Morgunblaðið - 05.04.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
11
_________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Musica Nova stóð fyrir tónleik-
um í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar sl. þriðjudag en þar komu
fram Elísabet Waage hörpuleikari
og Peter Verduyn Lunel flautu-
leikari og fluttu verk eftir Henk
Badings, Robert Dick, Bernard
Andrés, Willem F. Bon, Isang Yun
og frumfluttu „Næturljóð á
hörpu“, en svo heitir nýtt verk
sem Jón Nordal samdi sérstaklega
fyrir Elísabetu.
Næturljóð á hörpu er þokka-
fullt verk þar sem m.a. bregður
fyrir stefjabrotum úr íslensku
þjóðlagi, svona til að minna á að
á liðnum tíma var koma hörpu
tilhlökkunarefni ekki síður en nú.
Elísabet lék verkið á sannfær-
andi máta en hún tekur miklum
framförum sem einleikari og hef-
ur eflst að krafti og skerpu svo
sem vera ber hjá góðum tónlistar-
manni. Þetta kom best fram í
Ballöðu Henks Badings og gam-
ansömu „myndskoðunarverki",
Narthex, eftir Bernard Andrés,
en ekki síst í ágætu tónverki,
„Novelette" eftir Isang Yun.
Flautuleikarinn Peter Verduyn
Lunel er feikna góður á flautuna
sína og leikur sér með alis konar
tónblæbrigði og hefur á valdi sínu
ótrúlegan styrkleikamun, eins og
kom fram í einleiksverki fyrir
flautu, „Afterlight“, eftir Robert
Dick.
Það má endalaust ræða um það
hvort tæknilegar tilraunir, t.d.
með tónmyndun, geti í sjálfu sér
þjónað sem listrænt markmið eða
hvort þær eigi að vera tæki til
að túlka eitthvað sem er æðra og
utan við það venjubundna. Þarna
er „blindgata" sem margir hafa
ratað í en oftlega ekki komist út
úr og nú leita mörg nútímatón-
skáld aftur til liðins tíma, því
hugsanlegt er að í leit eftir nýj-
ungum hafi eitthvað mikilvægt
gleymst, eitthvað sem ekki liggur
í augum uppi, eitthvað sem ekki
verður lært eða skilgreint, aðeins
lifað.
Þessi hugleiðing varðar inntak
tónlistarinnar en flutningur Elísa-
betar og Lunels var mjög góður,
enda eru hér á ferðinni sérlega
efnilegir og þegar góðir lista-
menn.
JÓNAS SEN
________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Fjórðu tónleikar Evrópusam-
bands píanókennara (EPTA) voru
haidnir í Bústaðakirkju sl. mánu-
dag. Þetta voru aðrir tónleikar
Jónasar Sen, en á efnisskránni
voru verk eftir Brahms, Skijabín
og Liszt. Fyrstu tvö verkin voru
rapsódíur eftir Brahms, sú fyrri í
h-moll en seinni í g-moll. Rapsód-
íurnar voru vel leiknar en helst til
í of miklum hraða, einkum sú
fyrri og fyrir bragðið var fjarri
sá syngjandi tignarleiki og alvara,
sem gefur tónlist Brahms sér-
stakan blæ.
Annað verkið var 3. sónatan
eftir Sktjabín. Þijár fyrstu sónö-
turnar þykja með ýmsum hætti
slakar og í þeirri þriðju hafði
Skijabín átt í nokkrum vandræð-
um með hugmyndir. Það var í
fjórðu og fimmtu sónötunni sem
honum tekst að ná valdi á því
tónmáli er síðar blómstraði í
síðustu sónötum, sem eru í raun
dulræn tónaljóð.
Jónas iék sónötuna mjög vel
en það var í verkunum eftir Liszt
sem Jónas lék af glæsibrag. Tón-
verkin voru Vallée d’Oberman,
þriðja æfingin úr „yfirnáttú'rulegu
æfingunum" og „Dante-sónatan“.
Jónas hefur mikla tækni og leikör-
yggi og sterka tilfinningu fyrir
formskipan, sem hann útfærði
mjög fallega í Liszt. Án þess að
nokkru verði spáð í ókominn tíma,
má ætla að Jónasi Sen takist að
ná því sæti, er margur vildi helga
sér, að vera mestur meðal jafn-
ingja.
Þessir EPTA-tónleikar munu
verða endurteknir næstkomandi
Jónas Sen
mánudag í tónleikasal Garðabæj-
ar, Kirkjuhvoli, og mun Jónas þá
leika á hinn nýja „Fazioli“-flygil
þeirra Garðbæinga.
Kammersveit Reykjavíkur:
Fjórðu og síðustu tónleikar vetrarins
ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
DÁLKAHEIT
barnagögn föt 1 2
húsgögn 3
heimilistæki 4
tölvur 5
hjói 6
atvinna 7
húsnæöi 8
bækur 9
safnarar 10
farartæki 11
dýrahald 12
íþróttir 13
tónlist 14
ýmislegt 15
okkar á milli 16
Blaðið kemur út á
hverjum miðviku-
degi, kostar 90 kr. og
fæst á blaðsölustöð-
um. Ef þú hringir til
okkar fyrir sunnudag,
þá kemst auglýsingin
þín í næsta blað.
Ef fólk vill ekki, ein-
hverra hluta vegna,
gefa upp síma í aug-
lýsingum sínum, þá
getum við tekið við til-
boðum og upplýsing-
um í pósthólf okkar
nr. 8925. Geta þá aug-
lýsendur haft samband
við okkur eftir birtingu
og fengið póst sinn
afhendan á skrifstofu
okkar eða sendan heim
gegn greiðslu póst-
burðargjalds.
Pósthólf okkar er 8925
Klippift út og sendift til okkar
EYÐUBLAÐ - ókeypis auglýsing fyrir einstaklinga
Sími 625-444, allan sólarhringinn
Búnaðarbankinn hefur til sölu verð-
tryggð skuldabréf Lýsingar hf. sem er í
eigu Búnaðarbanka íslands, Landsbanka
íslands, Vátiyggingafélags íslands hf. og
Sjóvá-Almennra hf.
, Morgunblaðið/Sverrir
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Hlíf Sigurjónsdóttir, iíðluleikari,
Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari, Sarah Buckley, lágfiðluleikari, Gary
McBretney, sellóleikari, og Jóhanna V. Þórhallsdóttir, söngkona.
NÆSTKOMANDI sunnudag, 8.
apríl, mun Kammersveit
Reykjavíkur halda fjórðu og
síðustu tónleika sína í Reykjavík
á þessum vetri. Tónleikarnir verða
haldnir í Gamla bíói og heflast
þeir kl. 15. Á efiiisskránni verða
þrjú verk: „Á gleðistundu" eftir
Atla Ileimi Sveinsson, „Tengsl“
eftir Hjálmar H. Ragnarsson við
ljóð Stefáns Harðar Grímssonar
og „Silungakvintettinn" eftir
Schubert. Atli Heimir samdi verk-
ið „Á gleðistundu" l'yrir Kammer-
sveitina til fiutnings við vígslu
Borgarleikhússins í október sl.
Verkið er skrifað fyrir 10 hljóð-
færaleikara og stjórnar Guðmund-
ur Óli Gunnarsson ilutningi verks-
ins. „Tengsl" Hjálmars voru samin
1988. Kammersveitin flutti þetta
verk meðal annars á tónleikaferð
sinni á Bretlandi sl. liaust. Ein-
söngvari í þessu verki er Jóhauna
V. Þórhallsdóttir.
Tónleikar Kammersveitarinnar í
vetur hafa einkennst af verkum
Schuberts og lýkur þeirri röð með
flutningi hins vinsæla Silungakvint-
etts. Píanóleikari verður Selma Guð-
mundsdóttir, en aðrir flytjendur í
kvintettinum eru: Rut -Ingólfsdóttir,
fiðluleikari, Sarah Buckley, lágfiðlu-
leikari, Gary McBretney, sellóleikari,
og Valur Pálsson, kontrabassaleik-
ari.
Að loknu starfsárinu í Reykjavík
hyggst Kammersveitin ferðast um
landið og leika meðal annars Silung-
akvintettinn fyrir tónlistaráhugafólk
fyrir austan og vestan.
(Fréttatilkynning)
Hvert bréf er að nafnvirði 100.000 kr. og
er selt með afföllum, sem tryggja kaup-
endum 7,5% ársávöxtun umfram verð-
bólgu.
Til sölu eru tveir flokkar:
1. flokkur A 1990
- Til greiðslu 15. október 1993.
Lýsirig hf. i. flokkur B 1990
Til greiðslu 15. október 1994.
BÚNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI