherra um stjórn
fiskveiða verði borin undir Lagastofnun Háskólans. Vilja þingmenn-
irnir meðal annars fá úr því skorið, hvort ákvæði frumvarpsins
varðandi valdsvið ráðherra stangist á við almenn sjónarmið um
réttaröryggi. Jafnframt óska þingmennirnir eftir umsögn Lagastofn-
unar um það atriði fimmvarpsins, að nytjastofnar við landið séu
sameign þjóðarinnar og spyrja hvort tímabundinn afnotaréttur físki-
stofna myndi aldrei einstaklingsbundinn og stjórnarskrárvarinn
eignarrétt.
I fyrstu grein stjórnarfrumvarps
um stjóm fiskveiða segir, að nytja-
stofnar á íslandsmiðum séu sam-
eign íslensku þjóðarinnar. í bréfi
þingmannanna níu er óskað eftir
■þ'vl,' ‘ að' 'Lagastofnnn' ■ffáskóíans"
gefí umsögn sína um þetta ákvæði
og hvort tímabundinn og takmark-
aður afnotaréttur fískistofna myndi
aldrei einstaklingsbundna og
stjómarskrárvarða eign. Einnig er
"spurt-hvort það-atriði;-að-gildistími-
laganna er ekki bundinn í frum-
varpinu, útiloki að slíkur eignar-
réttur myndist í framtíðinni.
í frumvarpinu er einnig gert ráð
fyrir að sjávarútvegsráðherra verði
heimilt að ákveða með' reglugerð
þann heildarafla, sem veiða megi
úr nytjastofnum við iandið. Auk
þess er gert ráð fyrir því að ráð-
herra úthluti veiðiheimildum til ein-
stakra skipa og skipti þar með öll-
um þeim afla, sem hann ákveður
að veiða megi við landið. í bréfinu
óska þingmennirnir einnig eftir því
að Lagastofnun fjalli um þessi at-
riði og spyija hvort eðlilegt sé að
ráðherra hafi einnig allt eftirlit með
- -framkvæmd -laganim-, -að -hann -fái -
nánast skattlagningarvald til að
kosta eftirlitið og heimild til að
beita refsitengdum viðurlögum
vegna brota.
Þingmennirnir sem óska eftir
umsögn Lagastofnunar eru:
Hreggviður Jónsson, Frjálslyndum
hægri mönnum, Skúli Alexanders-
son, Alþýðubandalagi, Jóhann A.
Jónsson, Samtökum um jafnrétti
og félagshyggju, Karve! Pálmason,
Alþýðuflokki, Danfríður Skarphéð-
insdóttir, Kvennalista, Guðni
Ágústsson, Framsóknarflokki, Geir
Gunnarsson, Alþýðubandalagi,
Þórhiidur Þorleifsdóttir, Kvenna-
lista og Kristinn Pétursson, Sjálf-
-at-æðisflokkl.--------------------