Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
Fiskveiðasjóður:
Tap vegna fiskeldis er
allt að 200 milljónir kr.
ÁÆTLAÐ tap Fiskveiðasjóðs vegna ábyrgðar á lánum til fískeldisfyrir-
tækja er um 150 tij 200 milljónir að sögn Krisfjáns Ragnarssonar, fram-
kvæmdastjóra LÍÚ. Hann segist ekki hafa unnið að meira óþurftar
verki en því að þaka þátt í því innan stjórnar Fiskveiðasjóðs að sam-
þykkja þessar ábyrgðir. Jón Ingvarsson, formaður stjórnar SH, segir
að SH hafi lagt tugi milljóna í fiskeldi og reynslan af því sé slík, að
frekara fé verði ekki lagt fískeldisfyrirtæki í nánustu framtíð
Friðrik Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri fiskeldis- og hafbeitarstöðva,
sagði í frétt í Morgunblaðinu síðast-
iiðinn sunnudag, að það skorti skiln-
ing og stuðning hagsmunaðila í sjáv-
arútvegi á eldi sjávarfiska.
„Árið 1985 átti fiskeldi að bjarga
öllu í efnahag landsins," segir Kristj-
án Ragnarsson. „Stjómvöld beittu
sér þá fyrir breytingu á lögum um
Fiskveiðasjóð, sem heimiluðu honum
að veita ábyrgð fyrir lánum teknum
vegna fískeldis. Illu heilli samþykkti
stjórn sjóðsins að gera svo. Það ár
var gengið í ábyrgð fyrir lánum 6
fyrirtækja sem nema að upphæð í
dag 760 milljónum króna. Þrjújoess-
ara fyrirtækja eru gjaldþrota, Árlax,
VEÐUR
íslandslax og Pólarlax og vegna
þeirra, og reyndar hinna þriggja,
Fiskeldi Grindavíkur, ísnó og Voga-
lax, líka, hafa fallið á sjóðinn 536
milljónir króna. Árið 1986 var enn
sótt í Fiskveiðasjóð eftir ábyrgðum
vegna lána til fiskeldis en meirihluti
stjórnar sjóðsins hafnaði þeim. Eg
tel að í allt muni sjóðurinn að minnsta
kosti tapa 150 til 200 milljónum á
þessum ábyrgðum með tilliti til verð-
mæta veða. Ég tel mig ekki hafa
unnið að meira óþurftar verki, en
því að samþykkja þessar ábyrgðir.
Ég veit ekki hvað stuðningur er, telj-
ist það ekki stuðningur að sjóðir sjáv-
arútvegsins veiti slíkar ábyrgðir, sem
þama var gert. Því miður voru allar
áætlanir um uppbyggingu fiskeldis
byggðar á röngum forsendum og ég
sé ekki ástæðu til að trúa frekari
spám um bjarta framtíð. Reynslan
hefur kennt mér annað,“ segir Kristj-
án Ragnarsson.
„Ég vísa því algjörlega á bug, að
hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafi
ekki sýnt fiskeldi nægilegan áhuga,“
segir Jón Ingvarsson. „SH hefur lagt
tugi milljóna í fiskeldi meðal annars
í tvö fyrirtæki. Annað þeirra, Sjóeldi
er gjaldþrota, en hitt er Vogalax.
SH hefur ennfremur veitt félags-
mönnum sínum lán til kaupa á hluta-
bréfum í fiskeldisfyrirtækjum og
veitt fiskeldisfyrirtækjum, sem
tengjast SH rekstrarlán. Þá höfum
við lagt í umtalsverðan kostnað við
sölu og kynningu á eldisfiski. Saga
fiskeldisins sýnir okkur hins vegar
að það er eins gott að fara varlega
í íjárfestingum innan þess og SH
mun ekki leggja fé frekar en orðið er
í fiskeldi í náinni framtíð," segir Jón
Ingvarsson.
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 5. APRIL
YFIRLIT í GÆR: Suður og suðvestur af landinu er víðáttumikið
lægðarsvæði sem þokast austsuðaustur, en vaxandi hæð yfir
Grænlandi.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt á landinu, víðast stinningskaldi eða
allhvasst. Él við norðurströndina og á Austurlandi en léttskýjað á
Vestur- og Suðvesturlandi. Frost 1-5 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- og norðaustan átt á landinu. Él
við norður- og austurströndina en léttskýjað á Vestur- og Suðvest-
urlandi. Hiti nálægt frostmarki að deginum suðaustanlands en
annars frost víða á bilinu 2-7 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg norðlæg átt og smáél
norðaustanlands í fyrstu en annars hæg breytileg átt og léttskýj-
að. Frost 2-6 stig að deginum en víða talsvert næturfrost.
TAKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
■jO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
— Þokumóða
5 , ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEÐUR IfÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að isl. tíma hiti veður Akureyri +8 léttskýjað Reykjavik +4 snjókoma
Bergen vantar
Helsinki 8 léttskýjað
Kaupmannah. 6 haglél
Narssarssuaq 3 léttskýjað
Nuuk *8 snjóél
Osló 2 skýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Þórshöfn 6 háifskýjað
Algarve 16 alskýjað
Amsterdam 6 skúrir
Barcelona 13 skýjað
Berlín 8 skýjað
Chicago 3 skýjað
Feneyjar 15 rigning
Frankfurt 6 skúrir
Glasgow 6 léttskýjað
Hamborg 8 skýjað
Las Palmas 22 hálfskýjað
London 8 úrkoma í grennd
Los Angeles 16 skýjað
Lúxemborg 5 skýjað
Madrid 10 alskýjað
Malaga 18 mistur
Mallorca 18 skýjað
Montreal 3 rigning
New York 6 skýjað
Orlando 11 heiðskirt
París 9 skýjað
Róm 16 skýjað
Vín 10 rigning
Washington 4 skýjað
Winnipeg +0 alskýjað
Morgunblaðið/Sigurður Sverrisson
Guðmundur Lárusson, framkvæmdastjóri Baldurs, t.h. afhendir
stýrimanni sínum íiána með einkennismerki skipsins, Baldursbrá,
og biður hann um að draga hann að hún. Á milli þeirra sést Stef-
án Skarphéðinsson, formaður Flóabátsins Baldurs hf. Lengst til
vinstri er Þorgeir Jósefsson einn af fulltrúum skipasmíðastöðvar-
innar.
Ný BreiðaQarðarfeija afhent:
Vegur yfir Breiðafjörð
- sagði Stefán Skarphéðinsson for-
maður bygginganeftidar Baldurs
BREIÐAFJARÐARFERJAN m/s Baldur var afhent í gær og fer í
sína fyrstu áætlunarferð á milli Stykkishólms og Bijánslækjar á
fostudag. Jósef H. Þorgeirsson, framkvæmdasljóri skipasmíðastöðv-
ar Þorgeirs og Ellerts hf., afhenti Stefáni Skarphéðinssyni, sýslu-
manni Barðstrendinga og formanni byggingarnefhdar Flóabátsins
Baldurs hf., skipasmíðaskírteini og Ieiðabréf. „Þetta er stór stund
fyrir okkur Vestfírðinga, við erum að fá veg yfir Breiðafjörð,"
sagði Stefán þegar hann tók við skipinu. Breiðafjarðarferjan kost-
ar rúmar 250 milljónir kr.
Við athöfn um borð í skipinu á
Akranesi í gær lýsti Jósef skipinu,
en það er nýsmíði númer 38 frá
Þorgeiri og Ellert hf. Því var hleypt
af stokkunum 2. desember sl. og
hlaut þá nafnið Baldur, eins og
fyrri skip sömu útgerðar. Baldur
er farþega- og bílferja og getur
flutt 190 farþega og 20 fólksbíla,
eða 3 vörubíla og 12 fólksbíla.
Mesta lengd þess er 39,4 metrar,
breidd 9,2 metrar og dýpt að aðal-
þilfari 4,2 metrar. Skipið mælist
301,7 rúmlestir. Bifreiðaþilfar er
yfirbyggt og geta farartæki ekið
um borð og frá borði. í skipinu eru
4 farþegasalir, þar af einn með
veitingaaðstöðu og hvílum fyrir
farþega.
I skipinu eru tvær Caterpillar
aðalvélar, 705 hestöfl hvor. Vélar-
rúm er búið mikilli sjálfvirkni þann-
ig að það geti gengið ómannað og
er viðvörunarkerfi tengt vélum.
Skipatækni hf. sá um frumhönnun,
útboð og annan undirbúning að
smíði skipsins en það er að öllu
leyti smíðað af Þorgeiri og Ellert
hf.
Stefán Skarphéðinsson sagði að
með tilkomu þessa skips væri hægt
að segja að Vestfjarðakjálkinn
færðist nær meginlandinu og að
íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum
tækju stökk inn í nútímann. Hann
rakti byggingarsögu skipsins. Und-
irbúningur hefur staðið yfir frá því
árið 1983 en smíði skipsins var
boðin út 1987. Upphafleg kostnað-
aráætlun hljóðaði upp á 156,7 millj-
ónir kr. en endanlegt verð skipsins
samkvæmt lokauppgjöri á milli
skipasmíðastöðvarinnar og stjómar
Flóabátsins Baldurs hf. er 250,4
milljónir kr.
Við lokauppgjör þurfti kaupand-
inn að greiða 15 milljónir kr. Flóa-
báturinn Baldur hf. hafði yfirlýs-
ingu frá íjármálaráðherra um að
hann myndi beita sér fyrir því að
fá þá fjárhæð inn á lánsfjárlög síðar
á árinu en viðskiptabanki félags-
ins, Búnaðarbanki íslands, var ekki
tilbúinn til að lána þessa fjárhæð
út á þessa yfirlýsingu samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins og
tókst stjómendum útgerðarinnar
að fá lán hjá Sparisjóðnum á Pat-
reksfirði til að geta fengið skipið
afhent.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra gat þess í ræðu við
afhendinguna að innan fárra daga
kæmi nýtt skip til siglinga á Eyja-
fírði og fljótlega yrði tekin ákvörð-
un um smíði nýrrar Vestmanna-
eyjaferju.
Nýja Breiðafjarðarferjan fer
strax í áætlun gamla Baldurs sem
þjónað hefur Breiðfirðingum í 22
ár. Ný áætlun tekur gildi 15. maí
og eftir það verða tvær ferðir á
dag, farið verður frá Stykkishólmi
klukkan 10 og 16.30, og komið við
í Flatey í báðum leiðum. Siglingin
yfir tekur tvær og hálfa klukku-
stund. Samkvæmt núgildandi
gjaldskrá kostar ferðin 850 krónur
fyrir einstakling sem ekki er með
bíl, 550 krónur fyrir hvern einstakl-
ing í bíl og 2.450 krónur fyrir
fólksbíl.
í •< ; "
1® UHir
’ ~r
i m ‘ Zm
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
M/s Baldur, nýja BreiðaQarðarferjan, siglir inn í Reykjavíkurhöfin.