Morgunblaðið - 05.04.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990
15
Beint dagflug
með Veröla
til Costa del Sol
- og frábær fararstjórn
Veröld býöur þér vikulegar brottfarir í sólina á Costa del Sol í dagflugi. Þannig getur
þú ferðast óþreyttur á besta tíma dagsins og notið ferðarinnar. Samhentur hópur
fararstjóra, Hemmi Gunn, Sigurlaug, Jens, Kristín og Hrafnhildur, tryggja þér frá-
bæra þjónustu í fríinu og við höfum valið vönduðustu
gististaðina fyrir farþega okkar.
Sunset Beach
Veröld býður þér frábært verð í júlí á þenn-
an glæsilega gististað. Fyrir 2 í íbúð þann
12. júlí í 2 vikur kostar aðeins kr.
52.900,-
pr. mann.
Benal Beach
Veröld býður farþegum sínum sérvaldar
íbúðir á Benal Beach í sumarleyfinu með
glæsilegum aðbúnaði, bæði stúdíó og íbúðir
með einu svefnherbergi. Verð fyrir 4ra
manna fjölskyldu, 12. júlí í 2 vikur, kr.
162.600,-
HJA VERÖLD FÆKÐL MFIKA FYRIR PENINGANA
n .>
la>l
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVIK. SIMI: (91X622011 & 622200.
■HMFARK«RT [fif]
Opið bréf til Olínu
Þorvarðardóttur
eftir Matthías
Eggertsson
í 3. tbl. búnaðarblaðsins Freys
1990 var að ósk sr. Halldórs Gunn-
arssonar í Holti birt greinargerð
sem þú sendir útvarpsráði í tilefni
af bréfi nokkurra starfsmanna Bún-
aðarfélags íslands vegna viðtals
þíns við Gunnar Bjarnason, fyrrver-
andi ráðunaut, í þættinum „Fólkið
í landinu" 18. nóvember sl.
í sjónvarpsviðtalinu heldur Gunn-
ar Bjarnason því m.a. fram að hann
hafi verið rekinn úr starfi skóla-
stjóra Bændaskólans á Hólum
vegna þess hve ástand staðarins
var slæmt þegar hann tók við hon-
um. í greinargerð þinni tekur þú
eindregið undir þetta sjónarmið.
Atburðir þeir sém hér um ræðir
gerðust árin 1961 og 1962 þegar
þú varst í frumbernsku og hafðir
þar af leiðandi engin tök á að fylgj-
ast með hvað þarna gerðist. Þegar
þú fjallar um þessi mál í greinar-
gerð til útvarpsráðs 28 árum síðar
lætur þú þér nægja að kynna þér
málin einungis frá einni hlið, sjónar-
hóli Gunnars Bjarnasonar. Þó að
málflutningur Gunnars sé ógeð-
felldur, þar eð hann reynir að fegra
málstað sinn á kostnað forvera síns
á Holum, Kristjáns Karlssonar, þá
er hann skiljanlegur. Það er mann-
legt að reyna að réttlæta sjálfan sig.
Það er hins vegar óskiljanlegt
að þú skulir gera þennan málstað
Gunnars Bjarnasonar að þínum í
greinargerð þinni til útvarpsráðs.
Þar örlar ekki á því að þú reynir
að kynna þér Hólamál Gunnars
Bjamasonar af neinni yfirsýn held-
ur tekur enn dýpra í árinni en Gunn-
ar við að koma höggi á Kristján
Karlsson. Með þessu afhjúpar þú
dómgreindarleysi þitt. Sú rök-
semdafærsla þín að málflutningur
Gunnras Bjarnasonar standist þar
sem honum hafi ekki verið svarað
bætir þar ekki um. Það skal tekið
fram að þú leyfðir sjálf að greinar-
gérð þín yrði birt og kaust þar með
að hún kæmi fyrir almenningssjónir
til umfjöllunar.
Út af fyrir sig er hveijum frjálst
að fljúga eins og hann er fjaðrað-
ur. Það leyfist margt í nafni skoð-
ana- og tjáningarfrelsis. Hins vegar
hefur þú nú nýlega ákveðið að sækj-
ast eftir að verða leiðtogi fyrir sam-
tökum félagshyggjumanna í stjórn
Matthías Eggertsson
„Það leyfist margt í
nafiii skoðana- og tján-
ingarfrelsis.“
Reykjavíkurborgar eftir næstu
kosningar. Ég fagna því ef sjónar-
mið félagshyggju fá þar aukin
áhrif. Til að standa í forystu þeirrar
baráttu þarf margháttaðan hæfi-
leika, þar á meðal bæði sterka dóm-
greind og jafnvægi hugans. Mér
sýnist að þú hafir hvorugt til að
bera.
Höfundur er ritstjóri
Búnaðarblaðsins Freys.
rtma'j
V^MORAy
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
^ meiri ánægja^
Úr gagnrýni
Ó.G. Þjv. „Tók áhorfendur með trompi.... slíkur var krafturinn..."
J.Á. Mbl. „Kórinn...sem fyrr stórkostlega góður.
(Um söngvara)„...mjög góður...“....af glaesibrag..."
„...frábærlega vel (sungið og leikið)" .að bera í bakkafullan lækinn að
lofa isl. óp. fyrir þessa frábæru sýningu, en það verður að segjast...“.
Á.M. DV. „Fagnaðarlátum áheyrenda ætlaði aldrei að linna...“
Sig. St. Tíminn „...tóku sýningunni forkunnarvel...“„klöppuðu...stöppuðu
og hrópuðu. Ég mæli með þessari sýningu..."
ÍSLENSKA OPERAN
____iiiii
—..KraHaverkastofnunin" Sig. St. Tím.
PAGLIACCI
..erenn einn listsigur." J.Á. Mbl.
CARMINA BURANA
„Sem sagt. konungleg skemmtun" Ó.G. Þjv.
Föstudag 6. apríl
Næstsíðasta sýning
Laugardag 7. apríl
Síðasta sýning
Sýningar kl. 20.00
Miðasala opin alla daga
frákl. 15.00-19.00,
sýningardaga til kl. 20.00.
Sími 11475.
Miðaverð kr. 2.400,-
16 ára og yngri kr. 1.200,-